Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 25
Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Elsku besti Karl minn. Hvað get ég sagt, annað en hversu ofboðslega mikið ég sakna þín. Ég trúi því ekki enn, að þú sért farinn frá okkur, þú ert fallinn engill. Þú varst svo ofboðslega hlýr og góður strákur, kannski of góður fyrir þenn- an stað. Er það ekki sagt að þeir sem Guð elskar mest, deyja ungir? Hvað hjálpar þér í heimsins glaumi, að heiminum verðirðu ekki að bráð, þá berast lætur lífs með straumi og lystisemdum sleppir taumi – hvað hjálpar nema Herrans náð? Og þegar allt er upp á móti, andinn bugaður, holdið þjáð, andstreymisins í ölduróti allir þó vinir burtu fljóti, Guðs er þó eftir gæska og náð. Hvað dugar þér í dauðans stríði, er duga ei lengur mannleg ráð, þá horfin er þér heimsins prýði, en hugann nístir angur og kvíði – hvað dugar nema Drottins ráð? (Grímur Thomsen) Besti vinur minn, ég veit að þú ert kominn á betri stað. Þér er ætlað eitthvað stærra og betra en það sem er í þessum heimi. Mér þykir svo rosalega vænt um þig, mér finnst ég eiga svo stóran hlut í ykkur Birnu, þið eruð eins og litlu systkini mín. Þetta er svo sárt. Ég bið Guð og það sem bíður fyrir handan að taka á móti þér með opn- um örmum og vernda þig. Guð blessi minningu þína. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Ég gleymi þér aldrei, þú átt svo stóran hlut í hjarta mínu. Þín Kristín (Stína). Nú virðist fátt í veröldinni snúa rétt. Það er svo skelfilega rangt þeg- ar við fullorðna fólkið erum að fylgja börnunum okkar til grafar. Þau sem eiga framtíðina fyrir sér. Ég kynntist Karli Cesari þegar hann kom til okkar í Stóru-Voga- skóla. Hann var ljúfur drengur sem yfirleitt var með prakkaralegt bros og átti alltaf brandara í fórum sínum. Hann hafði ótrúlegt sjónminni og svo vissi hann allt um hjól. Hann hef- ur ekki átt langt að sækja þann hæfi- leika því samkvæmt Karli Cesari vissi pabbi hans allt um vélar, glussakerfi og guð veit hvað. Hans gæðastundir voru í vinnunni hjá pabba. Að vera unglingur í dag er ekki svo einfalt og reynist mörgum erfitt. Öll reynum við eftir bestu getu að halda utan um og vernda börnin okkar, því þau eru það dýrmætasta sem við eigum. Um leið og ég votta foreldrum Karls Cesars og systkinum okkar dýpstu samúð bið ég algóðan guð að taka góðan dreng í faðm sér og um- vefja hann ljósi og kærleika. Fyrir hönd starfsfólks Stóru- Vogaskóla, Kristín H. Halldórsdóttir Kæri vinur, hvíldu í friði. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Kolbrún Marelsdóttir. ✝ Magnús Steph-ensen var fæddur í Reykjavík 12. des- ember 1939. Hann lést á líknardeild Landspítalans 17. júní 2010. Foreldrar hans voru Ólafur Steph- ensen ökumaður, f. 4. mars 1876 á Ólafs- völlum á Skeiðum, d. 22. janúar 1954 og Þóra Daníelsdóttir húsfreyja, f. 23. apríl 1899 á Stokkseyri, d. 9. mars 1981. Albróðir Magnúsar er Þórir Stephensen fv. dóm- kirkjuprestur og staðarhaldari í Reykjavík, f. 1. ágúst 1931. Hálf- bræður þeirra frá fyrra hjóna- bandi Ólafs með Hallberu Péturs- dóttur frá Grund í Skorradal, f. 20. júlí 1866, d. 30. júlí 1928 voru Pétur múrari, f. 24. mars 1899, d. 2. maí 1944, Stefán bifreiðarstjóri, f. 17. maí 1900, d. 13. mars 1959 og Hans öryrki, f. 