Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 39

Morgunblaðið - 30.04.2010, Page 39
Menning 39FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 JÓRUKÓRINN heldur tvenna tónleika á næstu dögum, þá fyrri í dag, föstudag, og síðari á sunnudag. Fyrri tónleikarnir verða í Selfosskirkju og hefjast kl. 20.00. Á sunnudaginn verð- ur sungið í Félagsheimilinu Ár- nesi kl. 16.00 í kaffihúsastemn- ingu og tónleikagestum boðið upp á kaffi og konfekt. Á efnis- skránni er ýmsleg létt tónlist, þar á meðal tvær útsetningar kórstjórans á vinsælum lögum eftir Selfyssinga. Helena R. Káradóttir tók aftur við stjórn kórs- ins sl. haust. Píanóleik annast Þórlaug Bjarna- dóttir. Einnig verður leikið á fleiri hljóðfæri. Sér- stakur gestasöngvari er Halla Dröfn Jónsdóttir. Tónlist Tvennir vortón- leikar Jórukórsins Helena R. Káradóttir JÓHANNA Hreinsdóttir opn- ar sýningu á olíumálverkum í Listasal Garðabæjar, Garða- torgi 7, á morgun, laugardag, kl. 15:00. Sýningin sem hún nefnir Úr landslagi stendur til 12. maí og er opin alla daga frá kl. 13-18. Jóhanna Hreinsdóttir út- skrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1995 og hefur unnið að málverkinu síðan. Jóhanna hefur tekið þátt í mörgum samsýn- ingum og haldið einkasýningar. Síðasta einkasýning á verkum hennar var í Galleríi Fold árið 2008. Myndlist Úr landslagi í Garðabæ Jóhanna Hreinsdóttir KVENNAKÓR Garðabæjar fagnar tíu ára afmæli sínu með tónleikum í Langholtskirkju á sunnudaginn. Íslenskum kvenkyns tón- skáldum verður gert hátt undir höfði og kirkjuleg verk munu hljóma auk annarra verka úr ýmsum áttum. Á tónleikunum býðst gestum að rifja upp tón- listarsögu kórsins. Stofnandi og jafnframt stjórnandi kórsins er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona. Með kórnum leikur píanóleikari kórsins, Sól- veig Anna Jónsdóttir, auk fimm manna strengja- sveitar. Tónlist Afmælistónleikar í Langholtskirkju Ingibjörg Guðjónsdóttir Prjónakona, skúr- ingakona, kennari eins og mamma og vinna í útvarpi eins og pabbi 44 » BARNABÓKIN Dvergasteinn eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson kom út á finnsku fyrr í mánuðinum hjá Bokförlaget Idun í þýðingu Päivi Kumpulainen með nýjum mynd- skreytingum eftir finnska teikn- arann Timo Koljonen. Dverga- steinn er þriðja bók Aðalsteins sem kemur út í Finnlandi, en áður hefur forlagið Idun gefið út bækur hans Brúin yfir Dimmu og Ljósin í Dimmuborg. Aðalsteinn Ásberg kom fram á norrænum dögum í bænum Kuopio í síðustu viku og kynnti þá meðal annars Dvergastein, auk þess að heimsækja skóla og leikskóla þar sem hann flutti ljóð og söngva, en þar var þýðandinn Marjakaisa Matthíasson honum til fulltingis, en hún hefur auk Dimmu-bókanna þýtt bæði ljóð og söngtexta eftir hann. Á finnsku hlaut Dvergasteinn heitið Haltia joka kadotti hohtoki- vensä sem þýðir „Dvergurinn sem glataði gljásteini“. Þýdd Kápa Dvergasteins, eða Haltia joka kadotti hohtokivensä. Dverga- steinn á finnsku Haltia joka kadotti hohtokivensä Eftir Ásgerði Júlíusdóttur asgerdur@mbl.is UNDANFARIN þrjú ár hefur Samband íslenskra myndlistar- manna haldið úti vinnuaðstöðu fyrir um 40 félagsmenn sína í Sjónlistar- miðstöðinni á Korpúlfstöðum. Í tilefni af afmæli miðstöðv- arinnar ætla Korpart-félagar að slá upp vorhátíð þann 1. maí þar sem stór samsýning verður opnuð og fjöldi góðra gesta mun koma fram, þar á meðal Einar Már Guðmunds- son og Vox Feminae. Morgunblaðið gaf sig á tal við einn félaga og skipuleggjanda hátíðarinnar, mynd- listarkonuna Jónínu Magnúsdóttur, öðru nafni Ninný. „Ég held mér sé óhætt að full- yrða að það séu fáir listahópar á Íslandi jafn virkir og við. Við erum 40 sem störfum þarna að jafnaði, bæði listamenn og hönnuðir og hópurinn er gríðarlega fjölbreyttur. Textílfélagið er með gríðarstóra vinnustofu uppi á lofti og svo er hjá okkur leirlistavinnustofa, grafík- vinnustofa auk fjölda málara og hönnuða“. Þegar hún er spurð um tilgang vorhátíðarinnar segir Ninný að þetta sé þáttur í að lífga upp á Korpúlfstaði, „við erum að reyna að byggja upp alhliða starfsemi fyrir listamenn á mjög sjarmerandi stað