Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 4

Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 4
Allt útlit fyrir góða grassprettu í sumar Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ held ég að fari að gerast mjög hratt í næstu viku, upp úr helginni. Nú eru hlýindi fram- undan, sýnist mér,“ segir Páll Bergþórsson, fyrrverandi veður- stofustjóri, um hvenær gera megi ráð fyrir að tún og garðar fari að grænka í ár. Páll leggur nú venju samkvæmt fram grassprettuspá en hún er í stuttu máli sú að útlit er fyrir góða grassprettu í sumar. Það sé einkum afar mildum vetri að þakka. Vetrarhitinn veitir vísbendingu „Það er vetrarhitinn sem gefur þessa bendingu, en í Stykkishólmi hefur meðalhitinn í október-apríl nú verið 1,8°. Aðeins 9 vetur hafa verið hlýrri þar síðan mælingar hófust 1845. Frost er því lítið í jörðu svo að hún hlýnar fljótt, og kalskemmdir ættu að verða litlar. Í erfiðum efnahag er tilvalið fyrir bændur að spara áburðarkaup og nýta sem best öll tiltæk tún til slægna,“ segir Páll og setur vet- urinn í sögulegt samhengi. „Þetta er með því besta sem hef- ur verið. Þetta er þó nokkuð hlýrra en var að jafnaði til dæmis á hlý- skeiðinu frá 1930-60. Og þetta er þriðji hlýjasti veturinn síðasta ára- tug. Mín reynsla sýnir að þegar loftslagið hlýnar um eina gráðu þá eykst grasvöxtur um svona 15%.“ Horft til vetrarins Að sögn Páls veitir hitastig að vetri góða vísbendingu um gras- sprettu að sumri og er þá einkum horft til veðurfars á tímabilinu frá október til apríl ár hvert. Aðspurður hvenær hinir hlýju vetur hafi komið segir Páll að tveir þeirra hafi komið 2003 og 2004, á áratug sem hafi verið sá hlýjasti frá því farið var að mæla hitastig hér með reglubundnum hætti. Þá hafi tveir hinna hlýju vetra komið á fimmta áratugnum. Páll hefur fylgst með öskuskýinu yfir landinu en hann segir útlit fyr- ir vestlægar áttir næstu viku. Því megi að óbreyttu gera ráð fyrir að gjóskan frá Eyjafjallajökli muni ekki raska flugi frá Keflavík.  Græn tún á næsta leiti  Með mildari vetrum Morgunblaðið/Kristinn Betri tíð með blóm í haga Senn verða yngismeyjar við slátt á Klambratúni. Bændur eiga gott í vændum því flest bendir til góðrar sprettu. 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Árni Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, tók mál hjónanna á Skáldabúðum upp á Alþingi í gær. „Í íslensku bönkunum í dag eru framin níð- ingsverk. Það sama á við um fjármögnunarleigurnar,“ sagði Árni. Hann spurði Björn Val Gísla- son, formann samgöngunefndar Al- þingis, hvað honum fyndist um það að bankar komist upp með að „keyra fólk ofan í svaðið“ eins og hann orðaði það. „Það hafa verið uppi sögusagnir um að fulltrúar banka gangi um sveitir og bjóði bændum upp- stokkun á skuldamálum, en að bankarnir ætli sér að loka skuldug- ustu búunum,“ sagði Björn Valur. Sér þætti rétt að leita svara við því hvort flugufótur sé fyrir þessu. Talaði um „níðingsverk“ Árni Johnsen Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, tók mál ábúenda á Skáldabúðum líka upp á þingi í gær og sagði: „Það er orðið brýnt að Alþingi standi vörð um skuldug heimili, hrægammarnir bíða í röðum og það er erfitt fyrir réttindalítið fólk að verjast árás þeirra,“ sagði Lilja og bætti við: „Við erum rétt að byrja að sjá af- leiðingar réttindaleysis skuldara. Hræðsla við gjaldþrot fær þá til að samþykkja nauðasamninga á for- sendum lánastofnana,“ sagði Lilja. Ásmundur Einar Daðason, al- þingismaður VG, hefur óskað eftir sameiginlegum fundi viðskipta- nefndar og sjávarútvegs- og land- búnaðarnefndar hið fyrsta til að ræða málefni skuldugra bænda. Hann vill að fyrir fundinn verði kall- aðir forsvarsmenn viðskiptabank- anna og að þeir geri grein fyrir þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru. Afleiðing réttinda- leysis skuldara Lilja Mósesdóttir Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÍSLANDSBANKI segir að jörðin Skáldabúðir í Árnessýslu hafi verið auglýst til sölu hjá Lögmönnum Suð- urlands á Selfossi frá því í mars 2008. Bankinn hafi unnið með ábúendum á jörðinni í tvö ár og leitast við að af- stýra gjaldþroti. Í viðtali við Sigurgeir Runólfsson, bónda á Skáldabúðum, í Morgun- blaðinu í gær gagnrýnir hann vinnu- brögð bankans og segist hafa verið beittur þvingunum. Mýkri leið „Bankinn fór þá leið í þessu máli að gefa eigandanum kost á því selja jörðina vegna þess að hann var búinn að skoða þann kost og setja jörðina á sölu á árinu 2008. Við töldum réttast að hann myndi selja sjálfur. Með þeirri leið hefði bóndinn borið meira úr býtum en ef nauðasamningsleið hefði verið farin,“ sagði Birna Ein- arsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Birna sagði að þetta væri mýkri leið en sú leið að fara með málið í nauðasamninga. Hún sagðist hins vegar viðurkenna að nauðungarsala væri gagnsærri leið. Sú leið