Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Kristín Ágústsdóttir Þrír listar hafa staðfest framboð sitt til sveitarstjórnar í Fjarða- byggð. Þeir eru Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Fjarðalisti, listi félagshyggjufólks sem að sögn aðstandenda er ótengdur öðrum stjórnmálaöflum í landinu.    Töluverðar breytingar eru á öll- um listunum. Mismiklar þó. Á öllum listum eru nýir oddvitar, þar af tveir sem skákuðu fyrrverandi oddvitum listanna í prófkjörum eða póstkosn- ingu. Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins frá síðasta kjörtímabili taka annað sæti á list- unum. Framvarðarsveit Fjarðarlist- ans er alveg endurnýjuð og þar rað- ar sér fólk sem ekki hefur áður látið mikið til sín taka í sveitarstjórn- armálum hér eystra.    Athygli vekur að stærsti stjórn- málaflokkurinn í kjördæminu, Vinstri grænir er ekki í framboði sem sjálfstætt stjórnmálaafl í tveim- ur stærstu sveitarfélögunum á Aust- urlandi: Fjarðabyggð og Fljótsdals- héraði. Sömu sögu er að segja um Samfylkinguna.    Rekstur FSN gengur vel þrátt mikinn niðurskurð á árinu 2009 þeg- ar stofnuninni var gert að spara um 200 milljónir sem voru um 10-11% af rekstrarfé á fjárlögum. Á þessu ári er stofnunni svo gert að spara 4-5 prósent. Eftir mikla starfsem- isaukningu á uppgangstímum ár- anna 2003-2007 er starfsemin að komast í jafnvægi, nema á fæðing- ardeild og endurhæfingardeild þar sem nú er vaxtarbroddur. Mun betur gengur að manna allar stöður sérfræðinga við sjúkrahúsið nú en undanfarin ár. Á það einkum við um hjúkrunarfræðinga, en einnig lækna, geislafræðinga og ljós- mæður.    Barnamet er í uppsiglingu á fæðingardeildinni. Það sem af er ári hafa fæðst 37 börn, en allt síðasta ár fæddust 82 börn. Ljósmæðurnar láta ekki sitt eftir liggja og hyggjast nú báðar leggjast í barneignir.    Mikill aukning er í starfsemi end- urhæfingar-deildarinnar. Hjarta- og lungnahópar, lífstíls- og offituhópar og sykursýkishópar eru til skiptis í endurhæfingu og kemur fólkið víða að af landinu. Auk þess er önnur al- menn endurhæfing í vexti. Mikil breyting hefur orðið á deildinni eftir stækkun og endurbætur og hefur hún nú hlotið viðurkenningu SÍBS.    Norðfirðingar kættust þegar ljóst varð að Norðfjarðargöng eru á samgönguáætlun næstu þriggja ára samkvæmt tillögu samgöngu- ráðherra sem lögð var fram á þingi fyrir skemmstu. Í gildandi áætlun var gert ráð fyrir að framkvæmdir við Norðfjarðargöng hæfust á síð- asta ári en nú er gert ráð fyrir að þær hefjist á næsta ári. Gert er ráð fyrir að áfram verði unnið að und- irbúningi og að 220 milljónir fari til verksins árið 2011 og 1.174 milljónir árið 2012. Áætlaður heildarkostn- aður við göngin er nú um 9,5 millj- arðar.    Blakbærinn stendur undir nafni. Á dögunum bættust fjórir Íslands- meistaratitlar í safn blakdeildar Þróttar Neskaupstað þegar fjöl- mennt lið Þróttara ók með rútum til Reykjavíkur til að spila á Íslands- meistaramótinu í blaki. Flest liðin komu frá Þrótti, eða alls um 14 og tókst þeim að landa fjórum titlum í 3, 4 og 5. flokki stúlkna. Eru íbúar að vonum stoltir af ungviðinu. NESKAUPSTAÐUR Nýir oddvitar eru á öllum listum í Fjarðarbyggð Morgunblaðið/ Kristín Ágústsdóttir. Heilbrigði Hress hjarta- og lungnahópur á göngu um Norðfjörð. HEILDARKOSTNAÐUR við bygg- inu Lækningaminjasafns, við hlið Nesstofu á Seltjarnarnesi, er nú áætlaður um 600 milljónir kr. sam- kvæmt uppfærðri kostnaðaráætlun. Þegar upphaflegar áætlanir voru gerðar um safnbygginguna í árs- byrjun 2008 var heildarkostnaður áætlaður um 345 milljónir króna. Kostnaður við byggingu Lækn- ingaminjasafnsins hefur því tæplega tvöfaldast á tveimur árum. Sunneva Hafsteinsdóttir, sem sit- ur í stjórn Lækningaminjasafnsins fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar, segir að kostnaðaraukninguna megi fyrst og fremst rekja til þess að aðföng hafi hækkað mikið í verði. „Þar sem þetta er safn verður það að lúta ákveðnum tæknilegum kröf- um sem gerðar eru um geymslur, eins og loftræstingu og hitastig. Þetta eru viðkvæmir hlutir sem þarf að geyma á ákveðinn hátt og þessi aðföng hafa hækkað rosalega.