Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
Afmælisnefnd forsætisráðuneyt-
isins efndi nýlega til samkeppni
um hönnun nýrrar sýningar um
Jón Sigurðsson forseta á Hrafns-
eyri við Arnarfjörð. Það voru
Basalt arkitektar sem unnu til
verðlauna í samkeppninni. Í um-
sögn dómnefndar segir að til-
lagan sé nýstárleg og frumleg og
muni án efa vekja athygli þegar
hún verður opnuð þann 17. júní
2011 á 200 ára fæðingarafmæli
Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri.
Tvær aðrar tillögur bárust einnig
í samkeppnina og fá þær við-
urkenningar. Höfundar þeirra
eru Fíton auglýsingastofa og
Sögumiðlun. Allar tillögurnar
verða til sýnis í Ráðhúsi Reykja-
víkur fram yfir helgina.
Afhending Basalt fær verðlaunin.
Verðlaunatillaga
Í dag kl. 14-17 verður haldin afmæl-
isráðstefna Skógræktarfélags
Reykjavíkur um Heiðmörk í Gamla
salnum á Elliðavatnsbænum.
Þar verður reynt að svara nokkr-
um brennandi spurningum um
Heiðmörkina. Til dæmis hvort það
sé þess virði að vernda Heiðmörk
eða hvort eigi að byggja þar versl-
unarkeðjur og íbúðahverfi?
Að lokum verða skoðaðar fram-
tíðarhugmyndir landslagsarkitekta
um Heiðmörkina.
Skógræktarfélagið býður gestum
upp á kerfilsbrauð og silung úr
vatninu. Allir velkomnir með hús-
rúm leyfir.
Heiðmörk rædd á
afmælisráðstefnu
Nú um helgina stendur Bílabærinn
Selfoss fyrir Delludögum í tilefni af
Landsmóti Fornbílaklúbbs Íslands
sem verða settir þar í dag, föstudag.
Á laugardeginum verður Forn-
bílaklúbburinn með fjölbreytta dag-
skrá á tjaldsvæðinu við Gesthús, en á
miðnætti aðfaranætur sunnudags
verður síðan setning Delludaga í
Hvíta húsinu þar sem Paparnir sjá
um að halda uppi fjöri á Bílaballinu
fram eftir nóttu. Á sunnudag kl. 13
hefst síðan formleg dagskrá í Hrís-
mýri með reykspóli, teygjurampi,
kassabílakeppni og drulluspyrnu.
Að auki eru allskonar bíla- og tækja-
sýningar, mótorhjól, jeppar, forn-
bílar og kaggar.
Delludagar
Tjaldsvæðið í
Galtalækjar-
skógi verður
opnað í dag,
föstudag.
Galtalækjar-
skógur er 80
hektara kjarri
vaxið svæði
upp undir
Heklu á bökk-
um Rangár. Umhverfið er mjög ró-
legt og fjölskylduvænt og hægt er
að vera mikið út af fyrir sig á tjald-
svæðinu. Auk þess er hægt að fá
svefnpokagistingu. Miklar end-
urbætur hafa staðið yfir á svæðinu
undanfarin ár og er m.a. verið að
koma fyrir rafmagnstengingu fyrir
húsbíla. Ætlunin er að vinna áfram
að því að gera Galtalækjarskóg að
fjölskylduvænum stað.
Galtalækjarskógur
opinn almenningi
FRÉTTASKÝRING
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Niðurstaða sveitarstjórnarkosninganna er meg-
inumræðuefni á flokksráðsfundi Vinstri grænna
sem hefst í dag. Atkvæðisrétt á fundinum hafa
rúmlega eitt hundrað félagar í flokknum en fund-
urinn er opinn öllum flokksmönnum. Þetta verður
í fyrsta sinn sem flokksráð kemur saman frá kosn-
ingunum 29. maí sl.
