Morgunblaðið - 25.06.2010, Side 4

Morgunblaðið - 25.06.2010, Side 4
FRÉTTASKÝRING Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Þrátt fyrir að taka í orði kveðnu minni áhættu en þeir sem þáðu gengistryggð lán sitja þeir sem tóku hefðbundin verðtryggð lán fyr- ir efnahagshrunið nú uppi með mikla hækkun afborgana af lánum sínum vegna hækkunar vísitölu neysluverðs. Með dómi Hæstaréttar í síð- ustu viku sem kvað á um að gengis- trygging lána í íslenskum krónum væri ólögmæt breyttust kjör þeirra sem tóku gengistryggð lán mjög til hins betra; að því gefnu að lagt sé til grundvallar að samningar standi óbreyttir fyrir utan ákvæði um gengistrygginguna. Eru sérfróðir lögfræðingar sammála um að þetta sé eðlileg túlkun niðurstöðunnar. Enn ríkir óvissa um hver örlög gengistryggðu lánanna verða. Eins og ítarlega var fjallað um í Morgunblaðinu í gær geta breyt- ingar á samningsákvæðum geng- istryggðra lána, fyrir dómstólum eða með öðrum hætti, leitt til þess að eftirstöðvar lánanna hækki mjög. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur sagst telja líklegast að lágir samnings- vextir víki fyrir lægstu óverð- tryggðu vöxtum Seðlabankans. Gylfi segir það þó ekki í sínum verkahring heldur dómstóla að dæma um kjörin. Verði þetta niðurstaðan geta lán sem áður voru gengistryggð samt sem áður orðið töluvert hag- stæðari en verðtryggð lán þegar lit- ið er til eftirstöðva lánanna. Miðast þetta við útreikninga Nordik fjár- málaráðgjafar sem birtist hér að of- an og í blaðinu í gær. Lyktirnar yrðu þó allt aðrar ef ekki aðeins væri breytt vöxtum heldur einnig bætt við löglegri verðtryggingu eins og hreyft hefur verið. Yrði slík breyting líklega til þess að eftir- stöðvar lánanna yrðu svipaðar lán- unum sem voru verðtryggð frá upp- hafi. Fjórtánfaldar eftirstöðvar Verði samningar um geng- istryggð lán lagðir óbreyttir til grundvallar án gengistryggingar munu eftirstöðvar gengistryggða bílalánsins í dæminu hér að ofan nema 234.507 krónum og er þá gert ráð fyrir endurgreiðslu ofgreiddra afborgana og vöxtum. Eftirstöðvar verðtryggðs láns væru þannig ríf- lega fjórtánfalt hærri. Eftirstöðvar íbúðalánsins yrðu þó aðeins um það bil fimmtungi hærri miðað við sömu forsendur. Rauneftirstöðvar óverðtryggðs bílaláns í dæminu eru lægri en greiðsluáætlun gefur til kynna þar sem breytilegu vextirnir hafa lækk- að síðan árið 2007. Ekki er gert ráð fyrir óverðtryggðu íbúðaláni þar sem ekki var boðið upp á slík sam- kvæmt upplýsingum frá Nordik. Munur á gengistryggðum, verðtryggðum og óverðtryggðum lánum (miðað við stöðu 22. júní 2010) Heimild: Nordik fjármálaráðgjöf Bílalán: 4.000.000 kr. til 7 ára. Lántökudagur: 22. júlí 2007 * Án forsendna um verðbólgu Óverðtryggt lán 13,63% breytil., óverðtr. vextir Verðtryggt lán 5,0% vextir Gengistryggt lán 3,63% vextir (í upphafi) (50% JPY / 50% CHF) Þegar greitt Eftirstöðvar höfuðstóls 22. júní 2010 Íbúðalán: 20.000.000 kr. til 30 ára Lántökud.: 22. júlí 2007 Þegar greitt Eftirstöðvar höfuðstóls 22. júní 2010 * Án forsendna um verðbólgu Verðtryggt lán 5,0% vextir Gengistryggt lán 3,63% vextir (í upphafi) (50% JPY / 50% CHF) Greiðsluáætlun Raungreiðslur Greiðsluáætl.* Raungreiðslur Greiðsluáætlun Raungreiðslur Greiðsluáætl.* Raungreiðslur Greiðsluáætlun Raungreiðslur 2. 73 1. 66 3 2. 70 0 .2 79 2. 4 54 .9 4 4 3. 30 0 .1 36 2. 4 0 9. 0 93 5. 97 5. 4 67 19 .0 68 .7 19 25 .5 4 4 .9 4 6 18 .8 21 .5 4 5 4 6. 82 1. 87 5 1.9 44 .8 01 2. 03 5. 28 3 2. 66 8. 81 9 2. 64 6. 78 1 2. 38 2. 24 3 3. 76 8. 13 6 5. 85 0 .8 50 3. 30 0 .0 87 4 .5 16 .0 51 3. 86 5. 