Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 ✝ Sæmundur Haf-steinsson fæddist í Bræðratungu í Grindavík 22. mars 1954. Hann andaðist á Líknardeild Landspít- alans í Kópavogi 19. júní 2010. Foreldrar hans voru Guðbergur Haf- steinn Ólafsson f. 20.9. 1929 og Sóley Ásta Sæmundsdóttir f. 6.4. 1931, d. 26.11. 2006. Systkini Sæ- mundar eru Kristín, f. 23.2. 1951, Albert f. 20.10. 1957, Hafsteinn, f. 12.1. 1959, Þráinn f. 14.6. 1960 og Helga f. 26.7. 1961. Sæmundur kvæntist 22.3. 1979 Auði Bragadóttur f. 18.7. 1958. Börn þeirra eru Bragi Reynir, f. 12.12. 1978 og Ragnheiður Helga f. 14.10. 1986. Unnusti hennar er Haf- steinn Daníel Þorsteinsson f. 23.12. 1981. Fyrir átti Sæmundur Tryggva Má f. 26.4. 1976. Sambýlis- kona Tryggva er Arnbjörg Harð- ardóttir, f. 25.2. 1978. Barnsmóðir Sæmund- ar er Júlía Tryggva- dóttir f. 29. 10. 1951. Sæmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1975. BA- próf í sálfræði, fé- lagsráðgjöf og upp- eldis- og kennslu- fræði frá Háskóla Íslands 1982. M.Sc.- embættispróf í sál- fræði frá Lundarhá- skóla, Svíþjóð 1987. Sæmundur starfaði sem sálfræð- ingur hjá Barnaverndarráði Íslands 1987-1992. Sálfræðingur hjá Kefla- víkurbæ 1992-1994. Félagsmála- stjóri í Bessastaðahreppi 1995- 1998. Sæmundur var forstöðumað- ur Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði frá árinu 2000. Sæmundur verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju, Garðabæ, í dag, 25. júní 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Hún er sterk væntumþykjan og virðingin þegar maður hripar þessar línur sem sannarlega eru skrifaðar fyrr en maður hefði ósk- að. Margs er að minnast og margt sem tína mætti til í tengslum við föður minn en þó vil ég láta hér nægja að ítreka við þig fáein at- riði. Atriði sem ég vona að hafi þó komist vel til skila á meðan þú lifð- ir: Hvíldu með þakklæti. Ég er í senn ákaflega þakklátur og með- vitaður um þá margvíslegu aðstoð sem þú veittir mér og mörgum öðrum í gegnum tíðina. Stuðning- urinn verður hvorki gleymdur né vanmetinn. Hvíldu stoltur, hvort sem litið er til frammistöðu þinnar við uppeldi, rækt við fjölskyldu, vináttu eða ár- angursríks starfsferils. Hvert og eitt þessara sviða ber vott um sér- lega farsælt lífshlaup, jafnvel þó það hafi spannað færri áratugi en vonast var til. Hvíldu áhyggjulaus. Sá jarðvegur sem þú lagðir hefur skilað sér. Við Ragnheiður, Tryggvi og mamma munum standa okkur vel. Við munum sömuleiðis hlúa vel hvert að öðru. Fyrirmynd þín mun reynast þar dýrmætt veganesti. Ég hlakka til að sjá þig aftur, pabbi. Bragi Reynir Sæmundsson. Ég stend andspænis framtíðinni og reyni að gera mér í hugalund tilveruna án föður míns. Það er ótrúlega fjarstæðukennd tilhugs- un. Hjartað er þanið af sorg. Brostnar væntingar, yfirþyrmandi söknuður og sárari eftirsjá en orð geta tjáð er meðal þess sem ég upplifi. En að taka því sem að höndum ber af yfirvegun og rósemd er það sem pabbi gerði sjálfur og það sem ég vonast til að geta leikið eftir. Honum var eðlislægt að koma auga á tækifæri og styrkleika og leita uppi hið jákvæða við allar að- stæður. Tækifærin til að vaxa sem ein- staklingur og gæða líf sitt enn frekari gæðum og fyllingu leynast víða, og þegar gefur á bátinn og manni finnst fótunum kippt undan sér eru ótal leiðir færar í stöðunni. Að finna tækifærin og lærdóminn í hverri nýrri reynslu og taka með- vitaða ákvörðun um að vaxa með mótlætinu þegar það knýr dyra er ein leiðin þegar svona aðstæður skapast og sú leið sem ég hef kosið mér. Þannig langar mig að heiðra pabba minn og þann