Á vef flokksins kemur fram að sveitarstjórnar-
hópur flokksins hafi stækkað um þriðjung og að
sögn Drífu Snædal framkvæmdastýru VG er til-
gangur fundarins einkum sá að ræða niðurstöðu
kosninganna og gefa nýjum sveitarstjórnar-
fulltrúum kost á að koma saman og velja sér
stjórn í sérstöku sveitarstjórnarráði VG.
Þeir sem blaðamaður hefur rætt við og þekkja
til innan flokksins telja að óeining innan þing-
flokksins sem komið hefur upp á yfirborðið í ýms-
um stórum málum undanfarið verði ekki síður til
umræðu á fundinum. „Ég held að þessi flokkur
haldi ekki saman, það eru svo margir innanborðs
sem eiga enga samleið. Flokksmenn standa ekk-
ert saman, það er bara skítkast þeirra á milli og
flokkurinn er í verulegri krísu,“ segir flokks-
maður. Annar kvaðst telja að þingmenn flokksins
ættu enga samleið í allt of mörgum málum. Óein-
ing innan þingflokksins hljóti því að verða rædd.
Og að mati sveitarstjórnarmanns innan VG er
einnig full þörf á að fara sérstaklega yfir stöðu
flokksins í ríkisstjórn. Hvetja þurfi til samstöðu
þótt átök séu eðlileg í lýðræðislegu flokksstarfi.
Á annan tug ályktana hefur borist
Þótt talað sé um stækkun í sveitarstjórnarhópi
telja margir innan flokksins að árangur flokksins í
sveitarstjórnarkosningunum hafi verið skelfileg-
ur. Kosningabaráttan í Reykjavík hafi verið illa
heppnuð og ljóst að flokkurinn hafi ekki höfðað til
kjósenda.
Á annan tug ályktana mun hafa borist flokks-
skrifstofu og verða þær teknar fyrir á fundinum.
Meðal þeirra er ályktun um að orkuauðlindir verði
í almannaeigu, ályktun um slit á stjórnmála-
samstarfi við Ísrael og ályktun um að hvatt verði
til samstöðu allra flokka á þingi um að setja vel-
ferð í forgang.
Þorleifur með fund á Hressó í gærkvöld
Sú niðurstaða kosninga til borgarstjórnar að
VG næði aðeins einum manni inn olli mörgum
vonbrigðum. Í kjölfarið gagnrýndi Þorleifur
Gunnlaugsson sem skipaði annað sæti listans for-
ystu flokksins og kallaði eftir umræðu um lýðræð-
isleg vinnubrögð. Áður hafði Þorleifur gert at-
hugasemdir við framkvæmd prófkjörs.
Í gærkvöldi stóð Þorleifur ásamt fleira fólki fyr-
ir „pólitísku menningar- og skemmtikvöldi“ á
Hressó þar sem saman kom baráttufólk úr VG,
Hreyfingunni og óflokksbundnir. Tilgangur
kvöldsins var að „vinstri armur íslenskrar pólitík-
ur komi saman, ræði málin, syngi og skemmti
sér,“ eins og það var orðað í dreifibréfi sem birt
var á netinu.
Viðmælendur Morgunblaðsins telja tímasetn-
ingu skemmtikvöldsins sérkennilega. Þorleifur
Gunnlaugsson segist í samtali hafa staðið fyrir
mörgum fundum af þessu tagi og engin ástæða sé
til að lesa neitt í það að skemmtikvöldið sé haldið
degi fyrir flokksráðsfund VG. Hann vonast eftir
hreinskiptnum umræðum á fundinum.
Fundur flokksráðs VG er haldinn á Grand hótel
og hefst kl. 17 í dag. Þrír starfshópar fundarins
fjalla um endurmótun Íslands, flokksstarfið og
sveitarstjórnarkosningarnar. Þá fá fundarmenn
kynningu á rannsóknarskýrslu Alþingis.
