Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 69
FIMMTUDAGUR 13. október 2011 45 mini Skipholti 50 C Pöntunarsími: 562 9090 www.pitan.is Ny r og skemm tilegu r va lkostu r 2.990.- 12 mini pítur *Pantanir þurfa að berast fyrir 15:00 daginn áður Nú bjóðum við okkar frábæru pítur sem smárétti fyrir öll stór og smá tilefni. Mini píturnar eru afgreiddar á hentugum bökkum í þremur útfærslum* Klassík: Buff, kjúklingabringa, grænmeti, lamb og beikon Exótík: Sjávarréttir, lax, kalkún-beikon og kebab Mix: Roastbeef, buff, skinka og kjúklingalundir klassí k mix exótí k Björk Guðmundsdóttir hefur fengið frábæra dóma í erlendum fjölmiðlum fyrir nýjustu plötuna sína, Biophilia. Tónlistarvefurinn Gigwise gefur henni fullt hús stiga og segir Björk hafa búið til einstaka plötu sem sé öðruvísi en allar aðrar sem hafi komið út á árinu. Gagnrýnandinn bætir við að lagið Cosmogony sé eitt það fallegasta sem hún hafi nokkru sinn samið. Breska blaðið The Telegraph gefur Bio- philia einnig fullt hús, fimm stjörnur, og segir það koma á óvart hversu aðgengileg og falleg platan sé. Til þess þurfi hún þó tíma og einbeitingu hlustandans. NME frá Bret- landi hleður Björk einnig lofi og gefur plöt- unni 9 af 10 mögulegum í einkunn og það sama gerir Clash Music. David Fricke, blaða- maður bandaríska tímaritsins Rolling Stone, gefur Biophilia fjórar stjörnur af fimm og segir rödd Bjarkar yfirnáttúrulega í lögunum Thunderbolt og Craving Miracles. Tímaritin Mojo og Q splæsa hvort um sig fjórum stjörnum á gripinn og breska blaðið The Guardian er á sama máli og segir gæði tónlistarinnar á Biophilia sýna hversu Björk sé sér á báti og framarlega í samanburði við aðra tónlistarmenn. Gagnrýnandi The Independent í Bretlandi er ekki eins hrifinn og gefur plötunni aðeins tvær stjörnur. Hann segir Björk hafa fjar- lægst rætur sínar með því að blanda marg- miðlun saman við tónlistarsköpun sína. Hér í Fréttablaðinu fékk Biophilia fjórar stjörnur af fimm, þar sem platan var sögð magnað verk sem sýndi að Björk væri ekki hætt leit sinni að nýjum og spennandi hlutum. Fær fullt hús eða fjórar stjörnur FRÁBÆRIR DÓMAR Björk hefur fengið frábæra dóma fyrir nýjustu plötuna sína, Biophilia. Sara Leal, konan sem Ashton Kutcher hélt framhjá Demi Moore með, hefur í fyrsta skipti tjáð sig opinberlega við tímarit- ið US Weekly. Og hún bætir ekki málstað Kutchers. Hún segist nefnilega hafa sofið hjá Kutch- er í tvígang á brúðkaupsafmæli þeirra hjóna og eftir þau nánu kynni á Kutcher að hafa sagt að hann hafi aldrei upplifað slíka til- finningu áður. Sara bætir því við í viðtalinu að hún og Kutcher hafi rætt heims- málin eftir að hafa sofið saman og þar hafi komið upp mál á borð við stjörnufræði, trúmál, ást og stjórnmál. Stúlkan upplýsir jafn- framt í viðtalinu að hún og leik- arinn hafi stundað óvarið kynlíf. Í samtali við The Sun bætir Leal um betur, upplýsir að Kutcher hafi upphaflega gert sér vonir um að sænga með Leal og vin- konu hennar en honum hafi ekki orðið að ósk sinni. Demi Moore er hins vegar byrjuð að ræða við skilnaðarlögfræðinga. Kutcher í klandri Í VONDUM MÁLUM Framhjáhald Ashtons Kutcher er á milli tannanna á fólki vestanhafs um þessar mundir, en ástkona hans hefur nú kjaftað frá. Johnny Depp hefur aldrei farið leynt með þá ósk sína að hann fái hlutverk í kvikmyndaútfærslu sjónvarpsþáttanna 21 Jump Street. Margir hafa haldið því fram að hlutverk Depps yrði hálf- gert feluhlutverk en orðrómur um að leikarinn verði í stórri rullu hefur fengið byr undir báða vængi að undanförnu. 21 Jump Street voru þeir þætt- ir sem gerðu Depp að stjörnu í Bandaríkjunum og leikarinn vill mjög gjarnan launa þeim greið- ann. Jack Johnson, sem leikur eitt aðalhlutverkanna í myndinni, viðurkennir að mikil leynd eigi að hvíla yfir þætti Depps. „En ég get þó lofað því að þetta er meira en bara eitt andartak,“ sagði hann í samtali við sjónvarpsstöðina E!. Depp hefur hins vegar sjálf- ur sagt að aðdá- endur hans gætu átt erfitt með að þekkja hann í hlutverkinu. Johnny Depp snýr aftur DULARFULLUR Mikil leynd hvílir yfir þætti Johnny Depp í kvikmyndinni 21 Jump Street.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.