Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.06.2010, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Elsku afi, á sorg- arstundu sækja margar góðar minn- ingar á huga minn. Ferð okkar í Stykkishólm, þegar ég var 5 ára, er mér ofarlega í huga. Þá voru amma Lea og Ásta Margrét systir mín, búnar að vera hjá Ástu ömmu á Silfurgötunni í nokkra daga. Þú ætlaðir að sækja þær og bauðs mér með þér. Heppin ég. Ég veit ekki hvort ég man þessa ferð, enda orð- in nokkuð mörg ár síðan, eða hvort frásögn þín hefur gert minninguna svona lifandi í huga mér. Það skipt- ir ekki máli. Sagan er góð. Við lögð- um af stað í fína bílnum þínum, en fáir hafa hugsað jafnvel um bílana sína og þú gerðir, afi minn. Hval- fjörðurinn var ansi langur og mig farið að syfja, við stoppuðum því í Botni og teygðum úr okkur. Áður en haldið var af stað, settir þú koddann þinn undir höfuðið á mér og hallaðir sætinu aftur, þannig svaf ég við hlið þér þar til við kom- um að Borgarfjarðarbrúnni, sem þá var í byggingu. Auðvitað stoppuðum við, eins og alltaf, í Kerlingarskarði og þú sagð- ir mér söguna af kerlingunni sem náði ekki heim til sín áður en sólin kom upp. Þú bentir mér á klettinn í fjallinu og ég sá kerlinguna með pokann sinn á bakinu. Ég fór síðast nú í vor á þessar slóðir og sýndi börnunum mínum kerlinguna og sagði þeim söguna sem þú sagðir mér. Margar góðar minningar á ég líka af Tungó, en þangað var alltaf gott að koma. Mér fannst alltaf svo gott að gista hjá ykkur ömmu og stakk jafnan tannburstanum í vas- ann þegar ég vissi að við værum að fara á Tungó, því þá var ég örugg með að fá að gista. Ég á eftir að halda afmælisdag- inn þinn hátíðlegan alla tíð, því 3. desember 2009, á 80 ára afmælinu þínu, fæddist nýjasti fjölskyldumeð- limurinn, Berglind Sylvía. Einn gullmolinn enn í röð afkomenda þinna. Takk fyrir samfylgdina, afi minn. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig að öll þessi ár. Guð geymi þig. Katrín María. Ég hef ávallt borið nafn afa míns Agnars með miklu stolti og er ég eini nafni míns ástkæra afa. Í ófá skipti hef ég kynnt mig fyr- ir ókunnugu fólki sem hefur um leið spurt hvort ég væri ekki skyldur Agnari Möller, oftar en ekki með vísun í störf hans hjá IBM og Ný- herja. Í kjölfarið og án frekari málalenginga hef ég þá fengið að heyra hversu yndislegur og óvið- jafnanlegur maður afi minn hafi verið. Seinast um tveimur mánuð- um áður en afi dó kynnti ég mig fyrir nýjum nágranna mínum sem sagði mér jafnharðan að hún hefði verið svo lánsöm að vinna með afa mínum Agnari, þeim yndislega manni. En þannig var afi Agnar, með sína miklu hjartahlýju og útgeislun sem bræddi alla í kringum sig, bæði samstarfsmenn og sína stóru fjölskyldu. Afi var svo einstaklega stoltur af fjölskyldu sinni og kær- leikur hans til barnabarna og barna-barnabarna sinna mikill. Af hve miklum kærleik og ást hann faðmaði ávallt Tómas og Thelmu Sigríði er mér ógleymanleg og ómetanleg minning. Hið stóra og hlýja faðmlag afa Agnars er eitt af því marga sem ég og öll hans fjölskylda söknum nú Agnar Möller ✝ Agnar Möller varfæddur í Stykk- ishólmi 3. desember 1929. Hann lést á Landspítalanum 12. júní 2010. Útför Agnars fór fram frá Bústaða- kirkju 23. júní 2010. sárt þegar hann er farinn. Ég hef