Morgunblaðið - 25.06.2010, Page 9

Morgunblaðið - 25.06.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Milljónaútdráttur Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 6. flokkur, 24. júní 2010 Kr. 1.000.000,- 11350 B 13057 B 16828 F 21119 B 21333 G 22888 B 44644 B 50100 G 50217 F 57646 B TIL HAMINGJU VINNINGSHAFAR str. 40-56 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is SÍÐIR TOPPAR verð kr. 3.900 Andri Karl andri@mbl.is Flygill sem sagður er hafa verið í eigu Einars Benediktssonar skálds var í aðalhlutverki sérkennilegs máls sem upp kom eftir viðtal við Pál V. Bjarnason arkitekt í Sunnudags- mogganum, fylgiriti Morgunblaðs- ins, 10. janúar sl. Í viðtalinu lýsti Páll því að hann hefði fengið flygilinn að gjöf frá Óháða söfnuðinum í slæmu ásigkomulagi og gert hann upp. Að- eins örfáum dögum síðar barst Páli símtal frá stjórn Óháða safnaðarins og í því krafist að flyglinum yrði skil- að hið snarasta. Tveimur mánuðum síðar barst honum svo tilkynning frá Héraðsdómi Reykjavíkur um aðfar- arbeiðni. Dánarbú Andrésar Andréssonar klæðskera gaf Óháða söfnuðinum snemma á síðasta áratug liðinnar aldar flygilinn en Andrés var einn af stofnendum safnaðarins. Páll sem býr í húsi þar sem Einar og hans fjölskylda bjó um árabil heyrði af því fyrir tilviljun árið 2003 að söfnuður- inn bauð Árbæjarsafni flygilinn að gjöf. Boðinu hafi þó verið hafnað vegna plássleysis. Hann hringdi þá í safnaðarprestinn, Pétur Þor- steinsson, sem tjáði Páli að flygillinn væri kominn í geymslu og ekki hefði verið rætt um hvað við hann yrði gert. Páll bað þá um að haft yrði samband ef ákveðið væri að selja. Organistinn vissi um málið Þegar hér er komið sögu er þegar komið upp atriði sem mönnum ber ekki saman um, þ.e. að fyrrverandi formaður safnaðarstjórnar Óháða safnaðarins, Jóhann Árnason, kann- ast ekki við að Árbæjarsafni hafi verið boðinn flygillinn á sínum tíma. Standa orð hans gegn bókun í mála- bók safnsins. Og óhætt er svo að segja að djúp- stæður ágreiningur ríki um þá at- burði sem gerðust árið 2007. Páll greinir sjálfur svo frá, að fyrr- nefndur Jóhann hafi hringt um vorið eða snemmsumars og tjáð honum að flygilinn gæti hann fengið en með því skilyrði að fjölskylda Andrésar klæðskera gæfi samþykki sitt. Páll hafði í kjölfarið samband við börn Andrésar og fékk umbeðið sam- þykki. Því næst hringdi hann í Jó- hann sem aftur vísaði Páli á Pavel Manasek organista sem fengið hafði flygilinn að láni hjá söfnuðinum. „Stuttu seinna hafði ég samband við Pavel og hann vissi þá allt um málið, Jóhann greinilega sagt honum hvers kyns var. [...] Leið svo og beið þar til um mánaðamótin ágúst- september 2007 að Pavel Manasek hafði samband við mig og sagði mér að ég þyrfti að sækja hljóðfærið því hann væri að fara flytja,“ segir í greinargerð Páls vegna dómsmáls- ins. Páll sótti flygilinn og flutti á verkstæði. Ekki var rætt um greiðslur en af Páls hálfu stóð ávallt til að greiða fyrir flygilinn. Þvertekur fyrir allt Saga Jóhanns Árnasonar er frem- ur frábrugðin. Fyrir það fyrsta þver- tekur hann fyrir að hafa hringt í Pál eða haft við hann samskipti utan tveggja skipta þegar Páll átti frum- kvæðið með símtölum. Einnig hafnar Jóhann því að hann hafi beðið Pál um að fá samþykki fjölskyldu Andrésar en staðfestir þó, að í samtölum sínum við Pál hafi hann greint frá því að ef Óháði söfn- uðurinn myndi láta frá sér flygilinn yrði það aðeins gert í samráði við fjölskyldu Andrésar. Flygillinn umræddi var í slæmu ásigkomulagi þegar Páll fékk hann í hendur. Hann fékk húsgagnasmið til að endurbyggja kassann og píanó- viðgerðarmann til að gera við nót- urnar og hamraverkið. Viðgerð lauk í júní 2008. Páll segir að á meðan viðgerðinni stóð og eftir hana hafi hann oftsinnis rekist á safnaðarprest Óháða safn- aðarins og flygillinn þá borið á góma. „Við ræddum um það hvernig við- gerðin gengi og eftir að henni var lokið bauð ég honum heim til mín til að skoða flygilinn og sjá hvað hann var orðinn flottur. Það hefði ég varla gert ef ég hefði fengið flygilinn með óheiðarlegum leiðum. Það ríkti eng- inn leynd yfir því hvar hann var nið- urkominn.