Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 23
Umræðan 23
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
Kaldárbotnar eru mjög vinsælt úti-
vistarsvæði. Þar gleður augað hin
öfluga Kaldá sem rennur úr upp-
sprettu sinni úr afgirtu verndar-
svæði og fer meðal annars fram hjá
Kaldárseli. Þar hafa hundruð barna
leikið sér í sumarbúðum. Fyrir
framan bæinn Kaldársel rennur
Kaldá og hefur verið leikvöllur
barna áratugum saman. Brú var
gerð yfir ána svo hægt væri að kom-
ast yfir á hraunið þar sem börnin
léku sér út um allt í alls konar ævin-
týraleikjum.
Nú er þar sorglegt um að litast.
Sjálf Kaldá er gjörsamlega horfin,
ekki svo mikið sem smá lækjar-
spræna til að fylla á vatnsflöskur
fyrir fólk sem hyggur á Helgafells-
túr!
Mér leikur forvitni á að vita hvað
er framundan. Er blessuð áin horfin
til lífstíðar, eða eigum við von á að
sjá hana aftur í bráð ?
SIGURÐUR HERLUFSEN,
ellilífeyrisþegi.
Fyrirspurn
til Vatns-
veitu Hafn-
arfjarðar
Frá Sigurði Herlufsen
Ljósmynd/Sigurður Herlufsen
Horfin Eingöngu þurr farvegur er nú þar sem Kaldá rann áður.
Ljósmynd/Sigurður Herlufsen
Vatnsmikil Kaldá var eitt sinn myndarlegt fljót.
V i n n i n g a s k r á
8. útdráttur 24. júní 2010
A ð a l v i n n i n g u r
A u d i A4
Kr. 7.300.000 kr. 14.600.000 (tvöfaldur)
3 0 6 9 0
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 9 2 8 1 4 2 2 5 1 4 2 9 3 3 5 3 5 1 8
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
13764 22911 28209 31114 66273 71011
19199 24691 29607 38888 67132 71983
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
2 8 6 1 0 0 3 5 2 0 8 4 5 3 0 6 7 6 3 9 6 0 0 5 1 5 2 2 6 0 4 9 9 7 3 3 2 5
4 2 4 1 1 3 9 4 2 1 9 2 2 3 0 9 0 4 4 1 1 7 3 5 2 0 0 1 6 4 8 8 4 7 3 9 1 1
5 6 4 1 2 4 2 8 2 2 0 8 2 3 1 0 1 3 4 1 2 0 4 5 3 1 9 5 6 5 1 2 2 7 4 7 9 2
3 6 0 9 1 5 2 8 6 2 2 6 8 5 3 3 7 0 9 4 2 1 9 5 5 3 3 2 3 6 8 2 3 3 7 4 9 1 8
3 9 6 2 1 8 4 0 6 2 4 9 0 9 3 4 6 2 8 4 2 5 3 5 5 5 1 8 0 6 8 9 5 6 7 5 0 9 9
5 0 5 0 1 8 8 2 7 2 4 9 4 1 3 4 7 4 5 4 6 2 1 5 5 6 0 5 1 7 0 0 4 8 7 5 4 6 8
6 8 6 5 1 9 0 6 4 2 8 1 6 7 3 5 3 3 5 4 7 7 7 3 5 7 3 3 2 7 0 2 3 7 7 8 0 0 9
7 3 5 9 1 9 8 4 1 2 8 6 8 6 3 6 1 8 1 4 9 3 4 4 5 8 1 9 2 7 1 5 5 6 7 8 4 6 1
7 4 3 7 2 0 0 5 5 3 0 3 3 2 3 7 4 6 6 5 0 0 4 4 5 8 2 1 1 7 1 7 5 5 7 8 7 1 6
7 8 6 0 2 0 3 6 3 3 0 3 6 9 3 8 5 7 8 5 1 1 0 6 5 9 2 0 1 7 2 6 4 6 7 9 9 1 3
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
1 3 0 9 1 8 2 2 2 8 2 7 3 1 9 5 7 4 2 4 4 6 5 1 3 4 4 6 2 3 3 5 7 1 7 8 4
2 5 9 9 2 6 6 2 2 9 3 0 3 2 9 3 6 4 2 7 3 9 5 1 4 8 6 6 2 7 1 5 7 2 0 5 9
