Morgunblaðið - 21.06.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Íslenska
flóran
í Elliðaárdal
Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í
Elliðaárdal undir leiðsögn Guðríðar Helgadóttur,
líffræðings, þriðjudagskvöldið 22. júní.
Skoðað verður marg-
breytilegt gróðurfar í
dalnum, blómplöntur og
byrkningar. Þátttakendur
eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst kl. 19:30
við Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
06
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Næstum allir sem hafa komið aðfjölmiðlum vita að Össur Skarp-
héðinsson er ekki nákvæmnismaður,
svo notað sé orðalag diplómatanna.
Hann leiðir staðreyndir oftast lip-urlega hjá sér enda hafa marg-
ar þeirra verið púkalegar við hann
og sannleikurinn og hann hafa ekki
heldur átt skap saman.
Össur telur þaðfremur sann-
leikanum að
kenna en sér.
Össur fór í við-tal við fréttir-
ekkiblaðið sem
Arion-banki læt-
ur útibú sitt Haga
gefa út fyrir manninn sem hljóp frá
þúsund milljörðunum.
Tilefnið var að Össur vill nú allt íeinu þjóðstjórn.
Það hafði áður verið nefnt og um-hverfðist þá Össur, hugsanlega í
minningu þess að hann hafði ein-
hvern tímann staldrað við í sam-
nefndu ráðuneyti.
Össur fór í viðtalinu yfir ástæðurþess að hann hrökk af hjörunum
síðast þegar þjóðstjórn var nefnd,
þótt hann vilji hana núna.
Fór hann vitlaust með tímasetn-ingar, aðdraganda, umgjörð og
umræður um málið.
Blaðamaðurinn gerði engar at-hugasemdir við atvikalýs-
inguna.
Var það fallega gert af honum aðvera ekki að blanda stað-
reyndum saman við svo stóra frétt.
Sannleikurinn mun hafa verið feg-
inn líka.
Össur
Skarphéðinsson
Uppsigað við staðreyndir
Veður víða um heim 20.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 11 skýjað
Akureyri 15 skýjað
Egilsstaðir 14 skýjað
Kirkjubæjarkl. 18 skýjað
Nuuk 10 skýjað
Þórshöfn 13 léttskýjað
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 skúrir
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 13 skýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 19 léttskýjað
Glasgow 20 heiðskírt
London 16 skýjað
París 15 skýjað
Amsterdam 13 skýjað
Hamborg 14 skúrir
Berlín 18 léttskýjað
Vín 15 alskýjað
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 23 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 19 skýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 23 heiðskírt
Montreal 26 skýjað
New York 29 heiðskírt
Chicago 23 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
21. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:55 24:05
ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35
SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18
DJÚPIVOGUR 2:10 23:49
„Þetta er mjög ásættanlegt,“ sagði
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykja-
vík, þegar hann hafði sett í þrjá
laxa og landað tveimur þeirra á
fyrstu klukkustundinni þegar hann
hóf veiði í Elliðaánum í gærmorg-
un. Hann veiddi þá alla á maðkinn.
„Nú set ég saman flugustöng og
reyni að ná öðrum laxi. En þá
sleppi ég honum, ég má ekki taka
fleiri,“ sagði hann, búinn með kvót-
ann. Samkvæmt hefð renndi
borgarstjórinn maðki í Sjávarfoss
klukkan sjö og fjórum mínútum
síðar hafði sex punda lax tekið og
var landað skömmu síðar. Var það
maríulax Jóns. Eftir myndatökur
var rennt aftur, aðeins neðar, og
strax var lax á. Sá slapp, en
skömmu síðar tók einn til á Breið-
unni, neðst í ánum, og náðist sá á
land. efi@mbl.is
Veiddi maríulaxinn
Jón Gnarr borgarstjóri setti í þrjá
laxa á fyrsta tímanum í Elliðaánum
Morgunblaðið/Einar Falur
Átök Jón Gnarr togast á við þriðja lax morgunsins á Breiðunni.
Ef fleiri borgarbúar hjóluðu, gengju eða tækju strætó í stað þess að nota
einkabíl myndi umferðaröryggi aukast og draga úr mengun. Samtök um
bíllausan lífsstíl stóðu fyrir þessari myndatöku sem sýnir glöggt hversu
frekir bílarnir eru til plássins miðað við mannfólkið enda eru bílarnir sem
ná út alla götuna jafnmargir fólkinu á myndinni.
Morgunblaðið/Eggert
Borg án bíla betur borgið
Bílarnir eru ferlega plássfrekir