alltaf talið mig mjög heppinn að hafa átt báða mína afa svo lengi að en nú er það sársaukafull og að sama skapi tómleg tilfinning að kveðja á mánaðartímabili tvo svo einstaka menn. En líkt og afi minn Tómas skilur afi Agn- ar eftir sig fyrirmynd fyrir barnabörn sín um óviðjafnanlega mannkosti og hjartahlýju sem lifir áfram og er varðveitt í minningum okkar. Guð blessi þig og varðveiti, elsku afi minn, Agnar Tómas. Elsku hjartans afi minn. Að kveðja þá sem maður elskar er sárt, og að kveðja þig, elsku afi Agnar, og hann afa Tómas á svo skömmum tíma, er réttast sagt óraunverulegt. Ég sé eftir þeim tíma sem ég hefði getað verið meira með þér á meðan ég var hér úti í Danmörku, en hugur minn hefur alltaf verið hjá þér og elsku ömmu, sem hefur verið svo dugleg meðan á veik- indum þínum stóð, að orð fá því ekki lýst. Minningarnar um þig, elsku afi minn, geymi ég sem gull í hjarta mínu og það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til þín og erfitt að takmarka orð sín. Ofarlega er mér í huga þegar við heilsuðumst alltaf með „nebbakossi“ þegar ég var lítil, þegar ég tók alltaf utan um þig og klappaði fast á bakið eins og þér fannst svo gott, eða þegar ég hélt í stóru höndina þína sem þú sagðir alltaf að væri eins og orgelfingur. Yndislegar minningar eru ótelj- andi, ýmist frá Tunguveginum, Stykkishólmi eða Háulindinni þar sem alltaf var tekið á móti mér með þéttingsföstu faðmlagi. Ástin skein úr augum þínum, elsku afi minn, og ég gæfi hvað sem er fyrir að fá að taka utan um þig einu sinni enn og klappa þér á bak- ið, það var okkur einum lagið. Ég er svo þakklát fyrir að hafa hitt þig um daginn áður en ég fór aftur út til Danmerkur, að hafa tekið í höndina þína og heyrt þig segja hversu gott þér þætti að halda utan um mig. Með sama erindi og ég kvaddi hann afa Tómas vil ég kveðja þig, elsku hjartans afi Agnar minn. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín elskandi, Lára Margrét. Við systkinin höfum verið það heppin að hafa notið nærveru og samvista við afa okkar í fjöldamörg ár. Við höfum alltaf elskað að vera í kringum afa enda tók hann ávallt sérstaklega hlýlega á móti okkur og knúsaði í bak og fyrir í hvert skipti sem við hittumst. Hann hafði því- líkan áhuga á öllu sem við vorum að gera og studdi okkur alla leið, enda leið manni eins og heimsins bestu manneskju í kringum hann. Við minnumst þess sérstaklega að þegar Steinn Haukur var lítill þá teygði hann sig alltaf til afa síns þegar hann var nálægur. Afa þótti mjög vænt um þetta og augljóst að gagnkvæmur kærleikur var á milli þeirra félaganna. Þeir voru miklir vinir og sýndu þeir báðir hvor öðr- um mikla vináttu og væntumþykju. Augljóst er öllum að afa þótti mjög vænt um fjölskyldu sína. Hann var alltaf svo góður við ömmu og öll börnin sín og barna- börn. Nærvera hans var svo nota- leg og það var svo gott að vera hjá honum og alltaf var stutt í grínið. Það eru forréttindi að hafa átt svo hlýjan og góðan afa eins og Agnar var sem veitti okkur systk- inunum ómælda hlýju, athygli, ást- úð og faðmlög í gegnum árin. Elsku afi, við munum sakna þín mikið og munum minnast þín sem heimsins besta afa og frábærs vin- ar. Helga Lára, Hildur og Steinn Haukur. Elsku besti Agnar afi. Ég var ekki undir það búin