Morgunblaðið - 25.06.2010, Page 19

Morgunblaðið - 25.06.2010, Page 19
Fréttir 19ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Filippseyingar halda á styttu af Jóhannesi skírara í strandbænum Pola á Mindoro-eyju á jónsmessunni, fæðingarhátíð Jóhannesar skírara. Á Filippseyjum tíðkast að fólki sé dýft í vatn á jónsmessunni til minn- ingar um Jóhannes skírara eða að vatni sé skvett á vegfarendur. Reuters Jóhannesar skírara minnst Jónsmessuhátíð á Filippseyjum Sú ákvörðun Baracks Obama Bandaríkjaforseta að tilnefna David Petraeus sem yfirmann bandaríska heraflans í Afganistan í stað Stanleys McChrystals hefur mælst vel fyrir. Petraeus er 58 ára að aldri og þekktasti og virtasti hershöfðingi Bandaríkjanna. Hann þótti standa sig vel þegar hann stjórnaði fjöl- þjóðahernum í Írak frá 26. janúar 2007 til 16. september 2008. Hann beitti sér fyrir því að þáverandi for- seti, George W. Bush, fjölgaði í her- liðinu í Írak til að binda enda á stríð- ið. Petraeus hefur verið yfirmaður stofnunar, sem hefur haft yfirum- sjón með aðgerðum Bandaríkjahers í Afganistan, Pakistan, Mið-Asíu, Arabíuskaga og Afríku. Hann hefur því átt stóran þátt í því að móta hernaðaráætlun Bandaríkjahers í Afganistan og er vel undir það búinn að taka við af McChrystal. Með því að velja Petraeus vill Obama tryggja að röskunin vegna mannaskiptanna verði sem allra minnst. Með valinu fær hann þó einnig þungavigtar- mann sem er talinn hafa burði til að knýja Bandaríkjastjórn til að seinka eða hægja á heimkvaðningu her- manna sem Obama hefur boðað að hefjist í júlí á næsta ári. bogi@mbl.is Valdi virtasta hershöfðingjann  Petraeus beitir sér e.t.v. fyrir seinkun á heimkvaðningu hermanna Reuters Virtur Barack Obama og David Petraeus í Hvíta húsinu í fyrradag. Mörgum Kanadamönnum blöskrar kostnaðurinn af leiðtogafundum ríkjahópanna G8 og G20 um helgina. Áætlað er að fundirnir kosti Kanada hvorki meira né minna en 1,1 milljarð kanadadollara, eða sem svarar 135 milljörðum króna. Um það bil 90% af kostnaðinum eru vegna gífurlegs öryggisviðbúnaðar í Toronto, þar sem leiðtogafundur G20 verður haldinn á morgun og á sunnu- dag, og í grennd við bæinn Huntsville, norðan við Toronto, þar sem leiðtogar G8-hópsins koma saman í dag. Um 20.000 lögreglumenn verða á varðbergi vegna fundanna. Fundar- staður leiðtoga G8-hópsins, stórt hót- el við vatn nálægt Huntsville, verður nánast algerlega einangraður á með- an fundurinn er haldinn. Öryggisviðbúnaðurinn er enn meiri í Toronto. Þar hefur meðal annars verið reist þriggja metra há og 3,5 kílómetra löng steypu- og járngirðing umhverfis fundarstað leiðtoga G20- hópsins. Útibú banka, kvikmyndahús og leikhús verða lokuð, svo og þekkt- asta bygging borgarinnar, CN- turninn, sem nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna. Stjórnarandstæðingar í Kanada hafa sakað ríkisstjórn Stephens Harpers forsætisráðherra um mikið bruðl í tengslum við leiðtogafundina. Þeir hafa einkum gagnrýnt þá ákvörðun stjórnarinnar að láta búa til stöðuvatn við fjölmiðlamiðstöð í Toronto til að gleðja um 3.000 frétta- menn sem fylgjast með fundinum. Hermt er að tilbúna stöðuvatnið hafi kostað sem svarar rúmum sjö millj- ónum króna af um 250 milljónum sem varið var í landkynningarskála í fjöl- miðlamiðstöðinni. Þótt þetta sé aðeins lítill hluti kostnaðarins hefur tilbúna vatnið orð- ið að tákni fyrir bruðlið. „Við fengum bara ömurlegt gervivatn fyrir alla þessa peninga,“ sagði Michael Igna- tieff, leiðtogi Frjálslynda