Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 11

Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 11
»Ef ég verð jafn slæm afbrjóstaþokunni einn daginn mun ég gleyma barninu úti í búð og setja melónu í bílstólinn í stað- inn án þess að blikka auga. nota til að sturta úr viskubrunni mín- um. Pabbi er á speed dial og hug- hreystir mig hvað hann getur. En hvað ef ég man ekki neitt? Hvað ef ég gubba á gólfið af stressi? Hvað ef ég, ég vil ekki einu sinni íhuga það, fell? En svo gerist dálítið undarlegt. Ég pakka saman ógeðsgallanum, dríf mig í sturtu, klæði mig upp á og set fjölbreytta flóru bætandi efna á and- litið á mér. Svo svíf ég inn í prófstof- una og skil helst stressið eftir í blómapottinum fyrir utan, eins og mamma ráðlagði alltaf í gamla daga, sest niður og prófið byrjar. Fyrst gerist ekkert en síð- an allt í einu byrja orðin að gusast fram, eins og ein- hver æðri máttur sé að skrifa í gegnum mig og penninn hefur varla við. Þá loksins, loksins, eftir margra daga svitakóf, uppgötva ég það. Ég get þetta alveg ! Ég má bara ekki láta þetta viðbjóðslega prófastress draga svona úr mér mátt- inn og hafa á mig lamandi áhrif. Af öllu sem ég hef lært í gegnum tíðina hve- nær í ósköpunum ætli mér takist að læra það? María Ólafs- dóttir | maria@mbl.is Ég er búin að vera ómáluð ínáttfötunum í samtalsþrjá daga. Ég er úti áþekju, get ekki haldið uppi vitrænum samræðum, fæ reglu- leg hjartsláttaköst og svitna. Ég sef illa, dreymir algjöra vitleysu, hrekk upp allt of snemma, get ekki sofnað. Dreymir um að drekka svo mikinn bjór að ég get ekki meira. Hverfa í áfengisþoku og gleyma morgundeg- inum. Í huganum er óttinn lamandi en í hjartanu þó gleðin að bráðum, bara bráðum, verði þetta búið og allt verði betra. Einkennin eru vissulega svipuð en nei, ég er ekki í ástarsorg. Ég er einfaldlega í vorprófum og þau reyna svo mikið á líkama minn og sál að það hálfa væri miklu meira en nóg. Hver dagur líður hjá í hálf- gerðri móðu og hvert einasta litla skref sem tekið er nær takmarkinu fær sálartetrið til að lyftast upp. Það dugir samt ekki nema í kannski hálf- tíma, þá er allt orðið svart aftur og prófaþokan svokölluð tekin við. Henni fylgir að ég fer út í búð og kaupi kvöldmat en gleymi hádegismatnum. Þetta er fyndið eftir á en um leið hugsa ég með hryll- ingi til brjóstaþokunnar. Ef ég verð jafn slæm af henni einn daginn mun ég gleyma barninu úti í búð og setja melónu í bíl- stólinn í staðinn án þess að blikka auga. Þar sem ég sit við skrifborðið og mæni ofan í ring- ulreiðina fyrir framan mig sé ég ekkert nema svart- nætti. Holt og dimmt, í formi margra blaðsíðna prófarkar sem ég þarf að Engin geðlurða Hún Carmen er ekki skaplaus kvenmaður. Það ólgar í henni blóðið og hún ærir alla karlmenn sem fá hana augum litið. Hér tekur Elín Arna á í söngnum þar sem hún túlkar þessa senjórítu söngsögunnar. Margir gætu haldið að það fólk sem leggur fyrir sig mjög krefjandi nám í háskóla, hefði ekki mikinn tíma aflögu til að stunda annað nám, eins og til dæmis söngnám, en Elín er á þriðja ári í læknisfræði og vænt- anlega nóg að gera við að sinna því. „Auðvitað hafa verið stífar æfing- ar undanfarið vegna óperuuppsetn- ingarinnar, en þetta er allt hægt með góðu skipulagi. Það er líka hvíld í því fyrir mig að sinna söngnum. Vissu- lega er söngnámið krefjandi, en það er krefjandi á allt annan hátt en læknanámið. Mér finnst gott að geta gleymt mér í söngnum og loka alveg á allt sem viðkemur læknisfræðinni á meðan. Það er líka félagslega nærandi að taka þátt í svona sýn- ingu og vinna með öllu þessu skemmtilega fólki. Mér finnst gaman að fá að stíga á svið, ég neita því ekki. Þó því fylgi alltaf smá stress, þá nýt ég þess.“ Dansað frá því hún var lítil Elín nýtur þess líka að dansa og æfir salsadans á fullu hjá Salsa Iceland. „Dansinn hefur alltaf heillað mig og er eitt af mínum aðaláhugamálum. Ég lærði ballett þegar ég var lítil stelpa og síð- an hef ég ekki hætt að dansa. Þegar ég finn smugu þá fer ég stundum í tíma hjá háskóladansinum,“ segir El- ín og bætir við að vissulega komi tímar þar sem nám og áhugamál skarast. „Þá þarf ég kannski að taka spá pásu, en mér tekst þetta alltaf einhvern veginn,“ segir hún og hlær. Hún þvertekur fyrir að hún sé ein- hver ofurkona þó hún sé í lækna- námi, tónlistarnámi og stundi dansæfingar. Nautabaninn tann- læknanemi „Ég ætla ekkert að neita því að þetta er mikil vinna. En það eru margir skapandi einstaklingar í læknadeildinni og alltaf einhverjir sem eru að sinna einhverju öðru með- fram námi. Mér finnst vera al- mennur tónlist- aráhugi meðal samnemenda minna. Hann Sigurjón Örn Böðvarsson sem tekur þátt í Carmen-uppfærslunni með mér og leikur og syngur hlutverk nautaban- ans, hann er til dæmis í tannlækna- námi,“ segir Elín og neitar því ekki að það komi fyrir að hún og nauta- baninn ræði saman um læknis- fræðilega hluti á söngæfingum. Hún segist sannarlega vonast til að geta sinnt söngnum áfram og að hún verði syngjandi læknir þegar fram líða stundir. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Daglegt líf 11 HeimurMaríu Á frumsýningu Jennifer Aniston í hlutlausum kjól. Hlutlaus Í nude frá toppi til tá- ar. Hönnun Stellu McCartney. –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Þann 14.maí gefur Morgunblaðið út sérblað Ferðasumar 2010 ferðablað innanlands. Ferðablaðið mun veita upplýsingar um hvern landshluta fyrir sig. Ferðablaðið höfðar til allrar fjölskyldunnar, þannig að allir ættu að finna sér stað eða skemmtun við hæfi. MEÐAL EFNIS: Fjölskylduvænar uppákomur um land allt. Hátíðir í öllum landshlutum Gistimöguleikar. Ferðaþjónusta. Útivist og náttúra. Uppákomur. Skemmtun fyrir börnin. Sýningar. Gönguleiðir. Tjaldsvæði. Skemmtilegir atburðir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 7. maí. Ferðasumar 2010 ferðablað innanlands Frumsýningin á Carmen var í gær- kvöldi en önnur sýning á óperunni verður á sunnudagskvöld í Salnum Kópavogi kl. 20:00 Sonia Rykiel Flottur vetrarklæðn- aður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.