tíma sem við höfum átt, halda til haga því sem hann hefur kennt mér og lifa því lífi sem búið er að leggja grunn að. Á þann hátt verður pabbi áfram hjá mér í huga og hjarta. Ég verð ævina á enda bæði stolt og þakklát. Pabbi minn var sóma- maður. Ég get aldrei þakkað til fulls þá gæfu að hafa átt hann að, þó þennan tíma. Það eru sann- arlega forréttindi. Hann hefur gætt líf mitt óendanlegum kær- leika og hlýju og umvafið okkur alla tíð. Ég bý að þeirri blessun svo lengi sem ég lifi og á svo mik- inn hafsjó bjartra minninga sem varðveitast og ylja mér á hverjum degi. Hann sáði ríkulega og gaf mikið af sér. Fyrir mér er hann og verður ætíð fyrirmynd og það sem hann sáði mun áfram reynast mér styrk og ljúf leiðsögn í gegnum líf- ið. Trúin á upprisuna og Frelsar- ann er mér í blóð borin, ekki síst frá föður mínum. Sú trú birtir veruleika, lífsstefnu og lífshlut- verk. Að keppa eftir kærleikanum og lifa í þágu þess sem er gott og fagurt í fullu trausti þess að tilvist okkar sé byggð á bjargi og að vel verði séð fyrir okkur. Í því felst von og styrkur sem gefur byr und- ir báða vængi og er öflugt vopn í baráttunni. Ekki síst þegar lífið skorar á mann. Ég lýk kveðju minni með sálmi sem einmitt birtir tilfinningar mín- ar svo skýrt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Með óendanlegu þakklæti og virðingu kveð ég þig að sinni, elsku pabbi minn. Guð varðveiti þig. Þín dóttir, Ragnheiður Helga. Mig langar í örfáum orðum að minnast Sæmundar tengdaföður míns sem í dag er lagður til hinstu hvílu. Sæmi var einstakur maður og það tók mig ekki langan tíma að átta mig á því. Frá og með fyrstu kynnum var mér ljóst að þarna væri á ferð einstaklega greindur maður með aðdáunarverða lífssýn. Ég get sagt með sanni að enginn maður hafi kennt mér jafnmikið um lífið á jafnstuttum tíma og Sæmi gerði. Það var engin leið að nokkur maður gengi tómhentur frá samskiptum við Sæma. Hann hafði unun af því að fræðast sem og fræða aðra og frá hverjum sam- ræðum gekk maður reynslunni ríkari. Ég minnist Sæma með miklu þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa tekið mér opnum örmum frá fyrsta degi og þakklæti fyrir umhyggju hans og hlýju. En ekki síður er ég þakklátur fyrir það að áhrifa hans skuli gæta svo ríkt í þeim sem honum næst stóðu. Þó svo að hann hafi kvatt okkur allt of snemma er það mér mikil huggun að vita og finna hvernig hann lifir áfram í þeim sem eftir hann standa. Þinn tengdasonur, Hafsteinn Daniel. Vitur maður hafði á orði: al- heimurinn er allt sem er, allt sem hefur verið og allt sem mun verða. Líf okkar á hótel jörð er okkur oft svo sjálfsagt að við leiðum ekki hugann að því að breyting geti orðið á okkar högum. Við fjölskyldan höfum verið óþyrmilega minnt á að lífið hér er ekki sjálfsagt. Á skömmum tíma hafa tveir mætir menn fallið frá. Annar saddur lífdaga og sáttur við Guð og menn. Hinn sleginn af í blóma lífsins, ósáttur við að hverfa frá sínu fólki. Hann hlakkaði til að eignast barnabörn og hafði safnað barnabókum til að lesa fyrir þau, en sá með ljáinn mætti og sem fyrr mörgu ósvarað. Hann mætti í Faxatúnið síð- hærður í Álafossúlpu og meira að segja kunningi Megasar. Verra gat það varla verið eða hvað? Þeir hafa báðir staðið sig býsna vel hvor á sínu sviði. Hippinn olli uppnámi og skotið var á fjölskyldufundi til að finna leið til að systir mín áttaði sig, en lengi skal manninn reyna og okkur hefði verið nær að hugsa líkt og okkur var kennt. „Dæmið ekki og þér munið eigi vera dæmd“. Sæ- mundur hefur reynst góður eig- inmaður, einstakur faðir og frábær