Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.06.2010, Qupperneq 39
Menning 39FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010 Í miðri kreppu virðist sem auð- menn fýsi að festa fjármuni í myndlist og þannig hafa margar myndir selst á milljarða á undanförnum vikum. Fyrir stuttu var þannig málverk eftir franska listamanninn Edouard Ma- net slegið á um fjóra milljarða króna, á uppboði í London. Aldrei hefur jafn há upphæð verið greidd fyrir verk eftir Manet. Gamla metið var þrír milljarðar króna, sett í New York árið 1989. Verkið, sem kallast Manet A La Palette, er sjálfsmynd listamannsins með pípuhatt og með pensil í hönd. Meðal annarra verka sem voru seld á uppboðinu var listaverkið Arbres a Colliuoure eftir franska listamann- inn Andre Derain. Það fór á 16 millj- ónir punda, um þrjá milljarða króna. Verkið Odalisques Jouant Aux Da- mes eftir Henri Matisse var selt á sem samsvarar rúmum tveimur milljörðum króna. Á öðru uppboði í Lundúnum seld- ist verk frá bláa tímabili Picassos á 6,6 milljarða króna. Alls seldust verk fyrir tæpa 44 milljarða á því uppboði og hefur aldrei verið selt fyrir hærri fjárhæð á einu kvöldi í Bretlandi fyrr. Fyrra metið er frá því febrúar er seld voru verk fyrir 28 milljarða króna á uppboði hjá Sotheby’s, að því er segir í frétt BBC. Myndlist selst á milljarða Sölumetin falla og falla á listmarkaði Milljarðamyndin eftir Picasso Stúlknakórinn Graduale Nobili tek- ur þátt í alþjóðlegri kórakeppni í Llangollen í Wales á næstunni og sjónvarpið í Wales hyggst senda tökulið til að fylgjast með kórnum á æfingum í Langholtskirkju. Einnig verður farið að Gullfossi og Geysi og fylgst með einstaka kórfélögum við önnur störf eða áhugamál. Þátturinn er hluti af kynningarefni keppninnar sem er ein hin stærsta í heimi með nokkur þúsund þátttakendur. Gra- duale Nobili tók þátt í keppninni síð- asta sumar og hreppti þá silfur- og bronsverðlaun. Næstkomandi sunnudag verður fjáröflun á vegum kórsins í Lang- holtskirkju sem hefst eftir messu og stendur til kl. 18:00. Þar mun kórinn syngja keppnisverkin og fjöldi ein- söngvara og hljóðfæraleikara úr röð- um kórfélaga kemur fram. Þáttur um Graduale Nobili Morgunblaðið/Jakob Fannar Sjónvarpsstjörnur Stúlknakórinn Graduale Nobili. Árleg Jónsmessuhátíð á Eyr- arbakka verður haldin á morg- un. Fjölmargt verður á dag- skrá, þar á meðal ein- söngstónleikar Karenar Drafnar Hafþórsdóttur í Eyrarbakkakirkju við undir- leik Önnu Rúnar Atladóttur kl. 13:00, erindi Ófeigs Sigurðs- sonar Stutt leit að langa- langafa, Guðmundi bóksala í Laugabúð kl. 15:00, og ávarp Kristjáns Runólfssonar sagnaskálds kl. 22:00, áð- ur en kveikt verður í Jónsmessubrennu. Bakka- bandið spilar síðan undir söng og dansi fram á nótt. Aðgangur að söfnum á Eyrarbakka verður ókeypis þennan dag. Bæjarhátíð Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka Frá Jóns- messuhátíð Sumarhefti tímaritsins Þjóð- mála er komið út. Meðal efnis eru andmæli Davíðs Odds- sonar, fyrrverandi seðla- bankastjóra, við skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis um hrun bankanna. Andmælin fylgdu ekki hinni prentuðu út- gáfu skýrslunnar og birtast því í fyrsta sinn á prenti í þessu hefti Þjóðmála. Björn Jón Bragason fjallar um vinnu- brögð stjórnvalda við yfirtöku ríkisins á Straumi- Burðarási. Birt er áttatíu ára gömul ritgerð eftir Árna Pálsson prófessor um vanda stjórnmála í lýðræðisríkjum og Björn Bjarnason skrifar um verkefni Sjálfstæðisflokksins. Tímarit Sumarhefti Þjóð- mála komið út Forsíða Þjóðmála Næstkomandi þriðjudag, 29. júní, mun Ólöf Arnalds halda tónleika í Norræna húsinu en þetta eru fyrstu tónleikar henn- ar hérlendis í þónokkurn tíma. Tónleikarnir marka útgáfu á fyrstu smáskífuplötu hennar sem inniheldur lagið Close my eyes eftir Arthur Russel. Lagið kemur einnig út á nýrri plötu hennar sem beðið er með eft- irvæntingu og mun koma út á vegum útgáfunnar One Little Indian í september. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 en auk Ólafar flyt- ur tónlistarkonan Adda ljóð sín og lög, Guðrún Eva Mínervudóttir mun lesa upp úr verkum sínum en DJ Klara vermir húsið sem verður opnað kl. 20:00. Tónleikar Ólöf Arnalds í Norræna húsinu Ólöf Arnalds Ásgerður Júlíusdóttir asgerdur@mbl.is Fjórðu tónleikar djasstónleikaraðar Veitingastaðarins Jómfrúarinnar verða haldnir á morgun og að þessu sinni mun danska djasssöngkonan Christine Legardh stíga á svið. Legardh er þekkt í heimalandi sínu og hefur komið víðsvegar í Evr- ópu og Asíu á djasshátíðum og tón- leikum. Hún segist upphaflega hafa starfað sem tónlistarkennari en ákveðið fyrir fjórum árum að snúa sér alfarið að djasssöng. „Ég skrifa einnig djass fyrir börn í Danmörku sem er mjög skemmtilegt þannig ég sinni ýmsum verkefnum er varðar djassinn.