Morgunblaðið - 21.06.2010, Side 25
Reuters
Hallelujah k.d. lang söng eitt frægasta lag Leonard Cohen.
Sussudio Phil Collins tók lagið á hátíðinni.
Heiðursverðlaunahafi Paul Simon.
Kanadamaður Leonard Cohen þakkar fyrir sig. Þakklátir Upprunalega Earth, Wind & Fire var heiðruð.
„Ég hugsaði með mér að þetta lag væri betra en
þau sem ég hafði verið að semja,“ sagði söngv-
arinn Paul Simon um lag sitt „Bridge Over
Troubled Water“ þegar honum voru af-
hent heiðursverðlaun frægðarhallar
laga- og textahöfunda fyrir lagið
í New York borg fyrir
skemmstu.
Phil Collins, Billy Joel,
John Mayer og Judy Collins
voru meðal þeirra sem stigu á
svið á hátíðinni. Kanadíski
söngvarinn Leonard Cohen
var vígður inn í frægðarhöll
laga- og textahöfunda og
hlaut ungstirnið Taylor
Swift Hal David Starlight-
verðlaunin, en þau eru af-
hent ungum og upprenn-
andi laga- og textahöf-
undum. Swift spilaði svo lag
Cohens „Suzanne“ áður en söng-
konan k.d. lang söng tilfinninga-
þrungna útgáfu af öðru Cohen-lagi,
„Hallelujah“.
Fjölmargir laga- og textahöfundar
voru einnig heiðraðir, þar á meðal
Jackie DeShannon, Bob Marley, upp-
tökustjórinn David Foster og upprunalegu
meðlimir Earth, Wind & Fire.
Taylor Swift.
Laga- og textahöf-
undar heiðraðir
Menning 25FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Hjólabrettafólk víðsvegar um heim
heldur í dag upp á svokallaðan „Go
Skateboarding“-dag, en tilgangur
dagsins er að hvetja fólk á öllum
aldri til að taka sér frí frá sjón-
varpsglápi og tölvuleikjum, fara út
og renna sér um göturnar á hjóla-
brettum. Frá árinu 2003 hefur ver-
ið haldið upp á daginn um allan
heim, en upphaf hans má rekja til
Suður-Kaliforníu þar sem hjóla-
brettamenn byrjuðu að safnast
saman í stórum hópum á þessum
degi og renna sér saman um götur
borga og bæja.
Undanfarin ár hefur íslenskt
hjólabrettafólk haldið daginn hátíð-
legan og í ár verður engin breyting
þar á. Hjólabrettamenn og -konur
ætla að hittast
fyrir framan
Hallgrímkirkju
kl. 13 í dag og
renna sér saman
niður Skólavörðu-
stíginn. Þaðan er
farið niður Laug-
arveginn og end-
ar hópurinn svo á Ingólfstorgi, þar
sem brettafólk mun leika listir sín-
ar fram eftir degi. Frá Ingólfstorgi
verður svo haldið í átt að Laug-
ardalnum, nánar tiltekið í hjóla-
brettagarðinn við Laugarlækja-
skóla þar sem grillveisla hefst kl.
18.30 og er öllum velkomið að mæta
með góðgæti á grillið.
matthiasarni@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Rennsli Brettakappar ætla að renna sér frá Hallgrímskirkju kl. 13 í dag.
Allir út á hjólabretti
Þær voru litskrúðugar þær fjölmörgu gleðigöngur
sem haldnar voru víðsvegar í heiminum um helgina.
Fólk fjölmennti í göngur á götum stórborga í löndum
eins og Ástralíu, Brasilíu, Kúbu, Króatíu, Rússlandi
og Þ́ýskalandi. Í́ Sydney, stærstu borg Ástralíu, var
haldin gleðiganga í þrítugasta og annað sinn. Tóku
tíuþúsund manns þátt í göngunni og talið er að um
hálf milljón manns hafi fylgst með á gangstéttum
borgarinnar. Reuters
Gleðigöngur
víðsvegar um heim