Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Page 2

Framsóknarblaðið - 15.12.1952, Page 2
2 FRAMSÓKNARBLAÐIÐ hið góða, sem í yður býr, verði fyrir fulltingi Krists ráðandi í öllu yðar lífi og öllu yðar sam- félagi við aðra menn, svo að þér í raun og veru verðið liluttak- andi í þeirri sælu, sem í því er fólgin, að um samfélag yðar megi segja: Hér ríkir kærleikur Jesú Krists, Guðs sonar og frels- ara mannanna. Ef vér lesum íslendingasög- una,sjáum vér fyrir oss líkingu milli atburða sögunnar og út- sýnis landslags. Það fær ekki dulist, að mynd- ir sögunnar eru líkar myndum landabréfs. Þar eru auðnir og öræli, en einnig blómum skrýdd ar og gróðursælar grundir. Það, senr veldur mismuninum milli auðnar og blómlegrar byggðar, er kærleikurinn. Vér skulum eigi víkja af vegi kærleikans. Það virðist að vísu stundum aðrir vegir glæsilegri. En glæsileikur jreirra er glötun- arleið. Maður nokkur skrifar bók um ferð í gegnum Afríku. Hann segir: Þar vex tré eitt, sem er mjög laufskrúðugt og ilmandi, svo að það er freisting fyrir ferðamann að leita hvíldar í for- sælu þess. En falli ferðamaður í þá freistingu að sofna undir laufskrúði í skjóli greina þessa trés, þá vaknar hann aldrei aft- ur. Því að þó að tré þetta standi í glæsibúningi, gefur það frá sér eitur, sem smátt og smátt rænir menn lífinu. — Svo er um hverja kærleikssnauða stefnu mannlífinu. Menn sem gefa sig slíkri stefnu á vald, eru undir banvænum áhrifum, sem ræna þá smám saman verðmætum lífs ins. Hafið þér ekki flest lesið leikritið um Kinnahvolssystur eða séð leikinn? Hverjar eru Kinnarhvolssystur? Systur tvær, sem eru að ýmsu leyti mjög dyggðugar báðar. Önnur rnetur kærleikann mest af öllu. Hin metur kærleikann mikils innan vissra takmarka. En hún metur annað mest af öllu. Hvernig fór svo fyrir þeirri systur, sem hlýddi þeirri rödd huga síns að reyna að sjá sér farborða nteð þeint efnum einum fyrst og fremst, sem áþreifanleg eru? Leið hennar lá niður í jörðina, og þar sat hún og spann gull í aldarfjórðung, svo að allar gleði lindir hennar þornuðu. Hin systirin gaf kærleikanum kon- ungdæmi í hjarta sínu og lifði heilögu lífi í gjafmildi og góð- leika, treystandi vernd og bless- un og forsjá Guðs til þess að sjá sér farborða. Nú kann einhver að hyggja, að í slíku leikriti sé skáldið aðeíns að lýsa tveimur persónum, sem séu ólíkar, þó að íþær séu systur. En ef vér horfum með vakandi skynsemi á at- burði leiksins, verður oss ljóst, að hér er ekki verið að sýna sögulegar persónur aðeins, held- ur er tilgangurinn að reyna að kenna oss að skilja, að það er tvennt, sem togast á urn völdin í hjörtum allra manna, tvö öfl, systur, því að í raun og veru vakir hið sama fyrir báðum. En þó er öll gæfuleiðin að hlýða rödd þeirrar systurinnar, sem gengur lnaut kærleikans, líkn- arinnar, hjálparinnar, samúðar- innar, og í raun og veru verður sá, er fylgir þeirri rödd, einnig ríkari efnalega séð. Það veit líka konungur fjalldjúpanna og á sinn þátt í því. