Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 21
FIMMTUDAGUR 13. október 2011 21
Opið virka daga frá 9-18
Laugardaga frá 12-16
Brot af því besta á askja.is
Kia cee’d
Verð kr. 2.260.000
kr. 29.290
Verð kr. 1.990.000
Subaru Legacy Lux. 4wd
Verð kr. 990.000
Kia Picanto
Verð kr. 1.990.000
Toyota Yaris
Verð kr. 2.890.000
Toyota Avensis
Verð kr. 1.690.000
Ford Escape
kr. 25.890kr. 25.590
kr. 15.590
kr. 36.990
kr. 26.390
6 ár e
ftir
af áb
yrgð
!
Ekinn
aðei
ns
53.00
0 km
AF NETINU
Eru konur bara svona
vitlausar?
Við gætum nú
alveg hrópað húrra
ef það væru bara
kynjahlutföllin í
fjölmiðlum sem
gefa þá mynd að
heimurinn snúist fyrst og fremst
um karla. En maður þarf ekki að
fletta í gegnum mörg blöð til að
sjá að jafnvel þar sem konur eru
nefndar, eru þær aukapersónur,
óvirkar eða handbendi karla, mun
oftar þolendur en gerendur. Karlar
eru skúrkar, hetjur og álitsgjafar,
konur viljalítil verkfæri í valdatafli,
fórnarlömb og puntudúkkur. Þetta
á sannarlega ekkert bara við um
Fréttablaðið.
norn.is/sapuopera
Eva Hauksdóttir
Negla, negla, kross
Þegar séra Karl var spurður í eftir-
minnilegu Kastljósviðtali hvort
hann tryði frásögnum Guðrúnar
Ebbu Ólafsdóttur vafðist honum
svo kyrfilega tunga um tönn eða
höfuð að seint gleymist. Í þeim
vandræðalega flæmingi tapaði
Karl á tíu sekúndum eða svo
öllu því trausti sem margir vilja
sjálfsagt bera til hans. Ég fæ ekki
séð í fljótu bragði hvernig svartir
stakkar ætla að endurreisa þá tiltrú
nema með því að skipta um poka.
Þegar óþægileg og viðkvæm mál
eru til umræðu er alltaf grunnt á
ósmekklegri kímnigáfu. Fyrirsögn
þessarar færslu varð til á fésbók-
inni í gærkvöldi.
dv.is/blogg/pall-asgeir-asgeirs-
son
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Bankar eru til margra hluta nytsamlegir, mikil ósköp, en
þeir geta jafnframt verið hættu-
legir. Það stafar af því, að stórir
bankar geta umfram flest önnur
fyrirtæki valdið saklausu fólki
skakkaföllum, ef þeim hlekk-
ist á. Bankakreppa getur jafn-
vel valdið efnahagshruni eins
og dæmin sanna. Þess vegna
ríður á, að eignarhaldi banka sé
vel skipað og þeim stjórni hæft
og heiðarlegt fólk. Í mörgum
löndum og einnig á Íslandi gera
lögin sérstakar hæfiskröfur til
eigenda banka og annarra fjár-
málafyrirtækja.
Meirimáttarkennd
Engum stafar hætta af Tösku-
og hanzkabúðinni á Skóla-
vörðustígnum í Reykjavík, en
hún fagnaði fimmtugsafmæli
sínu á dögunum. Slík fyrirtæki
gera öðrum gott og eru yfirleitt
alveg hættulaus. Ef smáfyrir-
tæki hlekkist á eða meðalstóru,
tekur það yfirleitt fáa aðra með
sér í fallinu, það skilur í versta
falli einhverja birgja eftir með
ógreidda reikninga. Aldrei
kæmi til álita, að ríkið kæmi
slíku fyrir tæki til hjálpar eða
þjóðnýtti það, ekki fyrir opnum
tjöldum.
Stórbankar og risafyrirtæki
eru annað mál. General Motors,
framleiðandi Chevrolet-bíla,
er hryggjarstykkið í banda-
rísku efnahagslífi, var löngum
sagt. Af þessu hugarfari spratt
meinleg meirimáttarkennd,
sem varð til þess, að GM dróst
smám saman aftur úr í sam-
keppni við erlenda bílaframleið-
endur og komst á endanum í því-
líkar kröggur, að alríkis stjórnin
í Washington greip til þess
ráðs að þjóðnýta sjálft hryggj-
arstykkið. Kínverjar kímdu.