vinur. Sæmundur var vel að sér og hafði áhuga á öllu og öllum. Við náðum strax saman og vinátta okkar var einlæg. Þegar hann greindist með þann hræðilega sjúkdóm sem leiddi hann til dauða, töluðum við hispurslaust og rædd- um hvaða afleiðingar hann gæti haft. Fyrir síðustu áramót var hann staðráðinn í að sigrast á hon- um og mæta til vinnu eftir jól, en þar kom að hann gerði sér grein fyrir hvert stefndi. Það er svo margs að minnast. Stórfjölskyldan svo samhent með föður okkar sem formann sem ávallt passaði upp á að hefðir væru í heiðri hafðar. Fjölskyldur okkar Auðar svo nánar með bestu frænku, Ragnheiði, sem vin, Bragi þessi einlægi piltur sem við elsk- um og Tryggvi Már svo líkur föður sínum. Sæmundur skilur eftir sig fjársjóð mannkostafólks. Sumarfrí, jól og áramót verða ekki þau sömu og áður. Húmor Sæmundar og stríðni verður sárt saknað. SBK, eða séra Braga kyn- ið verður ekki fyrir áreiti framar af honum, en þessi mikli fræði- maður og hugsuður hafði ákaflega gaman af að sálgreina og gera grín að þessari fjölskyldu sem hann hafði tengst. Allt var það þó gert af góðum hug. Faðir minn og ég vorum nánir og töluðum mikið saman. Á útmán- uðum töluðum við oft um Sæmund. Okkur þótti sárt að jafn góður maður og Sæmundur væri kallaður af sviðinu. „Svo lifum við skarf- arnir“ sagði pabbi. Hann lést reyndar skömmu síðar, en ég er hér enn. Sæmundur var vitur og viðles- inn. Orðstír hans mun lifa. Hann var trúaður maður og fór ekki í manngreinarálit í samskiptum við fólk. Í Hávamálum má finna mikla visku. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Mín kæra systir, við fjölskyldan vottum þér og börnum ykkar okk- ar dýpstu samúð og þótt missir ykkar sé mikill þá ylji ykkur minn- ingin um góðan og traustan dreng. Föður hans og ástvinum vottum við þess sama. Eyjólfur Bragason. Kæri vinur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Auður mín, Tryggvi, Bragi, Ragnheiður og Haffi og fjölskyldan öll. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Ykkar vinkona Ragnhildur Ragnarsdóttir Í dag verður jarðaður kær vinur minn, Sæmundur Hafsteinsson frá Vídalínskirkju í Garðabæ. Mig langar í örfáum orðum að minnast hans. Ég hitti Sæmund fyrst fyrir um 20 árum í afmælisveislu hjá einum af sonum mínum en þá var hann svotil nýkominn frá námi í Svíþjóð, en þar stundaði hann framhaldsnám í sálfræði við há- skólann í Lundi. Konan mín fyrr- verandi og Auður kona Sæmundar eru gamlar skólasystur og vinir og það leið ekki á löngu þar til okkur Sæmundi varð vel til vina. Við bjuggum í sömu raðhúsalengjunni við Bæjargil í nokkur ár og þá hittumst við oft yfir kaffi- eða te- bolla og áttum gott spjall. Í þessi 20 ár sem leiðir okkar Sæma lágu saman kynntist ég ekki bara góðum dreng heldur traust- um vin, en þá er ekki að finna á hverju strái. Hann var góður heimilisfaðir sem vann mikið og þótti ákaflega vænt um fjölskyldu sína, hann hafði mikið að gefa, hörkuklár og fróður um allt mögu- legt. Öðru hverju fórum við með okk- ar spúsum í helgarferðir til meg- inlands Evrópu og áttum frábæra tíma í London, Glasgow, Dublin, Búdapest og fleiri stöðum og að auki frábæra ferð til Portúgals ásamt hluta af okkar börnum og mínum foreldrum. Það var ákaf- lega gaman að ferðast með Sæma, mikið hlegið og slegið á létta strengi. Sæmi hafði alltaf einhvern fróðleik að segja um þá borg, land og þjóð sem heimsótt var en ég hef grun um að hann hafi kynnt sér vel þann stað sem leið okkar lá til. Ég gleymi því aldrei í einni af okkar borgarferðum er við sátum fjögur við sólsetur með rauðvín í glasi á