Brandajól - 20.12.1939, Side 12

Brandajól - 20.12.1939, Side 12
Auðvitað var maðurinn vitlaus. — Það var í öllu falli bara hressandi fyrir hann að vera svolítinn tíma inni á Kleppi, þar sem viðurgerningur allur er eins og á bezta hóteli og ofan í kaupið gratís. En Hamall Humalsson var, þótt undar- legt megi virðast, hreint ekkert ánægður með þessa tilhögun og lét þá skoðun sína í ljós svo einarðlega, að það þurfti tvo sterka menn til að sannfæra hann. Við komu sína til Klepps, var hann settur í klæddan klefa, hann var enn nokkuð óstýri- látur, en róaðist þó og stilltist eftir nokkra daga. Læknunum kom ekki alveg saman um, hvað að manninum gengi. Hann var að síð- ustu orðinn sljór og skeytingarlítill, en var þó alltaf öðru hverju að tuggast á þessum auðæfum sínum, þegar þeir töluðu við hann. Það var því ákveðið, að láta hann vera þarna til rannsóknar fyrst um sinn. Litlu síðar kom skip frá Englandi. Með því var fjöldi farþega, og enginn tók neitt sérstaklega eftir miðaldra konu í mikilli skinnkápu og með hornspangagleraugu, sem kom í land með koffortið sitt í hend- inni. Það er að segja, ekki fyrr en hún kom á hótelið, þar sem skáldið hafði búið á upp- sláttardögum sínum, en þar spurði hún eft- ir manni sínum, herra Hamli Humalssyni, rithöfundi. Þó að hún hefði spurt eftir hans hátign, sjálfum skrattanum, myndi það ekki hafa vakið neitt meiri eftirtekt á hótelinu. Það lá við, að dyravörðurinn og skrifstofufólk- ið fengi slag, þegar þeim skildist það á endanum, að þessi mynduga og mikla datna var Mrs. Aurora Beatrice Humalsson, en það nafn stóð á gullrendu nafnspjaldi henn- ar. Og þetta var kona, sem var því auðsjá- anlega vön, að henni væri hlýtt skilyrðis- laust og lét fólki ekki haldast uppi neinar vífilengjur. Áður en tíu mínútur voru liðn- ar, hafði hún þröngvað dyraverðinum til að segja sér alla söguna, því næst gaf hún honum vel útilátinn kinnhest í þjórfé og fór. Stundu síðar fékk yfirlæknirinn á Kleppi heimsókn, sem hann rak lengi minni til, og úr því fór raunasaga Hamals Humalssonar að styttast. Þau keyptu sér hús í Reykjavík og sett- ust þar að. Aumingja borgararnir urðu að láta sér lynda að sjá þau daglega spígspora um bæinn í allri sinni dýrð. Að vísu voru menn að bera sig að gera grín að þeim, og hornrónarnir spýttu gífurlega, þegar þau gengu fram hjá. En það var lítið gagn að því hvorutveggja. Frúin var hvorki Ijót né gömul, þegar öllu var á botninn hvolft, en mesta myndarmanneskja og fremur lagleg, þegar hún var búin að taka af sér horn- spangagleraugun. Og þau voru auðsjáan- lega ástfangin hvort í öðru. Mrs. Aurora Beatrice var þar að auki glaðlynd og gest- risin, en hún var ekki við lambið að leika sér, ef einhverjum láðist að sýna manni hennar, hr. rithöfundi Hamli Humalssyni, tilhlýðilega virðingu. Þau eignuðust bráð- lega mikinn vinahóp. Og með því að þau voru vellrík, þá varð það bráðlega lýðum ljóst, að Hamall Humalsson var bæði ágætt skáld og óvenjulega gáfaður maður. 10 BRANDAJÓL

x

Brandajól

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brandajól
https://timarit.is/publication/797

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.