Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010
Háskóli Íslands hefur að mörguleyti tekið myndarlega á eftir-
leiknum um rannsóknarskýrslu Al-
þingis. Nú síðast var fundur um
meinsemdir stjórnmálalífsins. Þar
höfðu aðallega fjórir fræðimenn sig í
frammi. Sjónarmið þeirra voru að
vísu nánast hin sömu og fyrir hrun
og rannsóknarskýrslu. Þeir voru
Ólafur Harðarson, Sigurbjörg Sig-
urgeirsdóttir, Stefán Ólafsson og
Gunnar Helgi Kristinsson. Allt þetta
ágæta fólk hefur lengi barið pólitísk-
ar trommur Sam-
fylkingarinnar.
Það var því tilmikils hag-
ræðis að fá það til
að fjalla á hlut-
lausan hátt um
áhrif stjórnmál-
anna á „hrunið“.
Það var eðlilegt að Ólafur Harð-arson sleppti að fjalla um trún-
aðarsamband sitt við kratana í Hafn-
arfirði. Það var ágætt að Sigurbjörg
sleppti að fjalla um Ingibjörgu Sól-
rúnu, sem hún kallaði trún-
aðarvinkonu sína í Háskólabíói, og
gott var að Gunnar Helgi sleppti að
ræða um skrímslin í Sjálfstæðis-
flokknum og núverandi störf í
nefndinni hennar Jóhönnu. Stefán
Ólafsson sleppti að fjalla um uppá-
komur sínar fyrir hverjar kosningar
til að sanna að Sjálfstæðisflokkurinn
ofsækti gamalt fólk.
Stefán sleppti reyndar að gagn-rýna rannsóknarnefndina sem
gagnrýnt hafði skattalækkanir
Sjálfstæðisflokksins, en Stefán hafði
áður „sannað“ að sami flokkur hefði
þvert á móti hækkað skatta.
Það er notalegt að þessir fræði-menn geri ekki sömu kröfur til
sín um hlutlæg vinnubrögð og þeir
gera til annarra.
Það er líka flott að gefa mönnumkost á samfylkingarfundum í HÍ.
Háskóli Íslands
HÍ fylkir saman liði
Veður víða um heim 29.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 alskýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 4 alskýjað
Egilsstaðir 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 5 alskýjað
Nuuk 3 léttskýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 7 alskýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 24 heiðskírt
Dublin 13 skýjað
Glasgow 13 skýjað
London 18 léttskýjað
París 24 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 24 heiðskírt
Berlín 24 heiðskírt
Vín 23 skýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 24 heiðskírt
Barcelona 19 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg 11 skúrir
Montreal 9 léttskýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 18 alskýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR
30. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:03 21:48
ÍSAFJÖRÐUR 4:53 22:08
SIGLUFJÖRÐUR 4:35 21:52
DJÚPIVOGUR 4:29 21:21
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN er þétt setin þessa dag-
ana enda standa vorprófin sem hæst í Háskóla
Íslands og er því keppst um bestu sætin í þöglum
lessalnum. Í hverjum kolli sem grúfir sig yfir
bækurnar ríkja nú mikil átök við að ná heild-
arsýn yfir námsefnið og festa það í minninu að
minnsta kosti fram að prófi. Við slíkar aðstæður
getur hver minnsta hreyfing raskað einbeiting-
unni og sakleysislegasta umhverfishljóð orðið
ærandi truflun. Þá skiptir miklu að geta útilokað
umhverfið og eins og sést veittu þessir stúdentar
ljósmyndara enga athygli þegar hann smellti af.
ATHYGLIN ÖLL Á BÓKUNUM
Morgunblaðið/Ernir
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„VERKEFNI nefndarinnar var tví-
þætt. Annars vegar að endurskoða
lögin með hliðsjón af þeirri reynslu
sem hefði fengist af framkvæmd
þeirra og svo hins vegar þeim til-
mælum sem höfðu borist frá Greco,
samtökum ríkja sem berjast gegn
spillingu,“ sagði Ágúst Geir Ágústs-
son, skrifstofustjóri í forsætisráðu-
neytinu og formaður nefndar um
endurskoðun laga um fjármál
stjórnmálasamtaka og frambjóð-
enda og upplýsingaskyldu þeirra.
Þingmenn Hreyfingarinnar gagn-
rýna breytingartillögur í frumvarp-
inu harðlega og átelja að framlög
fyrirtækja skuli áfram verða heimil
og að „einstaklingar geti áfram
styrkt stjórnmálasamtök og stjórn-
málamenn í skjóli leyndar“.
Gengið lengra en annars staðar
Inntur eftir þessari gagnrýni seg-
ir Ágúst Geir frumvarpið ganga
lengra en löggjöf nágrannaþjóða.
„Framlög frá lögaðilum eru heimil
eins og þau hafa alltaf verið en voru
takmörkuð mjög með setningu lag-
anna 2006. Þá voru sett inn ákvæði
um hámarksframlög, bæði frá lög-
aðilum og einstaklingum, og var
miðað við 300.000 krónur. Ef þetta
er borið saman við löggjöf í öðrum
ríkjum, t.d. á Norðurlöndunum, eru í
öllum þeim löndum heimil framlög
frá lögaðilum og ekki heldur sett
nein hámörk á upphæðir þeirra.“
Spurður um það sjónarmið að hér
beri að ganga lengra í ljósi gagnrýni
á tengsl atvinnulífs og stjórnmála
segir Ágúst Geir gengið „miklu,
miklu lengra“ en í flestum þeim ríkj-
um sem Ísland beri sig jafnan við.
