Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 4
13. október 2011 FIMMTUDAGUR4
ReykjavíkurvegiHoltagörðumBorgartúni Sími 414 9900 www.tekkland.is
15% afsláttur
til N1 korthafa
Mundu að framvísa N1 kortinu til að
tryggja þér afsláttinn.
GENGIÐ 12.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,7927
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,21 115,75
181,47 182,35
158,68 159,56
21,312 21,436
20,413 20,533
17,412 17,514
1,5022 1,5110
181,40 182,48
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ Bændur,
umhverfissinnar og jafnvel
Sameinuðu þjóðirnar gagnrýndu
strax í gær fyrstu drög fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins að nýrri landbúnaðar-
stefnu, sama daginn og þessi
drög voru kynnt.
Evrópusambandið ver árlega
helmingi fjárlaga sinna, eða
jafnvirði nærri 8.500 milljörð-
um króna, í rekstur landbúnaðar-
kerfis sem nú á að endurskoða í
heild sinni fyrir árið 2013.
Dacian Ciolos, sem fer með
landbúnaðar- og byggðaþróun-
armál í framkvæmdastjórninni,
sagði helstu markmið breyting-
anna vera þau, að landbúnaður-
inn í Evrópusambandsríkjunum
yrði bæði umhverfisvænni og
skilvirkari auk þess sem sýna
þyrfti bændum í nýju aðildar-
ríkjunum í Austur- og Mið-Evr-
ópu meiri sanngirni í styrkveit-
ingum og öðrum stuðningi við þá.
Meðal annars verða styrkir til
bænda markvissari, tengdir skil-
yrðum í auknum mæli og beint
frekar til bænda í ríkjum sem til
þessa hafa styrkt bændur minna
en önnur ríki.
Meðal nýjunga í drögunum eru
hugmyndir um að ungir bændur,
sem eru að hefja búskap, fái sér-
staka styrki fyrstu fimm búskap-
arárin. Einnig eru í drögunum
áform um að taka betur tillit til
búskapar á harðbýlum svæðum
með því að veita þeim viðbótar-
styrki umfram þá, sem þeim
standa nú þegar til boða.
Fyrstu viðbrögð evrópskra
bænda voru þau að nýju tillög-
urnar legðu á þá meiri kvað-
ir um óþarfa skriffinnsku, auk
þess sem þeir eru óánægðir með
að draga eigi úr framleiðslu þrátt
fyrir að heimseftirspurn eftir
landbúnaðarvörum vaxi stöðugt.
Umhverfisverndarsinnar gagn-
rýna hins vegar drögin á þeim
forsendum, að þau gangi ekki
nógu langt í þá áttina að vernda
náttúruna og bregðast við lofts-
lagsbreytingum.
Þá segir matvælasérfræðingur
frá Sameinuðu þjóðunum að þessi
nýja landbúnaðarstefna ESB muni
áfram skekkja heimsmarkaðinn
vegna þess að styrkir til bænda
geri þeim kleift að selja afurðir
sínar undir kostnaðarverði, sem
bitnar á bændum í fátækari ríkj-
um jarðar. gudsteinn@frettabladid.is
Landbúnaðarstefna
ESB endurskoðuð
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær fyrstu drög að endurskoð-
un landbúnaðarstefnunnar. Áhersla meðal annars á stuðning við unga bændur
og landbúnað á harðbýlum svæðum. Breytingarnar eiga að taka gildi eftir 2013.
DACIAN CIOLOS Landbúnaðar- og byggðaþróunarstjóri Evrópusambandsins kynnti
fyrstu drögin að nýrri landbúnaðarstefnu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Fimmtugur karlmað-
ur hefur verið dæmdur í þriggja
mánaða, skilorðsbundið fangelsi
fyrir vörslu á barnaníðsmyndum.
Maðurinn var með í tölvu sinni
174 ljósmyndir sem sýna börn á
kynferðislegan eða klámfenginn
hátt og lögregla hafði fundið.
Maðurinn játaði brot sitt ský-
laust fyrir dóminum. Við ákvörð-
un refsingar leit dómurinn til
játningar mannsins. Þar sem
hann hafði ekki áður gerst brot-
legur þótti rétt að skilorðsbinda
refsinguna.
- jss
Þrír mánuðir á skilorði:
Með 174 barna-
níðsmyndir
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, flutti
ræðu á ráðstefnu um framtíð
norðurslóða í
Brussel í gær.
Forystumenn
og fulltrúar
aðildarríkja
Norðurskauts-
ráðsins, sér-
fræðingar og
vísindamenn
sækja ráðstefn-
una, samkvæmt
fréttatilkynn-
ingu frá for-
setaembættinu.
Forsetinn rakti mikilvægi
norðurslóða og áherslur Íslands.
