Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 24
24 13. október 2011 FIMMTUDAGUR ENGIR TVEIR Forsendur meirihluta sveitarstjórnar Voga út úr korti Núverandi meirihluti sveitar-stjórnar Voga hefur byggt afstöðu sína um að háspennu- línur þær sem Landsnet hyggst reisa skuli leggja í jörð að stórum hluta á greinargerð Almennu verkfræðistofunnar (AV) sem gerð var í mars 2008, eins og meðal annars kemur fram í frétt RÚV í kvöldfrétt- um sjónvarps, 11. október sl. Landsnet mótmælti strax á þeim tíma forsendum sem lagðar voru til grundvallar landverði í skýrslu AV og hvernig það var nýtt með margföldunaráhrifum til að lækka kostnaðarmun á milli háspennulína í lofti annars vegar og hins vegar háspenntra jarðstrengja. Hinn 17. októ- ber 2008 gerði sveitarfélagið Vogar tímamótasamkomulag við Landsnet um skipulagsmál er vörðuðu háspennulínur Lands- nets í sveitarfélaginu. Við gerð þess samkomulags voru aðilar sammála um að ekki kæmi til greina að leggja til grundvallar þær forsendur sem AV gaf sér í sinni greinargerð. Greinargerð AV var gerð á þeim tíma þegar verðbóla fast- eigna á suðvesturhorni lands- ins var í hámarki og hefur hún ekki verið endurskoðuð eftir efnahagslegt hrun í október 2008 sem hafði afgerandi áhrif á fasteignaverð til lækkun- ar. Þegar af þessari ástæðu er greinargerðin marklaus þegar kemur að saman burði á kostn- aði framkvæmda við háspennu- línur eða jarðstrengi. Hitt er þó alvarlegra að sú aðferðafræði sem byggt er á í greinargerð- inni stenst ekki skoðun og hefur aldrei gert. Í greinargerð AV er farið yfir nokkrar forsendur Landsnets um fyrirhugaðar háspennulín- ur í landi Voga. Fram kemur að talið sé að stofnkostnaður jarð- strengja sé almennt verulega meiri en loftlína, eða um 2- til 9-falt meiri miðað við sömu rekstrarspennu á bilinu 145-400 kV. Í niðurlagi greinargerðar- innar kemur fram að kostnaðar- samanburður AV á jarðstreng og loftlínu sé í stórum dráttum svipaður og fram kemur hjá Landsneti, að öðru leyti en því að landverð sé ekki tekið með í reikninginn hjá Landsneti. Þetta er ósönn fullyrðing og var leið- réttingu þegar komið á framfæri við AV vorið 2008. Við undirbúning framkvæmda sinna leggur Landsnet ríka áherslu á að meta aðstæður allar, þ.m.t. það verð sem áætla má að sé markaðsverð á fram- kvæmdasvæðinu. Hér er farið eftir hefðbundnum eignarrétt- arreglum en um framkvæmdir Landsnets hafa skapast fordæmi með úrskurðum matsnefnd- ar eignarnámsbóta og dómum Hæstaréttar um afmörkun áhrifa af framkvæmdunum og bætur til landeigenda. Á síðast- liðnum árum hefur Landsnet lokið við framkvæmdir við Sult- artangalínu 3 (sem er 125 km að lengd) og Fljótsdalslínur 3 og 4 (sem eru hvor um sig 52 km að lengd), sem vörðuðu samtals meira en 50 jarðir og rúmlega 10 sveitarfélög. Lauk öllum málum nema þremur með samningum við landeigendur en af þeim þremur sem lauk með úrskurði matsnefndar eignarnámsbóta var einu skotið til Hæstaréttar, þar sem dómur féll Landsneti í vil. Nær hefði verið að AV hefði stuðst við þessa aðferðafræði við ákvörðun á landverði. Í stað þess að miða við sam- bærilegar forsendur um land- verð í sveitarfélaginu Vogum og Landsnet gerir ráð fyrir í sínum áætlunum er í forsendum AV landverð miðað við 500 kr./fm sem upphafsverð (á árinu 2009) eða 5 m. kr. fyrir hvern hektara lands. Í forsendunum er einnig gert ráð að landverð u.