Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður. 295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „ÉG er opin fyrir því að endurskoða hvernig borginni er stjórnað, en þjóðstjórn gagnast náttúrulega ekki neinum ef allir innan stjórnarinnar eru ósammála,“ segir Sóley Tóm- asdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. Líkt og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri viðrað þá skoðun sína að farsælast væri að þeir flokkar sem ná kjörnum fulltrú- um í borgarstjórn starfi í sameiningu eftir kosningar. Flokkarnir hafa ekki átt í neinum viðræðum um myndun þess háttar „þjóðstjórnar“ í borgarstjórn en þeir oddvitar sem blaðamaður náði sam- bandi við tóku jákvætt í hugmynd- ina. „Ég ætla ekki að útiloka neitt og mér finnst einboðið að endurskoða alla starfshætti, ekki bara hjá Reykjavíkurborg heldur í öllu sam- félaginu, eftir það sem á undan er gengið,“ segir Sóley. „Auðvitað þurf- um við að vera gagnrýnin og það þyrfti að ráðast í gagngera endur- skoðun á því hvernig við stjórnum borginni, en ég er ekki endilega á þeirri skoðun að þjóðstjórn sé besta lausnin.“ Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam- fylkingarinnar, segir að þessi hug- mynd Hönnu Birni sé „ósköp kosn- ingaleg“. Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft heilt kjörtímabil til að mynda þjóðstjórn en þess í stað sýnt að hann geri nær allt til að halda völdum í borginni. „Fyrir vikið er meirihlutinn kolfall- inn samkvæmt könnunum og hug- myndin verður að skoðast í því ljósi,“ segir Dagur. Hann segir flokk sinn jafnan hafa lagt áherslu á málefnaleg vinnubrögð bæði í meiri- og minni- hluta og m.a. lagt til að sett yrði á laggirnar þverpólitísk sparnaðar- nefnd. Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki haft áhuga á þátttöku og samstarfi nema á eigin forsendum og látið „öll- um illum látum“ í minnihluta. Sé að verða breyting þar á verði hann fyrst- ur til að fagna því. Falleg hugmynd Einar Skúlason, oddviti Framsókn- arflokksins í Reykjavík, segir n.k. þjóðstjórn í borgarstjórn athygl- isverðan möguleika. „Þetta gæti verið raunhæfur mögu- leiki en auðvitað þarf þá að gæta þess að áherslur allra skíni í gegn og eins og við vitum getur það auðvitað verið flókið að ná saman með öll mál. Þann- ig að hugmyndin er falleg, en við þurfum að sjá hvernig hægt er að út- færa hana.“ Einar segir að Hanna Birna hefði gjarnan mátt vekja máls á þessari hugmynd fyrr þar sem nú sé aðeins mánuður í kosningar, en hins- vegar sé full ástæða til að skoða mál- ið eftir kosningar þegar hugur borg- arbúa til framboðanna sé ljós. „Allir flokkarnir eru með markmið um betri borg, en menn hafa oft á tíðum ólíkar leiðir til þess,“ Einar er hinsvegar ekki sannfærður um að þjóðstjórn sé endilega lausnin. „Ef vilji er til að auka vægi kjósenda og auka mögulegt samstarf þá held ég að við þyrftum fyrst og fremst að taka upp persónukjör og gefa kjós- endum möguleika á að velja fólk óháð flokkum.“ Engar óþarfa málamiðlanir Jón Gnarr, oddviti Besta flokks- ins, segist alls ekki útiloka mögu- leikann á þjóðstjórn, en hann muni ekki gera neinar málamiðlanir að óþörfu. Hann sé þeirrar skoðunar að því minni ítök sem stjórnmálaflokk- arnir hafi, því betra. „Við munum reyna að ná eins miklum völdum og við mögulega getum, það er bara stefna okkar, en við viljum samt ekki skapa neina stjórnarkrísu.“ Nái Besti flokkurinn hinsvegar ekki nógu mörgum kjörn- um fulltrúum til að mynda hreinan meirihluta sé þjóðstjórn hinsvegar álitlegur kostur. „Við verðum að spila úr því sem við höfum og ef við höfum góða hönd reynum við auðvitað að nýta það en annars erum við alveg til í að semja ef við þurfum þess.