Morgunblaðið - 21.06.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð
á allra síðustu sætunum 22. júní í
14 nætur til eins allra vinsælasta
sólaráfangastaðar Íslendinga,
Costa del Sol. Gríptu þetta
einstaka tækifæri til að njóta
lífsins á þessum vinsæla
áfangastað í sumarfríinu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Stökktu til
Costa del Sol
22. júní
Frá aðeins kr. 59.900 í 14 nætur
Kr. 59.900 - 14 nátta ferð
Verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í
íbúð með 1 svefnherbergi í 14 nætur. Verð m.v.
2-3 í herbergi / stúdíó / íbúð kr. 69.900.
Sértilboð 22. júní. Aukagjald f. einbýli kr.
40.000.-
14 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Morgunblaðið/Júlíus
Eftirlit Ætlunin er að fjölga hraðamyndavélum. Þótt þær geri sitt gagn er enn langur vegur frá því að hið mannlega auga verði óþarft.
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Tíu stafrænar hraðamyndavélar sem
staðsettar eru á landsbyggðinni
skráðu í fyrra 23.134 hraðakstursbrot
og úr urðu sektir upp á um 500 millj-
ónir króna. Árið 2008 voru brotin ríf-
lega 16.000 og er um að ræða 44%
aukningu. Mestu munar um tvær nýj-
ar vélar sem voru settar upp á Suður-
landsvegi, milli Hveragerðis og Sel-
foss í október. Flestar sektirnar komu
fyrstu vikurnar eftir að myndavél-
arnar voru settar upp en svo fækkaði
þeim hratt þegar ökumenn lærðu á
þær.
Ætlunin er að fjölga stafrænum
hraðamyndavélum upp í 16.
Af þessum 500 milljónum í sektir
innheimtust um 400 milljónir, sam-
kvæmt upplýsingum frá ríkislög-
reglustjóra.
Kostnaður við hverja stafræna
myndavél er afar misjafn og fer eftir
aðstæðum á hverjum stað en gera má
ráð fyrir ein slík geti kostað á bilinu
15-20 milljónir. Þótt töluverður kostn-
aður fylgi því að setja upp vélarnar og
í umsýslu er því ljóst að þær borga sig
hratt upp.
Dregur úr hraða
og slysum
Jón Hjaltason, verkefnastjóri í um-
ferðardeild Vegagerðarinnar, leggur
þó áherslu á að tilgangurinn sé ekki að
safna fé í ríkissjóð heldur að auka um-
ferðaröryggi. Staðsetning myndavél-
anna sé valin með tilliti til upplýsinga
um slysatíðni og þær settar upp ná-
lægt hinum alræmdu svörtu punktum
í vegakerfinu. Jón segir stafrænu
myndvélarnar hafa gefið afar góða
raun.
„Meðalhraði hefur minnkað og um-
ferðarslysum fækkað verulega á
þeim stöðum sem myndavélarnar eru
settar upp,“ segir hann.
Í fyrra hófu Norðmenn að gera
prófanir á svokölluðum með-
alhraðamyndavélum. Vegagerðin hér
á landi hefur fylgst með framvind-
unni en Jón segir að slíkar mynda-
vélar henti einkar vel þar sem akveg-
ir eru tvöfaldir, s.s. á
Reykjanesbrautinni. Ástæðan er m.a.
sú að í venjulegum hraðamynda-
vélum er erfitt að sjá hvorum tveggja
bíla, sem ekið er samhliða á tvöfaldri
akbraut, hafi verið ekið of hratt.
Einnig myndu þær smella af þegar
bíl væri ekið fram úr öðrum og yfir
löglegum hraða sem er leyfilegt við
framúrakstur.
Meðalhraðamyndavélarnar virki
þannig að fyrst sé tekin mynd af bílum
þegar þeir koma inn á ákveðinn kafla
vegarins og svo aftur þegar þeir aka út
af vegarkaflanum. Tölvukerfið greini
bílnúmerin og reikni út meðalhraðann.
Hafi viðkomandi ökutæki verið ekið
yfir hámarkshraða sé ökumaðurinn
sektaður. Jón segir að ekki sé farið að
ræða í alvöru um hvort slíkar mynda-
vélar verði settar upp hér á landi.
Flestir brotlegra á 96-110
Reglulega berast fregnir af ofsa-
hraða ökumanna en slíkur akstur
kemur sjaldan til kasta myndavél-
anna. Í skýrslu ríkislögreglustjóra um
notkun vélanna var langstærstur hluti,
eða 92%, þeirra 4.816 bifreiða sem ek-
ið var of hratt um Suðurlandsveg frá
október til desember 2008 á bilinu 96-
110 km hraða. Þegar þessar tölur eru
bornar saman við aðra þá staði þar
sem hámarkshraði er 90 km/klst., svo
sem á Suðurnesjum og í Hvalfjarð-
arsveit, sést að bensínfótur Sunnlend-
inga er ekki þyngri en annarra lands-
manna, því tölurnar eru svipaðar.
Þótt mikill fjöldi hraðakstursbrota
safnist á myndvélarnar, þá eru þær
ekki í notkun allt árið því þær eru
reglulega sendar til Noregs til við-
halds.
Auk vélanna á Suðurlandi eru staf-
rænar hraðamyndvélar á Suð-
urnesjum, í Hvalfjarðargöngum og
Fáskrúðsfjarðargöngum og í Hval-
fjarðarsveit.
