Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 + = TUDOR frístundarafgeymir Exide hleðslutæki Rafmagnað frí... ár eftir ár Mesta úrval landsins af rafgeymum fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi 10 Daglegt líf Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þær Sanita Sudrabina 26 áraog Camila Abad 23 ára,höfðu báðar lokið dýra-læknanámi í heimalandi sínu þegar þær fluttu til Íslands. Sa- nita kemur frá Lettlandi en Camila frá Chile. „Bæði fólkið og dýrin á Íslandi eru miklu almennilegri en heima í Lettlandi,“ segir Sanita og hlær og Camila tekur undir þennan mun á sínu heimalandi og Íslandi og bætir við að hún hafi orðið mjög hissa á því hversu íslensk gæludýr eru þæg og laus við árásarhneigð. „Dýrin hér eru ótrúlega þæg og stillt á meðan við erum að með- höndla þau. Í heimalöndum okkar þarf oft tvo til að halda dýri rétt á meðan við dýralæknar gerum eitt- hvað einfalt, eins og að sprauta það. En kannski kemur þetta til af því að á Íslandi á fólk yfirleitt eitt gæludýr og hugsar um það eins og barnið sitt, á meðan fólk í Chile á kannski sjö, átta ketti eða hunda og þeir eru meira og minna hálfvilltir og hugsa um sig sjálfir og þurfa að berjast fyrir sínu,“ segir Camila. Hljóp á eftir dýrum í bernsku Þær Camila og Sanita hafa báð- ar mikinn áhuga á dýrum og hafa alltaf haft, sem er aðalástæðan fyrir því að þær völdu að mennta sig sem dýralækna. „Ég ákvað þegar ég var átta ára að verða dýralæknir og breytti aldr- ei um skoðun. Þetta hefur alltaf ver- ið það sem ég vildi gera, eins og inn- prentað í mig,“ segir Camila. „Þegar ég var að alast upp í Chile voru alltaf mörg dýr á heimili mínu og ég annaðist dýrin og lék mér mikið við þau. Mestan hluta uppeldisáranna bjuggum við úti í sveit og þar vorum við með hesta, kýr, hunda og fleiri dýr,“ segir Ca- mila sem á sér draum um að flytja til Chile í framtíðinni og eiga þar bóndabæ. „Ég á aðeins einn hund núna.“ Sanita segist hafa verið veik fyrir dýrum alveg frá því hún var lít- il stelpa. „Ég hljóp á eftir öllum hundum og köttum sem urðu á vegi mínum og reyndi að ná þeim og ég suðaði í foreldrum mínum að fá minn eigin hund, sem ég fékk ekki fyrr en ég varð fullorðin. Aftur á móti áttum við kisur. Núna á ég naggrís, það er allt og sumt. Hann var mjög ungur þegar eigendur hans komu með hann hingað til svæfingar og ég tók hann að mér,“ segir Sanita en hún ætlaði sér reyndar að verða manna- læknir en námið var mjög dýrt svo hún sneri sér að því að læra að lækna dýr. Kannski barn í afmælisgjöf Þær segja umhverfið rólegt og dýravænt í Reykjavík, ólíkt því sem gerist í stórborgum þar sem til dæmis bílaumferðin sé miklu há- vaðasamari og hættulegri. Hundar og kettir eru þeirra ær og kýr Önnur þeirra ætlaði að verða mannalæknir en hin ákvað þegar hún var átta ára að verða dýralæknir. Þær Sanita frá Lettlandi og Camila frá Chile höfðu báðar lokið dýralæknanámi þegar þær fluttu til Íslands og starfa nú á Dýralæknastofu Dagfinns. Þær segja Íslendinga annast gæludýrin sín jafn vel og börnin sín. Morgunblaðið/RAX Ungviði Þessi tvö eru ung og hraust úti í guðsgrænni náttúrunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rólegur