Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 34

Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Ég minnist þín á svo margan hátt, afi minn. Það hefði mig aldrei grunað, elsku afi, að lífið gæti endað svona snögglega. Síðustu daga hafa rifjast upp fyrir mér fjöldamargar góðar minningar um þig. Hugur minn leitar aftur til þeirra fjölmörgu stunda sem við áttum saman, allt frá því að þú leyfðir mér að „vinna“ í Blómahöllinni á öskudag til þeirra síðustu daga sem þú sast í stólnum í Fjallalindinni og drakkst kaffi með mér. Minningarnar sem ég á um þig eru mér dýrmætar, en ekkert er mér meira virði en að vita til þess að þér líður vel og ert friðsæll. Guð geymi þig. Elsa Mjöll Bergsteinsdóttir. Elsku afi, ég gleymi þér aldrei. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín Indíana Líf. Elsku afi, eftir allt sem á undan hefur gengið er bæði sárt og skrýt- ið að skrifa þetta niður. Ekkert okkar hélt að þetta myndi gerast svona hratt og því er ég svo glöð að ég skyldi hafa komið til þín, tal- að við þig og séð með eigin augum hvernig þér leið. Ég er því sátt, núna ertu frjáls. Ég veit að þú trú- ir ekki á annað tilverustig en það geri ég og veit því að þú ert á góð- um stað, eflaust í einhverjum fal- legum garði. Jón Ragnar Björgvinsson ✝ Jón Ragnar Björg-vinsson fæddist 10.8. 1934 á Akureyri. Hann lést 11. júní 2010 á Landspít- alanum í Fossvogi. Útför Jóns var gerð frá Digraneskirkju 23. júní 2010. Ég og systkini mín eigum þér svo mikið að þakka. Þú og amma áttuð alltaf til stuðning, áhuga og þolinmæði sama hvað var og fyrir það er- um við ævinlega þakklát. Þið amma sýnduð okkur hvað það er að vera hjón og samband ykkar var fallegt, ástríkt og sjaldgæft. Þið stóðuð alltaf saman, unnuð að ykkar sigrum saman og gáfuð okkur með því mikilvægt veganesti út í lífið. Afi okkar talaði dönsku, elskaði blóm, spilaði á hljómborð og samdi vísur. Við kveðjum þig með sökn- uði, þökkum þér allt og hlökkum til að sjá þig aftur, hvenær sem það verður. Hvíldu í friði, afi minn. Fyrir hönd okkar systkina, Agnes Björgvinsdóttir. Það er með miklum söknuði sem ég kveð Jón Ragnar móðurbróður minn, eða Ragga frænda eins og við kölluðum hann alltaf. Það er svo undarlegt og sárt að hugsa til þess að hann sem alltaf var til staðar skuli ekki vera það lengur. Við fyrir norðan fylgdumst með fregnum af veikindum og versn- andi heilsu frænda míns síðasta vetur og bárum þá von í brjósti að einhver skýring og lækning fyndist sem gæti hjálpað honum. Því mið- ur varð það ekki raunin. Í augum lítillar Akureyrarstúlku fylgdi því mikil tilhlökkun og upp- hefð að heimsækja Ragga frænda, Elsu og börnin þeirra fjögur í Hrauntungunni. Heimili þeirra ein- kenndist af glæsileik og þar var öllu smekklega fyrir komið. Garð- stofan og sólstofan og fallegi garð- urinn voru til vitnis um það að þar bjó fólk sem hafði áhuga á gróðri og garðrækt. Þar fengum við líka alltaf konunglegar móttökur, besta mat sem hægt var að hugsa sér töfraðan fram af húsmóðurinni, nóg af spennandi dóti og skemmti- legan félagsskap fyrir litla frænku að norðan. Nokkrar ferðir í Drífu, hverf- isbúðina, með Gígí frænku að kaupa kippu af kóki í gleri og nammi fyrir Ragga frænda sem við fengum svo að njóta með eru líka eftirminnilegar. Ljóslifandi í minn- ingunni er einnig Blómahöllin í Hamraborginni og frændi minn bakvið búðarborðið að afgreiða við- skiptavini sína milli þess sem hann vann í reikningunum í litla húsinu bakvið afgreiðsluna. Þegar ég flutti suður til að hefja nám í Háskóla Íslands var gott að vita af Ragga og Elsu í næsta ná- grenni. Þar átti ég alltaf öruggt skjól og