góðum veitingastað, þegar Sæmundur spyr okkur hvort við hefðum gert okkur grein fyrir, að það væri aðeins brot af fólki sem ætti möguleika á því sem við vær- um að gera, að horfa á sólsetrið í fjarlægu landi, södd eftir góða máltíð. Ekki voru síðri veiðiferð- irnar sem við áttum og naut hann þess að komast út fyrir borgar- mörkin og njóta íslenskrar náttúru í góðum félagsskap. Það var mikið gæfuspor fyrir okkur Sæmund að við vinirnir ákváðum að sækja um í Frímúr- araregluna, en við gengum inn í stúkuna Njörð, ég að vísu nokkru áður og hafði því tækifæri á því að mæla með honum í þessa góðu stúku, sem var mér ljúft. Þar kynntumst við einstökum bræðrum og góðu starfi. Sæmundur gegndi trúnaðarstarfi fyrir okkar stúku um tíma og gerði það afskaplega vel, honum og okkur bræðrunum til sóma. Elsku Auður og fjölskylda, ég votta ykkur samúð mína við fráfall góðs drengs og vona að Guð gefi ykkur styrk til að takast á við sorgina. Mér þykir leitt að geta ekki verið með ykkur í dag þegar vinur minn verður borinn til sinnar hinstu hvílu en þið verðið í huga mínum. Ólafur Gísli Baldursson. Fyrsta minning um Sæmund var að sjá hann bundinn við snúrus- taur á túninu við Tjarnargötu. Nú þætti slík ráðstöfun eftirtektarverð en alvanaleg í þá daga. Milli okkar var „kynslóðabil“, hann eins árs, ég þriggja! Það leiddi til þess að við stigum hvor sinn taktinn, ég að yfirgefa HÍ þegar hann var að munstra sig þar. Sama þegar leið beggja lá til Lundar að nema klín- íska sálfræði, hann orðinn fé- lagsráðgjafi. En 1987 hófst gæfusamt sam- starf hjá Barnaverndarráði sem hafði mikil áhrif á báða. Margt kom til; við úr sama uppeldisum- hverfi, með líkan reynsluheim, báð- ir lagt sálfræði fyrir okkur. Kímni okkar féll eins og flís við rass. Þeim sem hjá Barnaverndarráði störfuðu voru ljósir þeir hæfileikar sem Sæmundur bjó yfir. Litrík lífsreynsla hans, ríkuleg greind að dýpt og gerð, skynsemi, áhugi og hæfileiki til að tjá sig, eru dæmi. Af honum lærði ég margt sem komið hefur sér vel æ síðan. Vinnusemi óþrjótandi. Stétt sálfræðinga hefur með honum misst frábæran fagmann sem lætur mikið eftir sig, bækur og námskeið um fjölbreytilegasta efni svo sem streitustjórn, sjálfs- öryggi, samstarf, lífsleikni o.s.frv. Þá var honum treyst af dómstólum til að fjalla um kröfuhörðustu verkefni. Síðast en ekki síst var Sæmundur embættismaður og stjórnandi á barnaverndar- og fé- lagssviði í einu stærsta bæjarfélagi landsins. Áhrifa af starfi hans gætir víða. Margir héldu að við hefðumst við í miklum táradal; barnaverndin gæti varla boðið upp á annað. En stað- reyndin var önnur. Nærvera hans réð því. Dagar breyttust gjarnan í ævintýr þar sem ímyndunaraflið lék lausum hala og skil skáldskap- ar og veruleika gátu þá og þegar máðst út; hvunndagslegir hlutir hafnir í nýja vídd. Vettvangur gjarnan næsta nágrenni og persón- ur. Sundhallarferðir legió þar sem fastastærðirnar Þverfinnur, Skatti, Búbba og Jorge svömluðu um. Heimsóknir á óúreiknanlega staði sem manni er nær að halda að hafi Sæmundur Hafsteinsson ✝ Elsku drengurinn okkar, bróðir og barnabarn, KARL CESAR SALÓMONSSON, Hafnargötu 5, Vogum Vatnsleysuströnd, lést aðfaranótt fimmtudagsins 17. júní. Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, föstudaginn 25. júní kl. 13.00. Salómon Viðar Reynisson, Þóra Lind Karlsdóttir, Svavar Örn Eysteinsson, Steinunn Björnsdóttir, Gylfi Snær Salómonsson, Reynir Viðar Salómonsson, Kristín Valgeirsdóttir, Birna Björg Salómonsdóttir, Karl Cesar Sigmundsson, Reynir Ásgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.