Morgunblaðið - 30.04.2010, Side 48
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Jörðin seld án auglýsingar
2. Meistaratitillinn til Stykkishólms
3. Forsetinn sniðgekk tilmæli
4. Atlético og Fulham í úrslit
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Söngkonan Eivör Pálsdóttir ætlar
að halda tónleika í Íslensku óperunni
28. maí næstkomandi. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni væntanlegrar
plötu, LARVA, sem er sjöunda hljóð-
versplata söngkonunnar.
Eivör heldur tónleika
í Íslensku óperunni
Listamennirnir
Arnljótur Sigurðs-
son og Friðrik
Svanur Sigurðar-
son opna í kvöld
sýningu í Crymo
Galleríi. Þeir ham-
ast við að brjóta
öll boð og bönn
og nota glimmer,
pallíettur og ljóta liti í verkum sínum.
Á sýningunni má m.a. sjá álfaælur og
prinsessukjóla í druslum. »40
Annar litblindur
og hinn skrýtinn
Tímaritið People hefur valið stór-
stjörnuna Juliu Roberts til að prýða
forsíðu árlegs sérblaðs sem þau kalla
„Fallegasta fólkið“. Þetta er í fjórða
skipti sem Roberts prýðir forsíðu
sérblaðsins en hún er
í dag 42 ára gömul,
tveggja barna
móðir. Aðrir sem
ná á lista eru
t.d. Jennifer An-
iston, Twilight-
stjarnan Ro-
bert Pattinson
og Jennifer Lo-
pez.
Julia Roberts falleg-
ust í fjórða skipti
Á laugardag Vestan 3-8 m/s og skýjað en úrkomulítið, en léttskýjað fyrir austan. Hiti
víða 3 til 8 stig.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag Vestlæg átt, yfirleitt hæg og væta
með köflum, en þurrt að mestu á SA-landi og Austfjörðum. Hiti víða 5 til 10 stig.
Spá kl. 12.00 í dag Hæglætisveður, smáskúrir á Suðurlandi, en léttir víða til í öðrum
landshlutum er líður á daginn. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐUR
Ásta Árnadóttir, landsliðs-
kona í fótbolta, mun ekki
leika með Íslands- og bik-
armeistaraliði Vals á næstu
leiktíð. Ásta er á förum til
Noregs þar sem hún mun
ljúka námi í sjúkraþjálfun.
Norska liðið Kolbotn sem
landsliðsmarkvörðurinn
Þóra B. Helgadóttir lék
með á síðustu leiktíð
hefur áhuga á að fá
Ástu í sínar raðir. »1
Ásta yfirgefur Val
og fer til Noregs
Bandaríski leikmaðurinn Sean Bur-
ton ætlar að leika á næsta tímabili
með Íslands- og bikarmeistaraliði
Snæfells í körfubolta. Burton missti
af síðustu þremur
leikjunum í úr-
slitakeppninni vegna
meiðsla en hann
hefur nú þegar
samið við Snæ-
fell. »1
Sean Burton verður
áfram í liði Snæfells
Árni Þór Sigtryggsson, hand-
knattleiksmaður á Akureyri,
skrifaði í gær undir eins árs
samning við þýska 1. deildarliðið
Dormagen. Hann heldur utan um
mitt árið eftir að hafa lokið prófi í
iðnaðarverkfræði frá Háskóla Ís-
lands. „Ég er spenntur fyrir að
stíga þetta skref og fara til
Þýskalands,“ segir Árni Þór. » 1
Fer frá Akureyri
til Þýskalands
ÍÞRÓTTIR
LINDASKÓLI í Kópavogi sigraði í
úrslitakeppni Skólahreysti sem fram
fór í Laugardalshöll í gærkvöldi. Lið
skólans náði sigursætinu með 67
stigum. Heiðarskóli í Keflavík náði
öðru sæti og Lágafellsskóli í Mos-
fellsbæ því þriðja.
Skólahreysti reynir á fjölmarga
þætti svo sem armbeygjur og
hreystigrip, sem stúlkur keppa í, og
upphífingum og dýfum sem eru
keppnisgreinar pilta. Bæði kynin
keppa í hraðaþraut. Margir þóttu
sýna frábæra takta í gærkvöldi en
sérstaka eftirtekt vakti Valgarð
Reinhardsson úr liði Lindaskóla sem
sigraði í dýfum og varð í 2. sæti í
upphífingum eftir að hafa náð 81
slíkri. „Ég vissi fyrir keppni að við í
Lindaskóla værum að keppa við
sterk lið og vissi því ekki hvaða ár-
angri við gætum náð. En þá var ekki
annað að gera en gefa sig allan í
þetta og stefna að sigri sem við náð-
um,“ sagði Karl Kristjánsson, einn
keppenda úr liði Lindaskóla.
„Erfiðasti hluti keppninnar var að
lesa sig upp á kaðli,“ segir Karl sem
bætir við að stífar æfingar hafi legið
að baki úrslitakeppninni og þær hafi
svo sannarlega skilað árangri.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurliðið Lið Lindaskóla fagnaði sigrinum. Einn afreksmanna skólans, Valgarð Reinhardsson, fyrir miðri mynd og hampar glæsilegum bikarnum.
Liðugir í Lindaskóla unnu
Heiðarskóli í Keflavík í öðru sæti
Frábærir taktar og fimir keppendur
Í HNOTSKURN
» Lindaskóli í Kópavogisigraði í úrslitakeppni
Skólahreysti með 67 stigum.
Heiðarskóli í Keflavík náði
öðru sæti og Lágafellsskóli í
Mosfellsbæ því þriðja.
»Erfiðast að lesa sig upp ákaðli. Stífar æfingar liggja
að baki en skiluðu árangri.
Morgunblaðið/Kristinn
Klapplið Liðin í Skólahreysti komu víða að, meðal annars frá Dalvík, og
höfðu trausta bakvarðasveit sem hvatti keppendur til afreka og dáða.