Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 27

Morgunblaðið - 30.04.2010, Síða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 ✝ Sigrún Alexand-ersdóttir fæddist í Reykjavík 21. nóv- ember 1945. Hún lést mánudaginn 19. apríl 2010. Foreldrar hennar voru Gestheiður Árnadóttir frá Reykjavík f. 8. júní 1919, d. 4. júlí 1961 og Alexander Geirsson frá Akranesi f. 21. ágúst 1911, d. 26. október 1982. Bræður Sigrúnar eru Kristinn Reynholt Alexandersson f. 18. jan- úar 1939, búsettur í Reykjavík, Árni Alexandersson f. 4. janúar 1941, bú- settur á Sólheimum í Grímsnesi, Heiðar Alexandersson f. 2. júní 1944, búsettur á Selfossi og Þorsteinn Jó- hannsson f. 10. nóvember 1950, bú- settur á Selfossi. Sigrún ólst upp og bjó nánast alla tíð í Reykjavík. Hún byrjaði ung að vinna og í gegnum tíðina hefur hún unnið á hinum ýmsu hjúkrunarheim- ilum og dvalarheim- ilum fyrir aldraða og fatlaða, meðal annars á Skálatúni, Sól- heimum í Grímsnesi, Droplaugarstöðum og núna síðast á Gull- smára í Kópavogi. Sig- rún var mjög list- hneigð og hafði sérstaklega gaman af því að mála og teikna. Ferðalög voru í uppá- haldi og hafði hún mjög gaman af því að ferðast með vinkonum sínum, bæði innanlands og utan. Hún hafði einn- ig mikinn áhuga á dulspeki og spáði mikið í spil, tölur, liti og fleira. Nátt- úrusteinar voru henni hugleiknir og hafði hún safnað mörgum fallegum steinum sem allir hafa mismunandi krafta og eiginleika. Útför Sigrúnar fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, föstudaginn 30. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Margt þú hefur misjafnt reynt, mörg þín dulið sárin. Þú hefur alltaf getað greint, gleði bak við tárin. (J.Á.) Minningar um þig sækja á eins og tónn í tón. Allt er eðlilegt í upplif- unarheimi og hugaranda. Gleði, kær- leikur, forvitni, ógn, líf, dauði, allt samantvinnaðir þræðir í lífsvefinn. Það er vandi að vera manneskja, en enn meiri vandi að vera góð mann- eskja, og það varst þú. Þér auðnaðist að varðveita barnseðlið og miðla því á svo ríkulegan hátt til annarra. Lífs- vefurinn þinn var þér svo hugleikinn; þú lagðir mikla alúð við að slétta hnökrana, þétta þræðina og láta lita- dýrðina njóta sín. Nú ert þú farin í þína hinstu ferð, hjartkæra vinkona. Þér tókst að koma öllum í opna skjöldu eins og svo oft áður. Eftir sitjum við hin, fátækari en jafnframt svo miklu ríkari. Gleðin, skopskynið, sakleysið, viskan og rétt- lætiskenndin, sem var þitt aðals- merki, snart strengi hjartans, kenndi okkur, og opnaði inn á við. Við mannfólkið förum stundum langt um skammt í iðu lífsins. Ég er þér óendanlega þakklát, elsku Sigrún mín, fyrir einstaka og einlæga vin- áttu. Minningin um þig mun ávallt fylgja mér og gleðja. Þitt skarð verð- ur seint fyllt. Vertu Guði falin, kæra vinkona. Ásta Finnbogadóttir. Þau eru mörg árin síðan leiðir okk- ar Sigrúnar lágu fyrst saman er hún réðst sem starfsstúlka á Skálatúns- heimilið í forstöðutíð minni. Sigrún vildi eins og svo margt ungt fólk skoða heiminn og fór þess vegna til Kaupmannahafnar og vann þar á sjúkrahúsi. Eftir heimkomuna sótti hún um starf á Hæfingarstöðinni Bjarkarási, er ég þá veitti