Morgunblaðið - 25.06.2010, Síða 48
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Hvetja fólk til að taka út
2. Heimsmeistararnir úr leik …
3. Fékk flog í Eymundsson
4. Eftirstöðvar sexfaldast
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á sjálfum 17. júní síðastliðnum
vann Stefán Sölvi Pétursson titilinn
sterkasti maður Íslands. Hann er að-
alsmaður vikunnar og upplýsir okkur
um hvað hann óttast mest og hvað
hann fær ekki staðist. »44
Stefán Sölvi tekur
220 kg í bekknum
Í dag kemur út
platan Here með
tónlistarkonunni
Önnu Halldórs-
dóttur. Platan var
tekin upp á Ís-
landi en unnin í
New York, og
verður Anna með
útgáfutónleika í
stórborginni á tónleikastaðnum Del-
ancey í kvöld. Allur ágóði af sölu plöt-
unnar mun renna til barnaheimilis
fyrir börn frá Himalajafjöllunum.
Heldur útgáfutón-
leika í New York
Danska djasssöngkonan
Christine Legardh er þekkt í
heimalandi sínu og hefur komið
víða fram í Evrópu og Asíu. Hún
syngur á tónleikum á Jómfrúnni á
morgun, bæði eldri
djassnúmer og nýtt
efni, sem hún hefur
verið að vinna með
Sigurði Flosasyni
fyrir plötu sem
þau ætla að
taka upp í
haust. »39
Vinnur að plötu með
Sigurði Flosasyni
Á laugardag Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað að mestu og sums staðar væta
um vestanvert landið, annars bjart að mestu. Hiti 12-18 stig.
Á sunnudag Austlæg átt, 8-13 m/s syðst á landinu og við N-ströndina, annars hægari.
Skýjað og úrkomulítið sunnanlands en annars skýjað með köflum. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum en smá-
skúrir SV-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á S-landi en svalast við ströndina N-til.
VEÐUR
Handknattleikskonan efni-
lega úr Stjörnunni, Þorgerð-
ur Anna Atladóttir, hefur í
höndunum tilboð frá
danska úrvalsdeildarliðinu
FIF í Kaupmannahöfn. Fátt
virðist geta komið í veg fyr-
ir að hún gangi til liðs við
félagið í sumar. „Þetta er
mjög spennandi,“ segir Þor-
gerður Anna sem er 18 ára
og á ekki langt að sækja
handknattleikshæfileik-
ana. »1
Þorgerður Anna
til Danmerkur?
Mikil gleði ríkir í Slóvakíu eftir að
landslið þjóðarinnar sigraði heims-
meistarana frá 2006, Ítali, í loka-
umferð riðlakeppni HM í Suður-Afríku
í gær. Ítalir eru úr leik en Slóvakar
eru hinsvegar komnir í 16-liða úrslitin
í fyrstu tilraun en þeir hafa aldrei áð-
ur leikið í lokakeppni heimsmeist-
aramótsins. »3
Slóvakar skelltu ítölsku
heimsmeisturunum
FH kvað „bikargrýlu“ í kútinn í gær-
kvöldi þegar liðið vann loksins bik-
arsigur í Reykjanesbæ, þó reyndar
væri ekki leikið á Keflavíkurvelli að
þessu sinni. Tvö lið til viðbótar unnu
sigur og fylgja FH í 8-liða úrslitin en
1. deildarlið KA vann Grindavík á úti-
velli eftir vítakeppni og bráðabana,
og Fram lagði Fylki að velli. Dregið er
í 8-liða úrslitin í dag. »4
FH, Fram og KA áfram í
VISA-bikarkeppninni
ÍÞRÓTTIR
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Hingað er búið að keyra heilu bíl-
farmana af blómum, enda þarf ekk-
ert smá til að skreyta heilt bæjar-
félag,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, en í
dag hefst garðyrkju- og blómasýn-
ingin Blóm í bæ í Hveragerði og
stendur fram á sunnudag. Að sögn
Aldísar er hér um að ræða hátíð
græna geirans á Íslandi, enda hátíð-
in unnin í nánu samstarfi við öll fag-
félög þess geira á Íslandi. „Þetta er
sú atvinnugrein sem við sem þjóð
erum hvað stoltust af, en vitum
kannski hvað minnst um af því að
garðyrkjumenn hafa verið heldur
hlédræg stétt. En þetta eru þeir
sem sjá okkur fyrir tómötunum,
gúrkunum, paprikunum, öllum sum-
arblómunum og trjánum. Þeir eru í
lykilaðstöðu til að gera umhverfið
okkar betra, bæði það sem við borð-
um og það sem við horfum á.“
Þetta er annað árið í röð sem há-
tíðin er haldin og að sögn Aldísar
verður hún vonandi haldin árlega.