11 6 Útreikningar eru óháðir niðurstöðu hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána í íslenskum krónum. Samt.: 5.400.482 5.347.060 4.490.227 5.682.379 4.353.894 9.743.603 22.933.835 30.060.997 22.121.632 52.672.725 Verðtryggð lán verða verri  Þeir sem tóku minni áhættu gætu endað verr staddir en þeir sem tóku meiri  Niðurstöðurnar um afborganir og eftirstöðvar munu ráðast fyrir dómstólum 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Frelsi -- ábyrgð -- umhyggja 39. landsfundur Sjálfstæðisflokksins 25. & 26. júní 2010 Kl. 16.00 Bein útsending frá ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar, á xd.is „Verðtryggingin hefur komið mjög illa við lántak- endur,“ segir Eygló Harð- ardóttir, Fram- sóknarflokki. „Hún er hækja til þess að hluti sam- félagsins geti komist hjá áhrif- um verðbólg- unnar og óstöðugleikans og til að vernda fjármagnseigendur,“ segir Eygló og kveður verðtryggingu ekki taka á hinu undirliggjandi vanda- máli, verðbólgu, og geti jafnvel stuðlað að henni. Frumvarp Framsóknar um að verðtrygging á lánsfé verði ekki hærri en 4%, burtséð frá þróun vísi- tölu neysluverðs, verður til umfjöll- unar sérstakrar þingnefndar í haust. „Nefndin mun athuga hvernig megi draga úr umfangi verðtrygg- ingar og sama tíma megi tryggja fjármálastöðugleika,“ segir Eygló og bendir á að óvíða tíðkist verð- trygging neytendalána í sama mæli og hér. Vilja þak á verðtrygg- ingu í lög Verðtrygging hækja fjármagnseigenda Eygló Harðardóttir „Í sjálfu sér er verðtryggingin mjög slæm en vegna þess hve reglulega koma sveiflur í efna- hagslífið hér, verðbólguskot, tel ég að hún sé ill nauðsyn svo sparifjáreigendur hafi eitthvert haldreipi,“ segir Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, og segir að án verðtryggingar verði sparifé fólks verðbólgu að bráð. Honum hugnast ekki hugmyndir um að í lög verði bundin hámarks prósenta verðtryggingar. „Það er bara alveg galið,“ segir Pétur og telur að það geti haft mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir traust manna á fjármálakerfinu. Verðtrygging lánsfjár slæm en nauðsynleg Pétur H. Blöndal Andri Karl andri@mbl.is Barn undir átján ára aldri var á vettvangi heimilis- ofbeldis í um 40% þeirra tilvika sem fjallað er um í skýrslu um heimilisofbeldi eins og það birtist í gögnum lögreglu 2006-2007. Mikill meirihluti þolenda var alls- gáður en yfir helmingur gerenda undir áhrifum áfengis eða annarra efna og 12% þolenda var ógnað með ein- hvers konar vopni eða því beitt gegn þeim. Í rannsóknarskýrslunni var unnið með 993 mál sem töldust annaðhvort ofbeldi eða ágreiningur milli skyldra og tengdra og tilkynnt voru til lögreglu. Í flest- um tilvikum voru málin skráð á höfuðborgarsvæðinu eða 76% ofbeldismála og 81% ágreiningsmála. Lang- flest tilvik, ríflega níutíu prósent, áttu sér stað á heimili eða einkalóð. Líkt og í sambærilegum rannsóknum sem gerðar hafa verið er mikill meirihluti þolenda konur, um 70%, og 15% þeirra komu oftar en einu sinni við sögu í skýrslum lögreglunnar. Gerendur voru í flestum til- vikum makar eða fyrrverandi makar. Forsaga máls var þekkt í um það bil helmingi tilvika. Þegar þau voru skoðuð betur kom í ljós að í um 30% tilvika var ofbeldið rakið til skilnaðar eða sambandsslita. Rannsóknina gerðu þær Guðbjörg S. Bergsdóttir, félagsfræðingur hjá embætti ríkislögreglustjóra, og Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri hjá lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Barn á vettvangi heim- ilisofbeldis í 40% tilvika  Mikill meirihluta þolenda konur og 15% oftar en einu sinni Morgunblaðið/Ásdís Á heimili Flest ofbeldismál voru tilkynnt á næturnar. „Í kjölfar dómsins hafa þeir sem verst voru settir fengið umtals- verða leiðréttingu en eftir situr fólk með verðtryggð lán sem hækkað hafa um 30% á tveimur árum,“ segir Helgi Hjörvar, Sam- fylkingu, og hann telur að enn sé óvissa um hver áhrif dóma Hæstaréttar um ólögmæti geng- istryggingar íslensks lánsfjár verði á svigrúm til leiðrétting- anna. Helgi hefur kallað eftir al- mennum, sanngjörnum niður- færslum gengis- og verðtryggðra lána. Vill Helgi athuga hvort rétt sé að takmarka niðurfærslurnar við ákveðna hópa. Þeir sem ekki þyrftu á henni að halda, stór- eigna- og há- tekjufólk, nyti þeirra ekki og telur Helgi að hægur vandi sé að stýra því með skattlagn- ingu. „Það væri hægt að mæta þessum fé- lagslegu réttlætissjónarmiðum á þeim enda.“ Segir Helgi að dreifa verði áfallinu sem hrunið hafði í för með sér milli lánþega og lánar- drottna, það megi ekki lenda á öðrum hópnum eingöngu. Réttlætissjónarmið ráði för VILL LEIÐRÉTTINGU GENGIS- OG VERÐTRYGGÐRA LÁNA Helgi Hjörvar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.