“ Legardh kynntist Sigurði Flosa- syni í djasstónlistarbúðum á síðasta ári í Danmörku og þau skiptust á geisladiskum. „Mér líkaði vel það sem ég heyrði á þeim diski en á hon- um var Sigurður að vinna með Krist- jönu Stefánsdóttur djasssöngkonu. Við ákváðum í kjölfarið að reyna að þýða eitthvað af þessum textum en það gekk ekki sem skyldi þannig fljótlega fórum við að semja nýja tón- list saman. Við eigum orðið mjög mikið af efni og þess vegna viljum við taka þetta efni upp og líka prófa að flytja þetta fyrir áheyrendur þannig við erum að reyna að halda eins mik- ið af tónleikum og við getum. Þetta byrjaði allt saman í janúar þegar við fórum að skiptast á laga- bútum og hljóðum á netinu. Síðan hef komið þrisvar til Íslands á und- anförnum tveimur mánuðum til að vinna í tónlistinni ásamt Sigurði og við höfum haldið tónleika hér áður. Núna erum við að prófa okkur áfram með hinum og þessum spilurum fyrir plötuna og stefnum á upptökur síðla sumars eða í haust.“ Legardh segist hlakka til tón- leikanna á Jómfrúnni. „Við ætlum að spila eitthvað af nýju lögunum okkar og við erum alltaf að prófa okkur áfram með eitthvað nýtt þannig þetta verður áhugavert. Við munum auð- vitað líka taka þekkt djassnúmer því þetta eiga auðvitað fyrst og fremst að vera léttir og skemmtilegir úti- tónleikar sem allir geta eiga að geta notið.“ Legardh og Sigurður stefna á að fara á djasshátíðina í Kaupmanna- höfn í næsta mánuði og verða þar með tónleika 11. júlí. „Þar munum við svo sannarlega fá tækifæri til að flytja þessa nýju tónlist okkar og fá að prufa hana betur á áheyrendum.“ Tilraunir með nýjan djass  Danska djasssöngkonan Christine Legardh syngur ný lög í bland við þekkt á Jómfrúnni á laugardag  Vinnur að breiðskífu með Sigurði Flosasyni Morgunblaðið/Árni Sæberg Skemmtilegt Danska djasssöngkonan Christine Legardh hefur víða komið og haldið tónleika. Hún syngur meðal annars lög sem hún vinnur með Sigurði Flosasyni á Jómfrúnni á morgun með íslenskum undirleikurum. Nú stendur í Menningarmiðstöð Fljótsdalshér- aðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum sýning sem fengið hefur yfirskriftina 4konur, en á henni eru sýnd verkefni sem samþætta myndlist og fata- hönnun, en vinnsla verkanna felst í því að mál- arinn litar efni og málar á flíkur eftir skipunum hönnuðarins. Einnig eru sýnd málverk. Sýnendur eru þrjár listakonur frá Egils- stöðum, Kristín Rut Eyjólfsdóttir, sem er sjálf- menntuð myndlistarkona, Halla Ormarsdóttir, klæðskerameistari, og Sjöfn Eggertsdóttir list- málari, og kanadíska listakonan Susan Wood. Þetta er í fyrsta skipti sem Susan Wood sýnir á Íslandi, en auk þess að vera myndlistarkona er hún einnig prófessor við NSCAD háskólann í Halifax. Þær vinna saman í tveimur pörum, annars vegar sem Meistarinn og amateurinn, Susan Wo- od og Kristín Rut, og hinsvegar sem Klæðsker- inn og listmálarinn, Halla og Sjöfn. Susan sýnir blekteikningar sem eru vísindalegar stúdíur á plöntum og lífi og dauða: visnuð blóm, skordýr og dauðir fuglar. Kristín leitar líka í náttúruna og sýnir fossamálverk sem öll eru unnin í akrýl. Halla og Sjöfn sýna sameiginleg verk þar sem Halla skapar kjóla sem eru allt eins skúlptúrar eða sjónrænar tilraunir með ólík efnistök og form, auk þess sem málverk Sjafnar skapa enn ein pörin í tengslum náttúruaflanna. Sýningarstjóri og listrænn stjórnandi er Ing- unn Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar sviðslista á Austurlandi. 4konur í Sláturhúsinu Náttúra Frá sýningu fjögurra kvenna í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.  Verkefni sem samþætta myndlist og fatahönnun Sigurður Flosason saxófónleikari og tónsmiður stendur fyrir tón- leikaröðinni Sumarjazz á Jómfrúnni en þessi tónleikaröð hefur verið starfrækt í 15 ár og hefur Sigurður séð um hana frá upphafi. Margir þekktir og óþekktir djass- istar, bæði íslenskir sem og erlendir hafa látið ljós sitt skína á þessari tónleikaröð. Níu tónleikar eru á dagskránni þetta árið og meðal þeirra sem eiga eftir að koma fram eru Catherine Legardh og félagar sem spila næst- komandi laugardag, Guitar Islancio, Sporðdrekarnir og Kvartett Ragn- heiðar Gröndal. Tónleikarnir eru haldnir alla laug- ardaga í júní og júlí fyrir utan veit- ingastaðinn Jómfrúna á Lækjargötu og standa laugardaga á milli kl. 15 og 17. Sumarjazz á Jómfrúnni í 15 ár Þetta er kannski enn eitt merkið um lok kalda stríðsins, eða kannski fór þetta tímabil bara alveg framhjá Þjóðverjum 42 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.