ófá voru matarboðin. Allt- af var mér hlýlega tekið og mikið var gott að komast í félagsskapinn þegar litið var upp úr skólabók- unum um helgar. Árin liðu, börnin fluttu að heim- an og fjölskylda Ragga og Elsu stækkaði. Það er glæsilegur hópur afkomenda sem nú syrgir góðan mann. Ég eignaðist líka mína fjölskyldu og sem fyrr var mér og mínum ávallt vel tekið. Fyrir það viljum við þakka. Á nýja heimili Ragga og Elsu í Rjúpnasölum ríkti sami hlý- leiki og í Hrauntungunni og þó svo að hann hefði hvorki Blómahöllina né garð til að rækta þá fann hann nýjar leiðir til að sinna hugsjónum sínum og áhugamáli eins lengi og heilsa hans leyfði. Nú um hvítasunnuna var eldri dóttir okkar fermd og litli dreng- urinn okkar skírður á Akureyri. Það er okkur afar dýrmætt að frændi minn skyldi leggja í sína síðustu ferð til æskustöðvanna og geta verið með okkur á þessum há- tíðisdegi. Elsku hjartans Elsa, Björgvin, Óskar, Laufey og Gígí, tengdabörn og barnabörn. Guð veri með ykkur og styrki á þessum erfiðu tímamótum. Eydís Valgarðsdóttir og fjölskylda. Elsku Raggi afi, við eigum erfitt með að trúa því en núna ertu far- inn frá okkur og kominn í annan heim. Við viljum þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við átt- um saman. Blóm voru þitt líf og yndi. Þegar við vorum lítil var allt- af ævintýri að koma í heimsókn til þín í Blómahöllina, skoða blómin, fá kakó og fá að fara á bak við af- greiðsluborðið. Þekking þín og áhugi á blómum var ótæmandi og bar garður ykkar ömmu í Hraun- tungunni þess merki. Þú varst einnig liðtækur píanisti og þegar ég, Alma, byrjaði að læra á píanó og fékk að æfa mig á gamla píanóið í Hrauntungunni sýndir þú því mikinn áhuga. Þú gafst mér ófáar nótnabækurnar og þér þótti alltaf gaman að hlusta á mig spila. Ég leit upp til þín og dáðist að hæfi- leikum þínum. Eftir að Blómahöllin hafði runnið sitt skeið gastu ekki setið auðum höndum heldur nýttir færni þína og vannst í Gróðrar- stöðinni Storð á sumrin og útbjóst skreytingar fyrir jólin. Þú naust þess að sitja niðri í geymslu, eftir að þið amma voruð flutt í Rjúpna- salina, umvafinn pottum, könglum, gullspreyi og englum og galdraðir fram hinar fegurstu skreytingar sem nú prýða stofur okkar og margra annarra hver jól. Ferð okkar með ykkur ömmu til Kaup- mannahafnar verður lengi í minn- um höfð. Þú þekktir borgina inn og út eftir dvöl þína þar á námsárum þínum og naust þess að leiða okkur um götur hennar og segja okkur frá hinum og þessum staðnum, sér- staklega í grasagarðinum þar sem mátti sjá margar framandi plöntur. Þú kunnir þó skil á þeim flestum og þuldir upp latnesk heiti á þeim eins og nýútskrifaður garðyrkju- fræðingur. Síðastliðinn vetur fór heilsunni að hraka, þar til nú fyrir skömmu að veikindin tóku yfir- höndina hraðar en nokkurn óraði fyrir. Elsku afi, við trúum að nú sért þú heill heilsu og ræktir blómin í garðinum hjá Guði. Við munum hugsa vel um ömmu. Þín, Alma Rut og Bergur Már. Kynni mín af Jóni hófust fyrir 10 árum. Það var haust og verið að ljúka byggingu gróðurhúss við Gróðrarstöðina Storð. Síðasta rúð- an var að fara í gafl hússins þegar bíll rennur upp að og út stígur maður sem kynnir sig, það var Jón. Hann sagðist vera að hætta rekstri Blómahallarinnar í Kópavogi eftir 40 ára rekstur og sagðist viss um að við gætum átt viðskipti saman. Síðan gekk hann aðeins um og sagðist alveg sjá hvernig þetta gæti gengið upp. Þar með fór hann. Tíminn leið fram yfir jól og ég næstum búinn að gleyma heim- sókninni um haustið. Þá hringir síminn, það var Jón. Hann rifjaði upp fund okkar um haustið, sagði að þetta hefðu verið síðustu jólin í Blómahöllinni og bað mig að kíkja við hjá sér. Hann sýndi mér hús- næði blómabúðarinnar sem var á þremur hæðum og spurði hvort ég gæti ekki notað eitthvað af innrétt- ingunum í verslunarrýmið í gróð- urhúsinu. Ég sagði að það gæti verið og urðu þau samskipti ekki lengri að sinni. Þegar leið á vorið hringir Jón og sagðist vilja gera mér gott tilboð „Þú færð allar inn- réttingarnar úr búðinni“, fyrir upp- hæð sem hann nefndi, „en það er einn annmarki á þessu tilboði, ég vil fylgja með.