Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 12

Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 12
100 millj- ónir í mark- aðsátak BORGARRÁÐ Reykjavíkur ákvað einróma á borgarráðsfundi í gær að verja 100 milljónum króna til sam- eiginlegs mark- aðsátaks í ferða- þjónustu með helstu hagsmunaaðilum í greininni vegna gossins í Eyja- fjallajökli. Ákvörðunin var tekin í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu, sem nú er komin upp í ís- lenskri ferðaþjónustu og hjá fjöl- mörgum fyrirtækjum í Reykjavík sem treysta á viðskipti erlendra ferðamanna. Er menningar- og ferðamálasviði falið að sjá um þátt Reykjavíkurborgar í verkefninu. Í fréttatilkynningu frá Reykjavík- urborg segir að borgin hafi brugðist hratt við og að menningar- og ferða- málasvið Reykjavíkurborgar og Höfuðborgarstofa vinni náið með rekstraraðilum í ferðaþjónustunni. „Með sameiginlegu markaðsátaki næst vonandi að sporna við fyr- irséðum samdrætti þannig að tjónið á núverandi ferðatímabili verði lág- markað,“ er haft eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Borgin sporni við sam- drætti í ferðaþjónustu 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is SÉRSTÖK framkvæmdanefnd vinnur nú að því að kanna áhugann á sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga og ferðaþjónustufyrirtækja vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem eldgosið í Eyja- fjallajökli hefur haft á ferðaþjónustu hér á landi. Ríkisstjórnin samþykkti á þriðjudag að veita allt að 350 milljónum kr. í upplýsinga- og landkynningarátak og eru uppi hugmyndir um að annað eins framlag komi frá fyrirtækjum í ferðaþjónustu og sveitarfélögum. Lagðar hafa verið fram meginhugmyndir markaðsátaksins og snúast þær, að sögn Einars Karls Haraldssonar, fulltrúa iðnaðarráðherra í framkvæmdanefndinni, um að kynna Ísland í heild sem spennandi og öruggan áfangastað þar sem hlutirnir gangi vel fyrir sig. Þarf snöggt markaðsátak Útflutningsráð og Ferðamálastofa undirbúa nú vissa þætti átaksins, en auk þess hefur framkvæmdanefndin óskað eftir tillögum frá fimm auglýsingastofum og eru það stofurnar Fíton, EnnEmm, Íslenska auglýsingastofan, Jónsson og Le’Macks og Hvíta húsið. Reynist grundvöllur fyrir samstarfi opin- berra aðila og einkafyrirtækja, sem Einar Karl telur nokkuð góðar líkur á, þá mun iðnaðar- ráðherra kynna hugmyndir að markaðsátakinu á ferðamálaþingi nk. þriðjudag. „Það þarf snöggt átak,“ segir Einar Karl, en gert er ráð fyrir að markaðsátakið verði í maí og júní. „Við höfum engu að síður lagt áherslu á að ekki verði farið af stað fyrr en samgöngur eru komnar í eðlilegt horf og horfurnar á að samgöngur geti haldist þannig séu taldar góð- ar. Það verður að taka á málinu af fullu raunsæi og þess vegna erum við í fullu samstarfi við vís- indamenn.“ Verið sé að gera ýmislegt til að sannreyna stöðu mála, t.d. með komu þýsku rannsóknarþotunnar til landsins í gær sem not- uð var til að greina gjóskuna frá gosinu. „Það skiptir máli að menn séu að gera þetta á traustum grunni og þess vegna verður mark- aðsátakið unnið í samstarfi við Almannavarnir og með vísindalegri ráðgjöf.“ Verði byggt á traustum grunni  Markaðsátak í ferðaþjónustu verður unnið í samstarfi við Almannavarnir og vísindamenn  Ekki verður farið af stað með kynningarherferð fyrr en samgöngur eru komnar í eðlilegt horf Í HNOTSKURN »Áætlað er að ferðamönn-um til Íslands fækki um allt að hundrað þúsund á þessu ári »Sú fækkun ferðamannahefði í för með sér 25-30 milljarða kr. tekjutap. »Þegar hefur mikill kostn-aður hlotist af röskun á flugsamgöngum vegna eld- gossins í Eyjafjallajökli. »Meðal þeirra sem hafaskaðast eru flugrek- endur, ýmsir þjónustuaðilar og opinberar stofnanir. »Hugmyndir eru uppi umsameiginlegt átak hins opinbera og ferðaþjónustu- fyrirtækja og standa vonir til að verja megi 600-700 millj- ónum kr. í markaðsátak nú í maí og júní. Morgunblaðið/Golli Íslandsferð Ekki eru allir á því að Íslandsferð sé góð hugmynd í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. BLESSAÐ vorið hefur nú tyllt tánum tindana á og ljósið fyllir loftin sem orðin eru blá. Í þessum anda orti Þorsteinn Gíslason, áður ritstjóri Morgun- blaðsins, endur fyrir löngu og vísan er fyrir margt löngu orðin sígild. Ljós og langir dagar vekja bjartsýni meðal allra, ekki síst barnanna og útileikir komast aftur á dagskrá þeirra á meðal. Freistandi er að klifra í trjánum, þar sem fikra má sig upp af einni grein yfir á þá næstu. Í slíku príli er samt afskaplega mikilvægt að fara varlega og kunna fótum sínum forráð, því fall er alls ekki fararheill þótt máltækið segi annað. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Príla grein af grein og fall er alls ekki fararheill Vorið tyllir tánum tindana á ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn- ismála hefur staðfest þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi brotið samkeppnislög gagnvart fjarskiptafélaginu TSC í Grundar- firði. Samkeppniseftirlitið gerði Sím- anum að greiða 150 milljónir kr. í sekt sem áfrýjunarnefndin lækkaði í 50 milljónir. Síminn segir að farið verði yfir forsendur úrskurðarins og metið hvort tilefni sé til frekari mála- rekstrar, en vísa má niðurstöðu nefndarinnar til dómstóla. TSC starfar eins og Síminn á markaði fyrir sölu á nettengingum og netþjónustu og hafa bæði fjar- skiptaleyfi frá Póst- og fjarskipta- stofnun. TSC kvartaði til Samkeppn- iseftirlitsins fyrir um tveimur árum og taldi sig hafa misst viðskiptavini í kjölfar samruna Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins. Hefði Síminn boðið þeim, sem keyptu nettengingu hjá fyrirtækinu, sjónvarp um netið án endurgjalds. Þá taldi TSC að Sím- inn hefði komið í veg fyrir að fyrir- tækið fengi aðgang að merki Ís- lenska sjónvarpsfélagsins. Samkeppniseftirlitið taldi Símann hafa brotið gegn tveimur skilyrðum, sem sett voru fyrir samruna Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins árið 2005. Úrskurðarnefndin staðfesti þetta. Samkeppniseftirlitið taldi hæfi- legt að leggja á Símann sekt að fjár- hæð 150 milljónir króna. Var þar m.a. horft til eldri brota Símans á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefnd- in lækkaði þessa sekt í 50 milljónir og vísaði til versnandi fjárhagsaf- komu Símans og að hugsanlegir tæknilegir annmarkar hafi verið samverkandi þáttur í hluta brotsins. Síminn brotleg- ur í samkeppni  Þarf að greiða 50 millj. kr. í sekt Í HNOTSKURN » Brotið á fjarskiptafyr-irtækinu TSC í Grund- arfirði. Fengu ekki aðgang að merki Skjásins hjá Símanum. » Samkeppniseftirlitið taldiSímann brjóta gegn tveim- ur skilyrðum, sem sett voru við yfirtöku á Skjánum. » Sekt lækkuð í 50 millj.vegna versnandi afkomu. „ÞAÐ er ágætis tímasetning,“ sagði Kristján L. Möller samgönguráð- herra um þá tillögu Árna Johnsen al- þingismanns að undir lok næsta ár yrðu teknar ákvarðanir um nýja Vestmannaeyjaferju. Þá yrði komin ágæt reynsla á siglingar á milli Vest- mannaeyja og Landeyjahafnar. Við umræður um samgönguáætl- un á Alþingi í gær staðfesti ráðherra að framkvæmdir við hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás yrðu boðnar út eftir fjórar vikur. Undir- göng fyrir gangandi fólk verði síðan gerð á næsta ári. „Ég hefði að vísu viljað ganga lengra, fá þarna mislæg gatnamót strax,“ segir Árni en tekur fram að þetta sé spor í rétta átt. Við umræðurnar staðfesti ráð- herra að síðasti áfangi Suðurstrand- arvegar milli Grindavíkur og Þor- lákshafnar yrði boðinn út á haustdögum þannig að framkvæmd- ir gætu hafist í byrjun næsta árs. Hugað að nýrri ferju undir lok næsta árs Ferja Herjólfur verður notaður út næsta ár, eða lengur. Röng mynd Þau mistök urðu í blaðinu í gær við birtingu grein- arinnar Skulda- söfnun heimil- anna eftir Guðmund Har- aldsson fram- kvæmdastjóra, að birt var mynd af alnafna Guð- mundar. Hér birtist rétt mynd af höfundi greinarinnar, Guðmundi Haraldssyni framkvæmdastjóra. Eru viðkomandi sem og lesendur beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum. Leiðrétt Guðmundur Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.