Þessi köttur kippti sér ekki upp við sprautu. Hann gengur undir nafninu The Man from Amsterdam í bloggheimum. Hollendingurinn Dennis Swiatkowski heldur úti tísku-, tónlistar- og ljós- myndablogginu Getyourplaner- ightontime.com. Hann hafði haldið úti persónulegu bloggi í nokkur ár en fyrir rúmu ári breytti hann því í það sem það er núna. Swiatkowski tekur aðallega myndir af fólki úti á götu í Amsterdam en leggur líka leið sína reglulega annað. Hann er mjög hrifinn af London þar sem hann tekur myndir af hinni fjöl- breyttu götutísku höfuðborgar Bret- lands. Sjónarhorn Swiatkowski á lífið er virkilega skemmtilegt og með bloggi sínu vill hann auka víðsýni fólks, „Fegurðin er þarna úti,“ segir hann. Hann segir að það sem geri ljós- mynd góða sé viðfangsefnið. Þó að sjónarhornið og birtan séu fullkomin verður myndin ekki góð nema ljós- myndarinn náir viðfangsefninu réttu, nái orkunni frá manneskjunni í mynd- ina. Hann segir klæðaburðinn bara einn hluta af því sem þarf að vera í lagi hjá því fólki sem hann tekur myndir af, að ná tengslum við per- sónurnar í gegnum myndirnar skiptir hann miklu máli. Hann er líka ansi lunkinn við að hafa uppá áhugaverðu fólki. Það eru samt ekki aðeins götu- tískumyndir á síðunni því Swiat- kowski birtir líka myndir frá þeim stöðum sem hann heimsækir, mynd- bönd og annað. Vefsíðan www.getyourplanerightontime.com Sykursætt Mynd sem Dennis Swiat- kowski tók á götum London. Maðurinn frá Amsterdam Ljósmyndasýningin Prjónalíf verður opnuð í dag í Te og Kaffi í Ey- mundsson í Austurstræti. Þar sýnir Elísabet Stefánsdóttir átján ljós- myndir sem hún hefur tekið af ís- lensku prjónafólki og af prjónagleði eins og hún birtist henni. Elísabet tók allar ljósmyndirnar í prjónabókinni Prjónaperlur – prjón- að frá grasrótinni sem Erla Sigurð- ardóttir og Halldóra Skarphéð- insdóttir sendu frá sér fyrir síðustu jól. Myndirnar á sýningunni eru af hluta þeirra kvenna sem eiga upp- skriftir í bókinni, af prjónaperlunum eins og þær eru kallaðar. „Það er mikil prjónaorka í gangi í íslensku samfélagi nútímans. Lopi selst sem aldrei fyrr og prjónakon- ur framleiða hvert meistarastykkið á fætur öðru með eigin höndum, garni og prjónum. Gleðina og þá fullnægingu sem prjónið færir þekkir aðeins sá sem hefur gefið sig prjóninu á vald. Tilfinningin sem prjónalífið veitir er ólýsanlega unaðsleg,“ segir í fréttatilkynningu um sýninguna. Sýningin er liður í norrænu prjónahátíðinni Lykkjur sem nú stendur yfir í Norræna húsinu og víðar. Prjónalíf opnar í dag kl. 17 og stendur til 25. júlí. Endilega... ...skoðið íslenskt prjónafólk Prjónaperla Marín Þórsdóttir með prjónana. Myndin er tekin af El- ísabetu Stefánsdóttur. Tíska Brasilíski fatahönnuðurinn Andre Lima sýndi sumarlínu sína 2010/ 2011 á tískuviku í Sao Paulo í síðustu viku. Þar mátti sjá þessa skemmti- legu kjóla sem eru báðir mikið listaverk. Lima er þekktur fyrir að leika sér að formum eins og sést í hári og á eyrum módelanna. Hann er líka þekktur fyrir litadýrð og allskonar kúnstir einkenna oft kjóla hans; þeir eru lit- ríkir, mynstraðir og sjaldnast einfaldir. Kjólakúnstir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.