Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 8

Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Stjórnmálaflokkar eru ekki eilífð-arfyrirbæri fremur en flest ann- að þessa heims. Enda hafa slíkir komið og farið.     Í höfuðborginni er bara einn flokk-ur með borgarfulltrúa á sínum vegum, sem verið hefur þar lengur en svo sem einn áratug. Aðrir eru nánast fæddir í gær en virðast þó ógnvænlega fljótir að tileinka sér það sem helst hefur þótt skaða álit gamalla flokka.     Og innan flokkanna eru menn semáður hafa verið í öðrum flokki eða flokkum.     Í þingflokki Sjálfstæðisflokksins erþannig enn þingmaður sem þegar hefur verið í fjórum flokkum og á vonandi marga eftir.     Og nú hóta þeir sem eru með sér-vitringsskoðanir í Evrópu- málum innan Sjálfstæðisflokksins að segja sig úr þeim flokki ef allur þorri landsfundarfulltrúa lagar sig ekki að sérviskunni þeirra. Þeir kalla sig lýðræðissinna. Stofna kannski lýð- ræðislega klofningsflokkinn.     Sagt er að Ólafur snillingur hóti aðsegja sig úr flokknum. Hann getur þá notað gamla eyðublaðið þeirra Hreins Loftssonar, en þeir fé- lagar sögðu sig úr flokknum þegar fjölmiðlafrumvarp var efst á baugi árið 2004 og sögðu þá að í flokknum væri „ógnarstjórn“.     Sjálfsagt hafa þeir tveir talið aðflokkurinn hafi klofnað þegar þeir tveir fóru og fjörutíu þúsundin sátu eftir og söknuðu einskis. Valhöll Lýðræðislega klofningsbrotið Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Frestur til að skila inn athugasemdum vegna til- lagna stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um verndar- áætlun fyrir þjóðgarðinn rann út á miðnætti í gær. Í tillögunum koma meðal annars fram hugmyndir um bann við veiðum á hreindýrum, gæsum og rjúpum á ákveðnum svæðum. Skotveiðimenn mót- mæla þessum hugmyndum og benda á langa hefð fyrir skotveiðum í þjóðgarðinum. Skotvís, lands- samtök um skynsamlega skotveiði, sendi þá frá sér ályktun þess efnis að stjórn þjóðgarðsins ætti að standa við loforð sem gefin voru við stofnun hans þess efnis að ekki yrði hreyft við hefðbund- inni skotveiði innan garðsins. Efnislega samhljóða athugasemdir Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs, segir fjölda athugasemda hafa borist vegna tillagna stjórnarinnar. „Þetta eru um tíu athugasemdir efnislega en hundruð bréfa. Þetta er þannig mikið það sama efnislega og alveg örugglega margt samhljóða. Skotveiðimenn eru bara að senda fjöldapóst,“ segir Anna Kristín sem kveður stjórn þjóðgarðins ekki enn hafa farið yfir athugasemdirnar en það verði gert í næstu viku. „Við höfum ekki myndað okkur eiginlega stefnu. Við skoðum bara hverja einustu athuga- semd og þeim verður svarað með formlegum hætti. Sumar þeirra gætu orðið til þess að við breyttum þeirri stefnu sem hefur verið mótuð. Til- lagan liggur fyrir, hún hefur verið auglýst í vissan tíma. Nú förum við bara yfir athugasemdirnar og sjáum hvað kemur upp úr kössunum.“ Athugasemdir skipta hundruðum  Fjölmargir skotveiðimenn ósáttir við tillögur stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Hönnun íslensku arkitektastof- unnar Batteríið virðist eiga upp á pallborðið hjá Norðmönnum þessa dagana. Í gær sigraði stofan í lok- aðri samkeppni um íþrótta- og menningarhús í Øygården í ná- grenni Bergen og fyrr í mánuðinum bar stofan sigur úr býtum í alút- boðskeppni um félagslegar íbúðir við Kanalgaten í Sandnes, sunnan við Stafangur. „Við erum alveg í skýjunum,“ segir Sigurður Einarsson arkitekt og einn eigenda Batterísins. Húsið í Øygården á að verða 4.000 m² að stærð og geyma íþróttaaðstöðu, lík- amsræktarstöð, fundar- og menn- ingarsali, sem og tónlistar- og dans- kennslu. „Húsið verður táknmynd þessa samfélags,“ segir hann. Hönnunin, sem unnin var í sam- starfi við Landslag ehf. og Arki- tektgruppen Cubus A/S, náði til bæði byggingar og lóðar. Að sögn Sigurðar er húsið með torfþak og útlit þess umhverfisvænt, en mikið var horft til landslagsins við hönn- unina. Batteríið er með þó nokkur verk- efni í gangi, flest utan landstein- anna, m.a. 9.500 m² líkamsræktar- miðstöð í Winnipeg. Raunar hefur fyrirtækið verið að fjölga starfsfólki undanfarið. „Og það er ekki mikið um það núna í arkitektabransanum hér heima,“ segir Sigurður. Útlitið þyngra í metum en kostnaðurinn Ekki eru t.a.m. tvær vikur liðnar frá því að Batteríið sigraði í sam- keppni um félagslegu íbúðirnar í Sandnes, sem það vann með Lands- lag ehf. og bauð í ásamt verktaka- fyrirtækinu Kruse-Smith. Samn- ingafundur vegna þess verkefnis var haldinn í Stafangri í vikunni og vonast menn til að geta byrjað að reisa íbúðirnar á þessu ári. Sú sam- keppni var sú fyrsta sem fyrirtækið hefur unnið í Noregi og segir í áliti dómnefndar að um spennandi lausn sé að ræða sem falli vel að næsta nágrenni og bænum í heild. Sigurður segir vægi kostnaðar jafnan vera nokkuð þungt í slíkum útboðum. „Að þessu sinni var okkar tilboð ekki það lægsta, en þeir völdu okkur samt og það segir okk- ur að þeim leist virkilega vel á hönnunina.“ Fjölnota hús Íþrótta- og menningarhúsið í Øygården á að verða táknmynd þessa litla samfélags. Fjölga fólki í kreppunni » Batteríið var stofnað árið 1988 af þeim Jóni Ólafi Ólafs- syni og Sigurði Einarssyni. » Starfsmenn fyrirtækisins í dag eru 24, þar af 13 arkitekt- ar, 8 byggingafræðingar og 1 verkfræðingur. » Fyrirtækið hefur þurft að bæta við sig starfsfólki und- anfarið vegna nýrra verkefna, sem flest hver eru erlendis.  Arkitektastofan Batteríið er með verkefni í gangi beggja vegna Atlantshafsins  Áttu tvær verðlaunatillögur í Noregi á innan við hálfum mánuði Veður víða um heim 24.6., kl. 18.00 Reykjavík 18 léttskýjað Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 12 skýjað Egilsstaðir 7 rigning Kirkjubæjarkl. 15 skúrir Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 21 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 26 heiðskírt Dublin 19 skýjað Glasgow 18 léttskýjað London 25 heiðskírt París 28 heiðskírt Amsterdam 21 heiðskírt Hamborg 24 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 22 léttskýjað Moskva 29 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt Madríd 33 léttskýjað Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 24 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 23 skýjað Winnipeg 21 þoka Montreal 22 alskýjað New York 33 heiðskírt Chicago 25 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 25. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:12 23:48

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.