Morgunblaðið - 21.06.2010, Síða 13

Morgunblaðið - 21.06.2010, Síða 13
Fréttir 13ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010 Landslög – lögfræðistofa og LM lögmenn hafa sameinað krafta sína undir merkjum Landslaga. Með sameiningunni aukum við faglegan styrk stofunnar og möguleika á að takast á við fjölbreyttari verkefni. Við flytjum um leið starfsemi okkar í nýtt húsnæði að Borgartúni 26. Þar vonumst við til að geta veitt umbjóðendum okkar enn betri þjónustu en áður. Engar breytingar verða þó á rekstri stofunnar í Reykjanesbæ. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar landslog.is. Borgartúni 26 · 105 Reykjavík Sími 520 2900 · Fax 520 2901 Hafnargötu 31 · 230 Keflavík Sími 421 1733 · Fax 421 4733 www.landslog.is landslog@landslog.is Landslög MÁL AÐ FLYTJA Ísraelsstjórn hyggst slaka á hafn- banninu í Gaza og heimila óheftan flutning vara þangað svo fremi sem þær séu á lista yfir leyfilegar vörur. Verður því hér eftir heimilt að flytja þangað allar vörur sjóleiðina sem hvorki tengjast hernaði né geta orðið Hamas-samtökunum að liði. Bregðast við gagnrýninni Eins og kunnugt er sköpuðust miklar deilur í kjölfar þess að 9 féllu í áhlaupi Ísraelshers á flutningaskip sem var að ferja vörur til Gaza. Stefnubreyting Ísraelsstjórnar er viðbrögð við þeirri deilu en viðvar- andi vöruskortur er á Gaza þar sem um 1,5 milljón manna býr. Hafnbannið hefur verið við lýði síðan 2005 en það hefur verið gagn- rýnt af mannúðarástæðum. Búist er við að tilslökunin muni leiða til bættra lífskjara á Gaza, framför sem vonir standa til að grafa muni undan málstað öfgamanna. Slaka á hafnbanni í Gaza Reuters Á Gaza Palestínsk fjölskylda. Stjórn Íhaldsflokksins og Frjáls- lyndra demókrata í Bretlandi býr sig undir að draga verulega saman segl- in í rekstri hins opinbera og spara með því 85 milljarða punda, eða sem svarar 15.980 milljörðum króna á nú- verandi gengi, á kjörtímabilinu. Nemur sú upphæð um 47% af ár- legum útgjöldum Breta til velferð- armála. Þjónustan mun því skerðast. Íhaldsmaðurinn George Osborne er nú tekinn við lyklavöldunum í breska fjármálaráðuneytinu eftir að Íslandsvinurinn Alistair Darling tók pokann sinn í kjölfar ósigurs Verka- mannaflokksins í þingkosningunum. Eiga engra annarra kosta völ Osborne dregur upp dökka mynd af ástandinu og segir óhjákvæmilegt að skera niður, ellegar eigi Bretar á hættu að sogast inn í neikvæða hringiðu hærri vaxta, gjaldþrota- hrinu og vaxandi atvinnuleysis. Blóðugur niðurskurður Reuters Erfitt Osborne tók við þröngu búi.  Breska stjórnin þarf að spara 85 milljarða punda í ríkisrekstrinum Karlar í konuleit á næturlífinu ættu að láta slag standa þegar ást- arlög heyrast úr hátölurunum. Þetta má lesa úr niðurstöðum franskrar rann- sóknar þar sem karlmaður sem álitinn var í með- alagi kynþokkafullur var látinn fara á fjörurnar við 87 konur. Árangurinn var mældur eftir því hvort maðurinn, Antoine, fékk símanúmer hjá dömunum eður ei og ætti þar með möguleika á stefnumóti síðar. Ómaði um herbergið Fór tilraunin þannig fram að konurnar héldu að þær væru að leggja mat á kexkökur en þær hittu að því loknu fyrir manninn í her- bergi þar sem rómantískir tónar bárust frá útvarpinu. Til samanburðar var annars kon- ar dægurtónlist leikin undir og kom í ljós að aðeins 27,9% kvennanna gáfu honum þá númerið en nærri tvöfalt fleiri, eða 52,2%, þegar örv- ar Amors bárust frá viðtækinu. Tónlistin opnar hjarta konunnar Celine Dion á mörg ástarlög. Fram kemur á vef Datamarket að miðað við 75% endurheimtuhlut- fall upp í þrotabú Landsbankans þurfi íslenska ríkið að taka 2,35 milljarða punda að láni til að standa undir skuldbindingum vegna Icesave gagnvart Bretum. Miðað við að stjórn Íhalds- flokksins og Frjálslyndra demó- krata skeri niður um 85 milljarða punda á kjörtímabilinu nemur niðurskurðurinn ríflega 36-földu Icesave-láni til Íslands. Annar mælikvarði er að þjóðar- framleiðsla í Bretlandi í fyrra er áætluð rétt ríflega 2.000 millj- arðar punda eða um 37.600 millj- arðar króna á núverandi gengi. Þýðir það að Icesave lánið er um 1/851 af þjóðarframleiðslunni. Til samanburðar er þjóðarfram- leiðsla á Íslandi á árinu 2009 áætl- uð um 1.500 milljarðar króna eða rétt tæplega 8 milljarðar punda. Ekki er útilokað að heimtur í þrotabúið verði betri. 36-falt Icesave-lánið BRESKA OG ÍSLENSKA SAMHENGIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.