Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
✝ Þórður Svein-björnsson fæddist
í Reykjavík 15. mars
1926. Hann andaðist
á hjúkrunarheimilinu
Boðaþingi 13. júní
2010.
Þórður var sonur
Sveinbjörns Bene-
diktssonar skrif-
stofustjóra f. 6. ágúst
1895, d. 9. maí 1948
og Elínborgar Krist-
ínar Stefánsdóttur
verkakonu f. 17. maí
1904, d. 9. júní 1996.
Systkini Þórðar: Hrafnhildur Ásta
f. 2. ágúst 1927, d. 10. janúar 1993,
Þórarinn f. 21. ágúst 1928, d. 11.
september 2003, Gríma f. 4. janúar
1931, d. 28. nóvember 2005, Vil-
borg f. 25. febrúar 1939 og Stef-
anía Þórdís f. 19. júní 1944, d. 4.
feb. 2007.
Hinn 7. júlí 1951 kvæntist Þórð-
ur, Guðbjörgu Kristjánsdóttur f.
f. 11. nóvember 1997, Íris Lena f.
15. ágúst 2002 og Þrúðmar Leifur
f. 4. janúar 2005.
Þórður ólst upp í Reykavík.
Hann dvaldi flest sumur æskuár-
anna í sveit hjá móðurömmu sinni
að Neðra-Núpi í Miðfirði, sem hann
minntist ætíð með hlýju og þakk-
læti. Þórður var í gagnfræðaskóla í
Reykjavík, í Bændaskólanum á
Hólum 1943-1945. Hann nam blikk-
smíði í Blikksmiðjunni Gretti og
lauk sveinsprófi 1950. Þórður
starfaði við blikksmíði allt til árs-
ins 1960 er fjölskyldan flytur til
Grundarfjarðar. Þar hóf hann störf
til sjós. Seinna fór hann að vinna í
Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar,
fyrst sem vélstjóri og síðar sem
verkstjóri. Þar starfaði hann allt
þar til hann fór á eftirlaun. Þórður
fór á nokkur námskeið varðandi
fiskvinnslu og verstjórn hjá Sjáv-
arafurðadeild SÍS og fleirum. Sum-
arið 2002 fluttu þau hjón til
Reykjavíkur og settust að í
Krummahólum 6.
Útför Þórðar verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag, 25. júní 2010,
og hefst athöfnin klukkan 13.
21. nóvember 1930, d.
30. september 2003
frá Móabúð í Eyr-
arsveit. Þau eiga
fjögur börn: 1) Krist-
ínu V. f. 7. júlí 1952.
2) Björn Karl f. 17.
október 1957. Börn
hans: Heidi f. 16. júlí
1976, Guðbjörg Sara
f. 18. júní 1980, Þórð-
ur Ívar f. 19. apríl
1986, Álfrún Ýr f. 13.
júlí 1993, Vilborg
Una f. 9. mars 1996
og Gunnlaugur Jó-
hann f. 27. mars 1997. Björn á fjög-
ur afabörn. 3) Jón Örn f. 1. ágúst
1964, kvæntur Sigríði Svansdóttur
f. 29. mars 1963. Synir hans: Birgir
Örn f. 5. apríl 1992, Kristófer f. 25.
febrúar 1997, d. 25. febrúar 1997
og Kristján f. 25. febrúar 1997. 4)
Erna Hlín f. 11. júlí 1969, sambýlis-
maður Rúnar Þrúðmarsson f. 13.
maí 1967. Börn þeirra: Ragna Lind
Minningarorð um afa nafna.
Við systurnar viljum með örfáum
orðum kveðja afa nafna.
Hann var föðurafi okkar og fékk
viðnefnið afi nafni því Þórður bróðir
okkar var skírður í höfuðið á hon-
um. Afi kallaði Þórð alltaf nafna.
Afi nafni átti heima í Grundar-
firði með ömmu Guggu og þar áttu
þau fallegt heimili og dásamlegan
garð sem var ævintýri líkastur. Þau
voru mjög samrýmd og gerðu allt
saman.