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Hvernig verður framtíð- arlífið á jörðunni, þegar kærleik urinn verður allt í öllu. Vér getum gjört oss það í hugar- lund fyrir sýn sjáandans Sadú Sundar Sing, er lýsir sýnum sínum inn í himininn, lýsir lífi frelsaðra. Hann sér Krist í há- sæti, mann óumræðilega dýr- Iegan“. Þegar ég sá andlit hans í hrifningarástandi, líktist það mjög því, sem ég sá með mínum lkamlegu augurn við afturhvarf mitt. Hann hefir sár, þaðan sent blóðið rennur. Þau eru ekki af- skrærnd, þau eru lýsandi og fög- ur. Andlit hans er sem sólin og ljómi þess blindar mig ekki, ég sé unaðslegt bros, elskuríkt dýrlegt. Umhverfis hásætið eru ótelj- andi andlegar verur. Mjög ólík- ar hver annarri, margar. Þarna eru þeir heilögu og þarna eru englarnir. „Og það er ekki hægt að greina hvern flokkinn frá öðrum, því að vér erum cill eitt“ var sagt við mig. Þeir eru allir útlits senr yngri bræður Krists, Ijónra af dýrð lrans. En dýrð lrans er yfirgnæfandi. Og það er breytileiki í litunr og búning- unr þeirra, sem eru umhverfis lrásætið. Hér eru fleiri litir en á jörðu, og á jörðu gefur ekki að líta neitt svo dýrlegt. Klæði allra eru senr gjörð af Ijósi. Eng ir denrantar á jörðu eða dýrir steinar kasta frá sér svo fögrunr litunr. Þegar þeir tala við nrig, kenrur lrugsun þeirra á auga- bragði inn í hjarta nritt, eins og við líka stundum vitunr á jörð- unni, lrvað einhver ætlar að segja, áður en hann tekur til máls. Ég þurfti ekki að læra nrál hins andlega heims. Þegar vér yfirgefunr þenna heim og komum inn í himininn, tölum vér það jafn eðlilega eins og ný- fætt barn dregur andann frá því augnabliki, sem það kenrur inn í þenna heim, þó að það hafi aldrei gert það áður. Hér er talað við nrig um and- lega hluti og vandanrál, senr verða ekki leyst á jörðinni. En þessir góðu vinir mínir kunna á því glögg skil. Og margt sé ég og lreyri, sem ég lrefi af skýra mynd í huga mínunr, en sem ég get ekki sagt frá á eigin máli, hvað þá á erlendri tungu. Hér verða nrenn aldrei þreyttir, óska aldrei að neitt verði öðruvísi. Og ef einlrverjir vilja hittast, þá er það sama lrverjir það eru, og hve langt þeir eru hver frá öðr- unr. Óskirnar uppfyllast nreð hraða lrugsunarinnar. Þetta er sá staður, senr hjartað þráir. Hér er fullnægt allri þrá. Engin sorg, engin kvöl, aðeins kærleikur, öldufall kœrleikans, fullkomin sæla. Og er Sadúinn segir þetta, Ijónrar svipur lrans. Og margir hlutir lrér eru lrliðstæðir því feg ursta á jörð vorri: Fjöll, tré, blónr, en ófullkomleikinn er horfinn, því að fjöll og fljót r þessum jarðneska heimi eru að- eins skuggi þess, senr vér sjáum á himni.“ Auðvitað er frásaga Sadúans um himininn miklu lengra mál og mótuð af persónuleika lrans og austrænunr hugsunarhætti. En lýsing lrans á himninum er lýsing á veröld kærleikans, og uppfylling þeirrar óskar, sem vér biðjum að uppfyllist, er vér biðjum: Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Hvert liggur vegurinn? Er þetta ekki allt svo auðvelt og bjart? Vegurinn liggur unr háa hæð, sem heitir Golgata. Krafta- verkið getur orðið lrin mikla skyndilega breyting, en aðeins þannig, að sársauki kærleikans á Golgata verði sársauki allra manna, að nrenn konrist til sam- vitundar við frelsiskraft sonar Guðs í þeirri vissu, að Það er betra að lifa ekki, en að elska ekki. Ofanleiti í Vestnrannaeyjurr), ro. desember 1952 Halldór Kolbeins. Áskorun Hér með er skorað á alla þó, sem eigi hofa greitt að fullu útsvör sín og fasteignagjöld að gera það nú þegar til þess að gjöldin séu að fullu greidd fyrir óramót. BÆJARGJALDKERI.

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.