Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 42
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR34 sport@frettabladid.is ÓVÆNT ÚRSLIT M ed ia G ro up e hf | H SÍ | 11 0 1 20 11 Fram - Akureyri Framhús | Kl. 18.30 Mið. 5 okt. | N1-deild karla FH - Valur Kaplakrika | Kl. 19.30 Mið. 5 okt. | N1-deild karla Grótta - Haukar Seltjarnarnes | Kl. 19.30 Fim. 6 okt. | N1-deild karla HK-Afturelding Digranes | Kl. 15.45 Sun. 9 okt. | N1-deild karla 25% AF JOHN FRIEDA HÁRVÖRUM Í OKTÓBER WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON verður ekki þjálfari Keflavíkur næsta sumar. Stjórn knattspyrnudeild- ar Keflavíkur ákvað á fundi sínum í gær að fara ekki í viðræður við Willum á nýjan leik heldur róa á önnur mið. Willum Þór sagði við Fréttablaðið í gær að hann væri alls ekki hættur í þjálfun. Hann sagði vel koma til greina að þjálfa í næstefstu deild ef hann fengi spennandi tilboð. Að klára samning Samningar eftirfarandi leikmanna renna bráðlega út. Upplýsingar um stöðu samninga eru fengnar af heimasíðu KSÍ. Birt með fyrirvara þar sem einhverjir leikmenn gætu verið búnir að framlengja við sín félög þó svo að það komi ekki fram á ksi.is. KR Baldur Sigurðsson Gunnar Örn Jónsson Kjartan Henry Finnbogason FH Atli Guðnason Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Bjarki Gunnlaugsson Freyr Bjarnason Guðmundur Sævarsson Ólafur Páll Snorrason Viktor Örn Guðmundsson ÍBV Albert Sævarsson Aaron Spear (var í láni) Denis Sytnik Ian David Jeffs Matt Garner Rasmus Christiansen Stjarnan Atli Jóhannsson Bjarki Páll Eysteinsson Hafsteinn Rúnar Helgason Jesper Jensen Nikolaj Pedersen Ólafur Karl Finsen Tryggvi Sveinn Bjarnason Þorvaldur Árnason (hættur) Valur (er að endursemja við leikm.) Matthías Guðmundsson Jón Vilhelm Ákason Sigurbjörn Hreiðarsson (hættur) Breiðablik Kári Ársælsson Kristinn Steindórsson Þórður Steinar Hreiðarsson Dylan McAllister Fylkir Albert Brynjar Ingason Ásgeir Börkur Ásgeirsson Baldur Bett (líklega hættur) Fjalar Þorgeirsson Gylfi Einarsson (hættur) Kjartan Ágúst Breiðdal Valur Fannar Gíslason Keflavík Adam Larsson Andri Steinn Birgisson Goran Jovanovski Grétar Ólafur Hjartarson Guðjón Árni Antoníusson Guðmundur Steinarsson Magnús Sverrir Þorsteinsson Magnús Þórir Matthíasson Fram Arnar Gunnlaugsson Halldór Hermann Jónsson Hjálmar Þórarinsson Ívar Björnsson Tómas Leifsson Grindavík Haukur Ingi Guðnason Matthías Örn Friðriksson Þór Aleksandar Linta Clark Keltie David Disztl Janez Vrenko Víkingur Halldór Smári Sigurðsson Mark Rutgers ÍA Guðjón Heiðar Sveinsson Guðmundur Böðvar Guðjónsson Heimir Einarsson Hjörtur Júlíus Hjartarson Stefán Þór Þórðarson Selfoss Andri Freyr Björnsson Arilíus Marteinsson Sævar Þór Gíslason (hættur) FÓTBOLTI Þó svo að knattspyrnu- tímabilinu sé formlega lokið er vinnu forráðamanna félaganna hvergi nærri lokið. Nú hefjast þeir handa við að endursemja við lykilmenn og reyna við aðra leik- menn sem eru á lausu. Keflavík og Fylkir eiga þess utan eftir að ráða þjálfara, en bæði lið eiga fjölda leikmanna sem eru að klára samning. Hjá Íslandsmeisturum KR vekur helst athygli að Kjartan Henry Finnbogason og Baldur Sigurðsson séu með lausan samn- ing. Líklegt verður samt að teljast að þeir framlengi við meistarana, enda hafa þeir lýst því yfir að þeir vilji vera þar áfram. Aftur á móti er óvissa með framtíð Gunnars Arnar Jónssonar, sem gæti söðlað um. Margir af eldri leikmönnum FH eru að klára