25. október smíðameistara. Magnús lauk prófi sem tæknifræðingur frá Køben- havns Bygningsteknikum í mars 1968 og hóf að því loknu störf hjá E.Pihl & Søn í Danmörku. Magnús flutti heim ásamt fjölskyldu sinni í apríl 1970 og hóf störf hjá Ístaki hf. Þar starfaði hann allt til þess að hann hóf störf hjá Hagvirki hf. 1986. Árið 1990 hóf Magnús störf hjá Sorpu bs. Magnús lauk starfs- ferli sínum sem verkefnisstjóri og yfirverkstjórnandi við frágang og innréttingar Náttúrufræðahúss Háskóla Íslands, Öskju. Magnús tók virkan þátt í ýmsum félagsmálum. Á yngri árum var hann virkur þátttakandi í Skáta- hreyfingunni á Íslandi. Fyrir nokkrum árum tók hann upp þráð- inn að nýju og lauk Gillwell- menntun sinni 20. apríl 2010. Magnús var vígður í Oddfellow- stúkuna nr. 11., Þorgeir þann 22. mars 1979 og gegndi þar mörgum embættum. Hann var stofnfélagi í stúkunni nr. 18, Ara fróða árið 1995 þar sem honum voru falin öll æðstu embætti stúkunnar. Útför Magnúsar verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 25. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 15. 1905, d. 22. mars 1933. Magnús kvæntist 21. september 1963 Guðbjörgu I. Steph- ensen. Dætur þeirra eru: 1) Kristbjörg, f. 1966, héraðsdóms- lögmaður, gift Birni H. Halldórssyni verk- fræðingi. Börn þeirra eru Sólveig, f. 1998 og Halldór, f. 2004. 2) Ragnheiður, f. 1970, grunnskóla- kennari. Sonur henn- ar er Magnús, f. 2003. 3) Lilja Þóra, f. 1981, þjónustustjóri. Sam- býlismaður hennar er Arnar Helgason. Magnús ólst upp í foreldra- húsum í Vesturbæ Reykjavíkur, naut náms í Melaskóla og Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar, var 10 sumur í sveit hjá Ragnheiði Ingv- arsdóttur og Jóni Eiríkssyni á Stað í Hrútafirði. Hann lærði húsasmíði hjá Halldóri Guðmundssyni húsa- Kveðja frá skátahópnum Ef við lítum yfir farinn veg og finnum gamla slóð, færast löngu liðnar stundir okkur nær. Því að margar standa vörður þær, sem einhver okkar hlóð, upp um fjöll, þar sem vorvindurinn hlær. Með þessar ljóðlínur Haraldar Ólafssonar í huga fórum við fé- lagarnir Sævar Kristbjörnsson, Hilmar Jónsson og undirritaður, ásamt Magnúsi Stephensen 20. maí sl. upp á Hellisheiði. Okkur langaði, eins og stendur í öðru ljóði Haraldar „að lifa upp aftur liðin sumur og yndisleg vor“. Margt hefur breyst á 55 árum. Þá var enginn vegur, en nú ókum við alla leið inn í Innstadal. Við fundum gamlar slóðir, en sporin okkar sjást ekki lengur. Jötunheimaskálinn er horfinn, en við sáum um hann um árabil. Þaðan eigum við ljúfar minn- ingar. Tilfinningin að vera þarna, koma að hinum skálunum og fara um svæðið, var ólýsanleg.Við vorum eins og unglingar aftur. Þessi dagur var engum öðrum líkur og við tengdum bræðralagsbogann enn fastar og minningar vöknuðu á ný. Eiginkonur okkar, þær Erna Ara- dóttir, Helga Guðjónsdóttir, Sigur- veig Sveinsdóttir og Guðbjörg Stephensen fundu það vel og sam- glöddust okkur. Við höfum alltaf haldið hópinn. Fljótlega runnu þær systur Kristín og Signý Guðmunds- dætur ásamt eiginmönnum sínum, þeim William Þór Dison og Jóni Björgvinssyni inn í þetta litla sam- félag. Við höfum hist heima hjá hvert öðru, ferðast og átt einstakar stundir saman. Núna síðast í helg- arferð, þegar Magnús varð sjötug- ur, sungum