6 7 5 9 2 8 1 2 4 2 2 3 3 3 1 1 4 4 2 9 3 6 5 1 8 2 3 6 2 7 4 3 7 2 2 4 5
1 6 0 3 9 6 6 3 2 4 6 6 1 3 3 2 7 9 4 3 2 8 4 5 2 7 3 3 6 3 0 9 6 7 2 3 7 7
2 0 6 2 9 9 1 4 2 4 7 0 5 3 3 5 9 0 4 3 2 8 8 5 2 7 5 1 6 3 1 5 1 7 2 4 7 7
2 3 6 9 1 0 4 3 0 2 5 1 4 5 3 3 5 9 5 4 3 7 5 5 5 3 1 4 4 6 3 5 0 9 7 2 7 2 6
2 5 8 5 1 0 5 0 7 2 5 1 7 1 3 4 3 2 7 4 3 8 1 6 5 3 3 9 0 6 3 7 6 1 7 3 9 6 3
2 7 1 1 1 1 1 0 3 2 5 4 5 3 3 4 6 9 8 4 4 5 8 2 5 3 7 1 7 6 4 3 5 9 7 4 1 3 5
2 8 7 2 1 1 1 9 6 2 5 6 3 9 3 4 7 5 7 4 5 0 7 3 5 3 8 8 8 6 4 3 7 3 7 4 2 3 9
3 0 0 0 1 1 2 3 7 2 5 8 9 2 3 4 9 7 5 4 5 3 6 0 5 4 0 7 2 6 4 6 6 2 7 4 2 9 5
3 0 6 6 1 1 4 3 5 2 6 0 8 3 3 5 2 0 7 4 5 3 7 1 5 4 3 2 4 6 4 8 3 4 7 4 4 6 9
3 3 8 7 1 2 8 2 3 2 6 5 3 6 3 5 9 1 8 4 5 6 6 1 5 4 7 0 8 6 5 0 0 3 7 4 7 1 4
3 7 5 9 1 3 1 0 4 2 6 5 9 2 3 5 9 8 5 4 5 8 5 2 5 5 0 5 1 6 6 1 4 3 7 4 7 9 0
3 7 7 2 1 3 8 0 8 2 6 6 5 2 3 6 2 1 1 4 5 8 6 2 5 5 2 8 7 6 6 2 9 7 7 5 0 9 0
4 0 3 5 1 4 8 7 6 2 7 1 0 4 3 6 9 0 8 4 6 6 5 3 5 5 3 5 1 6 6 5 1 2 7 5 1 6 8
4 0 9 7 1 5 7 5 4 2 7 6 4 8 3 7 0 5 1 4 7 1 3 0 5 5 4 0 5 6 6 5 2 3 7 6 2 6 4
4 3 4 2 1 5 7 7 4 2 7 8 6 8 3 7 1 1 9 4 7 1 6 8 5 5 6 4 5 6 6 5 4 8 7 6 4 3 1
4 4 4 3 1 5 9 6 9 2 8 1 3 7 3 7 5 4 6 4 7 1 9 3 5 5 8 1 6 6 6 6 0 6 7 6 9 9 2
4 5 6 0 1 6 1 8 5 2 8 1 6 3 3 8 2 5 4 4 7 2 0 7 5 5 8 9 0 6 6 7 6 6 7 7 5 4 7
4 6 8 0 1 6 7 3 6 2 8 4 0 4 3 9 0 2 2 4 7 6 7 5 5 6 2 0 1 6 6 9 3 9 7 7 5 9 5
5 3 1 2 1 7 6 1 2 2 8 9 3 5 3 9 5 4 1 4 7 7 5 1 5 6 6 7 3 6 8 1 2 2 7 7 6 5 2
5 3 5 6 1 7 8 7 9 2 8 9 7 9 3 9 5 4 5 4 7 8 0 4 5 7 5 2 3 6 8 4 8 0 7 9 1 2 3
6 6 2 3 1 7 9 7 4 2 9 0 9 1 3 9 8 6 1 4 7 8 2 8 5 8 3 2 7 6 9 2 4 8 7 9 3 9 4
7 1 8 7 1 8 2 7 9 2 9 6 3 4 3 9 9 1 5 4 7 9 3 0 5 8 4 3 1 6 9 3 4 8 7 9 4 5 1
7 5 6 4 1 8 8 7 7 2 9 7 8 5 3 9 9 3 1 4 9 3 2 9 5 8 9 1 6 6 9 8 8 8 7 9 6 2 4
7 8 2 1 1 9 6 2 6 3 0 2 6 5 4 0 5 3 2 4 9 9 4 8 5 8 9 6 0 6 9 9 0 2 7 9 8 4 8
8 2 2 4 1 9 8 9 4 3 0 4 2 8 4 0 7 5 4 5 0 0 7 6 5 9 7 9 6 7 0 2 6 2
8 4 3 6 2 0 8 1 8 3 0 8 5 4 4 0 7 6 5 5 0 4 8 8 5 9 8 4 8 7 0 5 2 3
8 7 8 1 2 1 4 7 5 3 0 9 1 5 4 1 0 9 4 5 0 5 3 3 5 9 8 5 1 7 1 2 6 3
8 9 1 8 2 1 8 6 7 3 1 1 3 5 4 1 4 3 9 5 0 6 0 9 6 0 3 8 5 7 1 5 1 8
8 9 6 3 2 2 1 8 8 3 1 3 2 7 4 1 6 0 3 5 0 7 8 9 6 0 4 3 5 7 1 5 7 0
9 0 8 6 2 2 7 8 4 3 1 4 7 9 4 1 6 6 1 5 0 8 4 1 6 2 3 0 0 7 1 6 4 4
Næsti útdráttur fer fram 1. júlí 2010
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Enginn flokkur sem
nú á sæti á Alþingi
treystir sér til að opna
á umræðu um vægast
sagt vafasamar for-
sendur núverandi fisk-
veiðistjórnunar sem
byggist á því að veiða
minnna til að geta veitt
meira seinna.
