Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 Þörf áminning um að það þarf hæfi- leika til að gera góðar heimildar- myndir.    Tvær myndir stóðu að mínu matiuppúr hátíðinni þetta árið, í raun eingöngu vegna stærðar þeirra afreka sem unnin voru í þeim. Í myndinni Alone on the Wall, úr myndaflokknum First Ascent, fylgj- umst við með klifraranum Alex Honnold þar sem hann „sólóklifrar“ (án línu eða annars öryggisbúnaðar) hinn lóðrétta 600 metra háa kletta- vegg Half Dome í Yosemite-þjóð- garðinum. Leiðin var fyrst klifin 1957 og tók þá fimm daga að finna leiðina og komast á toppinn. Alex fór sömu leið, án búnaðar, á tæpum þremur klukkutímum. Hin myndin var Rowing the Atl- antic, en hún fjallar um Roz Savage sem reri ein síns liðs yfir Atlants- hafið, frá Kanaríeyjum til Antigua, á 103 dögum, án nokkurrar utan- aðkomandi hjálpar. Þrátt fyrir að missa fjarskiptabúnað og rekakk- eri, og brjóta allar fjórar árar báts- ins, hélt hún ótrauð áfram. Hún er sjötta konan til að ná þessum áfanga og ku í dag vera að vinna í því að róa yfir Kyrrahafið. Engin logn- molla hjá henni!    Bæði Honnold og Savage eigaþað sameiginlegt að hafa ekki bara gert lífsstíl úr ástríðu sinni, heldur snýst lífið bókstaflega um hana. Savage er ein á sjó, í lítilli bát- skel, svo mánuðum skiptir og Hon- nold býr í sendiferðabíl til að þurfa ekki að vinna fyrir sér. Þannig get- ur hann eytt tíma sínum nær ein- göngu í klifur. Þessi fjarlægð frá hinu dæmi- gerða lífsgæðakapphlaupi er ein og sér mjög heillandi og hreyfir við einhverju innra með manni. Ég er kannski ekki á leiðinni að búa í sendiferðabíl, en hugmyndin um að fólk geri það til að elta ástríðu sína og drauma er á einhvern hátt svo falleg og hrein.    Banff-hátíðin var fyrst haldin ísamnefndu kanadísku þorpi það herrans ár 1976. Frá 1986 hafa svo valdar myndir farið vítt og breitt um heiminn og verið til sýn- ingar á hátíðum sambærilegum þeirri íslensku. Hátíðin skipar stóran sess hjá jað- aríþróttafólki, „eins konar árshátíð fjallamanna,“ eins og Björgvin Hilmarsson, kynnir hátíðarinnar, orðaði það. Það var því vel við hæfi að fimm- tándu myndinni, safni myndskeiða frá ísklifurfestivali Íslenska Alpa- klúbbsins, væri laumað inn í dag- skrána. Eins og með aðra list og menn- ingu höfða heimildarmyndir um jaðarsport ekki til allra. Iðkendum slíkra íþrótta fer þó ört fjölgandi á Íslandi og varla er fundin upp sú hreyfing sem ekki ratar á klakann. Sífellt fleiri finna því eitthvað við sitt hæfi, sína leið til að gera náttúr- una að íþróttahúsi sínu og snerta frelsið sem í henni býr. Viðburðum á borð við Banff- hátíðina á því væntanlega aðeins eftir að fjölga í nánustu framtíð, og aðsóknin að aukast. Þú þarft heldur ekki að vera adrenalínfíkill til að njóta mynda á borð við þessar. Áhugafólk um mannlíf, kvikmynda- gerð, náttúru og getu mannsins til að yfirstíga hindranir fá heldur bet- ur eitthvað fyrir sinn snúð.    Ef það er einhver mælikvarði álist að hún hreyfi við fólki, má klárlega segja að myndirnar á Banff séu list. Salurinn „úffar“ og „æjar“ þegar íþróttafólkið á tjald- inu dettur kylliflatt, misstígur sig eða missir takið. Í lok hátíðarinnar hafa áhorfendur svo fyllst eldmóð og áhugi þeirra á sinni eigin íþrótt er meiri en nokkru sinni fyrr. Það er ekki oft sem þú ferð í bíó og það endar með því að þig langar að fara að hreyfa þig. » Savage er ein á sjó, ílítilli bátskel, svo mánuðum skiptir og Honnold býr í sendi- ferðabíl til að þurfa ekki að vinna fyrir sér. LEIKARINN góðkunni Matt Damon og eiginkona hans, Luciana, eiga von á sínu þriðja barni. Fyrir eiga þau tvær dætur, eins og þriggja ára, en Lu- ciana á einnig ellefu ára dóttur frá fyrra sambandi. Damon er sagður vonast eftir strák þar sem honum finnst hann á tímum ofurliði borinn. „Ég bý með konunni og þremur stelpum, ég ræð ekki yfir neinu.“ Talsmaður hjónanna segir þau í skýjunum enda er Damon mikill fjöl- skyldufaðir. „Það er auðvelt að missa sjónar á raunveruleikanum en fjöl- skyldan heldur mér á jörðinni. Börnin koma rútínu á lífið og ég myndi ekki vilja snúa aftur til þeirra daga þegar ég var einhleypur.“ Reuters Damon á von á þriðja barni sínu Þriðja á leiðinni Matt Damon og frú. Sýnd kl. 10 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓ Bráðske mmtileg gaman mynd í anda A merican Pie. Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó HHH T.V. - Kvikmyndir.is Iron Man 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára Date Night kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára Iron Man 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS The Spy Next Door kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ She‘s Out of My League kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára I love you Phillip Morris kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára Nanny McPhee kl. 3:40 LEYFÐ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Sýnd kl. 3:40 Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 (POWER SÝNING) Bráðske mmtileg gaman mynd í anda A merican Pie. Sýnd kl. 8 og 10:10 POWE RSÝN ING Á STÆ RSTA DIGIT AL TJALD I LAN DSINS KL. 10 Robert Downey Jr., Samuel L. Jackson, Gwyneth Paltrow, Scarlett Johansson, Don Cheadle og Mickey Rourke eru mætt í fyrstu STÓRMYND SUMARSINS HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI – VIKU Á UNDAN USA! FYRRI MYNDIN GERÐI ALLT VITLAUST OG ÞESSI ER ENN BETRI! Ath. það er sérstakt leyniatriði á eftir creditlistanum í lok myndarinnar. SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HHHHH - SV, Mbl Sýnd kl. 6 og 8 Getiði sent á mig artwork? SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI u myndirnar m til 5. maí. Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greið með kreditkorti tengdu Aukakrónum www.laugarasbio.is 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á -bara lúxus Sími 553 2075 með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.