skátasöngvana, rifjuð- um upp gamla tíma og skemmtum okkur vel. Við kveðjum, öll sem eitt, kæran skátabróður, sem nú er far- inn heim. Skátahreyfingin átti hug Magn- úsar. Á unglingsárum okkar í Skáta- heimilinu við Snorrabraut kunnum við að meta jákvæðan aga og vand- aða leiðsögn. Þar fékk hver og einn að njóta sín. Magnús var flokksfor- ingi og sveitarforingi í Landnemum, er heiðursfélagi þeirra, var deild- arforingi Birkibeina og sat í stjórn Skátafélags Reykjavíkur. Í kringum hann var alltaf gróskumikið og gef- andi starf. Ekki má gleyma árleg- um, vinsælum Skátaskemmtunum með leikþáttum, söngleikjum, gam- anvísum o.fl. Magnús var frábær leikari og minnisstæð er túlkun hans á Kínverjanum í söngleiknum „Allra þjóða kvikindi“, sem fjallaði um jafnrétti. Magnús var nákvæm- ur, þoldi illa óstundvísi og seina- gang. Kveikjuþráðurinn var stuttur og stundum freistandi að bera eld að, en hann var sáttfús og góður málamiðlari. Magnús lauk Gilwell- skólanum, háskóla skáta, 20. apríl sl. Á námsárum okkar bjuggum við Sigurveig í Gautaborg og Guðbjörg og Magnús í Kaupmannahöfn. Við hittumst sem oftast. Þær samveru- stundir eru eftirminnilegar, oft glatt á hjalla. Sérstaklega minnisstætt er, þegar þau komu í heimsókn með Ernu og Sævari. Þar voru skátar að skemmta sér. Áhugi Magnúsar á málefnum skáta undanfarið sýnir, að þar voru rætur hans. Minningin lifir um stór- brotinn mann, tryggan vin og skemmtilegan félaga. Við vottum fjölskyldunni allri dýpstu samúð okkar. Pálmar Ólason. Það er óraunverulegt að sitja við skriftir á miðju sumri og minnast vinar okkar Magnúsar Ó. Stephen- sen sem lést eftir mjög stutt veik- indi. Minningar flæða. Þegar litið er til baka eru komin 56 ár frá fyrstu kynnum okkar af Magnúsi, sem þá var deildarforingi í skátastarfinu, sem flestir drengir í Reykjavík tóku þátt í. Starfsemin var í gömlum her- bragga á Snorrabraut og var stór- kostlegur samastaður ungs fólks á þeim tíma. Þar átti hann mörg góð ár og gaf mikið af sér til starfsins sem hann fór aldrei langt frá. Stuttu fyrir andlát sitt tók hann Gilwell- stigið og fannst honum þar með að hann hefði tekið lokaprófið. Eftirlifandi eiginkonu sinni Guð- björgu kynntist hann í Skátaheim- ilinu við Snorrabraut. Síðan skiljast leiðir, við förum hver sína leið. Magnús fer í smíðar, lærir húsasmíði. Námið í húsasmíð- inni kveikti áhuga hans til frekara náms og varð úr að þau Guðbjörg drífa sig til Kaupmannahafnar. Magnús hóf nám í tæknifræði sem hann lauk með láði. Eftir námið starfaði hann um tíma hjá E. Pihl & Søn og í beinu framhaldi koma þau hjón heim til Íslands með frumburð sinn, Kristbjörgu. Magnús hóf störf hjá Ístaki sem þá var nýstofnað og er þar með kominn heim með sitt próf, fjölskyldu og nokkra reynslu í mannvirkjagerð. Nokkru eftir komu þeirra hjóna fæddist Ragnheiður og síðan Lilja Þóra. Heimilið var í Þrastarlundi í Garðabæ þar voru dæturnar aldar upp og þar áttum við vinirnir marga fundina um ýmis verkefni sem á dagskrá voru hverju sinni. Leiðir liggja saman á ný er annar undirritaður hóf störf hjá Ístaki og m.a. í Mjólkárvirkjun þar sem fjöl- skyldur okkar voru sumarlangt með okkur. Þar var Magnús staðarstjóri og Guðbjörg sá um skrifstofuna. Þar myndaðist mikil samstaða og vin- átta sem