“ Mér þótti fram- ganga hans í þessum viðskiptum mjög skemmtileg og festum við þessa samninga í símanum. Ekki liðu margir dagar þar til innrétt- ingarnar voru komnar á staðinn, ásamt Jóni, sem byrjaði þegar að raða þeim upp. Þannig var Jón. Alltaf búinn að sjá marga leiki fyr- irfram og það sem hann sagði skyldi standa. Þetta var árið 2000. Alla tíð síðan stóð Jón vaktina í versluninni, sem hann útbjó úr inn- réttingum Blómahallarinnar. Þetta reyndust hagstæðustu samningar sem ég hef gert á lífsleiðinni. Hann pantaði inn allar vörur og raðaði þeim upp af mikilli smekkvísi. Hann var eins og farfuglarnir, mætti til leiks á vorin og hætti um haustið. Í gróðrarstöð þarf margar hendur yfir sumartímann og því margir unglingar við störf með þeirri fyrirferð sem þeim aldri fylgir. Í Jónshúsi, eins og við köll- um búðina voru óskrifaðar reglur um umgengni sem allir virtu. Það þurfti engin orð. Jón var mjög listrænn og hafði unun af fallegum hlutum. Í Gróðr- arstöðinni urðu ólíklegustu hlutir að skreytingum og plöntur sem einhverra hluta vegna lentu útaf beinu brautinni fengu þar nýtt hlutverk. Jón tók þjónustuhlutverk sitt við viðskiptavininn mjög alvar- lega og mátti ekki til þess hugsa að nokkur gengi ósáttur frá hans borði. Eftir að Jón fór að finna fyrir þeim veikindum sem hann þurfti að lúta í lægra haldi fyrir, hélt hann lengi í vonina um að verða nógu hress til að geta staðið sína vakt enn eitt sumarið. Pantaði allar vörur inn, fylgdist með því að þær skiluðu sér og leiðbeindi um hvern- ig allt skyldi vera þó hann væri orðinn mjög veikburða. Við eigum honum mikið að þakka. Við Björg sendum Elsu og fjöl- skyldu hans samúðarkveðjur. Vernharður Gunnarsson. Smávinir fagrir, fold- arskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans allstaðar fyllir þarfir manns. (Jónas Hallgrímsson) Ljóðlínur „listaskáldsins góða“ koma mér í hug við ótímabært fráfall nöfnu minnar, sem öðrum fremur var gædd lífsgleði og krafti sem fáum er eiginlegt að miðla. Mín fyrsta minning um hana er frá foreldra- fundi í Hólabrekkuskóla, þar sem hún flutti erindi um börn sem standa höllum fæti í samfélaginu. Það var Guðrúnu eiginlegt að laða fram það besta í fari hvers einstaklings og virkja styrkleika í hverju einu sem hugur stefndi til. Fyrir rúmum ára- tug lágu leiðir okkar saman í verk- efni sem okkur báðum var hugleikið, Guðrún Þórsdóttir ✝ Guðrún Þórs-dóttir fæddist í Reykjavík 28. júní 1951. Hún lést á heim- ili sínu 25. maí 2010. Útför Guðrúnar fór fram frá Bústaða- kirkju 3. júní 2010. að leiða kynslóðir sam- an. Að þessu komu margir aðilar úr ólík- um áttum, unnu verk- efni, gagnkvæmar heimsóknir eldri borg- ara í grunnskóla og börnin komu þangað sem öldrunarþjónusta var veitt. Í upphafi var ákveðið að efna til uppskeruhátíðar, þar sem kynntar voru fjöl- margar hugmyndir og allir starfsstaðir áttu fulltrúa. Mér er minn- isstætt þegar kom að undirbúningi, hve gott skipulag og yfirsýn Guðrún hafði í stóru sem smáu. Við áttum það sameiginlegt að hafa metnað fyr- ir því að eftir þessu yrði tekið og framtíðarsýn um að skólakerfið þró- aðist í þá átt að vera áhugavert, bæði fyrir