Morgunblaðið - 21.06.2010, Page 11

Morgunblaðið - 21.06.2010, Page 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Rautt og hvítt verður bleikt Sólveig Björk Gränz, umsjónarmaður listasmiðju fyrir 6-12 ára börn, spurði börnin hver þau héldu að niðurstaða blöndunar á hvítum lit og rauðum yrði og sýndi þeim svo. ansdóttir kennari. Þegar blaðamað- ur sótti Garðinn heim fyrir skemmstu undi hún sæl og glöð í stórum barnahópi, ásamt Sólveigu Björk Gränz listunnanda og hjúkr- unarfræðingi. Þær stjórnuðu lista- smiðju fyrir 6-12 ára börn en mark- miðið var að vekja áhuga þeirra á sínu nánast umhverfi, láta þau virða fyrir sér form og liti og nýta efnivið úr náttúrunni til sköpunar umhverf- islistaverka. Í listasmiðjunni mátti sjá umhverfislistaverkin fullunnin en í nýrri myndmenntastofu Gerða- skóla fór fram veggspjaldagerð. Eitt af verkefnum barnanna í smiðj- unni var að búa til veggspjald sem sýndi áhugaverða staði í Garði og laðaði gesti að Sólseturshátíð. „Garðurinn er bestur“, „Flottasti staðurinn“, „Garðurinn glansar“og „Fjaran er frábær“ voru slagorð sem börnin vildu setja á vegg- spjaldið sitt. Þegar blaðamaður spurði krakkana um uppáhalds- staðinn sinn, nefndu þau m.a. Garð- skaga, fjöruna og Bræðraborg, al- menningsgarðinn. Gjörningur í fjörunni „Við erum í raun bæði að kynda undir því sem þau geta og kenna þeim ný heiti, eins og fjarlægð, lita- blöndun og gjörning. Í gær fórum við í Gerðavörina til að búa til gjörn- ing úr því sem fjaran hafði upp á að bjóða. Þau voru mjög hugmyndarík og fljót að finna efnivið. Þau áttuðu sig á því að þessi listverk væru hverful og mundu einungis standa þar til sjórinn félli að. Þau varðveit- ast hins vegar á ljósmynd,“ sagði Kristjana um gjörninginn. Sólveig Björk bætti við að með nýrri mynd- menntastofu í stækkuðum Gerða- skóla skapaðist möguleiki á nám- skeiði sem þessu. „Það má segja að við séum að vígja stofuna,“ sagði Sólveig Björk og bætti við að það væri nauðsynlegt að geta boðið börnum í Garði upp á námskeið sem þetta. Það má ljóst vera þegar ánægjustuðull þátttakenda var skoðaður. Öll börnin áttu að merkja við á veggspjaldi hvort upplifun dagsins ætti heima broskallamegin eða fýlukallamegin og allir höfðu merkt við broskallamegin tvo daga í röð, nema einn sem hafði misst sam- starfsmann sinn frá sér vegna óhapps. „Það var erfitt að mála einn,“ sagði hann og hafði auk þess áhyggjur af vini sínum sem þurfti að fara til læknis. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 Daglegt líf 11 » Lista- og menningarfélagið í Garði heldur úti vefsíðu sem hugsuð er sem vettvangur til kynningar á félaginu. Slóðin er listamenn.123.is. » Á aðalfundi félagsins í júní- byrjun var ákveðið að félagið yrði með sérstaka tónlistardeild sem sæi um að skipuleggja tónleika- hald félagsins. » Á Sólseturshátíðinni í Garði helgina 25.- 27. júní nk. verð- ur sýndur af- rakstur nám- skeiða félagsins á vorönn og síð- an verður farið á fullt með nám- skeiðshald aftur í haust. Dagskrá hátíðarinnar er að finna á www.- sv-gardur.is Afrakstur á Sól- seturshátíðinni LISTA- OG MENNINGARFÉLAGIÐ ódýrt og gott HM Lúxushamborgarar, 2 hamborgarar, 2 brauð, beikonsneiðar, BBQ sósa, ostur og Pepsi eða Pepsi Max, 1 l 798kr.pk. Ásólríkum dögum draga marg-ir útigrillin úr geymslum ogloftið fyllist af indælli grill- lykt. Það er ekki sama hvernig staðið er að eldun á grilli. Við matreiðslu yf- ir opnum eldi er hætta á myndun efna sem eru í flokki krabbameins- valdandi efna. Þessi skaðlegu efni myndast við ófullkominn bruna og er þar helst að nefna fjölhringja vetniskolefni (PAH) en þekktast þeirra er bensó(a) pyren. Þau myndast einnig við reyk- ingu matvæla, skógarelda, eldgos, iðnað og bruna sígarettna. Við grillun er mest hætta á myndun slíkra efna þegar maturinn brennur eða fita af kjöti eða marineringu lekur niður á kolin eða heitt grillið. Þá logar í fit- unni og reykur með tjöruefnum myndast. Reykurinn leikur um kjötið og efni úr honum setjast á það. Við grillun matvæla er mikilvægt að gefa sér góðan tíma. Ef kolagrill er notað þarf að bíða með að setja matinn yfir þar til loginn slokknar og kolin eru orðin glóandi. Ef kjötið er feitt, skal skera sem mest af fitu utan af því áður en það er sett á grillið. Mikilvægt er að logi leiki ekki um matinn og skiptir þá engu hvort not- að er kola- eða gasgrill. Ef logar und- ir matnum skal færa hann frá log- anum, þó hann snerti ekki matinn. Síðan skal skera frá brennda hluta af kjötinu áður en þess er neytt. Hægt er að forðast að fita drjúpi niður á kolin eða ofan í heitt grillið með því að setja álpappír undir matinn og velja marineringu án olíu. Takmarka má myndun þessara efna enn meira með því að grilla við óbeinan hita. Sú aðferð er helst notuð þegar grilluð eru stór og þykk kjöt- stykki. Kjötið er ekki haft yfir eld- inum heldur til hliðar við hann. Grill- ið er haft lokað og virkar þá eins og ofn. Grillmatur getur einnig verið vara- samur ef hreinlætis er ekki gætt við meðferð hans. Gegnsteikið fuglakjöt, svínakjöt og hakkað kjöt til að koma í veg fyrir hugsanlega matarsýkingu. Gott er að nota tvöfalt sett af áhöld- um til að koma í veg fyrir kross- mengun. Blóðvökvi úr hráu kjöti má ekki komast í snertingu við eldað kjöt eða mat sem er tilbúinn til neyslu, t.d. salat. Ingibjörg Jónsdóttir, matvælafræð- ingur hjá Matvælastofnun Örugg matvæli – allra hagur! Er grillmatur varasamur? Morgunblaðið/Golli Nánari upplýsingar er að finna á vef Matvælastofnunar www.mast.is. Grillmatur Reyktur, grillaður og brenndur matur getur innihaldið skaðleg efni. Morgunblaðið/Eggert Hlegið Kristján Pálsson, fyrrver- andi þingmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.