Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 ✝ Björn Elíasson,eða Beyji, eins og hann var gjarnan kallaður var fæddur 6. október 1925 á Jaðri á Dalvík. Hann lést á Dalbæ á Dalvík 14. júní 2010. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Elí- as Halldórsson, f. 1886, d. 1964 og Frið- rika Jónsdóttir, f. 1898, d. 1993. Systk- ini Björns eru: Bára, f. 1921; Bjarki, f. 1923; Þórunn, f. 1931, d. 2007 og Stefán, f. 1934, d.1951. Björn kvæntist Ragnheiði Guð- rúnu Guðmundsdóttur þann 17. júní 1956. Börn þeirra eru: 1) Ás- laug Ásgeirsdóttir, f. 1953 (fóst- urdóttir). 2) Ellen Stefanía, f. 1955 (af fyrra sambandi). 3) Guðmundur, f. 1957, maki Sigurlaug Brynleifs- dóttir. 4) Jón Ingi, f. 1958, maki Að- alheiður Anna Guðmundsdóttir. 5) Bryndís, f. 1960, maki Gestur Matthíasson. 6) Bára, f. 1962, maki Hermann Jón Tóm- asson. 7) Elías, f. 1964, maki Gunn- hildur Ottósdóttir. Aðrir afkomendur Björns eru 41, 22 barnabörn, 8 fóstur- barnabörn og 11 barnabarnabörn. Björn nam vélfræði við Vélskóla Íslands og hafði skipstjórn- arréttindi. Hann fór ungur til sjós og stundaði sjó- mennsku og útgerð mestan hluta ævinnar. Hann tók þátt í ýmsum fé- lagsstörfum, var m.a. virkur félagi í Lionsklúbbi Dalvíkur, lét sig varða slysavarnir sjómanna og starfaði lengi í stjórn slysavarnafélagsins á staðnum. Útför Björns verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag, 25. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30. Elsku pabbi minn. Þá er komið að kveðjustund og margar minningar sem koma upp í hugann. Sú fyrsta t.d. að sem barn vildi ég helst bara vera í fanginu á þér, ég var svo mikil pabbastelpa. Þú varst með mikla skeggrót sem stakk mig þegar þú knúsaðir mig, en það var bara hluti af ánægjunni því ég var hjá þér. Seinna varð ég óróleg þegar veðrin voru vond og þú á sjó, þá beið ég í glugganum heima í Hólavegi eftir að sjá ljósin á Möggunni sigla inn í höfn- ina og koma með þig heilan heim. Og á sumrin var aðalsportið að láta þig reiða mig á hjólinu þínu þegar þú varst að koma heim úr róðri. Það voru svo sannanlega forrétt- indi að fá að fæðast í þennan stóra systkinahóp og alast upp hjá ykkur mömmu hérna á Dalvíkinni, æskan var bara dásamleg. Leikir og útivera, allskonar uppátæki sem okkur systk- inum datt í hug voru bara sjálfsögð, þú allavega sagðir ekki mikið en oft sá maður þig kíma þegar þú hélst að við sæjum ekki til, því ekki var langt í glettnina hjá þér. Oft urðu um- ræðurnar við eldhúsborðið í Hóla- veginum ansi heitar því pólitískar skoðanir þínar og þá aðallega eldri bræðra minna fóru ekki alltaf saman, þá stundum fannst þér nóg um og gekkst frá borðinu inn í stofu að kæla þig niður. Þú varst með mikla fótboltabakt- eríu og reyndar handbolta líka. Það var yndislegt að horfa á fótbolta með þér og fylgjast með þér horfa á fót- bolta því þú lifðir þig svo inn í leikina. Þú fylgdist fram á síðasta dag með öllu sem var að gerast á þeim víg- stöðvum og þá sérstaklega með lið- inu þínu, Liverpool. Gestur minn hafði oft á orði hvað þú værir ótrú- lega vel með á nótum. Ég á bara góðar minningar um þig, pabbi minn, betri pabba er ekki hægt að hugsa sér. Fyrir utan að vera gullfallegur að innan sem utan varstu mjög barngóður sem barna- börnin þín og barnabarnabörn geta vitnað um og skilningsríkur faðir varstu. Fyrir það vil ég þakka þér. Þið mamma voruð yndisleg saman, virkilega ástfangin alla tíð og sér- staklega ánægjulegt að fylgjast með ykkur þegar þið voruð saman á trill- unni, þið bókstaflega blómstruðuð. Okkar síðasta stund saman er mér svo kær, pabbi minn, þig hefur grun- að í hvað stefndi, öll fallegu