“ Morgunblaðið/Golli Reykjavík Meirihluti og minnihluti hafa starfað náið saman þvert á flokkslínur síðan 2008 og borgarstjóri vill ná enn betra samstarfi eftir kosningar. Útiloka ekki „þjóðstjórn“  Þörf á því að endurskoða starfshætti í borgarstjórn með gagnrýnum hætti  Vandséð að málefnasamningur náist í ljósi ólíkrar hugmyndafræði flokka Sóley Tómasdóttir Einar Skúlason Jón Gnarr Í HNOTSKURN »Hanna Birna Kristjáns-dóttir borgarstjóri hefur viðrað þá hugmynd að kjörn- ir fulltrúar komi sameig- inlega að stjórn mála án stjórnarandstöðu, eða nokk- urs konar „þjóðstjórn“ eins og í landsmálum. »Borgarstjórnarkosningarverða haldnar 29. maí. Dagur B. Eggertsson HÆSTIRÉTT- UR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að þrotabú Insolidum, félags sem áður var í eigu Daggar Páls- dóttur, lögmanns og varaþingmanns Sjálfstæðisflokks- ins, og Páls Ágústs Ólafssonar, sonar hennar, skuli greiða Saga Capital Fjárfestingarbanka tæpar 300 millj- ónir króna auk dráttarvaxta. Hæstiréttur staðfesti einnig dóm héraðsdóms um að hafna kröfu Dagg- ar og Páls um að rifta kaupsamningi við Sögu Capital um kaup á stofn- fjárbréfum í SPRON árið 2007. Mála- ferlin spretta af veðkalli sem Saga Capital gerði hjá Insolidum 24. októ- ber 2007 eftir að stofnfjárbréf í SPRON, sem Insolidum keypti af Saga Capital og fékk lán fyrir hjá bankanum, féllu í verði. Insolidum ákvað að verða ekki við veðkallinu og Saga Capital gjaldfelldi kröfuna sam- kvæmt lánasamningi 8. nóvember 2008. Greiði Saga Capital 300 milljónir Hæstiréttur stað- festir héraðsdóm Dögg Pálsdóttir ÖSSURI Skarp- héðinssyni utan- ríkisráðherra er meðal annars lýst sem óútreikn- anlegum, blað- urskjóðu og lím- inu sem heldur ríkisstjórn Sam- fylkingar og Vinstri grænna saman í svip- mynd í ritinu European Voice. Yf- irskrift greinarinnar er „Explosive politician“, sem mætti útleggja sem „Sprengifimur stjórnmálamaður“. Í greininni sem Bjarni Brynjólfs- son skrifar er meðal annars rætt við Magnús Skarphéðinsson, bróður Össurar, sem segir að Össur sé nú „aðalrefurinn á Alþingi“. Að sögn Magnúsar er þörf á ref til að gæta allra kattanna á þingi, en hann er að vísa til frægra ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Sprengifim- ur stjórn- málamaður“ Össur Skarphéðinsson SAMÞYKKT var á prestastefnu í gær að vísa tillögum og umfjöllun um lagafrumvarp dóms- og mannréttinda- málaráðherra um ein hjúskaparlög til biskups og kenn- ingarnefndar þjóðkirkjunnar. Þrjár tillögur vegna lagafrumvarpsins voru lagðar fram en sú sem samþykkt var og lögð fram af sr. Gunn- laugi Garðarssyni, sóknarpresti í Glerárkirkju á Akur- eyri, var borin upp fyrst og hún samþykkt með 56 at- kvæðum gegn 53 atkvæðum. Þar með var hinum tillögunum vísað til biskups og kenningarnefndar. Í nefndinni sitja biskup Íslands og vígslubiskupar, pró- fessor í trúfræði frá Háskóla Íslands, fulltrúi kirkjuþings og fulltrúi prestastefnu. Fjölmargt fleira bar á góma á prestastefnu og sam- þykktar voru ályktanir um ýmis mál. Þannig var ályktað að tekin verði saman skýrsla um þjóðkirkjuna og banka- hrunið. Í skýrslunni verði m.a. leitast við að greina styrk- leika og veikleika í störfum kirkjunnar „gagnvart anda og iðju sem hér þreifst fyrir bankahrunið og þeim áföll- um sem dundu á þjóð og einstaklingum“ eins og þar stendur. Er lagt til að í skýrslunni verði tillögur um hvaða starfsþætti þjóðkirkjunnar þurfi að styrkja og hverju þurfi að breyta til að starf kirkjunnar verði í sam- ræmi við köllun kirkju og hag samfélagsins. sbs@mbl.is Hjúskaparlög til kenn- ingarnefndar kirkju  Prestastefna vill skýrslu um hrunið  Styrkur og veik- leiki kirkjunnar gagnvart iðju og áföllum verði greindur Morgunblaðið/Kristinn Prestastefna Hjúskaparlög hafa verið í brennidepli. FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐIN Miðberg í Breiðholti í Reykjavík fékk á dög- unum að gjöf 20 reiðhjól sem verður útdeilt til frístundaheimila í hverf- inu. Hjólin eru notuð en eru sem spánný, uppgerð af ungmennum í Fjölsmiðjunni í Kópavogi. „Send- ingin kemur sér vel og gefur okkur tækifæri til að fara í hjólaferðir með börnunum í sumar,“ segir Árbjörg Ólafsdóttir, yfirþroskaþjálfi í Mið- bergi. Til viðbótar fylgdu tuttugu reiðhjólahjálmar sem Kiwanisklúbb- urinn Katla í Reykjavík gaf. Miðberg fékk tuttugu hjól og hjálma að gjöf fyrir sumarið Hjól Frá afhendingu reiðhjólanna og hjálmanna í Miðbergi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.