nemendur og starfsfólk. Þegar hún sagði mér að hún ætlaði að klæð- ast peysufötum, „þá fer ég í upphlut- inn minn“, – við vorum prúðbúnar. Eftir þá miklu reynslu og þekkingu sem varð til á þessum tíma ákváðum við að halda áfram með „Kynslóðir saman í Breiðholti“. Við lögðum upp með vilja og áræði í farteskinu, án þess að hafa nokkuð fyrir okkur ann- að en ætlunarverkið, hún sá um tækni og pappírsvinnu, ég aflaði að- fanga og samstarfsaðila. Það hefur margt áunnist á liðnum árum, und- irritaðir samningar og veittar viður- kenningar. Á sýningu um nýbreytni í skólastarfi, „Skóli á nýrri öld“, var Guðrún í fararbroddi við uppsetn- ingu og móttöku þess efnis sem upp var sett. Hún var kvik á fæti, kát og glöð, ljósa síða hárið, sólgleraugun, og hlátur hennar gleymist engum. Þegar Þjónustumiðstöð Breiðholts tók til starfa lágu leiðir okkar nær, þar sem við störfuðum báðar í hverf- inu. Við áttum marga og góða fundi sem við kölluðum „borðshorn ósk- ast“. Eitt sinn nefndi ég við sam- starfsfélaga okkar að við hefðum hist, „þá stendur eitthvað Guðrúna- legt til“. Síðasta samstarfsverkefnið okkar var „Garðurinn Breiðholt“, samstarf Vinnuskólans og eldri borgara. Við funduðum saman vinnufélagarnir, hún og fulltrúi eldri borgara í mars, eins og ætíð var Guð- rún geislinn og gleðigjafinn, að þetta yrði okkar síðasta samvera eigum við erfitt með að átta okkur á að er stað- reynd. Í mörg ár hittumst við á að- ventunni og áttum okkur gæðastund, þar var hún veitandinn og við skipt- umst á gjöfum. Við náðum ekki sam- an fyrr en eftir áramót og fór ég með myndaalbúmið með sögu fyrstu kyn- slóðar ársins. Við vorum sælar, og hugsuðum til vinkonu okkar Ásdísar Skúladóttur, og ætluðum að hitta hana á vordögum. Seinna er aldrei, vordagarnir urðu öðruvísi. Illvígur sjúkdómur greindist og hörð barátta framundan, af öllum, hún, lögð að velli. Ljósið kom á þessum erfiða tíma er fyrsta barnabarnið fæddist, lítil Guðrún. Guðrún Jónsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Hún er látin, á besta aldri, fyrrver- andi tengdadóttir mín Elínborg Harðardóttir, aðeins 43 ára. Ellý mín háði harða baráttu við illvígan sjúkdóm, sem dró hana til dauða. Hún lést á krabbameins- lækningadeild Landspítalans hinn 31. maí. Ég vil minnast hennar með nokkrum orðum. Ellý kom inn á heimili okkar sem unnusta hans Steina yngsta sonar okkar. Hún var ung og góð stúlka og þótti mér fljótlega mjög vænt um hana, hún varð strax eins og eitt af börnunum mínum. Ellý og Steini voru ung, þau héldu til á heimili okkar í nokkur ár þar til þau gátu keypt sér íbúð og stofnað sitt heimili. Þau giftu sig og eignuðust Söndru mína, sem nú sér á eftir mömmu sinni, en á Elínborg Harðardóttir ✝ Elínborg Harð-ardóttir fæddist 19. janúar 1966 á Ballará í Dalasýslu. Hún lést á Landspít- alanum 31. maí síðast- liðinn. Útför Elínborgar fór fram frá Lang- holtskirkju 8. júní 2010. Jarðsett var í Ólafsvallakirkjugarði á Skeiðum. milli þeirra var ávallt mikill kærleikur og hlýja. Því miður entist sambúð Ellýjar og Steina ekki nema í nokkur ár, þau skildu. Ellý giftist Unnari Garðarssyni og eignuðust þau soninn Garðar. Ellý mín var bæði falleg, góð og skemmtileg stúlka. Áttum við margar og góðar samverustund- ir á liðnum árum. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég og fjölskyldan mín til allra að- standenda og bið góðan guð að styrkja þau og blessa. Ég kveð þig Ellý mín með þakk- læti fyrir vináttu þína til margra ára. Guð blessi minningu Elínborgar Harðardóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Þín Ólöf Sigríður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.