flokksins, stærsta stjórnarandstöðuflokksins. Hann lýsti leiðtogafundunum sem „dýrasta myndatökutækifæri heims- ins“. Harper hefur varið gervivatnið, sem á að vekja athygli fréttamanna á vötnunum í grennd við Toronto. Hann lýsir fundunum sem frábæru tæki- færi til að fjölga ferðamönnum í Kanada. bogi@mbl.is „Fengum eitt ömurlegt gervivatn“  Kanadamönnum blöskrar 135 milljarða reikningur vegna leiðtogafunda  Um 90% fjárins fara í öryggisviðbúnað Heimild: Fitch-matsfyrirtækið. OPINBERAR SKULDIR Opinberar skuldir G20-landa sem hlutfall af vergri lands- framleiðslu. Á Íslandi mun hlutfallið vera um 122%. Svíþjóð 45,5 Danmörk 42,6 Þýskaland 76,6 Holland 67,0 Belgía 100,9 Bretland 80,6 Írland 116,3 Lúxemborg 18,9 Tékkland 39,7 Frakkland 83,1 Portúgal 85,1 Spánn 69,1 Austurríki 70.2 Evrópu- sambandið Finnland 48,3 Eistland 8,8 Lettland 55,0 Litháen 38,4 Pólland 54,3 Slóvakía 40,9 Ungverjal. 83,0 Rúmenía 34,7 Búlgaría 14,7 Kýpur 56,4 Grikkland 125,6 Slóvenía 41,2 Ítalía 117,7 Malta 68,6 25 50 75 100 Japan 214,3 Mexíkó 38,2 S-Kórea 37,3 Argentína 66 Ástralía 19,1 Brasilía 70,2 Indland 81,2 Indónesía 25 Sádi- Arabía 4,3 Suður- Afríka 38,2 Tyrkland 45,3 Kanada 81,2 Kína 23,9Rússland 11,1 Bandaríkin 87,5 Reuters Umdeilt vatn Fréttamaður virðir fyrir sér tilbúið vatn við fjölmiðlamiðstöð í Toronto þar sem tekið verður á móti um 3.000 fréttamönnum um helgina. David Petraeus stendur frammi fyrir mjög erfiðum úrlausnar- efnum í Afganistan og þau virðast jafnvel enn erfiðari en vandamálin sem biðu hershöfðingjans þegar hann varð yfirmaður fjöl- þjóðahersins í Írak. Bandaríkjaher hefur að undanförnu lagt áherslu á að koma á friði í Helm- and-héraði í Afgan- istan en það hefur tekið lengri tíma og kost- að fleiri mannslíf en búist var við. Fyrirhuguðum aðgerðum til að tryggja öryggi Kandahar, næst- stærstu borgar landsins, var einn- ig frestað vegna andstöðu afg- anskra leiðtoga, m.a. Hamids Karzais for- seta. Enn erfiðara en í Írak PETRAEUS TEKUR VIÐ MJÖG VANDASÖMU VERKEFNI Andstaðan meðal Dana við upp- töku evrunnar hefur aldrei ver- ið meiri, ef marka má nýja skoðanakönnun sem gerð var fyr- ir Danske bank. Um 48% að- spurðra sögðust vera viss um að greiða atkvæði gegn upptöku evr- unnar ef þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram nú um málið. Um 32% sögðust vera viss um að greiða at- kvæði með upptöku evrunnar. Um 11% aðspurðra sögðust ekki vera viss en hneigjast til þess að styðja upptöku evrunnar. Tæp 7% sögðust ef til vill greiða atkvæði gegn upptöku evrunnar. Steen Bocian, aðalhagfræðingur Danske Bank, rekur vaxandi and- stöðu við evruna til skuldavanda Grikklands og fleiri landa á evru- svæðinu. Andstaða við evru hefur aldrei verið meiri meðal Dana Deila um hvort tala megi dönsku í ræðum á græn- lenska lands- þinginu, Inats- isartut, hefur blossað upp að nýju á Græn- landi. Siumut- flokkurinn, sem er í stjórnarand- stöðu, hefur lagt til að aðeins megi tala grænlensku þegar ræður eru fluttar á þinginu. Kuupik Kleist, formaður lands- stjórnarinnar og leiðtogi flokksins Inuit Ataqatigiit, hafði áður sagt að hann væri hlynntur því að græn- lenska yrði vinnumál þingsins. Vandamálið er hins vegar að nokkrir þingmenn flokksins tala ekki grænlensku og hann vill því núna að þingmenn tali það mál sem þeir hafi mest vald á, að því er fram kemur á fréttavef danska ríkis- útvarpsins. Deilt um hvort tala megi dönsku á þingi Þingfundur á Grænlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.