forstöðu. Sigrún vann allan sinn starfsferil við umönnun andlega og líkamlega fatl- aðs fólks og á öldrunarstofnunum. Mér er minnisstæð umhyggja henn- ar, natni og ósérhlífni gagnvart fjöl- fötluðum dreng á Skálatúni. Hún var öðrum fyrirmynd. Í 45 ár hefur sam- band okkar Sigrúnar aldrei rofnað. Líf Sigrúnar var á stundum þyrnum stráð og erfitt í baráttu hennar við Bakkus, en hún hafði sigur. Líf henn- ar tók miklum breytingum og hún uppskar gleði og hamingju sem og vina sinna. Í Sigrúnu blundaði margt og hún var alltaf að koma á óvart. Hún hafði áhuga á lífsspeki og leynd- ardómum lífsins og í henni blunduðu listrænir hæfileikar. Hópur fyrrv. samstarfsfólks míns heldur tengslum. Eftir lát Sólveigar, fyrrv. aðstoðarforstöðukonu minnar, höfum við komið saman í minningu hennar. Svo var einnig nú er við vildum minn- ast þess að hún hefði orðið 60 ára 24. apríl sl. Sorgarfréttin barst okkur, Sigrún hefði látist snögglega. Við söknuðum hennarsem alltaf hafði verið með okkur. Söknuðum þessarar léttlyndu gamansömu vinkonu okkar sem okkur öllum þótti svo vænt um. Blessuð sé minning Sigrúnar. Samúðarkveðjur sendi ég dóttir hennar Gróu Lísu svo og öðrum að- standendum. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Gréta Bachmann. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Okkur langar í fáeinum orðum að minnast elskulegrar vinkonu okkar Sigrúnar Alexandersdóttur sem and- aðist langt fyrir aldur fram þann 19. apríl sl. Minningarnar lifna ein af annarri. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þessari yndislegu, skemmtilegu og frábæru manneskju á Heilsuhælinu í Hveragerði fyrir nokkrum árum. Með okkur vinunum myndaðist náinn vinskapur, sem við ræktuðum ávallt síðan. Það eru margar góðar minningar sem fara í gegnum huga okkar á svona stundu. Margt var brallað saman og mikil gleði ríkti ávallt í hjörtum okkar. Við urðum svo hress og spræk að við upp- lifðum okkur sem ungt fólk á heima- vist! Æ síðan höfum við kallað okkur bekkjarsystkini frá NFLÍ Hvera- gerði. Sigrún okkar var afskaplega skemmtilegur persónuleiki, hafði skemmtilega frásagnarhæfileika og í rólegheitum ultu brandararnir frá henni og allir veltust um af hlátri svo undir tók. Þær voru ófáar ferðirnar á kaffihúsin og var uppáhaldið hennar kaffi latte, og einnig af og til var farið að borða saman á matsölustöðum til að hvíla okkur á grænmetinu. Sigrún hafði þá náðargáfu að geta lesið úr tölum og ótrúlegt var hversu sannspá hún var oft á tíðum. Hún átti sterka trú og bænheit var hún. Sigrún átti eina dóttur sem ólst ekki upp hjá henni, og á þrjú barna- börn og þegar hún ræddi um þau öll þá ljómaði hún, því þau voru henni mjög kær. Hver minning er dýrmæt perla, hjarta hennar var fyllt velvilja og virðingu fyrir öllu sem lifir. Hún hafði að leiðarljósi þann góða ásetning að valda aldrei neinum sorg hvorki sjálfri sér né öðrum. Nú er þessi góða manneskja gengin og harmur hinna nánustu meiri en svo að því verði með orðum lýst. Drottinn leggur líkn með þraut og við biðjum Guðs blessunar og vottum samúð okkar. Of fljótt of snöggt, og farinn ertu vinur. Fögur minning, eftir stendur