að kveðja þig svo fljótt. Ég hafði ekki náð að heimsækja þig áður en ég fór til útlanda og var þar enn þegar þú kvaddir þennan heim. En ég ímyndaði mér að þú værir rétt hjá mér í háloftunum á leiðinni heim. Þú leist alltaf eftir þínu fólki. Þú veittir okkur systrunum öryggi þegar við vorum í frímínútum í Ís- aksskóla og við vissum að þú varst að fylgjast með okkur – þegar þú hafðir kveikt á skrifborðslampanum þínum í vinnunni þinni í Nýherja, hinum megin við götuna, og beindir honum að glugganum. Í Háulindinni bjugguð þið í næsta húsi við mömmu og pabba. Barnabarnabörnin náðu að kynnast þér og er það þeim dýrmætt. Elsku afi minn. Mér þykir svo leitt að hafa ekki fengið að hafa þig lengur hjá okkur. Þú áttir samt gott líf með ömmu og náðir að eiga 60 ára brúðkaupsafmæli með henni þann 1. maí sl. Við pössum ömmu Lellu. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér, þá heims ég aðstoð missi, en nær sem þú mig hirtir hér, hönd þína eg glaður kyssi. Dauðans stríð af þín heilög hönd hjálpi mér vel að þreyja, meðtak þá, faðir, mína önd, mun ég svo glaður deyja. Minn Jesús, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það og líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson) Hvíl í friði, elsku afi. Lilja Björg. Við Agnar afi vorum miklir vinir. Hann og amma pössuðu mig oft og sóttu mig í leikskólann þegar ég var lítill. Við horfðum saman á Tomma og Jenna og amma gaf okk- ur pönnsur. Afi átti alltaf saltstang- ir og rétti okkur út um gluggann þegar við vorum að leika bak við hús. Hann grínaðist í mér og hafði alltaf mikinn áhuga á því sem ég var að gera. Spurði t.d. alltaf um fótboltann og hvort ég væri búinn að skora mark. Við afi heilsuðumst á sérstakan hátt og þótti svo vænt hvorum um annan. Nú er afi kom- inn til Guðs og líður betur. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt góðan langafa. Leó Kristinn Þórisson Það er sárt að sakna og syrgja, en ljúft að eiga góðar minningar. Agnar bróðir minn er farinn frá okkur. Hugurinn leitar til æskuár- anna í Stykkishólmi. Tíu ára gamall fékk hann litla systur og bróður tveimur árum síðar. Sennilega hef- ur það verið erfitt fyrir strákinn, það hugsa ég núna, við ræddum það aldrei. Agnar hefur reyndar sagt að hann hafi stundum notað barnakerru – með krakka í – sem ágætis leikfang og keyrt eins og hann væri í bílaleik, enda fengum við víst nokkrar byltur! Við dáðum stóra bróður. Lífið í Hólminum var gott og skemmtilegt. Ungur drengur fékk snemma ást á ungri stúlku, sögur segja að þau Lella hafi ákveðið að giftast tólf ára en sennilega hefur það ekki verið, heldur fimmtán ára! Allavega áttu þau 60 ára brúð- kaupsafmæli 1. maí sl. Fyrir mig tíu ára gamla var það mjög spenn- andi að fá mágkonu, að ég tali ekki um þegar ég varð föðursystir, þá fór ég strax í mömmuleik, fannst ég nauðsynleg við uppeldi litlu Mar- grétar. Tók hlutverkið alvarlega, straujaði bleiur og sængurföt og passaði þegar við átti. Lella og Agnar bjuggu fyrst í Hólminum en fluttu síðan til borg- arinnar og hafa búið þar alla tíð síðan. Þau eignuðust fimm börn, öll yndisleg eins og foreldrar þeirra. Agnar var mikil barnagæla, ein- hvern veginn hændust öll börn að honum. Í fjölskylduboðum sat venjulega yngsta barnið í fjölskyld- unni