Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 17

Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 17
Morgunblaðið/RAX Heppni Happdrætti DAS hefur afhent óteljandi vinninga í rúmlega 50 ára sögu sinni. HAPPDRÆTTI D.A.S. er að byrja sitt 56. starfs- ár en happdrættið hefur á þessari rúmu hálfu öld lagt rúma 4 milljarða á núvirði til uppbyggingar dvalarheimila aldraða. „Happdrætti D.A.S. hefur því verið lífæð í allri uppbyggingu Hrafnistuheimilanna auk þess sem það lagði fram 40% af hagnaði þess til uppbygg- ingar dvalarheimila um land allt í 25 ára sögu þess. Allur ágóði Happdrættis D.A.S. rennur óskiptur til uppbyggingar enda mikil þörf á úr- lausnum í húsnæðismálum aldraðra,“ segir í fréttatilkynningu frá happdrættinu. Um þessar mundir standa yfir framkvæmdir á Hrafnistu í Reykjavík en þar er verið að sameina tvö her- bergi í eitt. Framkvæmdin er fjármögnuð að stórum hluta með ágóðanum frá Happdrætti D.A.S. Í ár mun Happdrætti D.A.S. bjóða upp á fjölda vinninga í hverjum mánuði. Samtals verða dregn- ar út 769 milljónir króna á árinu. Aðalvinningar í hverri viku eru ýmist 4 millj- ónir, 6 milljónir eða 14,6 milljónir króna ef við- komandi á tvöfaldan miða. Fjórir Audi A4 verða dregnir út á árinu og er verðmæti 7,3 milljónir króna hver. Ef viðkomandi á tvöfaldan miða fær hann 7,3 milljónir að auki í peningum sem verða í skotti bifreiðarinnar. Ennfremur verða 10 aðalvinningar á 6 milljónir og 38 vinningar á 4 milljónir hver á tvöfaldan miða. Heildarfjöldi vinninga er nálægt 50 þúsund. Allir vinningar í Happdrætti D.A.S. eru skatt- frjálsir. Miðaverð er enn óbreytt eða 1.000 krónur einfaldur miði og 2.000 krónur tvöfaldur miði. Milljónavinningur í skottinu Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 FERÐASÝNINGIN Íslandsperlur verður haldin í Perlunni dagana 1. og 2. maí, kl. 10-17. Á sýningunni verður fjölbreyti- leiki íslenskrar ferðaþjónustu kynntur. Gestum verður boðið að ganga hringinn í kringum landið og fá nasasjón af því besta sem ferða- löngum stendur til boða í sumar. Hvort sem fólk hefur áhuga á fugla-, sela-, eða hvalaskoðun, gönguferðum um fjöll og fjörur, nýjungum í matvælaframleiðslu, söfnum eða sýningum, að spila golf, renna fyrir fisk eða skella sér á skíði, heimsækja heilsulindir, blóm- lega bæi eða iðandi borg. Ferðasýning Í ÁR fagnar Hundarækt- arfélagið Rex 5 ára afmæli. Af því tilefni efnir félagið til afmæl- issýningar á laugardag og sunnudag nk. í Reiðhöll Gusts í Álalind í Kópavogi. Sýningin stend- ur kl. 12-17 báða dagana. 110 hundar af 15 tegundum verða til sýnis. Hinar ýmsu hunda- tegundir verða kynntar gestum og getur unga kynslóðin fengið að klappa og skoða. Einnig verða sýn- ingarbásar með vörum sem tengj- ast hundum og hundamenningu. Í veitingasölunni verða svo hægt að fá sér kaffi og meðlæti. 110 hundar verða sýndir um helgina STUTT SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana. TAX FREE! ÖLL GARÐHÚSGÖGN! TAX FREE! Afnemum virðisaukaskatt AF ÖLLUM Garðhúsgögnum um helgina 10% afsláttur af garð- og gestahúsum 149.000 169.000 4.4 m 2 TAX FREE! ÖLL ÚTILEGUHÚSGÖGN! Opið til 21:00 í Skútuvogi alla daga Að sjálfsögðu stendur Húsasmiðjan skil á virðisaukaskatti til ríkissjóðs. FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði verður í Kald- árseli næsta sunnudag og hefst dag- skráin kl. 11. Þetta er í 20. skiptið sem slík vorhátíð er haldin á vegum safnaðarins í Kaldárseli og alltaf verið fjölmennt. Dagskráin er fjöl- breytt að venju; tónlist, gönguferð og hestar mæta á svæðið fyrir unga fólkið. Kaffiveitingar verða í sum- arbúðunum og grillaðar pylsur fyr- ir börnin. Rútuferð er frá kirkjunni kl. 10.30 fyrir þá sem ekki koma á eigin bílum. Allir eru velkomnir. Morgunblaðið/Ásdís Skemmtun Nóg um að vera á veg- um Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Fjölskylduskemmt- un í Kaldárseli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.