ein. F.h. bekkjarfélaganna, Ásta, Sigríður, Hafdís, Haukur, Hrafnhildur, Jón, Þórhildur og Þráinn. Í dag kveðjum við Sigrúnu Alex- andersdóttur. Hún var dóttir Gest- heiðar móðursystur minnar sem var mér mjög kær. Ég var mikið hjá henni þegar ég var lítil, fyrst að láni svo fór ég að passa fyrir Gestu í Kirkjustræti 10, þá átti hún 3 drengi og átti von á sínu 4 barni. Það var mikil eftirvænting að fá stúlku, því þá yrði allt svo gott. Svo kom stúlkan, það eru mín fyrstu kynni af Sigrúnu, litlu stúlkunni hennar Gestu. Ég kom oft við hjá þeim þegar þau áttu heima í vesturbænum rétt hjá mér. Alltaf var litla stúlkan hennar Gestu svo fín. Sigrún missti móður sína 15 ára gömul. Það hefur verið mikið áfall fyrir unglingsstúlku; þá er mesta þörfin fyrir móðurumhyggj- una. Svo líður tíminn og allir á fullu með sitt líf, engir til að sinna hver öðr- um, en þegar við frænkurnar hitt- umst þá fundum við hvað við vorum nánar og lofuðum hvor annarri að vera í sambandi. Hún sagði mér frá stúlkunni sinni, henni Lísu. Fyrir 2 árum hittumst við í Grasagarðinum inni í Laugardal og fengum okkur kaffi og spjölluðum. Ég fann hvað Sigrún hafði mikla þörf fyrir að ná sambandi við frændfólk sitt. Við lof- uðum hvor annarri að hafa samband fjótlega, en tíminn líður og nú kveðj- umst við; fyrr en varir er tíminn bú- inn. Guð geymi Sigrúnu frænku sem var brosmild og hljóð með sínu æðru- leysi og sætti sig við allt og alla. Súsanna Kristinsdóttir. Sigrún Alexandersdóttir HINSTA KVEÐJA Við viljum minnast Sigrúnar, félaga okkar, í myndlistarhópn- um á Aflagranda. Brotthvarfið var snöggt og hennar verður sárt saknað. Hún var listakona með sinn sérstaka stíl og skemmtilegur félagi með góðan húmor. Hvíl í friði. F.h. félaganna í „Akademíunni“, Svava Stefánsdóttir. ✝ Þórdís Aðalbjörgfæddist að prest- setrinu Stað í Súg- andafirði 1. júní 1919. Hún lést 17. apríl á hjúkr- unarheimilinu Sól- vangi. Foreldrar Þórdísar voru Anna Stefánsdóttir, f. 25. október 1874, d. 5. mars 1960, og sr. Þorvarður Brynjólfs- son, f. 15. maí 1863, d. 9. maí 1925. Þór- dís var yngst 11 systkina. Elstur var hálfbróðirinn Ingólfur, sem sr. Þorvarður átti áður en þau Anna tóku saman, síðan Stefán, Brynjólfur, Jón, Ragnhildur, Brynveig, Haraldur eldri sem lést þriggja ára gamall, Laufey, Haraldur yngri og Þor- gerður. Þau eru nú öll látin. Þórdís giftist 19. júní 1948 Þor- birni Sigurgeirssyni prófessor, f. 19. júní 1917, d. 24. mars 1988. Þau eignuðust 5 syni: a) Þorgeir f. 27. mars 1949. Eiginkona hans er Erla Vigdís Kristinsdóttir. Þau eiga þrjú börn, Kristínu f. 19. maí Schmidt og eiga þau saman dæt- urnar Þórdísi f. 3. maí 2003 og Heklu f. 6. febr. 2005. Þórdís út- skrifaðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1937. Eftir að Þórdís og Þorbjörn hófu búskap bjuggu þau tvö ár í Danmörku, þar sem Þorbjörn var við framhaldsnám. Þegar heim var komið bjuggu þau um nokkurra ára skeið á Soga- veginum í Reykjavík, þar sem nú er Háaleitisbraut. Árið 1957 flutti fjölskyldan í Kópavoginn, þar sem þau reistu tvílyft hús innarlega á Digranesveginum, og var fjöl- skyldan meðal frumbyggjanna á lítt byggðri Digraneshæðinni. Þórdís hélt þar heimili uns hún