á hnjánum á honum eins og brúða þó svo aðrir mættu ekki snerta það. Hann hafði sterkt að- dráttarafl. Börnin mín og barna- börn hafa öll átt hann sem vin og sakna hans mikið. Sem fullorðið fjölskyldufólk höfðum við systkin mikil samskipti og hittumst oft. Það var svo gott að koma til Agn- ars og Lellu, alltaf tekið vel á móti okkur og fjörugt hjá þeim með börnin fimm. Tíminn, sem stundum er svo afstæður, þýtur áfram og allt í einu erum við orðin harðfullorðin og fjölskyldurnar stækka. Þau eru löngu orðin amma, afi, langafi og langamma og mikið eru þau börn heppin að hafa átt svo hresst og skemmtilegt fólk að. Lella og móðir mín voru vinkon- ur og Lella hefur verið mér sem stóra systir. Mér er efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt Agnar að alla tíð. Hann var góður og heil- steyptur maður, hafði ákveðnar skoðanir en ávallt prúður og ljúfur. Elsku Lella, þér er þakkað fyrir einstaka ást og umhyggju við Agn- ar. Þú, börnin ykkar og þeirra fjöl- skyldur hafa umvafið hann kær- leika þessa erfiðu mánuði. Það hefur verið áhrifamikið að fylgjast með umönnun ykkar og öllum mikil fyrirmynd. Guð veri með ykkur öll- um og styrki á erfiðum tíma í lífi ykkar. Við Kristján og fjölskylda okkar söknum Agnars sárt og kveðjum hann með þakklæti og virðingu. Kristín Möller. Agnar Möller er mér minnis- stæður fyrir virðulega og hlýlega framkomu sína og þá miklu ró og heiðríkju sem hvíldi yfir honum. Raunar vorum við báðir orðnir full- orðnir þegar fundum okkar bar fyrst saman, en það var þegar hann lagði okkur Ingu Rósu til tengda- dóttur. Augljós höfðingi sinnar fjö- skyldu sem ekki yrði gengið framhjá, en með fas friðarhöfðingja sem öllum hlaut að líða vel að vera í návist við, eins og síðar mátti sjá þegar við komum saman með börn- um og barnabörnum á hátíðar- stundum. Þegar undirritaður var að ljúka háskólanámi og árin þar á eftir vann Agnar fyrir helstu viðskipta- og tæknifyrirtæki þjóðarinnar það- an sem mikið afl kom til hagsbóta fyrir land og þjóð. Þótt framlag Agnars þar hafi verið mikið og gott held ég að afrek hans rísi hæst með þeirri fjölskyldu sem hann stofnaði og þeim börnum sem þaðan komu og nú leggja fram krafta sína í þágu lands og þjóðar með árangri sem athygli vekur og aðdáun margra. Að lífsskoðun var Agnar mikill einstaklingshyggjumaður og því er vel viðeigandi að afrek hans hafi fremur verið á sviði einkaframtaks en á opinberum vetvangi, þar sem hann hefði þó átt auðvelt með að láta til sín taka vegna hrífandi framkomu sinnar. Verzlunarskóla- maður var hann svo sem faðir hans og margir afkomendur og taldi sig hafa haft góðan stuðning til starfa af veru sinni þar. Sú fjölskylda sem nú horfir á eft- ir miklum fjölskylduföður hlýtur að eiga erfiða stund og við Inga Rósa sendum eiginkonu, afkomendum, tengdabörnum og vinum okkar innilegustu kveðjur og vottum þeim dýpstu samúð en við vitum að þau munu leita huggunar í þakklæti fyrir að hafa mátt njóta samvista við höfðingja sinn svo lengi og svo náið sem raun varð á. Blessuð sé minning hans. Þorvarður Elíasson. Í dag kveðjum við Agnar, elsku- legan föðurbróður okkar. Það rifj- ast upp góðar minningar í bland við söknuð þess sem liðið er. Agnar var einstaklega hlýr maður, hann hafði notalega nærveru og átti