orðin þín, fallegu kveðjurnar þínar til okkar allra barnanna þinna eru mér og okk- ur öllum ómetanleg. Ég knúsa þig og kyssi, pabbi minn, með þakklæti fyrir allt og allt – þar til við sjáumst síðar. Þín dóttir, Bryndís. Í dag kveð ég föður minn sem lokið hefur langri og farsælli lífsgöngu. Jafnvel minnstu minningabrotin verða stór þegar ég hugsa til pabba. Fjögurra ára minnist ég mannsins sem ég þekkti ekki við heimkomuna eftir nokkurra mánaða vertíð fyrir sunnan. Sjö ára þrammaði ég á eftir honum yfir kaupfélagstúnið þar sem hann var á leið á sjó og reyndi að líkja eftir göngulagi hans. Tólf ára man ég eftir fyrstu sjóferðinni með honum á „Möggunni“ sem honum þótti alltaf svo vænt um. Ég minnist hjólaverk- stæðisins sem hann rak um tíma, saltfiskverkunarinnar, beitningar- skúrsins við höfnina, trillunnar sem hann réri á eftir að hann hætti til sjós og átti þar líklega sínar bestu stundir með mömmu. Minningarnar eru óteljandi og þær eru allar ljúfar. Hjartahlýja, lífsgleði, dugnaður og ósérhlífni, örlæti, hjálpsemi, festa og væntumþykja til þeirra sem næst honum stóðu, einkenndu hann alla tíð og verða aldrei frá honum tekin. Ég var staddur erlendis þegar ég fékk fréttir af andláti pabba. Manns- hugurinn er skrítin skepna og ég man hvað fyrst fór um huga mér við þessar fréttir. „Hann missir af HM“. Við nánari umhugsun hef ég komist að annarri niðurstöðu. Pabbi hafði mikið yndi af fótbolta og sá sterki grunur læðist að mér að kallinn sitji nú í stúkusæti og fylgist með leikj- unum á staðnum. Ég er afar þakk- látur fyrir samfylgdina með pabba og er viss um að við sjáumst síðar. Jón Ingi Björnsson. Hann var einstaklega glæsilegur maður, Björn tengdafaðir minn. Það er sterkt svipmót með þeim systk- inum sem gjarnan einkennir suð- rænni þjóðir enda segir sagan að ein- faldar skýringar megi finna á því. Það var þó ekki einungis hið ytra sem vakti athygli því innrætið var ekki síður vandað. Þegar ég kynntist Birni fyrir 30 árum bar ég svolítið óttablandna virðingu fyrir honum og gerði fram á síðustu stund, nema óttinn var með öllu horfinn – fyrir löngu. Hólavegur 9 var ávallt friðsælt heimili og blíð- lyndi einkenndi framkomu Björns, sérstaklega hin seinni ár. Þó hefur aldeilis ekki alltaf verð lognmolla í Hólaveginum. Á menntaskólaárum eldri bræðranna mættust gjarnan stálin stinn yfir hádegisýsunni þegar þeir, algjörlega á öndverðum meiði, rökræddu um stjórnmál við föður sinn sem lauk gjarnan þannig að Björn átti síðasta orðið, stóð upp, gekk til stofu og skellti á eftir sér. Málin voru síðan tekin upp með lík- um hætti í hádeginu daginn eftir. Með árunum milduðust skoðanir hans í átt að jöfnuði og bræðralagi eins og við flest könnumst við, and- stæðir pólar nálgast þegar við velkj- umst um í lífsins ólgusjó og mann- gildið skipar æ stærri sess. Aldrei heyrði ég Björn halla á nokkurn mann, hann trúði á það góða í okkur öllum og allir fengu frelsi til að sýna hvað í þeim bjó. Börnum sín- um treysti hann til að taka þá stefnu í lífinu sem hverju hentaði án íhlutun- ar og afskiptasemi. Sú trúmennska sem hann sýndi við störf sín og í sam- skiptum við annað fólk skilar sér til kynslóðanna sem á eftir koma. Okk- ur tengdabörnunum tók hann ein- staklega ljúfmannlega og alltaf vor- um við velkomin í Hólaveginn. Ekki áttu barnabörnin síður öruggt skjól í fangi afa og mínir drengir eiga hon- um margt að þakka. Björn vann eins og berserkur alla tíð eins og títt var um jafnaldra hans í þorpi út við sjó. Sjómaður dáða- drengur, undir eigin stjórn og ann- arra og síðar í landi við umsýslu kringum skip og báta. Mörg góð sumur áttu þau hjónin saman á