þ.b. tólf- faldist á 40 árum, m.a. er gert ráð fyrir 30% hækkun landverðs fyrsta árið og svo fer hlutfallið lækkandi þannig að verðhækk- unin er mjög brött í upphafi, eða sem svarar 150% hækkun land- verðs á fimm árum. Að gefnum þessum forsendum og fleirum er fundið út að núvirtur heildar- kostnaður af loftlínu (verðlag 2008) sé rúmlega 174 m. kr. sam- anborið við tæplega 247 m. kr. fyrir 1 km af jarðstreng. Þannig er fundið út að kostnaðarhlut- fallið sé 1,4 í stað 5-7 sinnum meiri eins og Landsnet hefur bent á. Hvergi hefur hins vegar komið fram að í skýrslu AV er gerður sá fyrirvari að tölur um landverð byggi ekki á raun- verulegu mati og undirstrikuð er mikil óvissa varðandi þróun þess til lengri tíma. Niður- staða AV felur ekki í sér annað sjónarmið í raun en að hlutfall kostnaðar milli framkvæmda við háspennulínu og jarðstreng minnkar eftir því sem landverð er hærra. Það þarf þó að vera mjög hátt ef kostnaðarmunur nemur aðeins 1,4 og auðvelt er að misskilja málið. Þannig fell- ur fréttastofa RÚV í þá gildru í framangreindri frétt sinni að taka framkvæmdakostnað við Suðvesturlínuverkefnið, 27 milljarða króna, og marg- falda þá tölu með stuðlinum 1,4 og þá fást 38 milljarðar króna. Þetta er hins vegar ekki rétt. Háspennulínur eru einungis hluti heildarkostnaðar verkefn- isins, og aðeins sá þáttur er til umræðu hér. Ef áætlanir Lands- nets myndu ganga eftir yrði kostnaðurinn um 27 milljarðar, ef Landsnet legði hins vegar lín- urnar í jörðu yrði þessi kostnað- ur um 73 milljarðar, en ef tekið væri mið af mati AV á landverði myndi verkefnið eins og Lands- net setur það upp með loftlínum kosta um 55 milljarða. Miðað við grunnforsendur AV um verðmæti lands á línuleið- inni væri heildarverðmæti 126 ha. jarðar í Vogum alls rúmlega 630 m. króna. Á tímabilinu 2009- 2013 eykst verðmæti jarðarinn- ar miðað við forsendur AV um alls tæpar 756 m. króna og verð- ur verðmæti hennar eftir tvö ár því alls rúmlega 1,3 milljarð- ar króna. Þess má geta að jörð þessi hefur nú verið auglýst til sölu í tæpt ár án þess að seljast. Ásett verð er 45 milljónir króna. Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur nýverið selt jarðirnar Hvamm og Hvammsvík í Hvalfirði á 155 m. kr. Um 600 ha. lands er að ræða með góðum húsakosti en án jarðhitaréttinda og er sölu- verð um 260.000 kr. per ha. Landsnet býður landeigendum í sveitarfélaginu Vogum hærra verð fyrir landsréttindi vegna háspennulínunnar og hefur þegar náð samkomulagi við bæði sveitarfélag og einstaklinga á svæðinu. Það verð er þó mjög langt frá 5 m. kr. á hektara. Lokaniðurstaðan er þessi: Landsnet mun ekki taka ákvörð- un um að leggja línurnar í jörðu nema Alþingi móti slíka stefnu. Lengri útgáfu þessarar grein- ar má lesa á landsnet.is og sud- vesturlinur.is. Orkumál Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets Landsnet býður landeigendum í sveitar- félaginu Vogum hærra verð fyrir lands- réttindi vegna háspennulínunnar og hefur þegar náð samkomulagi við bæði sveitarfélag og einstaklinga á svæðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.