Morgunblaðið - 21.06.2010, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 21.06.2010, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 Það er notalegt að koma við í útibúum Arion b anka og alltaf heitt á könnunni, þrátt fyrir það gerum við okkur grein fyrir því a ð tími þinn er mikilvægur. Við höfum sett okkur það markmið að stytta b iðtíma hjá gjaldkerum og þjónusturáðgjöfum í útibúum bankans svo að viðskiptavinir geti leyst sín mál fljótt og vel. Við ætlum að gera betur Íslenski ofurhlauparinn Gunn- laugur Júlíusson sigraði í 48 klukkustunda hlaupi á hlaupahátíð í Borgundarhólmi í Noregi um helgina. Hljóp hann 351,9 kíló- metra og var 74,3 kílómetrum á undan næsta manni. Gunnlaugur þreytti hlaupið í fyrra og bætti hann sig um 18 kílómetra á milli ára. Gunnlaugur er meðlimur í Samtökum ofurmaraþonhlaupara hér á landi en það er félag keppnis- manna sem hafa hlaupið 100 kíló- metra eða lengri keppnishlaup. Fé- lagsmenn þess eru 27. Þá tók annar meðlimur félagsins, Höskuldur Kristvinsson læknir, þátt í 100 mílna hlaupi í Ohio-fylki í Bandaríkjunum um helgina. Hösk- uldur varð árið 2005 fyrstur Íslend- inga til að hlaupa 100 mílna hlaup. Þá er annar hlaupari, Börkur Árnason, skráður í hundrað mílna hlaup í Kaliforníu um næstu helgi. Íslenskir hlauparar í eldlínunni Hlaupa ofurmaraþon Höskuldur Kristvinsson Gunnlaugur Júlíusson Landsvirkjun auglýsti um helgina á Evr- ópska efnahags- svæðinu eftir til- boðum í Búðar- hálsvirkjun. Að sögn Rögnu Söru Jónsdóttur upp- lýsingafulltrúa Landsvirkjunar er reiknað með að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefjast handa við verkið í október. Stefnt er að því að ljúka verkinu á haustdögum árið 2013. Landsvirkjun hafði áður auglýst útboð á fyrsta hluta verksins sem var jarðgangagerð. Útboðið var ein- göngu auglýst á Íslandi og kært á þeirri forsendu að skylt hefði verið að auglýsa það á Evrópska efna- hagssvæðinu. Að þessu sinni er ósk- að eftir tilboðum í stóran hluta verksins eða um 60 prósent fram- kvæmdarinnar og er jarðgangagerð- in inni í því. Gert er ráð fyrir að heildarársverk vegna byggingar virkjunarinnar verði hátt á sjöunda hundrað. Reiknað er með að verkið hefjist rólega og að næsta vetur starfi um 50 manns við bygginguna. Á árunum 2011 og 2012 er gert ráð fyrir að um 200 manns verði að störfum. Búðar- hálsvirkj- un í útboði Vinna hefst í haust Ragna Sara Jónsdóttir Rannsókn á banaslysinu í gjánni Silfru í Þingvallavatni er enn í fullum gangi, að sögn Ólafs Helga Kjartans- sonar, sýslumanns á Selfossi. Of snemmt sé að fullyrða nokkuð um til- drög slyssins. Enn sé verið að taka skýrslur af vitnum og verði því hald- ið áfram í dag. Banaslysið varð um hádegisbil á laugardag þegar franskur kafari drukknaði í Silfru. Sjúkralið, sér- sveitarkafarar, kafarar frá slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins svo og björgunarsveitir frá Árborg og Hveragerði fóru þegar á staðinn eft- ir að útkall barst. Maðurinn, sem tal- inn er um þrítugt, var meðvitundar- laus þegar hann náðist upp úr vatninu. Lífgunartilraunir hófust þegar í stað en báru ekki árangur og úrskurðaði læknir manninn látinn. Með manninum í för var frönsk kona sem talin er vera unnusta hans að því er lögregla segir. Konan var flutt með sjúkrabifreið á Landspítala þar sem henni var veitt áfallahjálp. Ólafur Helgi skorar á þá sem kunna að hafa verið vitni að aðdrag- anda slyssins eða geta veitt aðrar viðeigandi upplýsingar að hafa sam- band við lögregluna á Selfossi. kjartan@mbl.is Franskur ferðamaður drukknaði á Þingvöllum Lögreglan lýsir eftir vitnum að tildrögum slyssins Slysstaður Maðurinn var meðvitundarlaus þegar hann náðist upp úr gjánni. „Ég vissi af því í gamla daga þegar blautbúningar voru og hétu – það voru ekki komnir þurrbúningar – að þá var farið að kafa á Þingvöll- um á 7. áratugnum. Þetta voru strákar sem höfðu lært að kafa hjá Þresti Sigtryggssyni,“ skipstjóra hjá Landhelgisgæslunni, segir Tómas Knútsson kafari en hann á að baki nokkur hundruð kafanir í Silfru og gjörþekkir því svæðið. Að sögn Tómasar er lengsta köf- unarleiðin í Silfru um 400 m en hann lýsir henni sem „stórbrotinni vatnaveröld“ sem njóti stöðugt meiri vinsælda hjá köfurum. „Stórbrotin vatnaveröld“ KÖFURUM SEM SÆKJA Í SILFRU FJÖLGAR ÁR FRÁ ÁRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.