Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.10.2011, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 13.10.2011, Qupperneq 8
13. október 2011 FIMMTUDAGUR8 Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is Sjálfvirk hjartastuðtæki, örugg og einföld í notkun með íslensku tali. Getur þú bjargað DÓMSMÁL Fulltrúar Eimskips eru nú að skoða stefnu frá Samskipum, sem er löng og mikil, og fara yfir stöðu mála, að sögn Ólafs Williams Hand, upplýsingafulltrúa Eim- skips. Samskip krefjast 3,7 millj- arða króna auk vaxta í skaðabætur vegna samkeppnisbrota Eimskipa- félags Íslands á árunum 1999 til 2002. „Að mínu mati er þetta farsa- kennd, skrýtin stefna og tölurnar eru brjálæðislega háar. Það er ekki á hverjum degi sem við vöknum við að félag er búið að stefna okkur upp á tæpa fjóra milljarða. Það er ekki eitthvað sem maður vill fá með kaffibollanum sínum,“ segir Ólafur. „En við getum lítið sagt um þetta mál annað en það að þetta er há upphæð og mikil stefna sem lögmenn okkar eru að fara yfir.“ Ekki náðist í Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskips, en hann er staddur erlendis. Fulltrúar Samskipa sögðu í til- kynningu að stjórnin hefði ákveð- ið að bætur, sem félaginu kunna að verða greiddar, renni til góðgerða- mála að frádregnum málskostnaði. „Við erum að leggja áherslu á að þetta er prinsippmál að fylgja eftir. Niðurstaðan er ekki aðal- atriðið,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. „Við leggjum inn kvörtun árið 2002 og málið er í vinnslu til 2008. Úrskurður Sam- keppniseftirlitsins er kýrskýr, sem Eimskip gengst við. Og við erum að fylgja því eftir.“ - sv Stjórn Samskipa mun gefa mögulegar skaðabætur til góðgerðamála: Lögmenn Eimskips fara yfir stefnuna Það er ekki á hverjum degi sem við vöknum við að félag er búið að stefna okkur upp á tæpa fjóra milljarða. Það er ekki eitt- hvað sem maður vill fá með kaffibollanum sínum. ÓLAFUR WILLIAM HAND UPPLÝSINGAFULLTRÚI EIMSKIPS DÓMSMÁL „Hann veitir ekki við- tal,“ voru skilaboðin sem starfs- maður Hæstaréttar bar Frétta- blaðinu eftir að það hafði ítrekað falast eftir viðtali við Árna Kol- beinsson hæstaréttardómara. Tilefnið var að leita viðbragða hans við kæru á hendur honum sem borist hefur frá varðstjóra lögreglunnar á Selfossi til emb- ættis ríkissaksóknara. Varðstjór- inn, Svanur Kristinsson, kærir Árna fyrir rangar sakargiftir. Eins og Fréttablaðið greindi frá var Svanur sýknaður í Hér- aðsdómi Suðurlands eftir að Árni hafði kært hann fyrir afglöp í starfi. Til- efni kærunn- ar var að lög- regla h a fði ekið ölvuðum pilti, sem hafði ítrekað ónáðað lögreglumenn, af útihátíðar- svæði í Galta- læk sumarið 2010 og skilið hann eftir. Pilturinn fór heim að sum- arbústað Árna og bankaði þar og sparkaði í hurðir. Árni hringdi í lögreglu, sem sótti piltinn. Svanur varðstjóri var annar tveggja lög- reglumanna sem það gerðu. Þessa tvo lögreglumenn kærði Árni, þar sem þeir hefðu farið frá bústaðn- um án þess að athuga hvort fleiri ofbeldismenn væru á staðnum, rannsaka vettvanginn og líðan þeirra sem þar voru og skilja manninn síðan eftir illa klædd- an að næturlagi á fáförnum vegi. Pilturinn umræddi lagði ekki fram kæru í þessu máli. Fréttavefurinn DV.is hafði eftir Árna, skömmu eftir að fréttin birtist í Fréttablaðinu, að hann teldi kæru Svans alveg fráleita. Árni kvaðst ekki skilja málið, enda hefði kæra hans aldrei beinst að varðstjóranum. Hann hefði aldrei haft nein sam- skipti við hann né hitt hann. Hins vegar hefðu tveir lögregluþjónar komið fram við sig með ákveðnum hætti sumarið 2010 og hefði hann beint kæru sinni að þeim. Eins og fram kemur að framan var Svanur Kristinsson annar þess- ara tveggja lögreglumanna og fór mál gegn honum fyrir dóm, þar sem Árni mætti til skýrslugjafar ásamt fleirum. - jss Engin viðbrögð við kæru varðstjóra í lögreglunni á hendur Árna Kolbeinssyni: Hæstaréttardómari tjáir sig ekki um kæru ÁRNI KOLBEINSSON ALÞINGI Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, kallaði eftir skýrum svör- um um hver raunveruleg staða á milli lánasafns gömlu og nýju bankanna væri. Þá vildi hann fá svör við því af hverju tölur um svigrúm til afskrifta stemmdu ekki og hvernig og hversu hratt afskriftir hefðu skilað sér til heimila og fyrirtækja. Guðlaugur var málshefj- andi í umræðu um málið á Alþingi í gær. Hann sagði áhyggjuefni að gríðarmik- i l l h a g n að - ur bankanna væri fyrst og fremst tilkom- inn vegna end- urmats á lánum sem komu frá gömlu bönkunum. Guðlaugur