„Við erum í raun fremst í flokki í
heimi […] Ég veit ekki um land sem
er komið með strangari reglur.“
Ágúst Geir rifjar því næst upp að
samfara setningu strangari reglna
um hámark fjárstuðnings frá lög-
aðilum 2006 hafi verið ákveðið að
hækka ríkisframlögin á móti.
Hann vísar því næst í rannsóknir
á þessu sviði og til þeirra útbreiddu
viðhorfa að æskilegt sé að tiltekið
jafnvægi sé í hlutfalli ríkisframlaga
og einkafjármögnunar flokka.
Hvað snerti þá gagnrýni Hreyf-
ingarinnar að áfram sé hægt að
styðja stjórnmálasamtök í skjóli
leyndar segir Ágúst Geir að sam-
kvæmt gildandi lögum hafi öll fram-
lög frá einstaklingum undir 300.000
krónum verið undir nafnleynd.
Upphæðin lækkuð í 200.000
„Það er verið að leggja til að þetta
verði lækkað niður í 200.000 kr.,“
segir Ágúst Geir og bendir á að hér
takist tvö sjónarmið á. Annars vegar
persónuverndarsjónarmið og hins
vegar mat á því hvenær upphæð sé
orðin það há að „það sé eðlilegt, með
hliðsjón af öðrum hagsmunum, eins
og óeðlilegum hagsmunatengslum,
að almenningur hafi þessar upplýs-
ingar“. Skýrt sé að óheimilt sé í öll-
um tilvikum að veita framlögum frá
óþekktum gefanda viðtöku.
Spurður um tillögurnar sagði Þór
Saari, þingmaður Hreyfingarinnar,
þær sýna svart á hvítu að stjórnin
hygðist ekki gera róttækar breyt-
ingar á kerfi sem byði upp á „mút-
ur“. Niðurstaðan sé sú að stjórnar-
flokkarnir hafi ekki efnt loforð sín.
Setji strangari skorður
en á Norðurlöndunum
Morgunblaðið/Ómar
Á Alþingi Framlög til stjórnarmálaflokka hafa vakið tortryggni.
Deilt um tillögur um breytingar á lögum um framlög til flokka
Í HNOTSKURN
»Formenn stjórnarflokk-anna og helstu stjórnar-
andstöðuflokka leggja fram
breytingartillögurnar.
»Frumvarpið er aðgengi-legt á vef Alþingis undir
liðnum þingmál.
STAKSTEINAR
Í frumvarpinu er að finna sam-
antekt á helstu breytingum og
eru nokkrar þeirra raktar hér:
Lagt er til að reglur laganna
um framlög til frambjóðenda
frá einstaklingum og lögaðilum
og um upplýsingaskyldu þeirra
taki einnig til frambjóðenda í
forsetakosningum. Samhliða er
lagt til að kveðið verði á um
leyfilegan hámarkskostnað
frambjóðenda í forsetakjöri af
kosningabaráttu (35 millj. kr.).
Lagt er til að hámarks-
fjárhæð framlaga frá ein-
staklingum og lögaðilum til
stjórnmálasamtaka og fram-
bjóðenda verði hækkuð úr
300.000 kr. í 400.000 kr.
Lagt er til að nöfn þeirra ein-
staklinga sem styrkja stjórn-
málaflokka eða frambjóðendur
um meira en 200.000 kr. verði
gerð opinber.
Til að auka jafnræði milli
stjórnmálasamtaka og til að
greiða fyrir því að ný stjórn-
málasamtök geti boðið fram í
kosningum til Alþingis er lagt til
að stjórnmálasamtök geti, án
tillits til niðurstöðu kosning-
anna, sótt um fjárstyrk úr rík-
issjóði til að standa straum af
útlögðum kostnaði vegna kosn-
ingabaráttunnar, allt að 3 millj.
Lagt er til að kveðið verði á
um það í lögunum hvaða upp-
lýsingar úr reikningum stjórn-
málasamtaka og frambjóðenda
skuli gerðar opinberar.
Lagt er til að Ríkisendur-
skoðun fái sambærilegar heim-
ildir til að kalla eftir gögnum frá
frambjóðendum til að stað-
reyna að framlög og kostnaður
þeirra af kosningabaráttu sé í
samræmi við ákvæði laganna og
hún hefur til að kalla eftir gögn-
um frá stjórnmálasamtökum.
Lagðar eru til breytingar á
viðurlagaákvæði laganna. Miða
þau að því að gera refsiábyrgð
einstaklinga og lögaðila skv.
lögunum skýrari. Refsirammi
þótti óeðlilega hár en hann var
sektir eða fangelsi allt að 6 ár-
um. Verður hámarksrefsing 2 ár.
Þak sett á framlög
til forsetakosninga