Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Ráðstefna í Heiðmörk Elliðavatni föstudaginn 25. júní frá kl 14-17 14.00 Formaður setur ráðstefnu 14.10 Efnahagslegt verðmæti Heiðmerkur Daði Már Kristófersson og Kristín Eiríksdóttir 14.50 Áhrif skógræktar á vatn og vatnsgæði Bjarni Diðrik Sigurðsson 15.20 Hlé. Nýbakað kerfilsbrauð og silungur úr vatninu 15.40 Deiliskipulag Heiðmerkur Óskar Örn Gunnarsson og Yngvi Þór Loftsson 16.20 Framtíðarsýn Lena Rut Kristjánsdóttir og Helga Sigmundsdóttir 17.00 Ráðstefnuslit Tónleikar með Kríu Brekkan, Steinari og Eitthvað Boybandi í Dropanum við Furulund frá kl 21-01. Rúta frá Lækjartorgi. Fjölskylduhátíð í Heiðmörk Vígsluflöt laugardaginn 26. júní frá kl 13-16 13.00 Formaður flytur ávarp 13.10 Borgarstjóri flytur ræðu og gróðursetur tré 13.30 Rathlaupsfélagið Hekla stendur fyrir rathlaupi (orienteering) Þrautabraut, skógarleikir Helenu Óladóttur, Brasstríóið Mora, Amlóði, Hálfsterkur og Fullsterkur, lúpínuviðureign á milli fylkinga og tréskurðarlistamenn að störfum. Gómsætar veitingar á góðu verði Nánari upplýsingar á www.heidmork.is Heiðmörk 60 ára Afmælishátíð Skógræktarfélags Reykjavíkur 25. og 26. júní Um þessar mundir heldur Toyota á Íslandi upp á 40 ára afmælið, en fyr- irtækið tók formlega til starfa í júní 1970. Í tilefni afmælisins var efnt til ljósmyndakeppni þar sem taka átti myndir í reynsluakstri undir einkunn- arorðunum Gleði, bjartsýni og jákvæðni. Hátt í 200 myndir bárust í keppnina og hafa verðlaun verið veitt fyrir fimm bestu myndirnar að mati dómnefndar sem starfaði undir stjórn Ragnars Th. Sigurðssonar. Vinningsmyndina, Regnbogabirtu, tók Jóhannes Kjartansson. Verðlaunamynd afmælisbarns Svo virðist sem hestapestin svokall- aða sé að ganga yfir og eru íslensk hross smám saman að ná sér eftir erfiðan tíma. Hross sem hafa orðið mjög slæm af pestinni eru með- höndluð með pensilíni en þó hafa þau flest unnið bug á sjúkdómnum án þeirrar meðferðar. Samkvæmt upplýsingum Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis á Kálfs- stöðum, er enn verið að reyna að greina sjúkdóminn en veirurann- sóknir hafa allar verið neikvæðar ennþá. Komið hefur í ljós að íslensk- ur hrossastofn hefur ekki neinn hættulegan sjúkdóm að bera. „Það er búið að útiloka allar þekktar og allar hættulegar veirur sem eru þekktar fyrir að leggjast á öndunar- færi hrossa og það er mjög mikilvæg niðurstaða fyrir okkur upp á fram- haldið að gera,“ segir Sigríður. Hún telur að niðurstöður bendi til þess að starfsemin geti komist í gang aftur. Þó er rannsóknum á sjúkdómnum ekki lokið og er þetta orðið að lang- tímaverkefni sem verður unnið að áfram. „Við verðum náttúrlega að öllum líkindum að búa við þessa bakteríu í umhverfinu áfram,“ segir Sigríður en hún telur faraldurinn þó vera að ganga niður. Hún segir framhaldið vera að öðru leyti óráðið en telur þó fólk almennt bjartsýnt um framhald- ið og það að stofninn myndi mót- stöðu gegn bakteríunni smám sam- an. gunnthorunn@mbl.is Er besta hestapestar- meðalið bjartsýni? FRÉTTASKÝRING Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Með nýju frumvarpi til breytinga á búvörulögum verður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra veitt heim- ild til að sekta afurðastöð sem tekur á móti mjólk sem er framleidd án ríkisstyrks (greiðslumarks) og selur hana innanlands. Sektin er svo há að útilokað verður að slík framleiðsla geti borgað sig eða 110 krónur á hvern lítra mjólkur. Ráðuneytið seg- ir að fyrra álit þess um að heimilt væri að selja slíka mjólk innanlands hafi verið byggt á verulega gölluðu lögfræðiáliti og hefur nú kúvent í af- stöðu sinni. Bændur sem framleiða mjólk utan greiðslumarks, og Morgunblaðið ræddi við, eru afar ósáttir og segja frumvarpið geta kippt fótunum und- an þeirra framleiðslu. Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er birt ábending frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þar sem fjallað er um frumvarpið. Í ábend- ingunni er rifjað upp að árið 2005 hafi risið umræða um starfsemi Mjólku sem hugðist bæði taka á móti umframmjólk frá bændum inn- an greiðslumarkskerfisins og fram- leiða úr mjólk frá býli sem ekkert greiðslumark hafði. Landbún- aðarráðuneytið tók málið til skoð- unar og á aðalfundi Landssambands kúabænda árið 2005 lýsti Guðni Ágústsson, þáverandi landbún- aðarráðherra, því yfir að Mjólku væri heimilt að selja mjólk frá eigin býli innanlands, þrátt fyrir að á býl- inu væri ekkert skráð greiðslumark. „Þessi orð ráðherrans voru reist á óformlegu lögfræðilegu áliti sem haldið var verulegum ágöllum,“ seg- ir í ábendingu ráðuneytisins. Brot tilkynnt lögreglu Til skýringar bendir sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðuneytið á að yrði mjólk utan greiðslumarks seld á innanlandsmarkaði myndi markaðshlutdeild bænda sem væru innan kerfisins minnka. Með því myndi útflutningsskyldan aukast og og heildargreiðslumark lækka. „Í þessu fælist að framleiðendur án greiðslumarks nytu forgangs að innanlandsmarkaði fram yfir þá bændur sem eiga greiðslumark.“ Þá er tekið fram að vegna hins gallaða lögfræðiálits, sem fyrr er nefnt, hefði ákæruvaldinu ekki verið bent á möguleg brot Mjólku. „Það af- skiptaleysi verður ekki endurtekið,“ segir ráðuneytið nú. Guðni Ágústsson sagði í samtali við Morgunblaðið að umræðan þá hefði snúið að þeim atriðum og rétt- indum sem snertu stofnun mjólkur- búa og framleiðslu mjólkur. „Mjólk- urbúin þá eins og nú voru án allra styrkja frá ríkinu. Þetta átti við um Mjólku, MS og önnur mjólkurbú sem þá störfuðu. Hins vegar stendur það óhaggað að útfluningsskyldan var í búvörulögum, þá eins og nú.“ Guðni segir að Mjólka hafi ætlað að framleiða mjólk án kvóta og bein- greiðslna frá bændum. Hins vegar hafi fyrirtækið orðið venjulegt mjólkurbú sem tók hvort tveggja umframmjólk og bein- greiðslumjólk. „Á þessum tíma gerðist það hins vegar að neysla á mjólkuafurðum jókst verulega þannig að fram- kvæmdanefnd búvörusamninga heimilaði, lögum samkvæmt, að mjólkin færi á innanlands- markað. Þannig að í minni tíð reyndi aldrei á þessi ákvæði bú- vörulaganna.“ Sektaðir ef mjólkin er ekki styrkt  Bændur sem framleiða mjólk utan greiðslumarks segjast afar ósáttir Morgunblaðið/RAX Bjarni Bærings, bóndi á Brúar- reykjum í Borgarfirði, hefur ásamt tveimur öðrum bændum stofnað nýtt mjólkursamlag, Vesturmjólk, og er von á fyrstu framleiðsluvörum fyrirtækisins í sumarlok. Hann segir að verði frumvarp sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um að leggja stórsektir á þá sem framleiða mjólk án ríkisstyrkja að veru- leika muni það kollvarpa áform- um þeirra. Tæki til framleiðsl- unnar séu á leið til landsins og þeir hafi lagt vel á annað hundr- að milljónir í fyrirtækið. Á Brúarreykjum er kvóti upp á ríflega 400.000 lítra. Bjarni segir frumvarp ráð- herra óskiljanlega hneisu. Hann bendir á að ráðherra hafi nýlega lagt bann við verslun með mjólkurkvóta, sem standist vart lög, en það bann komi í veg fyrir að bænd- urnir sem standa að Vesturmjólk geti bætt við sig kvóta, vildu þeir það Bannið hafi verið sett á ör- stuttu eftir að Kaupfélag Skag- firðinga hafi keypt Refsstaði, gríðarstórt kúabú, og fært kvót- ann norður í land. Nú hyggist ráðherrann þar að auki leggja himinháar sektir á þá sem vilji auka framleiðsluna en geti eng- an kvóta keypt. „Þetta snýst um að þú megir ekki framleiða mat- vöru nema ríkið borgi eitthvað með henni. Ef þú getur framleitt án styrkja þá ertu sektaður,“ segir Bjarni. Orð ráðherrans um matvælaöryggi þjóðarinnar séu hláleg í þessu samhengi. „Þetta kemur eins og úr fornöld, þetta frumvarp.“ Bjarni kveðst raunar ekki hafa neina trú á að á að frum- varpið nái í gegn. Í fyrsta lagi brjóti það í bága við atvinnu- frelsisákvæði stjórnarskrár- innar en hins vegar hljóti Sam- fylkingin að standa gegn því en hún hafi einatt stutt þá sem vilji aukið frelsi í landbúnaði. „Þetta kemur eins og úr fornöld, þetta frumvarp“ ÞRÍR BÆNDUR Á VESTURLANDI STOFNA NÝTT MJÓLKURSAMLAG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.