Heildarútflutningur
sjávarafurða var upp á
208 milljarða króna á
árinu 2009. Hlutur þorskafurða var
stærstur, útflutningsverðmæti hans
nam tæpum 76 milljörðum króna.
Öll aukning á veiði og virðisaukandi
vinnslu á sjávarafurðum er því fljót
að skila sér í bættum hag landsins.
Með 100 þúsund tonna viðbótarveiði
á þorski og hlutfallslega sambæri-
legri aukningu í öðrum tegundum
myndi aukningin á gjaldeyristekjum
verða um 115 millj-
arðar króna árlega.
Einhver kann að
spyrja hvort það sé
óhætt að auka sóknina
um hundrað þúsund
tonn árlega í ljósi ráð-
legginga Hafró um
minni veiði. Á það ber
fyrst að líta að veiðin
yrði engu að síður um-
talsvert minni en hún
var áður en farið var að
takmarka veiði á
þorski með kvótasetn-
ingu. Í öðru lagi hafa
ekki gengið upp þær ráðleggingar
Hafró að með því að draga úr veið-
um núna mætti fá stóraukinn afla
síðar. Það opinberaðist endanlega
upp úr síðustu aldamótum þegar
stofnunin játaði að árangurinn sem
talinn var að hefði náðst af sárs-
aukafullum niðurskurði á aflaheim-
ildum á tíunda áratugnum væri í
raun ofmat og að stofninn hefði í
raun verið minni en áður var reikn-
að.
Árni M. Mathiesen, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, brást við með
skynsamlegum hætti með því að
setja af stað vinnu til að fara yfir
forsendur aðferða Hafró og sömu-
leiðis var haldið fyrirspurnaþing.
Annars vegar var tekin saman af
Tuma Tómassyni fagleg gagnrýni
líffræðinga á stefnu stjórnvalda og
hins vegar var fenginn velmetinn
reiknisfiskifræðingur sem fylgjandi
er kennisetningum Hafró að nafni
Andrew Rosenberg til að yfirfara
aðferðir Hafró. Rosenberg er reynd-
ar þekktastur í heimi reiknisfiski-
fræðinnar fyrir það ótrúlega „vís-
indaafrek“ að hafa reiknað út stærð
þorskstofns í Norður-Ameríku um
miðja nítjándu öld. Framhaldið af
þessari vinnu varð því miður að ekk-
ert var gert með faglega líffræðilega
gagnrýni Tuma Tómassonar á for-
sendur núverandi ráðgjafar en þess
í stað var „gæðastimpill“ Rosen-
bergs tekinn góður og gildur sem og
útskýringar hans. Hann sagði eitt-
hvað á þá lund að forsendur hefðu
brugðist vegna þess sem hann kall-
aði aukinn veiðanleika!
Í framhaldinu varð ofan á að
herða á stefnunni með því að draga
enn frekar úr veiðum með því að
breyta aflareglunni úr 25% í 20% af
svokölluðum reiknuðum viðmið-
unarstofni. Dæmið gengur víst út á
að með því að draga sem mest úr
veiðum fáist fyrr miklu meiri upp-
skera. Framangreindar niðurskurð-
artillögur gengu svo langt að út-
reikningar Hagfræðistofnunar
Háskóla Íslands bentu til þess að
hagkvæmt væri að hætta þorsk-
veiðum í 3-4 ár. Ráðlögð veiði á
næsta ári er 160 þúsund tonn af
þorski sem er tugum þúsunda minni
afli en sá sem varð til þess að Árni
M. Mathiesen setti spurningarmerki
við aðferðafræði Hafró og einungis
þriðjungurinn af því sem veiddist af
þorski fyrir daga kvótakerfisins. Ár-
angursleysi aðferða Hafró er algjört
og er þá nánast sama á hvaða teg-
und er litið. Ýsan er í niðursveiflu
þrátt fyrir veiðistýringuna og hið
sama á við um loðnu.