General Motors var talið vera of
stórt til að falla: það hefði tekið
of marga saklausa vegfarendur
með sér í fallinu. Þjóðnýting GM
var söguleg áminning til Banda-
ríkjamanna og heimsbyggðarinn-
ar um nauðsyn þess að búa vel
um hnútana í blönduðum mark-
aðsbúskap. Almannavaldið þarf
jöfnum höndum að hlúa að einka-
framtaki og veita því aðhald til
að tryggja heilbrigða samkeppni.
Lög og reglur samfélagsins
þurfa að tryggja, að ekkert fyrir-
tæki geti í krafti stærðar sinnar
komizt í aðstöðu til að leggja
fjárhag fjölda fólks í rúst. Þetta
brást í Bandaríkjunum, víða í
Evrópu og einnig hér heima með
alkunnum afleiðingum.
Að vaxa til að vaxa
Skömmu fyrir hrun spurðist ég
fyrir um það í bönkunum þrem
hér heima, hvaða hugsun byggi
að baki örum vexti þeirra. Ég
fékk þau svör, að engin sérstök
hugsun byggi að baki vextinum.
Bankarnir uxu til að vaxa. Miss-
erum saman hafði verið ljóst, að
gjaldeyrisforði Seðlabankans
dugði hvergi nærri til að verja
bankana falli, yrðu þeir uppi-
skroppa með skammtímalánsfé
frá útlöndum. Lausafjárþurrð
blasti því við hvað sem öðru leið,
en hvorki Seðlabankinn né ríkis-
stjórnin höfðu neinn viðbún-
að svo sem Rannsóknarnefnd
Alþingis lýsir í skýrslu sinni.
Seðlabankinn hefði til dæmis
átt að hækka bindiskyldu bank-
anna eins og ég margbenti á hér
í Fréttablaðinu, en Seðlabankinn
ákvað heldur að verða við óskum
bankanna um lægri bindiskyldu.
Rannsóknarnefndin taldi van-
rækslu stjórnvalda svo alvarlegs
eðlis, að kanna þyrfti, hvort þrír
ráðherrar, þrír seðlabankastjór-
ar og forstöðumaður Fjármála-
eftirlitsins hefðu gerzt brotleg-
ir við lög með því að vanrækja
skyldur sínar.
Hraðahindranir
Stemma þarf í lögum stigu fyrir
of örum vexti banka líkt og sjálf-
sagt þykir að lögfesta hámarks-
hraða á vegum. Hugsunin er
hin sama í báðum dæmum: að
vernda saklausa vegfarendur.
Hraðahindranir í bankalög-
gjöf geta verið með ýmsu móti.
Hægt er að halda vexti banka í
skefjum með skattlagningu, bæði
breytilegri skattheimtu af tekjum
og sérstakri skattheimtu af fjár-
málagerningum svo sem nú er
fyrirhugað í Evrópu. Því þarf
trausta eldveggi milli stjórnmála
og bankamála. Vanti slíka veggi,
er hætt við, að skattlagningu
banka sé ábótavant, því að menn
skattleggja helzt ekki vini sína.
Einnig er hægt að leggja kvaðir
á banka um að leggja umframfé
á bundna reikninga í seðlabönk-
um, til að halda aftur af útlána-
vexti, mæta afskriftum og öðrum
áföllum og vernda bankana fyrir
sjálfum sér. Loks er hægt að
reisa eldveggi milli venjulegrar
bankastarfsemi og fjárfestingar-
starfsemi, svo sem ríkisstjórn
Roosevelts leiddi í lög í Banda-
ríkjunum í kreppunni miklu
1933. Þessir eldveggir voru rifnir
niður eftir 1990. Margir telja, að
til þess niðurrifs megi rekja fall
Lehman Brothers 2008 og mikla
erfiðleika margra annarra banka
vestan hafs og austan eftir það.
Aðrir benda á, að í Kanada hafi
aldrei verið talin vera þörf fyrir
slíka eldveggi.
Kanadískum bönkum hefur
aldrei hlekkzt á, að heitið geti,
hvorki í kreppunni 1929-39 né í
hremmingum síðustu ára. Skýr-
ingin virðist vera öflugt fjár-
málaeftirlit.
Bankar og fólk
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Lög og reglur samfélagsins þurfa að
tryggja, að ekkert fyrirtæki geti í krafti
stærðar sinnar komizt í aðstöðu til að
leggja fjárhag fjölda fólks í rúst. Þetta brást í Banda-
ríkjunum, víða í Evrópu og einnig hér heima með
alkunnum afleiðingum.