aldrei rofnaði. Allir þurftu að taka á honum stóra sínum. Verk- efnið skyldi klárast á skemmri tíma en áætlað var. Þarna var Magnús í essinu sínu, stýrði málum í gegnum talstöð upp á fjall til okkar er þar voru og talaði íslensku. Unnið flest kvöld og síðan fundur þegar niður kom. Foringinn ætlaði að klára mál- ið, hann fór alltaf alla leið. Árið 1979 gengur Magnús til liðs við Oddfellowregluna og gengur í St.nr.11 Þorgeir. Þar bindast böndin á ný, vináttan endurnýjuð undir merkjum Oddfellow. Þar naut Magnús sín vel í félagsstarfinu og var ötull félagi. Magnús var einn af frumkvöðlum að stofnun St.nr.18 Ara fróða 1995. Hann gegndi öllum æðstu embætt- um í stúkunni og var sæmdur við- urkenningum. Jafnframt tók hann þátt í stofnun Oddfellowbúða nr. 4 Borg 2003 og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum til dauðadags. Magnús var stórvirkur í störfum innan reglunnar og má þar meðal annars nefna Líknardeildina í Kópa- vogi. Magnús Stephensen markaði djúp spor í starfi stúku sinnar, spor sem seint fennir í og við bræðurnir þökkum af alúð. Genginn er góður drengur sem var réttsýnn og þorði að standa á sínu ef svo bar undir. Óhræddur við að marka spor í sam- tímann, maður með skoðanir. Guðbjörgu og fjölskyldu Magnús- ar sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Sveinn Fjeldsted og Steindór Hálfdánarson. „Ég er svo stoltur og glaður,“ sagði hann á sumardaginn fyrsta, og brosti þessu kímna og hlýja brosi sem einkenndi hann alla tíð. Maggi hafði nýverið sannað það betur en margur að eitt sinn skáti er ávallt skáti. Og nú var hann tilbúinn í að vinna fleiri mikilvæg verkefni fyrir skátastarfið. En þá, eins og hendi væri veifað, hvarf hann sýnum. Hann er farinn heim. Hugurinn reikar aftur til þess tíma að allir skátar í Reykjavík hitt- ust á sama stað, í Skátaheimilinu við Snorrabraut. Lágreistu bragga- byggingarnar voru hlýlegar, er inn var komið, og mynduðu sterkan ramma um starfið. Nálægð yngri skáta við hina eldri var gefandi og gaf okkur sögulega sýn. En það var líka fullt svigrými fyrir unga skáta sem vildu fá að ráða og móta. Þann- ig var Maggi. Ákveðnar skoðanir og full eftirfylgja einkenndu hann. Hvort sem var í foringjasamstarfi, í Skátaskemmtuninni eða á stórvið- burðum eins og Landsmóti skáta á Þingvöllum 1962, alltaf stóð hann eins og klettur og alltaf var gott að ræða við hann. Maggi setti sterkan svip á starfið í gamla skátaheimilinu. Fyrir hans tilstuðlan voru skátabúningamál tekin föstum tökum og ekki má gleyma setustofunni fyrir foringja sem hann var einn aðalhvatamað- urinn að. Og sem stjórnarmaður í SFR átti hann sinn þátt í að móta yngri skáta á góðan og uppbyggileg- an hátt. Okkur var mjög brugðið þegar við fréttum af meininu sem hafði búið um sig og ekki síður er fregnin barst um að baráttunni væri lokið. Við kveðjum góðan félaga með söknuði og sendum fjölskyldunni hlýjar samúðarkveðjur. En myndin okkar af Magnúsi Stephensen blikn- ar ekki. Þar er hann í fararbroddi í mikilvægum verkefnum og gefur sig allan í þau. Noregi, 17. júní 2010, Anna Kristjánsdóttir og Arnlaugur Guðmundsson. Skátahreyfingin er um margt sér- stakur félagsskapur, sumum finnst hann jafnvel skrýtinn. Þeir sem hafa starfað lengi sem skátar og þekkst