Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 5. október 2011 19 Janne Rättyä Sif Tulinius Sinfónían á Norrænum músíkdögum Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Miðasala í anddyri Hörpu » Sími: 528 5050 » Opið 10–18 virka daga og 12–18 um helgar Mikið er gott að leynast skuli lífsmark með stjórn Ríkisútvarpsins ohf. sem nú heit- ir bara Rúv. Formaður stjórnar- innar, Svanhildur Kaaber, skrifaði grein í Fréttablaðið (28.09.2011) sem meðal annars er svar við gagnrýni á heimasíðu minni og bloggi (www.eidur.is) á því að heiti Ríkisútvarpsins skuli hafa verið gert útlægt úr dagskrá og óæskilegt talið að starfsmenn taki sér það í munn. Það er ekk- ert til í lögum eða starfsreglum Ríkisútvarpsins sem heitir Rúv. Hinsvegar er auðvitað ekkert að því að nota þessa skammstöfun til þæginda til dæmis í erlendum samskiptum og öðru hverju í dag- skrá. En það er engin réttlæting finnanleg fyrir því að hætta algjörlega að tala um fréttastofu Ríkisútvarpsins og tala eingöngu um fréttastofu Rúv og leggja starfsfólki þær lífsreglur að hætta að tala um Ríkisútvarpið. Nafn stofnunarinnar er óað- skiljanlegur hluti af dagskrá og dagskrárstefnu Ríkisútvarps- ins. Ég hélt að slíkt heyrði sam- kvæmt lögum um Ríkisútvarp- ið ohf. (L. nr. 6 1. febrúar 2007) og gildandi reglum ekki undir stjórn Ríkisútvarpsins heldur útvarpsstjóra. Í lögunum segir berum orðum ( 10. gr. 1. máls- grein): „Útvarpsstjóri er æðsti yfirmaður allrar dagskrárgerð- ar“. Þetta er alveg afdráttarlaust orðalag. Formaður stjórnar Ríkisútvarpsins segir: „… það er stjórn RÚV sem ræður úrslitum þegar á hólminn er komið en ekki útvarpsstjórinn einn …“ Þetta er rangt og í andstöðu við lögin um Ríkisútvarp þar sem ótvírætt segir að útvarpsstjóri ráði allri dagskránni einn. Eitt er sérstaklega merkilegt við grein Svanhildar Kaaber. Þegar hún talar um Ríkisútvarpið þá talar hún alltaf um „félagið“. Nú veit ég að formlega er Ríkis- útvarpið opinbert hlutafélag. Það gerir Ríkisútvarpið ekki að „félagi“. Hverskonar rugl er þetta eiginlega? Ríkisútvarpið er stofnun. Rúmlega áttatíu ára gömul stofnun. Stofnun sem er hluti af innviðum íslensks sam- félags. Nóg er nú Rúv-ruglið, en ekki breyta Ríkisútvarpinu líka í „félag“. Margt afburðafólk starfar hjá Ríkisútvarpinu. En of mörgum bögubósum hefur þó að undan- förnu verið hleypt að hljóð- nemunum í Efstaleiti og íslensk tunga hefur þar verið hornreka, en gagnvart henni hefur Ríkisútvarpið ríkar skyldur. Þær felast í: „Að leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóð- arinnar og menningararfleifð“ (töluliður 1. í 3. gr. laganna um Ríkisútvarpið ohf.) Það á ekki að fela bögubósum stjórn þátta sem eru á dagskrá 2-3 klukkustundir á dag fimm daga vikunnar. Það hefur margt verið vel gert í dagskrárgerð í Ríkisútvarpinu bæði hljóðvarpi og sjónvarpi. En þar hefur mönnum líka orðið á í messunni ekki síst þegar kemur að uppsetningu dagskrár, upp- röðun efnis í sjónvarpinu. Þar viðgengst og hefur viðgengist látlaus dýrkun boltaíþrótta af öllu tagi á kostnað almenns efnis. Allt fýkur burt þegar fótbolt- inn á í hlut. Ríkisútvarpið hefur verið – vonandi breytist það – á góðri leið með að breytast í íþróttarás og ameríska vídeóleigu með efni úr neðsta gæðaflokka amerísku myndaverksmiðjunnar. Eins og læknasápur á læknasáp- ur ofan bera vott um. Tvöfaldur skammtur sum kvöldin. Það er fínt að sýna íslenskrar kvikmyndir í Ríkissjónvarpinu. Þær hefðu hinsvegar átt frekar heima í vetrardagskrá en í dag- skránni yfir hásumarið. Þá hefur það verið ríkjandi stefna að sýna amerískar unglingamynd- ir á besta tíma á föstudags- og