fluttist á sambýlið Roðasali í Kópavogi fyrir um fimm árum, og síðan á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði. Þórdís var alla tíð mikil útivist- armanneskja og félagsvera. Gekk ung á hæstu tinda Kerlingarfjalla, stundaði skíðaíþróttir og var sem slík virk í Íþróttafélagi kvenna á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Síðar kom hún að stofnun Fimleikafélagsins Gerplu. Hún hafði mikinn áhuga á söng og tón- list almennt, lagði m.a. stund á söngnám og söng með kirkjukór Digraneskirkju og síðar Samkór Kópavogs. Útför Þórdísar verður gerð frá Kópavogskirkju föstudaginn 30. apríl 2010 og hefst athöfnin kl 15. 1968, en börn hennar eru Herluf, Ragn- heiður og Alexander, Þorbjörn f. 12. júní 1982 og Guðbjörgu f. 6. júní 1985. b) Sig- urgeir f. 21. ágúst 1950. Eiginkona hans er Hlín Gunn- arsdóttir. Sigurgeir á einn son, Þorbjörn f. 19. júní 1985. Móð- ir hans af fyrra hjónabandi er Krist- ín Jónsdóttir. c) Jón Baldur f. 23. júní 1955. Eiginkona hans er Auðbjörg Bergsveinsdóttir. Sonur Auð- bjargar og Stefáns Arnar Hjaltal- ín er Heiðar Örn f. 5. mars 1977, en saman eiga þau Auðbjörg og Jón Baldur dæturnar Höllu f. 2. júlí 1986 og Bergþóru f. 15. jan- úar 1989. d) Þorvarður Ingi f. 20. mars 1957. Fyrrverandi eiginkona hans er Helga Ingimundardóttir og eiga þau saman börnin Þórdísi f. 15. desember 1984 og Andra f. 5.desember 1988. e) Arinbjörn f. 11. maí 1961. Fyrrverandi sam- býliskona hans er Guðrún Sem barn að aldri fluttist móðir mín ásamt móður sinni prestsekkj- unni inn á Suðureyri við Súganda- fjörð og síðar til Reykjavíkur. Sem yngsta barnið í tiltölulega stórum systkinahópi naut móðir mín þess að hafa góðan aðgang að námi eftir að þær mæðgur fluttust til höfuðstað- arins. Mögulega varð það til þess að hún leit hlutina öðrum augum og hafði áhuga á öðrum lífsgildum en al- mennt var með fólk á þeim tíma. Þannig sameinaðist í þessari konu mikill útivistaráhugi ásamt ríkri þörf fyrir hreyfingu. En ekki síður hafði hún áhuga á andans málum, hollu mataræði og öðru því sem hreinsaði líkama og sál. Jafnframt því að koma fimm son- um sínum til manns, meðal annars með því að halda að okkur hunangi og hvítlauki sem móðir okkar taldi allra meina bót, tók hún virkan þátt í morgunleikfimi náfrænda síns og vinar, Valdimars Örnólfssonar, lagði stund á söng, sótti tíma í harmón- ikkuleik, dreif nágrannana á Digra- neshæðinni í útileiki á björtum vor- kvöldum og tók þess á milli til hendinni við skógrækt með föður okkar heitnum, Þorbirni Sigurgeirs- syni. Mamma var félagsvera, söng í kirkjukór og starfaði með fimleika- félaginu Gerplu. Gott ef nafn félags- ins var ekki frá henni komið. Hún var líka afar meðvituð um kvenrétt- indi og jafnan rétt kynjanna sem var eðlilegt mótvægi við karlaumhverfið heimafyrir. Sjálfsagt hefði mátt flokka hana til femínista, en það hug- tak var tæpast til þá. Þróunin var fullkomnuð þegar mamma hætti að reykja þessa einu sígarettu sína með dagbókarskrifun- um á kvöldin, gerðist grænmetisæta, fór að iðka jóga og gekk einhvern tímann berfætt yfir Lundartúnin í Fossvogsdalnum af því „það var svo gott að fá kraftinn úr gróðrinum beint upp í