Morgunblaðið - 21.06.2010, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
10 Daglegt líf
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Það eru ein 5 ár síðan égfékk þá hugmynd að gam-an væri að stofna lista-félag. Þá var hins vegar
ekki grundvöllur til stofnunar fé-
lagsins, allir virtust önnum kafnir í
góðærinu og ekki hafa tíma til að
hugsa um þessháttar. Það var því
ekki fyrr en í haust sem málið fór á
fullt og með hvatningu Ásmundar
Friðrikssonar bæjarstjóra gekk
þetta upp,“ sagði Bragi Einarsson
formaður Lista- og menningar-
félagsins í Garði um stofnun félags-
ins.
Lista- og menningarfélagið í
Garði var stofnað 29. desember 2009
og er um þessar mundir að stíga sín
fyrstu spor. Markmið félagsins er að
efla listir og menningu og stuðla að
opinni umræðu um þau mál. Félagið
mun bjóða upp á fjölbreytt lista- og
afþreyingarnámskeið og stefna að
því að fjölga lista- og
menningauppákomum í bæjarfélag-
inu. Nú þegar hefur verið boðið upp
á tvö námskeið undir hatti félagsins,
í málun fyrir byrjendur og lengra
komna og listasmiðju fyrir grunn-
skólabörn á yngsta og miðstigi.
„Félagið er hugsað sem gras-
rótarsamtök allra þeirra sem láta
hina miklu flóru listar- og menning-
ar sig varða og innan þess rúmast
öll listform, ásamt handverki. Með
stofnun félagsins viljum við efla list-
ræna meðvitund fólks,“ sagði Bragi.
Sjálfur er hann grafískur hönnuður
og listmálari og fer fyrir félaginu
ásamt því að kenna á myndlist-
arnámskeiðum.
„Garðurinn er bestur“
Annar Garðbúi sem hefur um
langt árabil starfað við félagsstörf
og kennslu er Kristjana Kjart-
Möguleikar til nám-
skeiðshalds hafa opnast
Listin er komin undir eina regnhlíf í sveitarfélaginu Garði. Lista- og menningar-
félagið í Garði var stofnað 29. desember 2009 og er markmið félagsins að efla list-
ir og menningu og stuðla að opinni umræðu um þau mál.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ferskt „Þar sem ferskir vindar blása“ er eitt af einkennisorðum sveitarfé-
lagsins Garðs. Kristjönu Kjartansdóttur umsjónarmanni fannst þetta flug-
drekaveggspjald hæfa vel því slagorði.
Morgunblaðið/Kristjana Kjartansdóttir
Sköpun í sandi Eitt af verkefnum barnanna í listasmiðjunni var að búa til
myndir úr efnivið sem fannst í fjörunni. Sjórinn skolaði svo verkinu burt en
það varðveitist á ljósmynd sem þessari
Nudemagazine.is er ekki hefðbundin
vefsíða heldur, eins og nafn síðunnar
bendir til, veftímarit. Þetta er ís-
lenskt tímarit um tísku sem ein-
göngu er að finna á þessari vefslóð.
Á síðunni er hægt að lesa nýjasta
tölublað Nudemagazine en einnig eru
hefðbundnar bloggfærslur um tísku.
Það er ekki nóg með að tímaritið sé
mjög flott heldur eru bloggfærsl-
urnar, sem eru settar inn á hverjum
degi, mjög áhugaverðar fyrir tísku-
spekinga og aðra. Það er augljóst að
það er fólk með puttann á púlsinum
sem heldur vefsíðunni og tímaritinu
úti.
Ritstjóri tímaritsins og hönnuður
er Jóhanna Björg Christensen, graf-
ískur hönnuður. Auk hennar starfa
við blaðið Edda Sif Pálsdóttir blaða-
maður, ljósmyndarinn Árni Torfason
og Daníel I. Bjarnason kvikmynda-
tökumaður, en Katrín Magnea Jóns-
dóttir, snyrtifræðingur og förðunar-
meistari, sér um alla förðun og
umfjöllun um snyrtivörur fyrir tíma-
ritið.
Fyrir þá sem hafa efasemdir um
tímaritalestur á netinu er óhætt að
segja að það er ekkert mál, jafn gott
og að handfjatla tímaritin og ódýrara
því Nudemagazine er ókeypis tímarit.
Vefsíðan www.nudemagazine.is
Morgunblaðið/Ernir
Ritsjórn Nudemagazine Daníel, Árni, Edda Sif og Jóhanna.
Flott tískutímarit og blogg
Íslenska plöntuhandbókin er komin
út í nýjum búningi, ríkulega aukin og
endurbætt. Um er að ræða einhverja
vinsælastu handbók sinnar tegundar.
Fjallað er um 465 tegundir plantna,
þar af margar sem hafa bæst við ís-
lenska flóru á undanförnum árum.
Bókin er ríkulega myndskreytt en í
henni er að finna litmynd af hverri
tegund, skýringarteikningu og út-
breiðslukort. Við flokkun plantnanna
eru notaðir sérstakir myndlyklar þar
sem þeim er raðað eftir blómalit og
öðrum áberandi einkennum, og einn-
ig eru í bókinni gagnlegir efnislyklar.
Allt þetta gerir að verkum að bókin
nýtist vel til að þekkja sundur plöntur
og fræðast um hina fjölbreyttu og
fögru flóru landsins.
Höfundurinn, Hörður Kristinsson,
er doktor í grasafræði og hefur um
árabil stundað rannsóknir á íslensk-
um plöntum.
Endilega...
...kynnist
gróðrinum
Rangur bókartitill
Þau leiðinlegu mistök urðu í mánudags-
blaðinu fyrir viku síðan að bók Sigrúnar Huld-
ar Þorgrímsdóttur var ranglega nefnd Göngu-
bók barnanna, en hún ber nafnið Fjallabók
barnanna.
Leiðrétt
Alþjóðadagur MND-félagsins á Íslandi var haldinn í gær undir stjórn Gísla
Einarssonar fréttamanns. Dagskráin hófst á Thorsplani í Hafnarfirði með
hjólastólaralli þar sem var keppt í þremur flokkum: Rafmagnsstólum,
handstólum og í svonefndum stjörnuflokki. Í fyrstu tveimur flokkunum var
keppt í kappakstri á 800 metra braut sem byrjaði og endaði á Thorsplani. Í
stjörnuflokknum þurftu þjóðkunnir Íslendingar að glíma við hindranir í
hjólastólaralli. Þurftu þeir að leysa þrautir sem fólk sem bundið er við
hjólastóla þekkir úr daglegu umhverfi sínu. Í þeim flokki fór Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og tilvonandi bæj-
arstjóri, með sigur af hólmi.
Þegar keppninni var lokið hófust tónleikar á Thorsplani þar sem m.a.
komu fram dúettinn UNO, Hreimur og félagar, Karlakórinn Þrestir og
Kristján Jóhannsson óperusöngvari.
Þjóðþekktir glímdu við
hindranir í hjólastólaralli
Kappsfull Ragnheiður Elín Árnadóttir þingkona stóð sig vel.