trill- unni Særúnu, þar sem vart mátti á milli sjá hvort var meiri sjómaður, kennarinn eða vélstjórinn. Björn var hagur eins og hann átti kyn til og dundaði við ýmislegt í kjallaranum í Hólaveginum, m.a. rak hann þar reiðhjólaverkstæði meðfram sjó- mennskunni um tíma og seinni árin dútlaði hann við smíðar og útskurð á smáhlutum. Björn var sjálfstæðismaður af gamla skólanum, trúði á mátt ein- staklingsins til framkvæmda en aldr- ei gekk hann á rétt annarra. Hann er af þeirri kynslóð sem nú er óðum að hverfa, kynslóð sem lifði umrót og rótleysi 20. aldarinnar, stríð, krepp- ur, uppgangstíma. Það er mikilvægt að minnast harðrar lífsbaráttu þessa fólks og ekki síst læra af henni þegar við hreiðrum makindalega um okkur í stofunum sem það byggði. Tengdamóður minni Ragnheiði, systkinahópnum, afkomendum og öðrum ættingjum votta ég mína dýpstu samúð. Minningarnar geym- um við öll á besta stað. Gunnhildur Ottósdóttir Ég minnist með söknuði, hlýju og virðingu tengdaföður míns, Björns Elíassonar, sem lést þann 14. júní. Ég minnist fjölmargra góðra stunda sem ég, Bára og börnin okkar áttum með Beyja og Ragnheiði. Ég veit að síðustu æviárin voru ekki alltaf auð- veld því líkamlegt þrek þvarr jafnt og þétt. En hugurinn var skarpur og umkringdur ástvinum, Ragnheiði, Báru systur, börnum, tengdabörnum og barnabörnum urðu þessi ár líka að góðum tíma í lífi Beyja. Ragnheiður og Beyji giftu sig í 17. júní 1956 og stofnuðu heimili að Hólavegi 9. Börnunum fjölgaði jafnt og þétt og þó lífsbaráttan hafi eflaust verið erfið framan af tókst þeim, með þeim dugnaði og vinnusemi sem ein- kenndi þeirra kynslóð, að koma sér upp góðu heimili í Hólaveginum þar sem þau bjuggu stærstan hluta ævi sinnar. Þar voru systkinin alin upp og þangað fór ég að venja komur mínar fyrir rúmum þrjátíu árum síð- an. Mér er í fersku minni hve vel mér var tekið allt frá fyrstu heimsókn, nánast eins og ég væri strax þá orð- inn hluti af fjölskyldunni. Þarna kynntist ég fyrst þeirri jákvæðni og víðsýni sem einkenndi viðhorf Beyja til manna og málefna. Hann trúði á hið góða í manninum og var ávallt tilbúinn til þess að gefa fólki tæki- færi. Börnin uxu úr grasi, stofnuðu fjöl- skyldur og barnabörnunum fjölgaði, Ragnheiði og Beyja til ómældrar gleði. Ég minnist fjölmargra góðra samverustunda í eldhúsinu þar sem dægurmálin voru krufin og það var oft glatt á hjalla í Hólavegi 9 þegar stórfjölskyldan kom þar saman um jól eða af öðru tilefni. Seinni hluta ævinnar gátu þau Beyji og Ragnheiður farið að sinna áhugamálum sínum saman þegar börnin voru vaxin úr grasi, fyrst með trilluútgerð og síðan við að byggja upp sumarhús fjölskyldunnar, Berg, á æskuslóðum Ragnheiðar. Það var yndislegt að fylgjast með því hvað þau voru samlynd hjón sem þarna fengu tækifæri til þess að njóta sam- vista hvort við annað, tækifæri sem ekki gafst í sama mæli í erli dagsins meðan fleiri munna var að metta. Ragnheiður, tengdamóðir mín, hefur misst lífsförunaut og sinn besta vin. En á sorgarstund stendur fjölskyld- an saman og við munum öll leggja okkur fram um að styðja hana á þess- um erfiða tíma. Kæri Beyji. Þú áttir langa og við- burðaríka ævi og nýttir hana vel til góðra verka fyrir fjölskyldu þína og samfélagið allt. Þú skilur eftir góðar minningar og það voru forréttindi að fá að kynnast þér og umgangast þig. Sorgin við fráfall þitt er sannarlega mikil en huggun okkar er sú að þú lést saddur lífdaga og sáttur við guð og menn. Hermann Jón Tómasson. Elsku afi. Nú er komið að kveðjustund. Minningarnar sem ég á um þig eru margar og góðar og þeim mun ég aldrei gleyma. Mér fannst svo gaman að koma til ykkar ömmu