Það var svo gaman þegar við vor-
um litlar og fengum að fara í
Grundarfjörð. Afi tók alltaf vel á
móti okkur. Hann átti alltaf namm-
iskál sem við fengum að ganga í
þar til allt var búið. Svo fannst okk-
ur hann alltaf tala við okkur eins og
fullorðnar manneskjur og leyfði
okkur að skoða bókasafnið sitt.
Afi nafni bar mikla virðingu fyrir
börnum og var mjög barngóður á
sinn hátt.
Grundarfjörður á pláss í hjarta
okkar eftir þessar samverustundir
við afa nafna og ömmu Guggu.
Þegar öll börnin þeirra afa og
ömmu voru flutt frá Grundarfirði
þá fannst þeim mál að flytja í bæ-
inn og byggðu sér hreiður í
Krummahólum. Þar undu þau sér
vel þar til amma dó en það var afa
æðimikill missir. Afi varð aldrei
samur eftir að amma dó, svo óað-
skiljanleg voru þau.
Þó að söknuðurinn og eftirsjáin
sé mikil fyrir okkur þá erum við
líka glaðar fyrir afa hönd því við
vitum að nú eru þau saman á ný og
geta farið að gróðursetja rósarunna
og dalíur á friðsælum stað þar sem
eilífðin ein ríkir. Þar fær afi líka
nægan tíma til að kíkja á frímerkin
og raða þeim upp eins og hann
gerði svo vel við frímerkjasafnið
sitt. Það verður gaman fyrir ömmu
að fá hann afa nafna til sín. Henni
þótti svo ótrúlega vænt um hann og
honum um hana. Þó að okkur hafi
líka þótt vænt um þau og vildum
vera meira með með þeim og hafa
þau í kringum okkur þá gleðjumst
við yfir sameiningu þeirra.
Við kveðjum afa nafna í dag og
þökkum fyrir samveruna á þessari
jörð.
Farð þú í friði. Takk fyrir allt.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Álfrún Ýr og Vilborg Una.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Það er alltaf erfitt að missa, fyrst
mömmu og nú þig, elsku pabbi
minn. Mér finnst ég hafa verið
mjög heppin með foreldra.
Eftir að mamma fór þá urðu
samskipti okkar enn meiri og ég
átti margar góðar stundir með þér í
Krummahólunum. Í gegnum tíðina
hef ég alltaf getað leitað til þín og
allt stóð sem stafur á bók sem þú
sagðir.
Ótal minningar leita á hugann nú
þegar ég læt hann reika til baka.
Minningar mínar sem smástelpa er
leit mikið upp til þín, það var allt
rétt og heilagt sem þú sagðir og
gerðir. Hugsunin frá því er við
fluttum vestur árið 1960, hvernig
þig fenguð mig til að sætta mig við
það með því að leyfa mér að fara í
bæinn á vorin og haustin. Hvernig
þú tókst á málum þegar ég gerði
vitleysur. Þar stendur upp úr er ég
klessti bílinn þinn og hljóp heim
grátandi og skildi hann eftir á slys-
stað. Þú komst og skipaðir mér að
koma með þér og sækja bílinn því
vaninn væri að skila því sem maður
hefur fengið lánað. Undir stýri var
ég sett aftur og heim skyldi ég
keyra. Takk fyrir það, veit ekki
hvort ég hefði fengið mig undir
stýri aftur ef langur tími hefði liðið.
Þegar ég fór ung að heiman til að
fara í framhaldsskóla þá fylgdir þú
mér og komst mér í öruggar hend-
ur. Þú kenndir mér að meta sögu
þjóðanna og mannkynsins og oft
gátum við setið og rætt hana fram
og til baka. Þegar við systkinin fór-
um með ykkur mömmu til Spánar á
25 ára brúðkaupsafmælinu ykkar
varst þú sem fyrr hafsjór af fróð-
leik, hafðir lesið mikið um þær slóð-
ir er við fórum um. Frá þér erfði ég
söfnunaráráttuna og þar komu ótal
umræðuefni.