Hann lagði sérstaka áherslu á
varðveislu fiskistofna og nýt-
ingu hreinnar orku. Þá lagði
hann áherslu á ábyrgð allra ríkja
gagnvart framtíð norðurslóða og
mikilvægi þess að virða réttindi
samfélaganna sem hafa búið á
norðurslóðum um árþúsundir.
- þeb
Forseti Íslands í Brussel:
Hélt ræðu um
norðurslóðir
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
SAMGÖNGUMÁL Herjólfur heldur
áfram að sigla til Þorlákshafnar
að minnsta kosti fram í næstu
viku. Tekin verður ákvörðun
um breytingar á siglingaleiðinni
næsta mánudag. Þetta kemur
fram á vef Eyjafrétta.
Skipið hefur siglt til Þorláks-
hafnar frá því það kom úr slipp í
byrjun mánaðarins. Dýpi Land-
eyjahafnar er ekki nægilega
mikið fyrir skipið sem stendur.
Dæluskipið Skandia hefur verið
við Landeyjahöfn síðustu daga og
er unnið að því að opna höfnina
fyrir Herjólfi sem fyrst. - þeb
Ákvörðun tekin í næstu viku:
Áfram siglt til
Þorlákshafnar
HERJÓLFUR Skipið siglir til Þorlákshafnar
þessa dagana, en unnið er að dýpkun
Landeyjahafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
29°
17°
13°
11°
16°
18°
11°
11°
25°
17°
28°
22°
29°
9°
20°
27°
8°Á MORGUN
8-13 m/s S- og V-til
annars hægari.
LAUGARDAGUR
5-10 m/s.
10
11
11
12
11
10
10
12
12
4
9
9
8
15
10
8
7
10
7
13
10
12
5
66
8
7
5 4
5
6
7
STREKKINGUR
OG SKÚRIR næstu
daga um mest
allt sunnan- og
vestanvert landið.
Úrkomulítið og
hægari vindur
norðan til en á
sunnudag snýst í
norðaustanátt með
slyddu eða snjó-
komu norðvestan-
lands en styttir upp
syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FERÐAÞJÓNUSTA Gangi vel að markaðssetja
Hörpu sem ráðstefnuhöll gætu tekjur þjóðar-
búsins vegna fjölgunar ferðamanna sem rekja
má til tilkomu Hörpu orðið allt að þrír milljarð-
ar króna á ári.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræði-
stofnunar Háskóla Íslands sem hefur gefið út
skýrslu um áhrif Hörpu á komur ferðamanna til
Íslands. Búist er við því að tekjur vegna aukins
fjölda ferðamanna verði á bilinu 1 til 1,4 millj-
arðar á ári næstu árin.
Í skýrslunni er sérstaklega horft til fjölg-
unar erlendra ferðamanna sem sækja hingað
ráðstefnur. Fram kemur að Harpa er fyrsta
byggingin á Íslandi sem er sérhæfð fyrir ráð-
stefnuhald. Hingað til hafi ráðstefnur yfirleitt
verið haldnar á hótelum eða jafnvel í íþrótta-
húsum. Þá getur Harpa tekið á móti 1.000 til
1.500 manna ráðstefnum nokkuð auðveldlega en
ekki hefur verið til staðar húsnæði sem ræður
við svo stórar ráðstefnur hér á landi. Því hafi
umhverfi til ráðstefnuhalds batnað mikið með
tilkomu Hörpu. Þá er búist við því að tónleika-
hald í Hörpu muni laða að erlenda ferðamenn.
Loks kemur fram í skýrslunni að tilkoma
Hörpu hefur þegar fjölgað ferðamönnum á
Íslandi. Bókaðar hafa verið 24 ráðstefnur í
Hörpu til ársins 2015. Er gert ráð fyrir að um
14.000 þátttakendur sæki umræddar ráðstefn-
ur, aðallega erlendir gestir. Þá kemur einnig
fram að um 300 erlendir gestir sóttu tónleika
Jonasar Kaufmann í Hörpu í maí. - mþl
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur metið áhrif Hörpu á fjölda ferðamanna:
Tekjurnar gætu numið þremur milljörðum króna
HARPA Þegar hafa verið bókaðar 24 stórar ráðstefnur í
Hörpu til ársins 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjartan Ágúst Pálsson og þeir sex
aðrir nemar sem útskrifast frá Tækni-
skólanum á laugardaginn gera það
sem kjólaskerar en ekki kjólameist-
arar eins og sagði í blaðinu í gær. Til
þess að verða kjólameistarar þurfa
kjólaskerarnir að bæta við sig frekari
þekkingu og fá útgefið meistarabréf
frá lögreglustjóra.
LEIÐRÉTT
Greinin Baráttan við skuldavanda
heimilanna sem birtist í Markaðnum
í gær er eftir Magnús Þorlák Lúðvíks-
son en nafn hans féll niður fyrir hand-
vömm.
HALDIÐ TIL HAGA