Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 5. október 2011 31
arionbanki.is – 444 7000
Morgunfundur Arion banka
Staða og framtíð
íslensks sjávarútvegs
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, setur
fundinn kl. 8.15.
Þróun undirstöðuatvinnugreinar Íslands
og möguleg áhrif nýrrar fiskveiðilöggjafar.
Kristrún Mjöll Frostadóttir, sérfræðingur í greiningardeild
Arion banka.
Frumvarp um stjórn fiskveiða og tillögur að breytingum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður atvinnuvega-
nefndar Alþingis.
Arðurinn til þjóðarinnar.
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda.
Fundarstjóri, Björk Þórarinsdóttir,
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka.
Boðið verður upp á morgunverð kl. 8.00. Fundarlok kl. 9.45.
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is.
Arion banki býður til morgunfundar
fimmtudaginn 6. október í Borgartúni 19.
Eftirlifandi meðlimir Bítlanna
voru á meðal gesta á frumsýn-
ingu nýrrar heimildarmyndar
Martins Scorsese um George
Harrison. Gítarleikarinn lést árið
2001 eftir baráttu við lungna-
krabbamein. „Hann var frábær
maður, virkilega góður náungi,“
sagði Sir Paul McCartney, sem
mætti á sýninguna ásamt Ringo
Starr. Leikstjórinn Scorsese, sem
var í fimm ár að gera myndina,
segist lengi hafa heillast af Harr-
ison. „Mér fannst tónlistin hans
fjalla um hluti sem ég gat tengt
mig við. Ég leitaði huggunar og
vonar í þeim og það var sérstök
lífsreynsla að hlusta á tónlistina
hans.“
Bítlarnir á
frumsýningu
Á FRUMSÝNINGU Paul McCartney, Yoko
Ono, Olivia Harrison (ekkja George Harr-
ison) og Ringo Starr á frumsýningunni.
NORDICPHOTOS/GETTY
Nýjustu plötu Bjarkar, Biophilia, hefur
verið lekið á hinar ýmsu netsíður en platan
kemur út í næstu viku.
Öllum plötum er lekið á netið áður en
þær koma í verslanir en það
óvenjulega við lekann á
Biophilia er að platan er
margmiðlunarverkefni og
því fá þeir sem stela plöt-
unni aðeins hluta af verk-
efninu í tölvuna sína. Með
hverju keyptu eintaki af
plötunni fylgir app-forrit
með ýmsu aukaefni fyrir
hvert lag, svo sem leikjum,
ritgerðum, textum og teikn-
uðum kortum. Lítið er um að
app-forrit leki á netið áður en
þau koma út og því hlýtur upplifun þeirra
sem hafa hlaðið Biophilia ólöglega niður í
tölvuna sína án forritanna að vera töluvert
öðruvísi en Björk hafði í huga
með margmiðlunarútgáfunni.
„Björk setti sjálfa sig í
framlínu tónlistarmanna
með því að segja: „Við gefum
út plötuna og þessi app-for-
rit á sama tíma og þau eru
hluti af sömu sögunni,“
sagði Scott Snibbe, sem
hannaði app-forritin fyrir
Biophilia, í viðtali við
breska blaðið The Guardi-
an. „App-forritin eru tján-
ingarform tónlistarinnar,
sögunnar og hugmyndarinnar.“
Biophilia lekið á ýmsar netsíður
Rokksveitin Guns N´Roses kom
fram á tónlistarhátíðinni Rock
In Rio í Brasilíu fyrir skömmu
og þótti standa sig ágætlega,
þrátt fyrir brösótta byrjun. Sér-
staka athygli vakti þó formið á
söngvaranum Axl Rose því hann
greinilega hefur bætt á sig þó
nokkrum aukakílóum að undan-
förnu. Rose var klæddur í gulan
jakka, með hatt og sólgleraugu
og þótti nánast óþekkjanlegur á
sviðinu. Tónleikunum í Ríó var
sjónvarpað beint á netinu. Hljóm-
sveitin hefur verið á tónleikaferð
um heiminn til að fylgja eftir
plötu sinni Chinese Democracy.
Þybbinn Axl
Rose í Ríó
ÞYBBINN Eins og sjá má hefur Axl Rose
bætt á sig þó nokkrum aukakílóum.
NORDICPHOTOS/GETTY
KOMIN Á NETIÐ Nýjustu plötu Bjarkar, Biophilia, hefur verið
lekið á netið.
Sýningin Trommarinn 2011 verð-
ur haldin í þriðja sinn í sal FÍH,
Rauðagerði 27, á laugardaginn.
Þar verða Tónastöðin og Hljóð-
færahúsið/Tónabúðin með allt
það nýjasta til sýnis í trommum
og slagverki. Íslenskir trommar-
ar sýna handverk sitt og nokkur
vel valin trommusett verða til
sýnis. Þá verður Guðmundi
R. Einarssyni veitt heiðurs-
viðurkenning fyrir ævistarf
sitt. Landsþekktir trommarar
stíga á svið, eða þeir Kristján B.
Heiðars son, Benedikt Brynleifs-
son, Kristinn Snær Agnarsson,
Magnús Trygvason Elíassen og
Ásgeir Óskarsson.
Trommarar
hittast í FÍH
BENEDIKT BRYNLEIFSSON