“ En þrátt fyrir að safnaðarprest- urinn virðist hafa verið vel upplýstur um flygilinn á hverjum tíma segir Valur Sigurbergsson, meðlimur í safnaðarstjórn Óháða safnaðarins, að fyrst í janúar sl. hafi safn- aðarnefnd fengið upplýsingar um að Pavel Manasek hafi flutt frá landinu – rúmum tveimur árum eftir flutning hans til Tékklands – og ætlaði Valur þá að grennslast fyrir um hvar flyg- illinn væri niðurkominn. „Í sömu andrá birtist þessi grein í Morg- unblaðinu og saga Páls þar alveg furðuleg og tóm lygi. Þá fór málið í gang og við vorum ákveðin í því að líða ekki svona framgöngu.“ Eftir að samband var haft við Pál var honum afar brugðið og ekki síst vegna þeirrar hörku sem söfnuður- inn sýndi. Páll reyndi að finna sátta- farveg og kom með nokkrar tillögur en Óháði söfnuðurinn hafnaði þeim öllum. Páll bauðst m.a. til að greiða fyrir flygilinn í því ásigkomulagi sem hann var árið 2007, jafnframt að greiða fyrir hann eins og hann er metinn í dag og ennfremur að söfn- uðurinn tæki flygilinn en greiddi kostnaðinn fyrir viðgerðina og við- haldið. Kostnaðurinn nam nokkrum hundruð þúsund krónum. Þegar öllum sáttatillögum var hafnað bauðst Páll að lokum til að skrifa undir skjal þar sem eign- arhald safnaðarins væri viðurkennt en hann yrði áfram í vörslum Páls þar til hann flytti úr húsi sínu. Þá yrði hann afhentur til varðveislu í Höfða eða á Þjóðminjasafninu. Þeirri tillögu líkt og öðrum var hafn- að. Óvíst hvað verður um flygilinn Eftir samráð við lögmann sinn féllst Páll á að afhenda söfnuðinum flygilinn, enda ekki með gögn undir höndum sem sýna að hann hafi verið gjöf frá söfnuðinum auk þess sem fyrrverandi formaður safn- aðarnefndar neitar fyrir aðkomu sína að málinu. Páll segist harma það gríðarlega, að hafa ekki fengið Jó- hann til að setja eitthvað niður á blað á sínum tíma, þó ekki væri nema í tölvubréfi. Það myndi að sjálfsögðu breyta forsendum málsins gjör- samlega og styrkja málstað hans. Flygillinn var svo sóttur á heimili Páls á Sjómannadaginn síðasta. Páll hafði þá boðið vinum og ættingjum á heimili sitt í eins konar kveðjuhóf. Fékk Gunnar Þórðarson tónlist- armaður og vinur Páls þann heiður að leika síðustu nóturnar ásamt barnabörnum Páls. „Og á meðan þeir fluttu flygilinn á brott kölluðu þeir mig skelfilegan lygara í við- urvist gesta minna,“ segir Páll sem telur framkomu Óháða safnaðarins með miklum ólíkindum. Flygillinn var fluttur í kirkju safn- aðarins en Valur segir aðspurður að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvað gert verði við hann eða hvar honum komið fyrir. Kröfðust þess að fá gefinn flygil til baka  Óháði söfnuðurinn höfðaði mál gegn Páli V. Bjarnasyni og sakaði um þjófnað Af fram- leiðslunúm- eri flygilsins að dæma var hann framleiddur í Niendorf- verksmiðj- unni í Berlín á árunum 1912-1914. Í honum er einnig límmiði með nafni píanóversl- unar í London, J. Strong & Sons Ltd. og bendir allt til að flygillinn hafi verið fluttur til London nýr og seldur í téðri verslun. Flygillinn var notaður af Óháða söfnuðinum þar til stilla átti hann árið 1999 en þá dæmdi píanóstillingamaður hann ónothæfan. Keypti söfn- uðurinn þá nýjan flygil. Fyrir tilstilli Páls var allur kassinn tekinn í sundur og hver fjöl pússuð og lökkuð auk þess sem nostrað var við smá- atriði eins og látúnsskraut. Jafnframt var gert við hamra- verkið, flygillinn stilltur og intóneraður. Óformlegar skoðanir sér- fræðinga benda til að hægt sé að fá á milli 200 og 300 þús- und krónur fyrir flygilinn í dag. Ónothæfur árið 1999 SAGA FLYGILSINS Uppgerður Flygillinn var í slæmu ásigkomulagi þegar Páll fékk hann. Síðasta lagið Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson og vinur Páls lék á flygilinn ásamt barnabörnum Páls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.