fæturna“. Þá má segja að prestsdóttirin og prófessorsfrúin hafi verið orðin hippi, en það hugtak var heldur ekki til þá. Ekki að undra þótt Þórdís þætti nokkuð sérstök á meðal nágrannanna í því skemmti- lega frumbyggjakompaníi sem var að verða til efst á Digranesveginum í Kópavogi á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Líf móður okkar hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Sambúðin við prófessorinn og hugðarefni hans var vissulega krefjandi á köflum. Veik- indi, krabbamein og nú síðasta ára- tuginn Alzheimer, hafa einnig sett sitt mark á líf hennar. Þrátt fyrir þetta sigldi hún gegnum allt sitt líf með jafnaðargeði og jákvæðu fasi. Birta og hugarró, sem var svo ein- kennandi fyrir þessa ljúfu mann- eskju, streymdi frá henni allt til hinsta dags. Við bræðurnir færum starfsfólki hjúkrunarheimilanna að Roðasölum í Kópavogi og Sólvangi í Hafnarfirði okkar innilegustu þakkir fyrir frá- bæra umönnun móður okkar síðustu æviár hennar. Jón Baldur. Þá er hún Dísa frænka farin. Mér þótti ákaflega vænt um þessa móð- ursystur mína sem var einstaklega hlý og ljúf, kankvís og hnellin með einkennilega tvírætt bros og stund- um með stríðnisglampa í augum. Hún hafði mikið yndi af tónlist og hafði góða söngrödd og söng í kórum meðan heilsan leyfði. Ég komst að því þegar ég var ungur drengur að við áttum annað sameiginlegt áhuga- mál, skíðaíþróttina. Hún tók mig satt að segja upp á sína arma, þegar ég nýkominn að vestan, alls ókunnugur öllu og öllum, var að reyna að komast á skíði. Hún bauð mér með sér upp í Skálafell þar sem hún og vinkonur hennar í Íþróttafélagi kvenna höfðu komið sér upp skíðaskála. Mér var þar með borgið. Fór ég margar ferð- ir með henni í Skálafell fyrsta vet- urinn hér fyrir sunnan. Dísa var flink á skíðum og fór fimlega niður brött- ustu brekkurnar í Skálafelli. Aldrei gleymi ég einni ferð sem við fórum á efstu brún í sól og blíðu. Þá voru engar lyftur og skíðin bor- in upp á bakinu. Hitnaði okkur vel á göngunni og fækkuðum við fötum eftir því sem hærra dró. Fyrr en varði var Dísa komin á brjóstahald- arana eina saman ofan klæða. Og viti menn, þannig brunaði hún niður allt Skálafellið við mikla undrun þeirra sem á horfðu. Þetta lýsti Dísu fænku vel. Hún var hugrökk og djörf og lét sér fátt fyrir brjósti brenna hvað svo sem öðrum fannst um það. Ég var stoltur af þessari djörfu frænku minni og dáðist að skíðaleikni henn- ar. Á þessum árum var Dísa ólofuð og hafði ekki ennþá kynnst þeim geð- fellda gáfu- og vísindamanni Þor- birni Sigurgeirssyni sem varð eigin- maður hennar og faðir fimm prýðis-sona þeirra. Áttu þau farsælt og hamingjusamt hjónaband. Studdi hún Þorbjörn með ráðum og dáð í hans mikilvæga brautryðjendastarfi í raunvísindum við Háskóla Íslands. Nú að leiðarlokum minnist ég Dísu frænku með þakklátum huga fyrir umhyggju hennar og vináttu í gegnum árin. Ég votta hennar nánustu samúð mína og Kristínu konu minnar en samgleðst um leið sonum hennar yfir því að hafa átt svo góða móður sem Þórdísi Þorvarðardóttur. Blessuð sé minning hennar. Valdimar Örnólfsson. Þórdís Aðalbjörg Þorvarðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.