“ Hún segir hins vegar að litlar sem engar breytingar hafi verið gerðar á innra byrði hússins eða teikningum, sem standa óbreyttar frá 1996. Auk Seltjarnarnesbæjar koma menntamálaráðuneytið, Þjóðminja- safn Íslands, Læknafélag Íslands og Læknafélag Reykjavíkur að gerð safnsins, en bygging þess hefur taf- ist nokkuð vegna kreppunnar. „Við ætluðum að vera komin miklu lengra, en við verðum bara að sjá hvernig árið í ár gengur til að vita hvað við getum sett mikið í þetta á næsta ári og þarnæsta. Við erum að útskýra fyrir ríkinu hvað hefur gerst og reyna að fá að sækja meira til menntamálaráðuneytisins.“ Í millitíðinni verður reynt að búa svo um hnútana að húsið geti verið opið Seltirningum við sérstök tilefni í sumar. „Svo verður þetta eins og var með Þjóðminjasafnið, mjatlað eftir föngum.“ una@mbl.is Kostnaður við safnið tvöfaldast  Aðföng hafa hækkað eftir hrunið Morgunblaðið/Ómar Nesstofa Kostnaður rauk upp. Árlega veitir Öldrunarráð Íslands viðurkenningu fyrir frábær störf í þágu aldraðra. Nú er óskað eftir ábendingum um einstaklinga, stofnanir eða félagasamtök, sem víðast af landinu sem verðskulda slíka viðurkenningu árið 2010. Ábendingar sendist til starfsmanns Öldrunarráðs Pálínu Sigurjónsdóttur, Hverahlíð 20, 810 Hveragerði eða í tölvupósti, pala@dvalaras.is, fyrir 15. maí. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is LÍTIL breyting mældist á flestum undirflokkum vísitölu neysluverðs milli mars- og aprílmánaðar. Vísi- talan hækkaði um 0,25% á tíma- bilinu samkvæmt mælingum Hagstofunnar og virðist hafa dreg- ið umtalsvert úr hækkunum miðað við undanfarin misseri. Mest er hækkunin að þessu sinni á mat og drykkjarvörum og nemur hún 1,1%. Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 8,3% en án húsnæðis um 11,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2% sem jafngildir 8,1% verð- bólgu á ári en 11,1% án húsnæðis. Breytt innkaupamynstur Neyslumynstur fólks hefur hins vegar tekið umtalsverðum breyt- ingum frá bankahruninu og hefur innbyrðis vægi dagvöruverslana því verið endurskoðað og tillit tekið til breytts innkaupamynsturs sem fel- ur í sér 0,03% lækkun á vísitölunni. „Í venjulegu árferði eru ekki miklar breytingar á milli ára því neyslubreytingar eru yfirleitt hæg- ar. Verulegar breytingar urðu þó í fyrra,“ segir Guðrún Ragnheiður Jónsdóttir, deildarstjóri vísitölu- deildar Hagstofunnar. „Og þá þurftum við að fara að skoða þessi mál og finna nýrri heimildir.“ Þróunin áratugina á undan hafi verið sú að vægi nauðsynja á borð við dagvöru fór minnkandi í útgjaldapakka fjölskyldunnar. Á meðan fór vægi utanlandsferða, sjónvarpskaupa og -áhorfs, líkams- ræktar og annarra tómstunda vax- andi. „Nú hefur þetta gengið svolít- ið til baka og það hefur umtalsverð áhrif.“ Nefnir hún sem dæmi að vægi matar og drykkjar hafi þannig auk- ist úr 12% í 15,1% af vísitölu neysluverðs frá því í mars 2008. Viðhald og viðgerð húsnæðis hafi lækkað úr 4,6% í 3,5% og verulega hafi dregið úr vægi kaupa á öku- tækjum sem hafi farið úr 7,4% í 2,1%. Vægi nauðsynjavöru eykst í neysluvísitölu  Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 8,3% síðasta árið  Neyslumynstur fólks hefur tekið töluverðum breytingum Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010 Grunnur janúar 2008=100.Vísitalanmiðast við verðlag í aðminnsta kosti vikutíma í kringummiðjanmánuð.Allir útreikn- ingar erumiðaðir við tölurmeð fullumaukastöfum. Vegna styttingar aukastafa kannað skapast ósamræmimilli birtra talna. Vísitala neysluverðs, undirvísitölur frá 2008 Apríl 2008 2009 2010 % Brauð og kornvörur 108,8 137,2 152,3 40,0 Hrísgrjón 109 169,1 165,4 51,7 Sætabrauð og kökur 110,7 122,6 149,5 35,0 Flatbrauð, hrökkbrauð og kex 106,9 139,9 163,3 52,8 Kjöt 105,2 110 109,6 4,2 Lambakjöt, nýtt eða frosið 99,7 111,6 104,2 4,5 Fiskur 103,8 112,4 129,3 24,6 Mjólk, ostar og egg 111,1 131,8 137,9 24,1 Ávextir 119,6 149 169,1 41,4 Epli 128,9 157,6 150,1 16,4 Kál 121,1 149 182 50,3 Sykur 108,2 160,8 201 85,8 Vatn 102,2 109,7 132,1 29,3 Gosdrykkir 102,9 124,3 151,9 47,6 Ávaxtasafar 114,5 130,1 132,7 15,9 Undirvísitölur mars 1997=100 - Breyting síðustu 12 mánuði Áhrif. Mars Apríl % á vísit Vísitala neysluverðs 203,3 203,8 8,3 8,3 Þar af: Innlendar vörur 179,6 181, 5 9,3 1,3 Búvörur og grænmeti 164,5 168,1 4,7 0,3 Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 191,4 191,8 13,1 1,0 Innfluttar vörur alls 188,2 188,0 14,8 5,4 Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks 181,8 181,6 14,3 4,7 Dagvara 184,3 186,1 9,3 1,7 Morgunblaðið/Golli Nauðsynjar Matur og drykkur vegur nú þyngra í neyslukörfunni en áður. ÚR BÆJARLÍFINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.