Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.04.2010, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 10 Daglegt líf Hin blóðheita Carmen er verðandi læknir Hún dansar salsa á kvöldin en á daginn liggur hún yfir námsbókum í læknis- fræði. Hún sækir líka söngtíma allan veturinn og lætur sig ekki muna um að syngja og leika sjálfa Carmen í óperuuppfærslu skólans. Henni finnst ögrandi að túlka manneskju sem er alls ólík henni sjálfri. Morgunblaðið/Kristinn Syngjandi kátir Þessir sígaunar sýningarinnar eru léttir í lund. Carmen eftir Georges Bizet er ein vinsælasta ópera allra tíma. Hún var fyrst sett á svið í París árið 1875. Óperan gerist í borginni Sevilla á Spáni og segir frá hinni íðilfögru Carmen, sígaunastúlkunni sem vinnur í tób- aksverksmiðju og er fremur óstýrilát. Ástin, segir hún að sé eins og villt- ur fugl. Hermaðurinn Don José fellur fyrir henni en þegar hún snýr baki við honum og flýgur í faðm nautabanans Escamillo, nær afbrýðisemin slíkum heljartökum á José að hann drepur Carmen, ástina sína. Allir vildu þeir eiga hana Hinn ódauðlegi og undurfagri tónlist- armaður Elvis Presley lifir vissulega í tónlist sinni um ókomin ár. Ekki er verra að helguð honum er ofangreind vefsíða: elvis.com, en þar má nálgast nánast alla þá tónlist sem hann hefur komið nálægt, gerast meðlimur í aðdáendaklúbbum, kynna sér Graceland og viðburði tengda Elv- is, sem og gramsa í upplýsingum um allt það sem snýr að þessum snillingi rokksins. Undir þættinum biography (ævi- ágrip) geta þeir sem ekki nú þegar þekkja bakgrunn hans kynnt sér sögu kóngsins frá því hann leit þennan heim fyrst augum. Þar segir meðal annars að Elvis Aaron Presley hafi fæðst þeim Ver- non og Gladys Presley í tveggja her- bergja húsi í Tupelo, Mississippi, þann 8. janúar árið 1935. Elvis átti tvíburabróður, Jessie Garon, sem fæddist andvana, svo rokkarinn var einn um athygli foreldra sinna. Ef Elvis hefði lifað lengur, þá hefði hann fagnað 75 ára afmæli snemma á þessu ári og gera má ráð fyrir að hann hefði þá stigið á svið og rifjað upp gamla takta. En hann féll frá árið 1977 og varð því ekki nema fjörutíu og tveggja ára. Vefsíðan: www.elvis.com AP Elvis Hann er og verður óumdeildur kóngur rokksins. Ómótstæðilegur. Rokkkóngurinn lifir á netinu Að sprikla á dansgólfi veitir gífurlega góða útrás, ekki aðeins líkamlega, heldur líka andlega. Nú þegar vor er í lofti færist fjör í útlimina og fólk verður óþreyjufullt í sál og hjarta. Því er um að gera að fá útrás í dansi, hverrar tegundar sem hann er, sjálfsprottinn eða eftir uppskrift. Eitt af því frábæra við dans er að hann er hægt að framkvæma hvar sem er. Ekki þarf formlegt dansgólf til þessarar frelsandi iðkunar. Hægt er að dansa í eldhúsinu heima, úti á túni eða uppi á borðum. Förum eftir því sem Stuðmenn hvetja okkur til: Teygjum búkinn og hristum. Endilega.... ...djöflist á dansgólfinu Morgunblaðið/Ómar Útrás Dans er meinhollur fyrir alla. Það hefur líklega ekki farið framhjá þeim sem fylgjast aðeins með tísku að nude eða húðlitur verður einn sá heitasti í vor og sumar. Einnig eru ljósgrár og kampavínsgylltur áber- andi. Virðist sem þetta litleysi verði líka áberandi í haust og vetrartísk- unni 2010/2011, miðað við það sem hönnuðir hafa þegar lagt fram fyrir þann árstíma. Þessir hlutlausu litir eru oft á tíð- um vandmeðfarnir nema að húðin á þeim sem litnum klæðist sé þeim mun brúnni og jafnari. Húðlitur get- ur nefnilega dregið fram hverja bólu og bauga í andlitinu. Svo gæta verð- ur að því að klæðast rétta tóninum fyrir sinn húðlit og ekki hafa húðlit- uðu flíkina eina og sér næst andlit- inu. Gaman er að hressa upp á þessa liti með skemmtilegum fylgihlutum og skóm sem eru í sterkari litum. Þónokkuð hefur borið á því að fólk klæðir sig í þetta litleysi frá toppi til táar. Það heppnast sjaldan vel. Stjörnurnar sjást mikið í þessum lit nú um stundir og hann hefur verið ráðandi á tískupöllunum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. ingveldur@mbl.is Húðliturinn er málið Hlutlaust litleysi Flott Jennifer Lopez á hátíð Us Weekly - tímaritsins í apríl. Reuters Geisp Litlaus Gwyneth Paltrow.Töff Kjóll eftir John Galliano. Haust og vetur Eftir breska hönnuðinn Peter Copping fyrir tísku- húsið Nina Ricci. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Það gustar af henni þar semhún fer syngjandi um svið-ið í hlutverki suðrænnarsnótar sem smellir kast- aníettum með ögrandi handahreyf- ingum og lætur engan segja sér fyrir verkum. Carmen er blóðheit. Ástríðufull. Skapmikil. „Ég held að ég sé nú ekki eins rosalega frek og hún. Við erum ólík- ar manneskjur og þess vegna er mjög ögrandi fyrir mig að takast á við hana, en um leið einstaklega skemmtilegt. Það er gaman að grafa upp þessa eiginleika sem leynast þarna,“ segir hin 24 ára Elín Arna Aspelund sem syngur og leikur Car- men í óperuuppfærslu söngdeildar Tónlistarskóla Kópavogs. Elín hefur verið í söngnámi við skólann frá því hún var 16 ára. „Anna Júlíana Sveinsdóttir og Krystyna Cortes, sem stýra óperuuppsetning- unni, hafa verið mínir kennarar gegnum árin og núna er ég á fram- haldsstigi,“ segir Elín sem er messó- sópran og því kjörin í hlutverk Car- menar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún tekur þátt í uppfærslum skólans, í fyrra söng hún til dæmis aðalhlut- verkið í Orfeó. Óskarinn Demi More mætti í mjög flottum nude-kjól á Ósk- arsverðlaunin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.