Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 30.04.2010, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2010 AÐEINS ein mynd verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum í dag. Er það stórmyndin Iron Man 2 sem er sjálfstætt framhald af einni stærstu mynd ársins 2008, Iron Man. Í myndinni snýr leikarinn Robert Dow- ney Jr. aftur í hlutverki milljarðamær- ingsins, uppfinningamannsins, við- skiptajöfursins og ofurhetjunnar Tony Stark. En hann á það til að bregða sér í hinn háþróaða búning réttlætishetj- unnar Iron Man. Eins og fram kom í fyrstu myndinni veit gjörvallur heim- urinn nú að Tony er Iron Man og það setur hann undir töluverða pressu. Sú pressa kemur annars vegar frá ríkisstjórninni, fjölmiðlum og al- menningi, sem öll vilja að hann deili tækniuppfinningum sínum með hernum til að veita honum for- skot á óvini sína, en hins vegar gerir þessi vitneskja heimsins það að verk- um að Tony er jafnvel stærra skotmark hermdarverka- manna en áður. Hann hefur Pepper Potts (Gwyneth Palt- row) og James Rhodes (Don Cheadle) sér við hlið, en þegar ill áform Ivans Vanko (Mickey Rourke) setja Tony í hættu hefst hasarinn fyr- ir alvöru. Leikstjóri er Jon Favreau og í aðalhlutverki auk Downey Jr. eru Scarlett Johansson, Sam Rockwell, Mickey Rourke, Samuel L. Jackson, Gwyneth Paltrow, Don Cheadle, Olivia Munn og Paul Bettany. Erlendir dómar Boxoffice Magazine 70/100 Variety 60/100 Empire 60/100 Járnmaðurinn snýr aftur Illmennið Mickey Rourke er vígalegur í hlutverki sínu. BÍÓFRUMSÝNINGAR» Járnmaðurinn Downey Jr. er kaldur karl. ÞRIÐJA framhaldsmynd unglingahryllings- ins Scream, verður frumsýnd í Bandaríkj- unum eftir liðlega ár, þ.e. 15. apríl 2011. Af upphaflega leikaraliðinu munu Neve Camp- bell, Courteney Cox og David Arquette snúa aftur til að berjast við grímuklædda morð- ingjann, en Cox og Arquette sem eru gift og eiga eina dóttur saman, kynntust einmitt við gerð fyrstu myndarinnar. Leikstjórinn Wes Craven sagði nýlega í viðtali við Entertainment Weekly að fjórða myndin myndi fjalla um þessar þrjár aðal- persónur og hvernig atburðir síðustu mynda hefðu mótað líf þeirra og persónur. „Sagan mun fjalla um Sidney (Neve Camp- bell), sem hefur nú verið laus við Draugafés í tíu ár og komið lífi sínu í réttar skorður á ný. Hún hefur meira að segja skrifað vinsæla skáldsögu, en á meðan halda framhalds- myndir Stab, sem var byggð á þeim atburðum sem hentu hana, áfram að koma út. Svo, að sjálfsögðu, snýr Draugafés aftur.“ Kevin Williamson, sem skrifar handritið, er samningsbundinn til að gera myndir fjögur og fimm, en hefur gefið það í skyn að alls verði gerðar þrjár myndir í viðbót. Hann hefur nú þegar kynnt hugmyndir sínar fyrir þessa nýju tríólógíu fyrir yfirmönnum kvikmyndaversins en ekki er búið að ákveða endanlega hvort myndir fimm og sex verði gerðar. Framleiðendur myndarinnar sendu á dög- unum út plakat til að æsa upp aðdáendurna, en þar var lítið gefið upp, andlit Draugaféss prýðir plakatið og fyrir ofan það stendur: „Nýr áratugur. Nýjar reglur.“ Einfalt en áhrifaríkt. Ár í Scream 4 „BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM“ SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI HHHHH “Þeir sem missa af þessari fremja glæp gegn sjálfum sér.” – Fbl.-Þ.Þ HHHHH – H.G. – Poppland Rás 2 FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND STÚTFULL AF SPENNU, HASAR OG FLOTTUM TÖLVUBRELLUM! HHH - The Hollywood Reporter HHH - Time HHH - Chicago Sun-Times – R.Ebert SÝND Í REYKJAVÍK Í3D SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND LAUGARDAG OG SUNNUDAG HHHHH „Fáránlega skemmtileg, fullkomlega uppbyggð og hrikaleg rússíbana- reið sem sparkar í staði sem aðrar myndir eiga erfitt með að teygja sig í“ - Empire – Chris Hewitt HHH - New York Post SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI Svalasta mynd ársins er komin! SPARBÍÓ 600 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 KICK ASS kl. 8 - 10:30 14 OFURSTRÁKURINN ísl. tal kl. 6 L IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 OFURSTRÁKURINN kl. 6 L KICK-ASS kl. 8 - 10 14 IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12 SHE'S OUT OF MY LEAGUE kl. 8 12 DATE NIGHT kl. 10:10 10 OFURSTRÁKURINN ísl. tal kl. 5:50 L / KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.