Morgunblaðið - 25.06.2010, Page 43
leikum og í útvarpsstúdíóum. Svo
haga þeir sér alveg eins og stjörnur
rokkaldarinnar, syngjandi á hnján-
um til skríkjandi stúlkna fremst við
sviðið. Það er eitthvað svo frískandi
að sjá tónlistarflutning þar sem
löngu horfið sakleysi 6. áratugarins
er rifjað upp og söngvararnir eru
ekki hálfberir að líkja eftir sam-
farahreyfingum uppi á sviði. Það
sem kom mér þó mest á óvart var að
The Baseballs, sem hefðu ekki getað
valið sér amerískara nafn, eru Þjóð-
verjar! Þótt þeir syngi og dilli sér al-
veg eins og amerískir smjörlíkistöff-
arar heyrist klingjandi þýska inn á
milli laga á tónleikamyndböndunum.
Hljómsveitin er nefnilega frá Berlín
og hefur notið talsverðra vinsælda í
þýskumælandi löndum, sem og á
Norðurlöndunum. Þetta er kannski
enn eitt merkið um lok kalda stríðs-
ins, eða kannski fór þetta tímabil
bara alveg framhjá Þjóðverjum, en
The Baseballs hrista aldeilis upp í
goðsögninni um þurra og stífa Þjóð-
verja sem þoli ekki ameríska menn-
ingu. Mér er nokk sama hvað veldur
og held bara áfram að dilla mér við
nostalgíuna meðan ég vinn hús-
verkin. Spurning hvort ég geti tekið
kast á mömmu núna fyrir að hafa
ekki skikkað mig til að læra þýsku í
framhaldsskóla?
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
„Sumarið er komið
með kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
„Brjálaður hasar”
-J.I.S. - DV
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
„Ofursvöl Scarface
Norðurlanda“
Ómar Eyþórsson X-ið 977
Grown Ups kl. 5:50 - 8 - 10 LEYFÐ
The A-Team kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 10:20
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 4 - ÍSLENSKT TAL
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10
„Sumarið er komið með
kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
„The A-Team setur sér það einfalda markmið að
skemmta áhorfendum sínum með látum, og henni
tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
„Brjálaður hasar”
-J.I.S. - DV
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BRETLANDI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
H E I M S F R U M S Ý N D
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greið með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
gdu Aukakrónum!
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2010
Benedikt Hermann Her-mannsson, Benni HemmHemm, sendi nýverið frásér fimm laga disk, svo-
kallaða stuttskífu að nafni Retaliate.
Er þetta fyrsta plata Benna þar sem
hann semur og syngur á ensku og
ferst það honum vel úr hendi. Plöt-
una tók hann upp heima hjá sér í
Skotlandi, spilar á flest hljóðfærin
sjálfur en fékk liðsstyrk frá Emily
Scott sem leikur á bassa og Peter
Liddle sem sér um trompet- og
hornleik.
Hljómurinn á skífunni er mjög
flottur og má líklega þakka heima-
upptökunni það. Hann er svolítið
grófur en fullkomlega einlægur og
hæfir hinni angurværu tónlist vel.
Já, ég nefndi angurværa tónlist.
Flestir þekkja tónlist Benna Hemm
Hemm af miklum lúðrablæstri og
stuði. Á Retaliate kveður
við annan tón, þar er gítar,
rólegheit og angurværð,
órafmögnuð stemning.
Þessi nýi stíll fer Benna
mjög vel og svolítið sér-
stök söngrödd hans hentar
tónlistinni vel. Það mætti
lýsa tónlist stuttskífunnar sem svo-
lítið þjóðlagaskotinni og huggulegri
en samt kraftmikilli, öflugri. Ég var
sérstaklega hrifin af fimmta og síð-
asta laginu, „Blood of Lady Law-
son“, krafturinn í laginu
fer stigvaxandi og endar á
miklu flugi, þegar á líður
verður allt hraðara og
kraftmeira og svo er stutt-
skífan bara búin.
„Shipcracks“ er annað
lag í uppáhaldi hjá mér,
fjórða í röðinni og yndislega
heillandi.
Flott er í „Church Loft“ hvernig
hann syngur bæði á tungumálunum
íslensku og ensku, hvoru ofan í ann-
að. Það kemur flott út því maður
skynjar textana í báðum tilfellum og
lagið bíður alveg upp á þetta. Píanó-
ið og brakið í bakgrunninum gera
mikið fyrir það lag.
Fyrstu tvö lögin eru líka falleg en
einhvernveginn fer minna fyrir þeim
á skífunni þó þau séu fyrst.
Á Retaliate er aðeins öðruvísi
Benni Hemm Hemm en flestir
þekkja hann. Þetta er samt Benni
Hemm Hemm, bara nýr og eflaust
betri að sumra mati.
Stórgóður Benni Hemm Hemm sendi nýverið frá sér sína fyrstu plötu á ensku.
Geisladiskur
Benni Hemm Hemm – Retaliate
bbbbn
Kimi Records 2010
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
TÓNLIST
Angurvær, einlægur og öflugur