samning og það kemur væntanlega í hlut þjálf- arans, Heimis Guðjónssonar, að ákveða hvaða leikmönnum hann vill halda. Atli Guðnason er einnig að klára sinn samning en líklegt er að hann framlengi við FH. Eyjamenn þurfa að skoða útlend- ingamálin sín eins og svo oft áður. Albert Sævarsson markvörður er þess utan samningslaus og ekki líklegt að hann fái nýjan samning. Stjarnan þarf að skoða nokkra samninga en ólíklegt er að félagið missi einhverja af þeim sem eru að klára samning. Danirnir verða þess utan líklega áfram. Feitasti bitinn á markaðnum er líklega Blikinn Kristinn Stein- dórsson, sem hefur ekki viljað gefa það hreint út að hann ætli sér að endursemja við Breiðablik. Vitað er að stóru félögin – KR og FH – horfa bæði til Kristins enda er hann einn af betri leikmönn- um deildarinnar. Verður áhugavert að sjá hvað Kristinn gerir. Valur var í góðum málum með sín samningamál og aðeins tveir leikmenn eru að klára samn- ing. Matthías Guðmundsson verður vænt- anlega áfram hjá sínu upp- eldisfélagi en heyrst hefur að Jón Vilhelm Ákason ætli heim upp á Akranes. Þó svo að þeir tveir séu með lausan samning er stjórn knattspyrnudeildar að endursemja við alla leikmenn þannig að talsverð vinna er eftir á Hlíðarenda. Keflvíkingar eru í frekar erfiðum málum, án þjálfara og flestir lykilmanna liðs- ins að klára sína samninga. Ekki er ólíklegt að einhver lið muni reyna að kroppa í sterka leikmenn eins og Guðmund Steinarsson og Guðjón Árna Antoníusson. Framarar og Grindvíkingar eru í fínum málum en heyrst hefur að einhver félög ætli sér að bera víurnar í Óskar Péturs- son, markvörð Grindavíkur, sem sló í gegn í sumar og ku vera að hugsa sinn gang. Flestir leikmanna Þórs eru samningsbundnir en þeir sem stóðu sig vel í sumar fá hugs- anlega einhver tilboð og spurning er hvað gerist á Akureyri. Hjá Vík- ingum ber það helst til tíðinda að varn- armaðurinn sterki Mark Rutgers er samningslaus. henry@frettabladid.is FEITIR BITAR Á LAUSU Fjölmargir sterkir knattspyrnumenn verða samningslausir á næstunni og munu líklega hafa úr góðum kostum að velja. Félögin eru í misgóðum málum varð- andi samningsstöðu leikmanna. Keflavík þarf að bretta rækilega upp ermar. ÓVISSA Guðmundur Steinarsson er að klára samning og á eftir að ræða við Keflavík um fram- haldið. Hann verður líklega eftirsóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÁFRAM HJÁ KR? Kjartan Henry er með lausan samning hjá KR en fastlega er búist við því að hann semji upp á nýtt við uppeldisfélag sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FEITASTI BITINN Kristinn Steindórsson ætlar að skoða sín mál og ekki er öruggt að hann leiki með Blikum næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI „Ég veit ekki hvað ég geri en það er alveg ljóst að ég mun ekki vera spilandi þjálfari næsta sumar. Ég mun því annað hvort einbeita mér að þjálfun eða spila næsta sumar,“ sagði Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindavíkur, en hann ætlar að nota vikuna til þess að ákveða framtíð sína. „Ég veit ég gæti átt tvö góð ár eftir á vellinum. Það var of mikið að vera í þjálfun á sama tíma. Ég get ekki gefið 100 prósent á báðum stöðum og það bæði bitn- ar á þjálfuninni og mínum leik. Þetta er ekki auðveld ákvörðun,“ sagði Ólafur Örn. - hbg Ólafur Örn liggur undir feldi: Spilar eða þjálf- ar næsta sumar ÓLAFUR ÖRN Ákveður framtíð sína í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.