Morgunblaðið - 21.06.2010, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2010
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
The A-Team kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára Leikfangasaga 3D kl. 3:30 - 5:45 íslenskt tal LEYFÐ
The A-Team kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS Toy Story 3D kl. 5:45 - 8 enskt tal LEYFÐ
Get Him to the Greek kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 12 ára Húgó 3 kl. 4 íslenskt tal LEYFÐ
Robin Hood kl. 8 B.i. 12 ára Streetdance 3D kl. 3:30 - 10:20 B.i. 7 ára
The A-Team kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Snabba Cash kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
Streetdance kl. 6 - 9 B.i. 7 ára Get Him to the Greek kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR
Í STÆRSTU OG BESTU TOY STORY MYNDINNI TIL ÞESSA.
HHHH
"TOY STORY 3 ER ÞAÐ BESTA
SEM ÉG HEF SÉÐ Í BÍÓ Á ÞESSU
ÁRI HINGAÐ TIL OG ÉG GET
EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ SJÁ
HANA AFTUR!"
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
"...ÁN EFA MYNDIN SEM ÞÚ
VERÐUR AÐ SJÁ Í SUMAR"
"...BESTA TOY STORY MYNDIN
TIL ÞESSA - MEIRI HLÁTUR,
MEIRA FJÖR, MEIRA DÓT Í
FRÁBÆRI ÞRÍVÍDD"
"MEISTARAVERK!
LANGBESTA MYND ÁRSINS!"
STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI„Sumarið er komið
með kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
SÝND Í SMÁRA- OG BORGARBÍÓI
Stórskemmtileg
teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna með
íslensku tali
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú bo
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Hvaða kona kannast ekki við að hafa
tekið djarfa ákvörðun í klæðaburði
en misst kjarkinn við að líta í spegil,
því með klæðnaðinum gæti hún orð-
ið valdur að alvarlegu tískuslysi.
Eða þá að hafa keypt flík sem leit
óskaplega vel út í fataversluninni, en
virðist engan veginn passa við neitt í
fataskápnum. Heimasíðan Polyvor-
e.com ætti að höfða til þeirra sem
lenda oft í aðstæðum sem þessum.
Notendur deila afrakstri sínum
Polyvore.com er sannkölluð perla
fyrir konur, og eflaust nokkra karla,
sem hafa áhuga á tísku en eru samt
sem áður engir tískumógúlar. Þar er
að finna aragrúa af fötum, skóm og
fylgihlutum í öllum regnbogans lit-
um, sem hægt er að para saman og
búa til svokallaðar heildarmyndir,
líkt og þær sem þekkjast í tískublöð-
um. Ef áhugi er fyrir hendi er svo
hægt að skreyta samsetningarnar
með ljósmyndum og öðru dúlleríi til
að gera þær sem flottastar. Síðan
býður upp á þann valmöguleika að
deila samsetningunum með vinum
og jafnvel öðrum virkum notendum.
Þeir eru margir hverjir óhræddir við
að segja skoðanir sínar og eru óspar-
ir á hrósyrðin og veita þar með hvor
öðrum hvatningu. Þá er hægt að
skoða þær samsetningar sem eru
vinsælastar, en þær gefa oft góða
mynd af því sem er í tísku hverju
sinni.
Spurt og svarað
Á síðunni má einnig finna upplýs-
ingar um nánast allt sem viðkemur
tískuheiminum. Skemmtilegar
tískugreinar og ráð koma frá bæði
byrjendum og sérfræðingum. Þá er
notendum boðið upp á að senda inn
sínar eigin spurningar og virðist það
vera sá hluti síðunnar sem er hvað
vinsælastur. Hvað fer vel við hvítar
buxur? Hverju á ég að klæðast í at-
vinnuviðtali? Hvernig er hægt að
ganga í magabol án þess að þykja of
djörf? Hvar get ég fengið hinn full-
komna kjól fyrir lokaballið? Þetta
eru einungis brotabrot af þeim fjöl-
mörgu spurningum sem brenna á
notendum Polyvore.com um þessar
mundir.
140 milljónir flettinga á mánuði
Að sjálfsögðu er svo hægt að eign-
ast þau föt sem manni líst best á, því
síðan byggist á fatnaði þekktra
verslana. Hér er á ferðinni bráð-
sniðug markaðssetning sem einhver
íslenskur frumkvöðullinn gæti nýtt
sér, en Polyvore.com á gríðarlega
miklum vinsældum að fagna um
þessar mundir.
Samkvæmt aðstandendum eru
mánaðarlegir notendur síðunnar
orðnir sex milljónir talsins, hún fær
að meðaltali hundrað og fjörutíu
milljónir flettinga á mánuði og hver
heimsókn endist að meðaltali í tíu
mínútur, sem þykir nokkuð góður
árangur.
Tískuheimurinn brotinn
til mergjar
Af nógu að taka Lífleg og skemmtileg síða sem auðvelt er að gleyma sér á.
Kaupóðir notendur ættu þó að fara varlega, því fötin, skórnir og skartgrip-
irnir heilla.
Þúsundir ljósmynda úr safni Pol-
aroid fyrirtækisins eru nú komnar á
uppboð hjá Sotheby’s í New York.
Myndir eru hluti af þrotabúi fyr-
irtækisins, en því var skipað að
bjóða verkin upp, svo hægt væri að
greiða kröfuhöfum til baka. Á upp-
boðinu má finna myndir eftir heims-
fræga listamenn og ljósmyndara
sem margir hverjir eru ósáttir við
uppboðið og vilja meina að Polaroid
hafi einungis verið með myndirnar í
láni og þeim beri að skila til baka.
Til að undirbúa uppboðið hafa höf-
uðstöðvar Sothebys verið und-
irlagðar ljósmyndum. Nokkur her-
bergi hýsa t.d einungis myndir eftir
landslagsljósmydarnn Ansel Adams,
en um 400 myndir úr safninu eru eft-
ir hann. Denise Bethel yfirmaður
ljósmyndadeildar uppboðhúsins
sagði það teldist ágætt að boðnar
væru upp ein til tvær stórar land-
lagsmyndir eftir Adams á fimm ára
fresti en í þetta skipti væru þær um
30.
Samband Adams og filmu- og
myndavélarframleiðandas hófst
þegar þegar Adams kynntist stofn-
anda Polaroid, Edwin Land árið
1948, sama ár og fyrsta vélin frá fyr-
irtækinu kom á markað. Ljósmynd-
arinn frægi tók ekki bara þátt í að
þróa Polaroid tæknina heldur hjálp-
aði hann fyrirtækinu að komast yfir
listaverk eftir listamenn og ljós-
myndara eins og Andy Warhol, Dav-
id Hockney, Imogen Cunningham
and Harry Callahan, Dorothea
Lange og Edward Weston og má
finna fjöld verka eftir þau á uppboð-
inu hjá Sothebys.
Farandverkakonan Adams keypti t.d. þessa mynd eftir Dorothea Lange.
Þúsundir ljósmynda
boðnar upp hjá Sotheby’s