„Meðalhraði hefur minnkað“
Tíu stafrænar hraðamyndavélar skráðu rúmlega 23.000 hraðakstursbrot í fyrra
Ein myndavél kostar 15-20 milljónir Settar upp á þekktum slysaköflum
Hlutfall hraðakstursbrota á Suðurlandi
þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.*
96-100
km/klst
101-110
km/klst
111-120
km/klst
121-130
km/klst
131+
km/klst
37,6% 54,8% 6,5% 0,8% 0,2%
* Skráð af stafrænum hraðamyndavélum (án tillits til vikmarka) 1. okt. til 31. des. 2009.
Dýrar myndir
» Brot sem náðust á mynd með
tíu stafrænum hraðamynda-
vélum í fyrra voru rúmlega 40%
allra umferðarlagabrota á Ís-
landi.
» Flestir brotlegra eru á 96-110
km hraða. Sekt fyrir að aka á 96-
101 km hraða þar sem hámarks-
hraði er 90 er 10.000 krónur.
» Sekt fyrir að aka á 101-110 km
hraða er 30.000 krónur.
» Tekið er tillit til vikmarka. Þeg-
ar mældur hraði er 101 km/klst.
eru 3 km dregnir frá hraðanum.
Þegar mældur hraði er meiri en
101 km/klst. eða meiri eru 3% af
mælda hraðanum reiknuð út.
„Það hefur kom-
ið skýrt fram á
undanförnum
dögum að mörg
þau lönd sem eru
andvíg hval-
veiðum geta ekki
fallist á neinar
málamiðlanir
sem fælu í sér
takmarkaðar
veiðar,“ segir
Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Ís-
lands í Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Tómas er staddur í Marokkó þar
sem ársfundur Alþjóðahval-
veiðiráðsins hefst á morgun, en
undanfarna daga hafa farið fram
óformlegir undirbúningsfundir.
Hann segir ólíklegt að samþykkt
verði málamiðlunartillaga formanns
og varaformanns ráðsins, sem m.a.
felur í sér minni veiðar en Hafró
mælir með og bann við viðskiptum
með hvalaafurðir, enda geti t.d.
Ástralía, Suður-Ameríkuríki og
sum Evrópusambandsríki ekki sætt
sig við aðrar hvalveiðar en frum-
byggjaveiðar.
Skip Hvals hf. mun að líkindum
halda til veiða um næstu helgi, seg-
ir Kristján Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Hvals.
hlynurorri@mbl.is
Samþykkja
ekki mála-
miðlanir
Hvalur hf. líklega til
veiða um næstu helgi
Tómas H.
Heiðar
Konur eru hvatt-
ar til að leggja
niður vinnu kl.
14:25 og mæta í
kröfugöngu þeg-
ar kvennafrídag-
urinn verður
haldinn hinn 25.
október. Öll
kvennasamtök
landsins hafa
ákveðið að taka
höndum saman og vilja gera
kvennafrídaginn að heimsviðburði
að sögn Margrétar K. Sverrisdóttur,
formanns Kvenréttindafélagsins.
„Nú ber svo við að í ár er 24. októ-
ber, kvennafrídagurinn, sunnudag-
ur. Við ætlum því að hafa alþjóðlega
ráðstefnu 24. október, þar sem
fulltrúar frá Sameinuðu þjóðunum
mæta og í kjölfarið færum við
kvennafrídaginn fram á mánudaginn
25. október en þá fara allir í kröfu-
göngu,“ segir Margrét.
Konur leggi
niður vinnu
Konan sem lést í
bifhjólaslysinu
við Gilsfjörð á
laugardag hét
Anne Marie
Reinholdtsen.
Hún var norsk,
annar tveggja
yfirforingja
Hjálpræðishers-
ins á Íslandi.
Að sögn lög-
reglunnar á Hólmavík voru tildrög
slyssins þau að jeppa var ekið upp
á þjóðveginn, á gatnamótunum við
bæina Litla- og Stóra-Holt,
skammt frá Gilsfjarðarbrú. Þar
skall hjólið, sem Anne Marie
Reinholdtsen ók, á jeppanum.
Lögreglan segir að enginn
grunur leiki á um að bifhjólinu
hafi verið ekið of hratt. Málið er
enn í rannsókn. kjartan@mbl.is
Lést í mót-
orhjólaslysi
í Gilsfirði
Anne Marie
Reinholdtsen
Tveir laxar veiddust á fyrstu
vaktinni í Laxá í Aðaldal í gær,
þegar veiði hófst, og voru báðir
yfir 20 pund. Fyrst veiddist einn
22 punda á Núpafossbrún og síð-
an einn 20 punda neðan Æð-
arfossa. Laxá er ein helsta stór-
laxaá landsins en það telst eflaust
fágætt að meðalþungi laxa á
einni vakt í ánni sé 21 pund.
Glaðasólskin og hiti var fyrir
norðan og aðstæður erfiðar til
veiða.
Í liðinni viku veiddi urriða-
veiðimaður á Laxamýrarsvæðinu
annars fyrsta laxinn í ánni, 73 cm
hæng sem tók urriðafluguna
Rektor á Spegilflúðardýpi.
Veiði hófst einnig í Laxá í
Leirársveit í gær og var það ein-
hver besta opnunin þar í árarað-
ir. Fjórtán laxar veiddust á fjórar
stangir á vaktinni og mun aflinn
hafa verið blanda af laxi sem hef-
ur verið eitt og tvö ár í sjó.
Í Aðaldal Laxá er kunn fyrir sína
stóru laxa sem veiðast ár hvert.
Meðalþyngd eftir
daginn var 21 pund
Stórlöxum landað
á fyrstu vaktinni í
Laxá í Aðaldal