gott með að sjá spaugilegu hliðarnar á tilver- unni. Hugurinn reikar til æskuár- anna þegar við systkinin komum með mömmu og pabba á Tunguveg- inn til Agnars og Lellu. Það voru oftar en ekki fyrir gestir, börn, tengdabörn, barnabörn og vinir. Minnisstæð eru nýársboðin hjá þeim, margt um manninn, mikil gleði á notalegu heimili. Fyrir okk- ur systkinin eru þetta verðmætar æskuminningar. Síðar urðu sam- verustundir færri, eins og gengur, allt of fáar. Minningin lifir um margar góðar stundir með Agnari, einlæga vináttu og hlýhug hans. Fyrir það erum við þakklát. Bless- uð sé minning hans. Anna Gréta, Gunnar Þór, Lilja Margrét og Tómas Njáll. Látinn er í Reykjavík Agnar Möller á 81. aldursári. Undirritaður átti því láni að fagna að hafa Agnar að samstarfsmanni í 27 ár hjá IBM á Íslandi, á meðan það félag starf- aði hérlendis og síðan hjá afkom- anda þess, Nýherja. Hann varð fyrstur manna í sögu fyrirtækjanna til að verða sjötugur í starfi um síð- ustu þúsaldamót. Það voru mikil forréttindi að hafa kynnst og starfað með öðlingnum Agnari Möller. Lipurðin, einlægnin og góðmennskan voru honum í blóð borin. Hann sinnti mikilvægum við- skiptamannatengslum á sínum starfsferli af hógværð en jafnframt af festu. Einhvern veginn var það alltaf Agnar, sem hafði sigur. Ein- hvern veginn hafði Agnar jafnan lag á að ljúka málum þannig að allir væru ánægðir. Agnar var vinsæll maður og glað- vær, kunni vel að meta gáska og grín, góður Hólmari og harður sjálfstæðismaður, sem féll það all- þungt, er aðrir gengu af trúnni. Á góðri stund við þúsaldarstarfslok Agnars var nokkuð minnst á garp- skap kappans og honum líkt í annál við sjálfan James Bond, njósnara hennar hátignar. Hefðu báðir verið garpar miklir og kappsmenn, sem sjaldan æðruðust þótt á móti blési. Öll vandamál hefðu verið leyst, sum með látum, önnur með lagni. Báðir gjarnan umluktir hjörð glæsi- kvenna. Í einu var þó Agnar talinn ólíkur njósnara hátignarinnar. Hann elskaði bara konuna sína. Og svo var með myndtækni nútímans útbúin mynd af Agnari í nýju hlut- verki að handfjatla hólkinn við- skiptamönnum til viðvörunar. Agnar var skapríkur maður. Fáir kunnu þó betur að hemja skap sitt. Stöku sinnum kom þó upp suðan. Þá er honum mislíkaði stefna stétt- arfélags síns í kjaramálum og hann var skikkaður í verkfall fór hann á skrifstofu þess og sagði gervöllu fé- laginu að fara til þess í neðra. Setti menn enda hljóða á þeim kontór því tiltækið þótti fremur óhefðbundið. Í minningunni er Agnar eins og blóm í túni. Alltaf var sólskin í kringum hann. Dag einn vorum við á göngu saman ásamt fleiri sam- starfsmönnum að vorlagi í norskum fjalladal. Túnfíflarnir breiddu úr krónuna og brostu við sólinni. Þá segir Agnar að bragði: „Þetta er eins og í kirkjugarðinum heima, allt fullt af fíflum“. Í þessum anda er gott að minn- ast höfðingjans og Hólmarans Agn- ars Möller. Vegferð hans var farsæl á allan hátt. Vegferðin með Leu á áttunda áratug var eins og gull, sem aldrei fellur á. Hann var mann- kostamaður og drengur góður. Fót- spor hans verður í hjörtum okkar, sem eftir lifa. Það var heiður að fá að kynnast honum og eiga með honum auðnustundir í lífi og starfi. Blessuð sé minning hans. Sverrir Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.