lengi, mynda sérstök bönd sem erf- itt er að útskýra og reyndar ekki nauðsynlegt að útskýra. Sameigin- leg reynsla unglingsára verður ger- semar fullorðinsára. Sama á við um Gilwellþjálfun, hina upprunalegu foringjaþjálfun Baden Powells og vinar hans Francis Gidneys frá 1919 sem enn er í fullu gildi. Þeir sem fara þá vegferð, bindast. Maggi Stef, var vinsæll og góður skáti. Innritaðist og starfaði um árabil sem skáti í Landnemadeild Skátafé- lags Reykjavíkur, var raunar fyrsti og eini heiðursfélagi Landnema. Varð síðar kröftugur deildarforingi Birkibeinadeildar og sat lengi í stjórn hins víðfræga S.F.R. eins og við gamlir Reykjavíkurskátar segj- um. Árið 1960 hóf Maggi Gilwell- þjálfun á Úlfljótsvatni. Henni lauk ekki strax, – nám, stofnun fjölskyldu og starfsferill tók alla athygli. Fyrir tveimur árum lét Maggi hinsvegar þá ósk í ljósi að láta loks gamlan draum rætast, að ljúka Gilwellþjálf- un. Það var mikill og ánægjulegur heiður fyrir okkur félagana að að- stoða gamlan skátaforingja og leið- saga í viðfangsefninu. 20. apríl sl. hittust á leyndum stað nokkrir Gil- wellskátar. Magnús Stephensen var að ljúka Gilwellþjálfun og taka formlegri inngöngu í stærstu skáta- sveit í heimi, 1st Gilwell Scout Gro- up, hina upphaflegu sveit Gilwells- káta frá 1919. Líklega er það einsdæmi í heiminum, að Gilwell- þjálfun sé lokið eftir 50 ár. Okkar maður var greinilega snortinn og stoltur. Það vorum við líka. Dásam- legt var að hitta hann aftur tveimur dögum síðar á Sumardaginn fyrsta, í splunkunýjum skátabúningi, með nýfengin einkenni Gilwellskátans. Hlýtt bros, þétt handtak og faðm- lag. Áætlanir og fyrirheit voru gerð, Maggi vildi verða þátttakandi í verkefnum okkar framundan. Til þess kom ekki. Óvæntur og ill- skeyttur bráðasjúkdómur knúði dyra og endalok óumflýjanleg. Í harm ferðaloka nú blandast þakkir og góðar minningar gamalla skáta- vina. Þær eru dýrmætar og verða ekki teknar frá okkur. Gilwellhringurinn, samtök Gil- wellskáta á Íslandi sendir skátum og ættingjum samúðarkveðjur. Góð- ur skáti er farinn heim. Haukur Haraldsson. Leiðir okkar Magnúsar Stephen- sen lágu fyrst saman, fyrir alvöru, fyrir röskum tveimur árum, þegar hann gekk til liðs við okkur í stjórn Byggingarsamvinnufélags félags eldri borgara í Garðabæ. Það var svo sannarlega fengur í því fyrir okkur, sem stöndum að þessu mikla og vandasama verkefni, að fá Magn- ús til liðs við okkur, og fá að nýta þá miklu reynslu og þekkingu, sem hann bjó yfir. Þau tvö ár, sem Magnús starfaði með okkur í stjórn félagsins voru afskaplega dýrmæt og báru vitni um mikla og góða þekkingu á þeim málum, sem við vorum að glíma við. Það var svo sannarlega ekki komið að tómum kofunum hjá honum, svo og var öll samvinna og samskipti við hann með miklum ágætum. Svo dró ský fyrir sólu. Það er hreint ótrúlegt hvað sjúkdómurinn, sem varð hon- um að aldurtila, lagði þenna góða og vörpulega dreng fljótt að velli. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka fyrir það, að hafa fengið að kynnast og starfa með Magnúsi, svo og ber ég kveðju frá stjórn Byggingarsamvinnufélagsins og bið fjölskyldu Magnúsar Guðs blessunar í nútíð og framtíð. Helgi K. Hjálmsson. Magnús Ó. Stephensen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.