laugardagskvöldum. Eru ung- lingar að horfa á sjónvarp þá? Ég held ekki. Ekki margir. Hefur Ríkissjónvarpið kannað hvaða aldurshópar eru að horfa á sjón- varp milli klukkan 20.00 og 23.00 á föstudags- og laugardagskvöld- um? Oft er eins og stefnt sé mark- visst að því að sýna helst bita- stætt efni upp úr klukkan 23.00 og um og eftir miðnætti. Það finnst mér vond dagskrárgerð. Þá er nú reyndar margt eldra fólk (tryggustu vinir stofnunarinnar, ekki félagsins) farið að sofa. Sígild tónlist, óperuflutningur og sjónvarp frá tónleikum hér á landi og erlendis hefur verið næstum bannefni í Ríkissjón- varpinu um langt skeið. Þar breytir engu prýðilegur þáttur frá tónleikum Jonasar Kauf- mann sl. miðvikudag. En takk samt. Það er hægt að hafa popp- þætti í hverri viku en klassík- in húkir í horninu. Hversvegna sjáum við svo sjaldan sígildar kvikmyndir? Sígild leikrit? Þar er af nógu að taka. En þetta virðist utan áhugasviðs þeirra sem ráða dagskránni. Svo er að lokum eins spurning til stjórnar Ríkisútvarpsins ohf.: Ef stjórnin er svona valda- mikil hversvegna lætur hún þá viðgangast að Ríkissjónvarpið auglýsi áfengi kvöld eftir kvöld, stundum á tímum, þegar börn eru að horfa? Það breytir engu þótt orðið léttöl birtist í tvær sekúnd- ur með örsmáu letri í skjáhorni. Það vita allir að verið er að aug- lýsa bjór. Það er lögbrot að aug- lýsa áfengi. Hversvegna stöðvar stjórn Ríkisútvarpsins ekki þessi augljósu lögbrot? Gott væri að fá svar við því. En mikið var annars gott að sjá vott um lífsmark frá stjórn þessarar stofnunar sem á að vera okkar mikilvægasta þjón- ustu- og menningarstofnun. Guð láti gott á vita. Ríkisútvarpið er ekki félag Ríkisútvarp Eiður Svanberg Guðnason fyrrverandi ráðherra og sendiherra En það er engin réttlæting finnanleg fyrir því að hætta algjörlega að tala um fréttastofu Ríkisútvarpsins og tala eingöngu um fréttastofu Rúv og leggja starfsfólki þær lífsreglur að hætta að tala um Ríkisútvarpið. AF NETINU Forneskjuviðhorf Kristján Eldjárn og Vigdís Finnboga- dóttir tóku ekki afstöðu til pólitískra mála. Þau settu sig aldrei upp á móti ríkisstjórnum. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson tók við var þessi hefð í gildi. Ólafur færði smátt og smátt út mörkin. En það var svo að hann mátti ekki tjá sig án þess að fá á sig skammir, einatt komu þær fram í leiðurum Morgunblaðsins. Á þeim árum var kalt stríð milli forsetans og forsætis- ráðherrans. Ólafur Ragnar talaði um vonda vegi á Vestfjörðum – það var talið að hann hefði farið út fyrir verksvið sitt og hann fékk bágt fyrir. Hann hefur aldeilis breytt hlutverki forsetans, kannski verður það aldrei samt aftur. Um það kann að verða tekist á í forsetakosningum. En nú hljóma það eins og forneskju- viðhorf þegar Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri ráðherrar segja að forsetinn þurfi alltaf að vera í algjörum sam- hljómi við ríkisstjórnina. Sé dæminu stillt þannig upp er í raun alveg óþarfi að kjósa sérstakan forseta með þátttöku allrar þjóðarinnar – þá getur til dæmis forseti Alþingis alveg eins séð um að vera almennur tækifærisræðumaður og veislustjóri. http://silfuregils.eyjan Egill Helgason Birtum afskriftir Mikil tortryggni ríkir í samfélaginu um starfsemi fjármálastofnana, afskriftir og niðurfærslur lána. Öll þekkjum við hvernig sögur og orðrómar geta verið magnaðri en raunveruleikinn sjálfur. Því tel ég að birta eigi upplýsingar um hverjir hafa fengið afskriftir. Þess vegna hyggst ég endurflytja frumvarp mitt um birtingu afskrifta. blog.eyjan.is Eygló Harðardóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.