með mikla sögu og sál. Við höfum verið með opið hús einu sinni í mánuði yfir veturinn síðast- liðin þrjú ár, auk tveggja samsýn- inga á ári. Afmælissýningin ber yfirskriftina „Birta“ sem að sögn Ninnýjar er skírskotun í vorið og gleðina sem fylgir komu sumarsins. „Fólki veitir ekkert af því að finna einhverja gleði, því reynum við öll að tengja verk okkar á ein- hvern við birtu, jákvæðni og gleði til þess að lífga upp á andrúms- loftið í þjóðfélaginu“. Allt að þrjátíu og sex listamenn koma að samsýn- ingunni en síðan verða vinnustofur listamannanna opnar þar sem hægt verður að spyrja þá spjörunum úr. Vorhátíð í Sjónlistarmiðstöðinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Samstarf Hluti félaganna í Kortpart-hópnum á Korpúlfsstöðum. Þar verð- ur haldin mikil vorhátíð á morgun og hún er opin öllum. Í HNOTSKURN » Vorhátíð Korpart-félagahefst kl. 13:00 á morgun á Korpúlfsstöðum. » Auk samsýningarinnarverður Einar Már Sigurðs- son með upplestur. » Kvennakórinn Vox Fem-inae syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. » Salsadansarar dansa fyrirgesti og gangandi. Heiðríkja á Korpúlfstöðum Á MORGUN kl. 17:00 spilar Ísafoldarkvartettinn þrjár perlur tónbókmenntanna í Salnum í Kópa- vogi. Ísafoldarkvartettinn er sprott- inn upp úr Kammersveitinni Ísafold sem stofnuð var árið 2003 og hefur unnið til fjölda verðlauna. Kvartettinn skipa þau Elfa Rún Kristinsdóttir, Helga Þóra Björg- vinsdóttir, Þórarinn Már Bald- ursson og Margrét Árnadóttir. Í samtali við Morgunblaðið segir Helga Þóra að það hafi eiginlega verið ótrúlegt að þau séu öll stödd á landinu á sama tíma því Helga Þóra býr í París en Elfa Rún í Berlín. „Við Elfa Rún ákváðum að halda þessa tónleika þar sem við vorum báðar staddar hér á sama tíma. Elfa Rún var að spila með sinfóníunni hérna heima og svo var Kammersveitin Ísafold með tónleika fyrir þremur vikum. Því gátum við stillt saman strengi og haldið þessa stórtónleika. Við höfum oftast spilað saman með Kammersveitinni og með öðru tón- listarfólki en þetta er í fyrsta sinn sem við spilum ein sem kvartett“. Á efnisskránni eru þrír stórir kvartettar frá þremur tímabilum í tónlistarsögunni en þetta eru verk eftir tónskáldin Joseph Haydn, Jo- hannes Brahms og Maurice Ravel. „Kammersveitin Ísafold hefur að- allega verið þekkt fyrir að flytja nú- tímatónlist en við ætlum að víkka út sjóndeildarhringinn og taka tvö eldri verk fyrir og eitt frá byrjun 20. ald- arinnar.“ Tónleikarnir eru liður í Tíbrár- tónleikaröð Salarins í Kópavogi. Tíbrártónleikar í Salnum í Kópavogi Ísafoldarkvartettinn stillir saman strengi Morgunblaðið/Ernir Frumraun Ísafoldarkvartettinn; Elfa Rún Kristinsdóttir, Helga Þóra Björg- vinsdóttir, Þórarinn Már Baldursson og Margrét Árnadóttir. GÍTARLEIKARINN Ignacio Rodes er nú staddur á Íslandi á vegum Listaháskóla Íslands, Erasmus- verkefnisins og spænska konsúlats- ins á Íslandi. Rodes kennir á opnu námskeiði í Sölvhóli, sal Listaháskólans, á morg- un kl. 11:00 til 16:00 og heldur síðan einleikstónleika í Þjóðmenningar- húsinu við Hverfisgötu daginn eftir, sunnudaginn, sem hefjast kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis, en tónleik- arnir eru samvinnuverkefni ofan- greindra aðila og Þjóðmenningar- hússins. Ignacio Rodes fæddist í Alicante á Spáni og hóf gítarnám hjá móður sinni, þá aðeins átta ára gamall. Hann er margverðlaunaður fyrir gítarleik sinn, hefur meðal annars unnið til fyrstu verðlauna í fimm al- þjóðlegum gítarkeppnum, þ.á.m. keppnum sem kenndar eru við Andrés Segovia, Francisco Tárrega og José Ramirez. Rodes stundaði frekara gítarnám í heimaborg sinni, en síðan í Lundún- um og þar hélt hann debúttónleika sína, í Wigmore Hall, árið 1986. Hann hefur leikið í mörgum helstu tónleikasölum heims, á alþjóðlegum tónlistarhátíðum og með heims- þekktum hljómsveitum. Hann hefur tekið upp fimm geisladiska. Opið námskeið í gítarleik í Sölvhóli  Spænski gítarleikarinn Ignacio Rodes heldur námskeið og einleikstónleika Námskeið Spænski gítarleikarinn Ignacio Rodes heldur líka tónleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.