Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010
Hljómsveitin MONO er stuð-
grúppa mikil og ætlar nú að gefa
fyrstu breiðskífuna sína út á netinu.
Plötuna MONO PARTÍ verður
hægt að ná í endurgjaldslaust á
www.monotonlist.is frá og með
morgundeginum, 1. maí.
Þar er að finna nokkur af vinsæl-
ustu ball- og partílögum Íslands-
sögunnar í flutningi MONO og
góðra gesta. Einnig verður hægt að
ná í bók með textum og gít-
arhljómum við öll lögin á plötunni.
Það er ekkert partí án gesta og
það eru bara stórsnillingar sem
koma fram með MONO-liðum á
plötunni, þeir Magni, Árni Johnsen,
Sjonni Brink, Gunni Óla, Rúnar
Eff, MattiIdol, Erna Hrönn, Dan
Cassidy, Einar Bragi, Íris Hólm og
Hemmi Gunn.
MONO gefur út fyrstu
plötu sína á netinu
Fólk
„QUADRUPLOS er hljómsveit með tveimur jafn
ævintýragjörnum og brjáluðum vísindamönn-
um.“ Svona hafa tónlistarmennirnir Magnús
Birkir Skarphéðinsson og Tómas Þórarinn
Magnússon lýst raf-hljómsveitinni Quadruplos,
sem hefur nú sent frá sér sína fyrstu plötu, í tak-
mörkuðu og númeruðu upplagi hjá Brak hljóm-
plötum í samstarfi við Weirdcore.
Upprunalega var sveitin stofnuð árið 2006 en
þeir félagar fóru fljótlega í góða pásu á meðan
þeir sinntu öðrum verkefnum. Síðastliðið vor var
sveitin svo endurvakin og ákveðið að byrja að
vinna nýtt efni. Magnús segir að platan hafi orð-
ið til mjög óvænt. „Við vorum að vinna lög fyrir
tónleika og allt í einu voru þau orðin það mörg
og okkur boðið að gefa út plötu og við slógum til.
Þessi plata er þannig búin að vera í vinnslu í
kannski fjóra til fimm mánuði.“
En hvað í veröldinni skyldi Quadruplos eig-
inlega þýða? „Þetta kom úr spuna hjá honum
Tómasi á tónleikum. Hann var að tala gervi-
spænsku og þetta orð kom. Ég fletti því upp og
þetta er bara gerviorð yfir fjórbura,“ segir
Magnús.
Það verður mikið um að vera hjá Quadruplos á
næstu mánuðum. Fyrirhugaðir eru þrennir tón-
leikar í maímánuði. Útgáfutónleikar sveit-
arinnar verða þann 14. maí á skemmtistaðnum
Venue. Ásamt því verður spilað á útskriftarsýn-
ingu Listaháskólans. Hægt er að fylgjast með
ferðum sveitarinnar á heimasíðunni hennar
quadruplos.tumblr.com. matthiasarni@mbl.is
Eru ævintýragjarnir og brjálaðir vísindamenn
Ljósmynd/Quadruplos
Ævintýr Vísindamennirnir Magnús og Tómas.
Rás 2 og Hátíð hafsins efna
enn og aftur til Sjómannalaga-
keppninnar. Óskað er eftir frum-
sömdum sjómannalögum við
frumorta íslenska texta og skila-
frestur er til 25. maí n.k. en úr-
slit verða kunngjörð í Popplandi
föstudaginn 4. júní.
Í fyrstu viku júnímánaðar
verða lögin sem komast í úrslit
spiluð frá morgni til kvölds á Rás
2, og landsmenn geta líka hlustað
á lögin á Popplandsvefnum
www.ruv.is/Poppland, þar sem
hægt verður að kjósa sitt uppá-
haldslag frá 28. maí til 4. júní.
Sigurlagið verður svo flutt á Há-
tíð hafsins á Grandagarði, sjó-
mannadagshelgina 5.-6. júní.
Sjómannalag ársins 2009 var
„Sófasjómaðurinn“ með Skapta
Ólafs og Sniglabandinu, „Faðm-
urinn“ í flutningi Ragnars
Bjarnasonar bar sigur úr bítum
árið 2008, en árið áður voru það
Ljótu hálfvitarnir sem sigruðu
með lagið sitt „Sonur hafsins“.
Þá er bara að taka upp gít-
arinn og semja einn sjómanna-
slagara.
Óskað eftir lögum í
Sjómannalagakeppni
HLJÓMSVEITARMEÐLIMIR Gildr-
unnar fagna um þessar mundir 30 ára
samstarfsafmæli sínu og ætla af tilefn-
inu að halda tónleika í Hlégarði í Mos-
fellsbæ annað kvöld. Að sögn Karls
Tómassonar trommuleikara stofnuðu
hann, Birgir Haraldsson söngvari og
Þórhallur Árnason bassaleikari
hljómsveitina Pass árið 1989, og tóku
meðal annars þátt í fyrstu Músík-
tilraununum árið 1982 undir því nafni.
Þeir tóku svo upp nafnið Gildran
1985.
„Þegar við breyttum nafninu fórum
við að semja lög sjálfir og búa til
texta. Tveimur árum síðar kom út
fyrsta plata Gildrunnar, en þær eru
orðnar sex í dag, þar af eitt tvöfalt al-
búm, Gildran í tíu ár. Sigurgeir Sig-
mundsson gítarleikari kom til liðs við
okkur 1989, þannig að hann er búinn
að vera með okkur í tuttugu ár.“
Karl segir þá félaga ætla að spila
þekktustu og vinsælustu lögin sín á
tónleikunum annað kvöld og játar að
það sé mjög skemmtilegt að spila og
æfa aftur saman. „Þetta kemur blóð-
inu á hreyfingu. Og við eigum þó
nokkuð mikið af lögum og þyrftum í
sjálfu sér ekkert að hafa voða mikið
fyrir því að koma út einni plötu í við-
bót,“ segir hann um framhaldið.