Segir hún hátíðina hafa tekist með
eindæmum vel í fyrra þegar tæp-
lega 40 þúsund gestir á öllum aldri
hafi sótt hátíðina heim. „Hátíðin
spurðist mjög vel út þannig að við
eigum ekki von á færri gestum í ár,“
segir Aldís.
Skreyttir skór um allan bæ
Að sögn Aldísar taka nær allir
bæjarbúar þátt í blómasýningunni
og skreyta allt sem þeim dettur í
hug með blómum. „Það er ótrúlegt
hvernig garðarnir líta orðið út hjá
fólki,“ segir Aldís. Nefnir hún
sem dæmi að íbúar á elliheimili
bæjarins hafi skreytt skó sína
með blómum og komið þeim
fyrir í tröppum fyrir utan
heimilið, auk þess sem sumir
hafa skreytt bíla sína, trampólín
í görðum og margir húsin sjálf.
Í nokkrum völdum görðum
bæjarins verður á morgun boðið
upp á grænmetissúpu sem gestir
geta gætt sér á meðan þeir skoða
garða gestgjafanna, jafnframt fer í
bænum fram samkeppni um flott-
ustu blómaskreytinguna í skóm og
stígvélum auk þess sem keppt verð-
ur um fallegasta gróðurkerið.
Samkvæmt upplýsingum frá Al-
dísi verður öllum þeim sem keyra
inn í bæinn um helgina afhent dag-
skrá og leiðarvísir, en sýningin fer
fram víðs vegar um bærinn. Sem
dæmi má nefna að útbúið hefur ver-
ið sérstakt sýningarsvæði fyrir
garðplöntur þar sem skoða má sum-
arblóm, berjarunna, matjurtir og
fjölæringa. Allar nánari upplýsingar
um hátíðina og dagskrá hennar má
nálgast á vefnum: www.blomibae.is.
Hveragerðisbær blómstrar
Skipuleggjendur
eiga von á a.m.k.
40.000 gestum
Morgunblaðið/Sigmundur
Blómahaf Undirbúningur fyrir Blóm í bæ var í fullum gangi í gær enda hefst sýningin í dag og stendur fram á
sunnudag. Bæjarstjórinn í Hveragerði segir að um sé að ræða hátíð græna geirans á Íslandi.
„Þetta er ekki bæjarhátíð heldur
sýning með aðkomu bæjarbúa sem
og allra fagfélaga græna geirans á
Íslandi,“ segir Aldís og tekur fram
að enginn áhugamaður um gróð-
ur, garðyrkju og góða skemmt-
un ætti að láta sýninguna
framhjá sér fara.
Að sögn Aldísar er dagskrá
sýningarinnar ekki of þétt
pökkuð til þess að
bæjargestum gefist
tækifæri til að fara um bæinn á
sínum hraða og njóta þess sem
fyrir augu ber. „Þannig er bærinn
allur ein sýning,“ segir Aldís.
Þema sýningarinnar í ár er Börn og
ævintýri. Af því tilefni er m.a. boð-
ið upp á sérstakt ævintýrahús í
miðbænum, litríkan og líflegan
blómaorm sem hlykkjast mun í
gegnum miðbæinn og laukaball
fyrir yngstu kynslóðina á morgun
kl. 14.00.
„Bærinn allur ein sýning“
GARÐYRKJU- OG BLÓMASÝNINGIN BLÓM Í BÆ Í HVERAGERÐI
Aldís
Hafsteinsdóttir