Óánægja félaga undir-
tónn flokksráðsfundar
Sveitarstjórnarmál gætu fallið í skuggann af óeiningu innan þingflokks VG
Morgunblaðið/Golli
Frá landsfundi VG Atkvæðisrétt á flokksráðsfundinum hafa rúmlega eitt hundruð félagar í flokknum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er nýr vinstriflokkur í
burðarliðnum. Flokksmaður í VG
sem blaðamaður ræddi við segist
viss um að vinstriflokkur, byggð-
ur á róttækum hugmyndum og
sósíalískri hugsjón, verði stofn-
aður í haust og annar viðmælandi
blaðsins fullyrti að flokkurinn
yrði stofnaður að hluta til af
óánægðum flokksmönnum innan
VG.
„Það er nú þegar byrjað að
halda baráttufundi og skapa
stemningu. Svo fer allt á fullt í
haust. Fundurinn sem haldinn er
í [gær]kvöld er alveg klárlega
hluti af undirbúningi nýs vinstri-
flokks,“ segir heimildarmaður
Morgunblaðsins og vísar í
skemmtikvöld sem haldið var á
skemmtistaðnum Hressó að und-
irlagi Þorleifs Gunnlaugssonar,
fyrrverandi borgarfulltrúa VG,
og fleiri. Á fundinum komu meðal
annars fram ýmsir baráttumenn
úr búsáhaldabyltingunni, t.d.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, og Einar Már
Guðmundsson rithöfundur.
Þorleifur Gunnlaugsson segir
að hann hafi ekki í hyggju að
stofna nýjan stjórnmálaflokk.
Fundinn beri ekki að túlka þann-
ig að hann sé undirbúningur að
nýju afli. Hann kveðst hins vegar
vonast eftir hreinskiptnum um-
ræðum á flokksráðsfundi Vinstri
grænna á morgun og hann telur
að flokksmenn geti komist að
samkomulagi um þau mál sem
rædd verða.
Ekki er vitað hvort einhverjir
þingmenn VG hyggjast ganga til
liðs við nýjan flokk verði hann
stofnaður.
Nýr vinstriflokkur í burðarliðnum?
Morgunblaðið/ÞÖK
Kátína Talið er að nýr flokkur verði að hluta til stofnaður af óánægðum
flokksmönnum innan VG. Ekki verður fullyrt um hverjir það eru.
Skemmtikvöld Þorleifs Gunnlaugssonar talið hluti af undirbúningi nýs flokks
Fullyrt að óánægðir flokksmenn innan VG verði á meðal stofnfélaga
Akureyrar. VG á þátt í meirihlutasamstarfi í
fimm sveitarstjórnum. Í Kópavogi er VG í
meirihluta með Samfylkingu, Lista Kópavogs-
búa og Næst besta flokknum. Í Hafnarfirði
mynda VG og Samfylking meirihluta. Í Skaga-
firði myndar VG meirihluta með Framsókn-
arflokki og á Akranesi með Framsókn og Sam-
fylkingu. Í Borgarbyggð mynda VG og
Sjálfstæðisflokkur meirihluta. Auk þeirra 14
fulltrúa sem kjörnir voru í sveitarstjórnir und-
ir merkjum VG náðu átta fulltrúar flokksins af
blönduðum listum kjöri í sjö sveitarstjórnir.
Þá eru einhverjir fulltrúar sem kjörnir voru
óbundinni kosningu einnig flokksbundnir og
hafa því kjörgengi á flokksráðsfundinum.
Samtals munu um 30 fulltrúar sveitarstjórna
hafa atkvæðisrétt á fundinum.
VG hvergi með fleiri en tvo fulltrúa
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR
Vinstri hreyfingin – grænt framboð bauð fram
V-lista í 16 sveitarfélögum í kosningunum í maí
og náði inn alls 14 fulltrúum í 13 sveitarstjórnir.
Aðeins í Dalabyggð náði flokkurinn fleiri en ein-
um manni í sveitarstjórn en þar komust tveir
fulltrúar V-lista inn. Kosningaúrslitin í stærstu
sveitarfélögunum voru vonbrigði en flokkurinn
missti annan af tveimur fulltrúum í borgarstjórn
Reykjavíkur og í
bæjarstjórn