Enn sem komið er hefur ekkert
verið ákveðið en Karl segir vel koma
til greina að taka einn túr um landið
og heimsækja gamlar slóðir. Um
þessar mundir kemur líka út nýtt lag
frá köppunum, „Blátt blátt“, sem er
eftir Birgi söngvara en Vigdís Gríms-
dóttir rithöfundur samdi texta við.
Það má fastlega gera ráð fyrir að
Gildran spili nýja lagið á tónleik-
unum, sem Karl segist vona að verði
hinn skemmtilegasti viðburður fyrir
hljómsveitina sem og áheyrendur.
Morgunblaðið/Kristinn
Gildran Sveitina hafa skipað f́rá 1989: Sigurgeir, Karl, Birgir og Þórhallur.
Spilamennskan kemur
blóðinu á hreyfingu
Gildran heldur afmælistónleika og gefur út nýtt lag
Eftir Matthías Árna Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
það má lesa í fréttatilkynningu um
listasýningu að þar verði til sýnis
álfaælur og prinsessukjólar í
druslum. Þetta kemur hinsvegar
fram í tilkynningu frá listamönn-
unum Arnljóti Sigurðssyni og Frið-
riki Svani Sigurðarsyni, en þeir
opna sýninguna sína Parallel Uni-
versities í Crymo Galleríi í kvöld.
Leika sér með boð og bönn
Arnljótur segir að á sýningunni
séu þeir að hamast eins og þeir geta
við að brjóta niður þau boð og bönn
sem komið hefur verið fyrir í þeim.
„Þetta leyfir okkur að leika með
efni eins og glimmer, pallíettur og
ljóta liti.“ Segja má að þetta sé orð-
in ákveðin vinnuaðferð sem Arn-
ljótur og Friðrik séu búnir að koma
sér upp. Þeir eru að vinna verkin
ljót og eyðileggja þau í framhaldi.
„Þetta tengist líka því að það sem
er ljótt er ekkert endilega slæmt.
Ætti ég að vita það manna best,
heitandi Arnljótur.“
– Nú voruð þið saman í A4 Tri-
bute sýningunni fyrir stuttu. Eru
þetta svipuð verk og þar?
„Núna eru þetta málverk. En á
A4 sýningunni voru þetta teikn-
ingar, þar sem við unnum með
ákveðna stærð. Núna erum við að
mála á óreglulega fleti og ekkert að
festa okkur í stærðum.“
Hliðstæðir háskólar
Nafnið á sýningunni er komið til
vegna þess að þeir Arnljótur og
Friðrik eru hvor á sínum endanum
þegar kemur að skóla. Arnljótur að
sækja um, en Friðrik að hætta.
„Svo vorum við með hluta af A4
myndunum á útskriftarsýningu
Listaháskólans. Þannig að þetta eru
einskonar hliðstæðir háskólar. Það
er smá vísindaskáldskapur í þessu
nafni hjá okkur sem býður upp á
hvaða dellu sem er.“
– Mætti þá kalla þetta vís-
indaskáldskaparmyndlist?
„Já í rauninni, því það er allt ann-
ar heimur sem birtist hérna hjá
okkur.“
Aldrei skógarvörður í Noregi!
Þegar Arnljótur var í grunnskóla
greindist hann litblindur og sagði
læknir skólans að hann gæti ekki
orðið myndlistarmaður, flugmaður
né skógarvörður í Noregi, af öllum
störfum – því hann gæti ekki greint
litbrigðin á trjánum í skóginum.
– En hvernig er svo að vinna sem
litblindur myndlistarmaður?
„Það er bara voðalega eðlilegt
fyrir mér, en gæti verið skrýtið fyr-
ir aðra. Ég og Friðrik vorum ein-
mitt að tala um rauðan lit bara í
gær. Mér fannst hann vera alveg
Ferrari-rauður en Friðrik sá gult í
honum og fannst hann vera meira
brúnn. Vonandi næ ég að finna
milliveginn í þessu.“
Eins og segir verður sýningin
opnuð í kvöld kl. 20:00 og stendur
fram til miðvikudagsins fimmta
maí.
Ljótt ekki endilega slæmt
Sýningin Parallel Universities opnuð í Crymo Galleríi í kvöld
Annar listamannanna litblindur og hinn skrýtinn, segir í fréttatilkynningu
Ljósmynd/Atli Arnarsson
Litríkir Arnljótur Sigurðsson, Ragnar Fjalar Lárusson og Friðrik Svanur
Sigurðarson faðma verk af sýningunni Parallel Universities.
CRYMO Gallerí er staðsett á
Laugavegi 41a í portinu við hlið-
ina á Vínberinu. Galleríið var
sett á laggirnar sumarið 2009
af þeim Solveigu Pálsdóttur og
Þorgerði Ólafsdóttur og hefur á
þessum stutta tíma verið með
yfir 50 sýningar. Þar hefur mátt
sjá þverskurð af þeim ungu
myndlistamönnum sem vinna
hér á landi í dag.
Meðlimir í Crymo eru í kring-
um þrjátíu talsins, en galleríið
er ekki rekið í hagnaðarskyni.
Crymo Gallerí