í Hólaveginn, þar leið mér alltaf svo vel! Við tvö spiluðum mikið þegar ég kom í heimsókn til ykkar. Ég man vel eftir því þegar þú leyfðir mér að vinna í olsen þegar þú sást að ég var orðin leið þegar illa gekk. Þetta litla góðverk lýsir þér vel, þú varst svo góður afi. Mér fannst svo gaman og gott að dunda mér í húsbóndaherberginu þínu, þar sem þú lagðir þig iðulega í hádeginu. Það var svo mikið af skemmtilegu dóti í skrifborðinu þínu. Mest spennandi þótti mér myndakík- irinn og allar myndirnar sem þið átt- uð af fjölskyldu og vinum. Ég man svo vel eftir því þegar við settumst saman inn í herbergið þitt eftir há- degismatinn. Við vorum búin að borða yfir okkur af grjónagrautnum hennar ömmu með öllum rúsínunum og þú sýndir mér allar myndirnar sem voru í skrifborðinu og sagðir mér sögur af þér á sjónum. Jólaboðin heima hjá ykkur ömmu voru best! Góði maturinn, heita kakó- ið og kleinurnar. Öll fjölskyldan kom- in saman til að borða, hlæja og hafa gaman saman. Elsku afi, ég sakna þín og þú munt ávallt verða í hjarta mínu. Guð geymi þig. Þín, Harpa Hermannsdóttir Ég minnist afa þegar ég hugsa um mitt fyrsta sumar sem vinnandi mað- ur. Ég var 15 ára gamall og fór til Dalvíkur til að vinna á frystihúsinu. Ég dvaldi hálft sumarið hjá afa mín- um og ömmu í Hólavegi 9. Þegar ég kom heim í hádegishlé lagði ég mig oft í húsbóndaherbeginu hans afa þar sem hann hafði oft fengið sér kríu- blund sjálfur. Hádegisblundurinn var bestur þarna því það var einhver ró og sjarmi yfir herbeginu sem afi hafði gefið því. Við barnabörnin hans söfnuðumst iðulega saman þarna inni í jólaboðum og öðrum fjölskyldu- fögnuðum. Okkur þótti gaman að fikta í flotta neftóbakshorninu hans sem hann þó aldrei notaði, krota á litlu minnisblöðin merkt Sparisjóði Svarfdæla eða róta í skrifborðsskúff- unum. Þetta sumar fékk ég tækifæri til að kynnast afa mínum betur en áður. Við fórum í fótbolta út í garði, horfð- um á kvikmyndir, spiluðum Ólsen og ræddum saman um lífið og tilveruna. Nú þegar ég lít til baka er ég þakk- látur fyrir þennan tíma og tækifærið sem ég fékk til að kynnast afa mínum betur. Hann var góður maður og góð fyrirmynd. Hvíl í friði, elsku afi. Tómas Hermannsson. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Guð geymi þig. Þín, Sara, Dagbjört, Sólrún María, Ása María, Gabríela María og Davíð Reginsbörn. Hver vegur að heiman er vegur heim. Hratt snýst hjól dagsins, höllin við lindina og tjaldstæðin hjá fljótinu eru týnd langt að baki, það rökkvar og sigðin er reidd að bleikum stjörnum. Hamraklifin opnast, hrímgrá og köld blasir auðnin við, öx stjarnanna hrynja glóhvít í dautt grjótið og þungfæran sandinn. Löng verður nóttin nöturleg og dimm. En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. (Snorri Hjartarson) Elsku afi minn. Þessi turn býr mér í minni og þar mun ég varðveita minninguna um þig, og samvistirnar við ykkur ömmu. Þær hafa áreiðan- lega þroskað mig og markað. Þegar ég var lítill var svo gott að koma heim í Hólaveginn, mitt annað heimili og Björn Elíasson ✝ Móðir mín, Laufey Sigurðardóttir, áður til heimilis að Espigerði 4, lést á Hrafnistu sunnudaginn 20. júní. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 28. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Lísa Thomsen. ✝ Okkar kæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BRYNTÝR ZOEGA MAGNÚSSON, Dalbraut 16, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 29. júní kl. 13.00. Pálína Ellen Jónsdóttir, Örn Björnsson, Jóhanna Guðrún Zoega Jónsdóttir, Ragnar Ólafsson, Helgi Jón Jónsson, Heiðar Bryntýr Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.