Morgunblaðið - 25.06.2010, Side 16

Morgunblaðið - 25.06.2010, Side 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Helst eiga menn von á því að til átaka geti komið á fundinum um Evrópuaðildarmál og hvort álykta skuli um það í stjórnmálaályktun flokksins að draga beri aðild- arumsóknina til baka. Flestir virðast telja að Sjálfstæð- isflokkurinn verði að senda skýr skilaboð um stefnu sína í Evrópu- málum, en ágreiningurinn stendur um það hvort flokkurinn eigi þegar að beita sér fyrir því að aðild- arumsóknin verði dregin til baka, eða hvort látið verði reyna á það hvers konar samningar náist við Evrópusambandið og þjóðin taki síð- an afstöðu með eða móti samn- ingnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrir liggi að mikill meirihluti þjóð- arinnar sé andvígur aðild Íslands að ESB og því sé í rauninni ekkert að óttast, þótt samningaferlinu verði haldið áfram til loka. En fjölmargir benda þó á, að gíf- urlegur og óþarfur kostnaður sem leggist beint á þjóðina fylgi aðild- arviðræðunum. Auk þess virðist sem gallhörð afstaða Breta og Hollend- inga til Íslands og bein tenging David Cameron, forsætisráðherra Breta, á aðildarviðræðum annars vegar og Icesave-rukkunum Breta og Hol- lendinga geri menn enn fráhverfari slíkum viðræðum en ella. Landsfundarfulltrúar sem rætt var við virðast telja innra uppgjör Sjálfstæðisflokksins með tilliti til skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og skýra stefnumörkun til framtíðar vera meginverkefni aukalandsfund- arins. Viðbragðshópur miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins muni leggja fram tillögur um það hvernig Sjálf- stæðisflokkurinn eigi að vinna sig í gegnum það áfall sem stjórnmálin í landinu hafi orðið fyrir í kjölfar hruns. Óánægja með Valhöll Þá virðast margir landsfund- arfulltrúar utan af landi og sömuleið- is í hverfafélögum Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík vera þeirrar skoðunar að samband Valhallar við grasrótina í flokknum sé ekki sem skyldi. Valhöll var m.a. líkt við fíla- beinsturn og að þau sem þar störfuðu gerðu sér lítið far um að eiga náið samstarf við óbreytta flokksmenn og heyra hvert þeir vildu að Sjálfstæð- isflokkurinn stefndi. Brýnt væri að breyta þessu. Jónmundur Guð- marsson, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, er sérstaklega nefndur í þessu samhengi. Loks telja viðmælendur að hluti af innra upppgjöri Sjálfstæðisflokksins hljóti að verða raunveruleg umræða og niðurstaða í styrkjamálum ein- stakra þingmanna. Fjölmargir lands- fundarfulltrúar, einkum utan af landi, virðast telja að því fari fjarri að styrkjamál séu uppgerð og afgreidd innan flokksins og eru þá háir styrkir Guðlaugs Þórs Þórðarsonar einkum nefndir til sögunnar. „Það gengur ekki, að Guðlaugur Þór sitji áfram, eins og ekkert hafi í skorist, nú eftir að upplýst er, að það var Baugur eða Baugstengdir aðilar sem fjármögn- uðu afar dýra kosningabaráttu hans, þegar hann fór fram gegn Birni Bjarnasyni í Reykjavík. Það er óhjá- kvæmilegt að ræða þetta á fundinum og hreinsa andrúmsloftið,“ sagði landsfundarfulltrúi og fleiri taka í sama streng. Helst verður tekist á um Evrópu- og styrkjamál  Ekki er búist við mótframboði gegn Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðið/Heiddi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins Liðlega 1.500 sjálfstæðismenn af öllu landinu eiga rétt á setu á aukalandsfundi sem hefst í dag og er sá 39. í röðinni. Samkvæmt samtölum við landsfundarfulltrúa er tal- ið líklegt að í umræðum um stjórnmálaályktun landsfundarins verði helst tekist á um orðalagið í sambandi við Evrópumál. Sjálfstæðisflokkurinn hefur skipst í fylkingar hvað varðar afstöðu til Evrópusambandsaðildar, en auðheyrt er að andstæðingum aðildar innan Sjálfstæðisflokksins hefur fjölgað og fylgjendum að sama skapi fækkað. Algeng um- mæli voru að einkennilegt væri að ríkisstjórnin og þá sérstaklega ut- anríkisráðuneytið stæði fyrir svo mikilli peningasóun og tímaeyðslu við aðildarumsókn, við þær sér- kennilegu aðstæður, að mikill meirihluti þjóðarinnar væri and- vígur aðild og ekki væri ríkisstjórnarmeirihluti fyr- ir slíkri aðild. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur ítrekað lýst yfir andstöðu sinni við að Ísland gengi í Evrópu- sambandið og ekki talið að aðild þjónaði hags- munum Íslendinga, þótt hann hafi jafnframt sagst reiðubúinn til þess að láta reyna á samningaviðræður, bera samning- inn undir þjóðina og taka póli- tíska afstöðu gagnvart samningi, þegar hann lægi fyrir. Sennilegt er talið að orðalagið gagnvart Evrópusambands- aðildarumsókninni í stjórn- málaályktuninni verði mjög harð- ort. Andstæðingum fjölgar EVRÓPUMÁL Í BRENNIDEPLI Bjarni Benediktsson Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins segir að rúmlega 1500 sjálfstæð- ismenn eigi rétt á lands- fundarsetu, en ekki sé komin endanleg nið- urstaða um hversu margir hafi staðfest komu sína. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þessi aukalandsfundur yrði frábrugðinn hefðbundnum lands- fundum að því leyti að til hans hefði verið boðað með skömmum fyrirvara, hann yrði styttri en þeir hefðbundnu og málefnastarf fundarins færi fram með öðrum hætti en hingað til. „Það er ekki hugmyndin að af- greiða allan þann fjölda ályktana sem landsfundir hafa gert, heldur einungis stjórnmálaályktun flokks- ins. Málefnastarfið mun samanstanda af virkri þátttöku landsfundarfull- trúa í þeirri stefnumót- unarvinnu sem verið hef- ur á vegum flokksins frá síðasta landsfundi og er komin vel áleiðis. Landsfundurinn mun taka föstum tökum á málum sem snúa að flokknum og tengj- ast þá efnahagshruninu og skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis og sýna þannig að flokk- urinn vill læra af reynslunni og breyta því í sínu innra starfi og skipulagi, sem nauðsynlegt getur talist,“ sagði Jónmundur. 1.500 manns eiga seturétt 39. LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Jónmundur Guðmarsson Í DAG kl. 16.00 Landsfundur settur og ræða formanns. kl. 17.00 Framsaga um stjórn- málaályktun. kl. 17.15 Tillögur viðbragðshóps kynntar. kl. 18.00 og fram eftir kvöldi málefnavinna. Á MORGUN kl. 9.00 Skýrsla fram- kvæmdastjóra. kl. 9.15 Frambjóðendakynn- ingar. kl. 10.00 Kynning á nið- urstöðum málefnavinnu. kl. 11.00 Tillögur viðbragðshóps ræddar. Breytingar á skipulags- reglum. Umræður. kl. 13.30 Kosning formanns. kl. 14.00 Jafnréttisstefna Sjálf- stæðisflokksins. kl. 15.00 Kosning varafor- manns. kl. 15.30 Stjórnmálaályktun. kl. 17.00 Fundarslit – ávarp for- manns. DAGSKRÁ FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þvert á væntingar í aprílmánuði sl. er ekki lengur búist við því að lands- fundur Sjálfstæðisflokksins verði mikill uppgjörs- og átakafundur, eða að þar dragi til stórkostlegra tíðinda. Menn virðast almennt gera sér vonir um að Sjálfstæðisflokkurinn nái á þessum fundi að sýna breiða sam- stöðu, marka uppgjörsstarf til næstu mánaða og missera og sýna fram á að flokkurinn hafi skýra framtíðarsýn, án þess að óttast uppgjör við liðin ár. Vissulega búast landsfund- arfulltrúar við ákveðnum átökum, einkum í tengslum við Evrópumál og styrkjamál einstakra þingmanna, en litlar líkur eru taldar á því að nokkur raunveruleg átök verði um kosningu forystunnar, eins og búist hafði verið við í vor, í kjölfar þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér sem varaformaður flokksins á flokks- ráðsfundinum í Reykjanesbæ. Bjarni Benediktsson er einn í framboði til formanns og enginn sem rætt hefur verið við á von á því að til mótframboðs komi. Kristján Þór Júlíusson hefur enn ekki gefið upp hvort hann muni bjóða sig fram gegn Bjarna, en samkvæmt landsfundarfulltrúum víðs vegar að á landinu, er framboð hans til for- manns talið harla ólíklegt. Hann hafi ekki verið í neinum slíkum stell- ingum, ekki farið um landið eða stað- ið í hringingum undanfarnar vikur, til þess að kanna hvert fylgi hann kynni að hafa við slíkt framboð. Rifj- að er upp, að á landsfundinum í fyrra, þegar Kristján Þór bauð sig fram gegn Bjarna Benediktssyni, hafi hann tilkynnt framboð sitt með viku fyrirvara og staðið í gallharðri kosn- ingabaráttu fram að landsfundi, sem skilaði honum tæplega 40% atkvæða. Kristján Þór vildi ekkert segja um hvað hann hygðist gera, þegar rætt var við hann. Það eina sem heyra má á viðmæl- endum er að einhverjir óttast að ákveðnir fulltrúar skili auðu í for- mannskjörinu, til þess að reyna að gera endurkjör Bjarna veikt, en þó er ekki búist við því að stór hópur fulltrúa geri það. Bent er á að sterkt endurkjör formannsins sé ekki bara sterkt fyrir hann persónulega, held- ur einnig fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem stjórnmálahreyfingu. Ólöf Nordal líkleg Ólöf Nordal verður að öllum lík- indum kjörin varaformaður flokks- ins. Á mbl.is í gær kom fram að Lára Óskarsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Í samtali við mbl.is sagði Lára að hún teldi eðlilegt að kosið sé á milli einstaklinga í stað þess að sjálfkjörið sé í embætti flokksins. Lára er félagi í hverfa- samtökum í Lauganeshverfinu. Landsfundarfulltrúar eiga fastlega von á því að Ólöf fái góða kosningu. Hún hafi verið dugleg undanfarnar vikur að fara um landið og afla sér stuðnings. Það er talið styrkja henn- ar framboð að Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þingflokksins, sem hafði hugleitt framboð til vara- formanns, ákvað að bjóða sig ekki fram. Þá er fullyrt að Ragnheiður Rík- harðsdóttir og Unnur Brá Konráðs- dóttir hafi um hríð íhugað að bjóða sig fram til varaformanns, en þær hafi báðar komist að þeirri nið- urstöðu, að þær hefðu ekkert í Ólöfu að gera og nytu lítils sem einskis stuðnings í slíka vegtyllu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.