hefði hins vegar ekki leitt til betri niður- stöðu fyrir bóndann. Í yfirlýsingu sem Íslandsbanki sendi frá sér í gær vegna málsins er því mótmælt að jörðin hafi ekki verið auglýst. Hún hafi verið auglýst hjá Lögmönnum Suðurlands. Jafnframt er lögð áhersla á að ábúendum hafi verið gefinn kostur á að selja jörðina í frjálsri sölu. „Starfsmenn Íslandsbanka hafa unnið að úrlausn mála mjólkurbús- ins að Skáldabúðum frá því árið 2008 í nánu samráði við eigendur,“ segir í yfirlýsingu Íslandsbanka. „Í þeirri viðleitni var ákveðið að eiganda yrði áfram gefinn kostur á að selja eignina í frjálsri sölu og taldi bankinn að með því fengi eigandinn besta verð fyrir jörðina. Samhliða myndi bankinn vinna með eiganda að úrlausn skulda hans og leitast við að afstýra gjaldþroti. Því er ranglega haldið fram í greininni að Íslandsbanki hafi selt umrædda eign án auglýsingar þar sem bankinn hafði ekki leyst til sín umrædda eign. Þá skal þess getið að eignin hefur verið auglýst til sölu op- inberlega, m.a. á hjá Lögmönnum Suðurlands, síðan 19. mars 2008 án þess að eignin seldist. Lánamál eru viðkvæm og flókin í meðförum og þess eðlis að bankinn er bundinn trúnaði varðandi ein- staka þætti þeirra og á því erfitt með að taka þátt í opinberri umfjöllun um einstök mál. Í því ljósi hefur Íslandsbanki farið þess á leit við eftirlitsnefnd sem skipuð er af ráðherra efnahags- og viðskiptamála að hún fari yfir öll gögn og feril málsins. Þá skal þess getið að blaðamaður Morgunblaðsins kallaði ekki eftir sjónarmiðum Íslandsbanka við vinnslu fréttarinnar.“ Vildu afstýra gjaldþroti  Íslandsbanki óskar eftir að eftirlitsnefnd fari yfir sölu jarðarinnar Skáldabúða  Bankinn segir að jörðin hafi verið auglýst til sölu hjá fasteignasala frá 2008 Morgunblaðið/RAX Bændur Sigurgeir Runólfsson og Þórey Guðmundsdóttir á Skáldabúðum gagnrýna framgöngu Íslandsbanka. Stjórn Samtaka ungra bænda hefur sent frá sér ályktun þar sem fordæmd eru vinnubrögð Ís- landsbanka við sölu á jörðinni Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi. Stjórnin telur að staðið hafi verið að sölunni með mjög vafasömum hætti. „Tími klíkuskapar og einka- vinafyrirgreiðslu innan bankanna ætti að vera liðinn. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem birt var nýverið kemur fram að starfsemi íslensku bankanna allt frá einkavæðingu þeirra hafi oft á tíðum verið verulega vafasöm. Svo virðist sem starfsfólk og yf- irstjórn bankastofnana á Íslandi ætli ekki að láta það efnahags- hrun sem dundi yfir okkur Íslend- inga sér að kenningu verða. Í stað þess halda bankarnir ótrauðir áfram á braut spillingar og siðleysis, skorar því stjórn Samtaka ungra bænda á bankana að standa heiðarlega að sölu þeirra eigna sem vera kann að bankarnir muni selja í framhaldi af uppgjöri þrotabúa, að allar eignir muni fara í gagnsætt og sanngjarnt söluferli en ekki út- hlutað til vildarviðskiptavina með verulegum afsláttum eins og virðist vera í þessu tilviki. Vinnu- brögð sem þessi munu ekki vera til þess fallin að styrkja byggð í sveitum landsins né heldur efla nýliðun í landbúnaði.“ Vilja vinnubrögð sem styrkja byggð í sveitum JÓN Ásgeir Jóhannesson fékk tvö kúlulán upp á 440 milljónir króna í síðasta mánuði. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi og einnig að lánveitandi Jóns Ásgeirs væri óþekktur. Lánin eru til tíu ára og ber að greiða með einni afborgun 31. desember árið 2020. Þau eru með veði í tveimur fasteignum. Að því er kom fram í frétt Stöðvar 2 hefur fréttastofan undir höndum gögn sem staðfesta lánveitinguna. Um er að ræða tvö veðskuldabréf, óverðtryggð á meðalvöxtum. Þau eru með veði í fasteignum í eigu Ingi- bjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs. Eignirnar eru, að sögn Stöðvar 2, yfirveðsettar. Fékk 440 millj- óna kr. kúlulán Veð í húsum eiginkonu Jóns Ásgeirs Morgunblaðið/Eggert Kúlulán Ingibjörg Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson. BORGARRÁÐ samþykkti tillögu Vinstri grænna um 20 milljóna króna aukafjárveitingu til skapandi sumar- starfa á vegum Hins hússins á fundi sínum í gær. Með framlaginu verður hægt að fjölga starfsmönnum við sumarstörf um 70, eða úr 40 í 110. Áhersla verður lögð á að veita 17 ára ungmennum vinnu þar sem atvinnu- leysi í þeim aldurshópi er mikið, seg- ir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Haft er eftir Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur borgarstjóra að framtak- ið sé enn einn liður í því að tryggja sem flestum ungum Reykvíkingum verkefni við hæfi í sumar. Auk áðurnefndra 110 starfsmanna ræður borgin um 1.500 manns til sér- stakra sumarstarfa, hefðbundinna afleysinga og atvinnuátaksverkefna. Jafnframt er áætlað að um 3.100 unglingar á aldrinum 13 til 15 ára starfi á vegum Vinnuskólans í sum- ar. Aukafé til sumarstarfa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.