Það hlýtur að vera komið að því
að fiskveiðiþjóð sem berst fyrir
efnahagslegu sjálfstæði sínu setji
spurningarmerki við fiskveiðistjórn
sem skilar æ færri fiskum á land eft-
ir því sem lengur er farið eftir ráð-
gjöfinni.
Sjáið þið ekki glansandi milljarðana í sjónum?
Eftir Sigurjón
Þórðarson » Fiskveiðiþjóð sem
berst fyrir efnahags-
legu sjálfstæði sínu setji
spurningarmerki við
fiskveiðistjórn sem skil-
ar æ færri fiskum á
land.
Sigurjón
Þórðarson
Höfundur er formaður
Frjálslynda flokksins.
Senn líður að
landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins.
Þar kjósum við
formann og vara-
formann. Ég hef
alltaf hrifist af
þeirri að-
ferðafræði sem
Sjálfstæðisflokk-
urinn beitir við
kosningu varafor-
manns. Það eru allir í framboði og
niðurstaða kosninganna er ekki
hönnuð af ímyndarfræðingum eða
mæld í desibilum uppklapps. Nið-
urstaðan er kunngjörð með nákvæm-
um hætti og hverjum kjósanda gefst
kostur á að senda skýr skilaboð.
Þessi heiðarlega og gagnsæja aðferð
er styrkleiki hjá Sjálfstæð-
isflokknum og nú ríður á að menn
byggi sitt starf á styrkleikum og
grunngildum en ekki lýðskrumi.
Annar styrkleiki Sjálfstæðisflokks-
ins felst að mati höfundar í þeirri
stefnu sem sjálfstæðismenn byggja
á. Hugtökin frelsi einstaklingsins og
stétt með stétt og þau gildi sem þau
standa fyrir eiga við núna. Óneit-
anlega er þó ærið verkefni að end-
urvinna traust stórs hluta þjóð-
arinnar. Sjálfstæðisflokkurinn þarf
trúverðugleika og traust, eigi upp-
gjör hans og endurskipulagning að
ná til botns og standa traustum fót-
um til framtíðar. Það er engin lausn
fyrir sjálfstæðismenn að stunda
kennitöluflakk eins og borið hefur á
hjá öðrum, uppgjörið verður að
klára.
Embætti varaformanns Sjálfstæð-
isflokksins er óhemju mikilvægt á
tímum sem þessum. Varaformaður
flokksins hefur jafnan borið ábyrgð á
flokksstarfinu, grasrótinni. Það er
ærið verkefni. Ólöf Nordal alþing-
ismaður er rétti einstaklingurinn í
það verk. Ólöf hefur á sínum stutta
þingferli sýnt skörungsskap og for-
ystuhæfileika. Áhugi hennar á sam-
göngumálum er mikill enda byrjaði
hún sem þingmaður í Norðaust-
urkjördæmi. Þekking hennar á at-
vinnu-, orku- og umhverfismálum
ristir djúpt. Þá sýndi Ólöf það með
sínu fyrsta þingmáli á Alþingi að vel-
ferð íslenskrar menningar er henni
einkar hugleikin, en þar var fjallað
um stöðu íslenskrar tungu og spurt
hvort til stæði að beita sér fyrir því
að sett yrðu ákvæði í stjórnarskrá
um þjóðtungu Íslendinga.
Ferill Ólafar á þingi er e.t.v. ekki
langur, en hann er athyglisverður.
Hún hóf hann sem 9. þingmaður
Norðausturkjördæmis en situr nú
sem 2. þingmaður Reykjavíkur-
kjördæmis suður. Hún hefur háð
prófkjörsbaráttu í báðum þessum
kjördæmum og sýnt að orðum fylgja
athafnir. Á þingi hefur hún m.a. setið
í fjárlaganefnd, allsherjarnefnd, um-
hverfisnefnd, samgöngunefnd og
stjórnarskrárnefnd. Hún er dugnað-
arforkur, með góða menntun og
reynslu.
Ólöf Nordal er einkar hæfur ein-
staklingur í það krefjandi verkefni
sem fylgir varaformennsku í Sjálf-
stæðisflokknum. Ég hvet sjálfstæð-
ismenn á landsfundi flokksins til að
veita henni brautargengi og tryggja
samhenta og öfluga forystusveit.
HILMAR GUNNLAUGSSON,
hæstaréttarlögmaður og smá-
atvinnurekandi á Íslandi.
Ólöf Nordal – góður varaformaður
Frá Hilmari Gunnlaugssyni
Hilmar
Gunnlaugsson