Ég var glöð þegar þú og mamma
fluttuð aftur til Reykjavíkur sum-
arið 2002. Sá fyrir mér hvað við
gætum gert saman en svo kvaddi
mamma eftir rúmt ár, en á þeim
tíma komum við nú samt ýmsu í
verk. Ég fór með þér um æsku-
lslóðir þínar í Þingholtunum og
hafði gaman af frásögn þinn. En
fáum árum síðar fór heilsu þinni að
hraka.
Ég veit að þú talaðir þá um að þú
vildir að mamma kæmi og næði í
þig. Nú er það orðið. Ég hefði svo
mikið viljað hafa ykkur bæði leng-
ur. Ég mun ylja mér áfram við góð-
ar minningar og að sýna ykkur all-
an þann sóma sem mér er unnt.
Ykkar dóttir,
Kristín.
Þórður Sveinbjörnsson
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐLAUGUR ÓLAFSSON
bifreiðastjóri,
Melhaga,
Gnúpverjahreppi,
sem lést föstudaginn 18. júní, verður jarðsunginn
frá Skálholtskirkju laugardaginn 26. júní kl. 13.30.
Sigrún Guðlaugsdóttir, Kristmundur Sigurðsson,
Haraldur Guðlaugsson, Þórhalla Sigurgeirsdóttir,
Ólafur Guðlaugsson, Jóhanna Rakel Sveinbjörnsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur bróðir minn og stjúpfaðir,
STEFÁN SIGURÐSSON,
Víkurbraut 30,
Höfn,
andaðist á hjúkrunardeild heilbrigðisstofnunar
Suðausturlands 18. júní. Jarðarför hans fer fram frá
Brunnhólskirkju laugardaginn 26. júní kl. 14.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Bjarni Sigurðsson,
Margrét Ragna Arnardóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, amma, systir og frænka,
ANNA MARÍA PÁLSDÓTTIR,
Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 21. júní.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn
29. júní kl.13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Óskar Vídalín Kristjánsson,
Dýrfinna Vídalín Kristjánsdóttir,
Sandra Vídalín Kristjánsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR
JÓHANNESDÓTTIR BLÖNDAL,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð Garðabæ
föstudaginn 18. júní.
Útförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 28. júní
kl. 13.00.
Jóhannes Blöndal, Maj Britt Pálsdóttir,
Jósep Blöndal, Hedvig Krane,
Gunnar Blöndal, Margrét Magnúsdóttir,
Guðmundur Blöndal,
Guðrún Blöndal, Theodór Sigurðsson,
Lárus L. Blöndal, Soffía Ófeigsdóttir,
Anna Bryndís Blöndal,
Jón Ásgeir Blöndal,
Lárus St. Blöndal Jónasson, Íris Dröfn Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN LÁRUS BÆRINGSSON,
Höfðagötu 18,
Stykkishólmi,
lést fimmtudaginn 17. júní.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju mánudaginn
28. júní kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Bjarndís Þorgrímsdóttir,
Hrafnhildur Jónsdóttir, Emil Þór Guðbjörnsson,
Hanna Jónsdóttir, Hilmar Hallvarðsson,
Bæring Bjarnar Jónsson, Birna Baldursdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir ,
afi og langafi,
KRISTJÁN HILMAR JÓNSSON
Bylgjubyggð 39B,
Ólafsfirði,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 20. júní.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju þriðjudaginn
29. júní kl. 14.00.
Ásta Helgadóttir,
Freygerður Dana Kristjánsdóttir,Ingibergur Þorkelsson
Hilmar Kristjánsson, Birna Óskarsdóttir
Jóna Kristín Kristjánsdóttir, Eiríkur Pálmason
Sigurbjörg Kristjánsdóttir,Árni Jón Straumberg Guðmundarson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra móðir, amma og langamma,
KRISTJANA JÓNASDÓTTIR,
andaðist mánudaginn 21. júní á dvalarheimilinu
Grenilundi á Grenivík.
Útför fer fram í Grenivíkurkirkju sunnudaginn 4. júlí
kl. 14.00.
Vilhelm Arthúrsson, Inga Björk Ingólfsdóttir
Díana Arthúrsdóttir, Jóhannes Siggeirsson
Agnes Arthúrsdóttir, Ólafur Arason
Hildur Aðalsteinsdóttir, Garðar Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög.
Minningargreinar