sagði samfélagið fast í vítahring of mikilla skulda heim- ila og fyrirtækja og því þyrfti að breyta; fyrr færi efnahagslífið ekki af stað. Hann spurði Árna Pál Árnason, efnahags- og við- skiptaráðherra, hvort hann væri tilbúinn til að beita sér fyrir því að óháður aðili færi yfir gögn og gæfi réttar tölur um svigrúm til afskrifta. Árni Páll sagði að vinna væri farin í gang á vegum forsætis- ráðuneytisins til að skýra málið. Tölur gætu verið mismunandi eftir bönkum, en ráðuneytið hefði engar aðrar tölur til að fara eftir en þær sem koma fram í stofn- efnahagsreikningum bankanna. Það þýði afskriftir um 90 millj- arða á heimili og 1.600 milljarða hjá fyrirtækjum. Búið væri að nýta 1.200 milljarða til afskrifta. Margrét Tryggvadóttir var harðorð í ræðu sinni. Hún sagði kreppur einkennast af fjár- magnsflutningum og stjórnvalda væri að sjá til þess að tapið deild- ist jafnt niður. „Þar hefur okkar ágæti ráðherra algjörlega feilað. Ef hann treystir sér ekki til að standa með fólkinu í landinu, þá verður hann að víkja.“ Árni Páll minnti þingmenn á að allar ákvarðanir um afskriftir hefðu verið samþykktar athuga- semdalaust af þingmönnum allra flokka. Þá væru menn enn að kalla eftir leiðréttingu forsendna með aðgerðum sem ljóst væri að yrðu almenningi til stórskaða. „Ég er ekki tilbúinn til að flytja skuldir frá þeim sem stofnuðu til þeirra yfir á eignalaust fólk sem á ekkert nema lífeyrisréttindi sín, það mun ég ekki gera. Ef það er brottfararsök þá vil ég glaður láta samþykkja á mig vantraust.“ kolbeinn@frettabladid.is Svigrúm bankanna til að afskrifa skuldir enn á huldu Þingmenn kölluðu eftir skýrum svörum um svigrúm til afskrifta á skuldum heimila og fyrirtækja. Vinna farin af stað við að samræma upplýsingar. Verðmat lánasafna gömlu bankanna liggur enn ekki fyrir. MÁLSHEFJANDI Guðlaugur Þór Þórðarson sagði hagnað bankanna tilkominn vegna endurreikninga á lánum úr gömlu bönkunum. Sérstakt væri að þau væru talin til tekna í rekstrarreikningum bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÁRNI PÁLL ÁRNASON Þráinn Bertelsson sagði banka og fjármálastofnanir vera samviskulaus fyrirbæri. Þeir hefðu kippt fjár- hagslegu öryggi undan þjóðfélaginu með vitskertri framkomu. „Íslenskur almenningur, skattgreið- endur, beilar út þessa aumingja,“ sagði Þráinn. Hann átaldi nýju bankana fyrir að firra sig ábyrgð. „Nú þegar fólk fer í banka og biður um niður- fellingu lána mætir því maður sem er með sama hárgelið, í sömu jakkafötunum, með sama bindið. En hann segir: Þetta kemur mér ekki við, þetta er nýr banki. Þetta er ástandið í okkar þjóðfélagi. Það hefur engum böndum verið komið á banka- starfsemi í þessu landi. Bankarnir haga sér eins og dýrbítar innan um lömb, nema dýrbítur bítur aðeins þegar hann er svangur. Bankarnir eru alltaf gráðugir.“ Eins og dýrbítar ÞRÁINN BERTELSSON 1 Hvaða Norðurlandaþjóðir hafa tryggt sér sæti í lokakeppni EM í fótbolta? 2 Hvað vill Samskip að Eimskip greiði sér háar skaðabætur vegna samkeppnisbrota? 3 Hvaða bandaríska leikkona skoð- aði Þríhnúkagíga fyrr í vikunni? SVÖR: 1. Danir og Svíar 2. 3,7 milljarða 3. Liv Tyler BÚRMA, AP Herforingjastjórnin í Búrma hóf í gær að láta þúsundir fanga lausa úr fangelsum lands- ins. Jafnframt hefur hún tilkynnt að ritskoðun verði hætt. Þessar breytingar koma á óvart, því herforingjastjórnin hefur áratugum saman ekki þolað neina gagnrýni eða stjórnarand- stöðu. Svo virðist sem Thein Sein, sem tók við stjórn landsins í vor, sé ákveðinn í því að opna umræðuna í landinu og njóti til þess stuðnings félaga sinna í stjórninni. Mikil óvissa er þó enn um það hvort þessar breytingar verði varanlegar eða aðeins tímabund- in tilraun. - gb Breytingar í Búrma: Leysa þúsundir fanga úr haldi EINN FRJÁLSU FANGANNA Gamanleikar- inn Zarganar býst ekki við að frelsið vari lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu stöðvaði kanna- bisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Við hús- leit var lagt hald á rúmlega 130 kannabisplöntur, á ýmsum stig- um ræktunar. Á staðnum var fullkominn bún- aður fyrir starfsemi af þessu tagi en leigjandi íbúðarinnar er erlendur karlmaður á þrítugs- aldri. Eiganda íbúðarinnar var gert viðvart um málið en miklar skemmdir höfðu orðið á húsnæð- inu vegna leka. Að auki var búið að saga gat á gólfið fyrir loft- ræstikerfi. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005. - jss Lögregla stöðvaði ræktun: 130 kannabis- plöntur teknar VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.